NT - 24.08.1985, Page 18
24. ágúst 1985 18.
Frá Menntaskólanum við
Hamrahlíð
Innritun nýnema í öldungadeild verður mánu-
daginn 26. ágúst kl. 16-19.
Stöðupróf verða sem hér segir (kl. 17 alla
dagana):
í ensku þriðjudag 27. ágúst,
í þýsku miðvikudag 28. ágúst
í frönsku og spænsku föstudag 30. ágúst.
Stöðupróf í dönsku fellur niður.
Deildarstjórafundur verður miðvikudaginn
28. ágúst kl. 10.
Nýnemar í dagskóla komi fimmtudaginn 29.
ágúst kl. 17.
Kennarafundur verður föstudaginn 30. ágúst
kl. 10.
Skólinn verður settur mánudaginn 2. sept-
ember kl. 10 og stundatöflur afhentar nem-
endum í dagskóla gegn greiðslu 1.000 kr.
innritunargjalds.
Kennsla í dagskóla hefst skv. stundaskrá
þriðjudaginn 3. september.
í öldungadeild hefst kennsla samkvæmt
stundaskrá mánudaginn 2. september.
Rektor.
J.R.J. hf. bifreiðasmiðja
Varmahl íð - Sími 95-6119
Klæðningar í jeppa og fólksbíla.
Klæðningar í fólksflutningabíla.
Yfirbyggingar á:
Zuzuki, Pick-up, Nissan Patrol, Toyota Haylux
og aðra pick-up bíla og jeppa.
Almáianir og skreytingar.
Réttingar, stór tjón fítil tjón.
Vanir menn - vönduð vinna.
ATH. - ATH. - ATH.
Þak-, glugga-, múr- og sprunguviðgerðir.
Háþrýstiþvottur- sílanböðun. Pípulagnir
- viðgerðir - viðhald o.fl.
Nota aðeins viðurkennd efni.
Skoða verkið samdægurs og geri tilboð.
Upplýsingar í síma 64-12-74.
Héraðsmót framsóknarmanna
I V-Skaftafellssýslu verður I Leikskálum í Vík í Mýrdal
laugardaginn 24. ágúst. Ávörp flytja Unnur Stefánsdóttir
fóstra og Stefán Guðmundsson alþingismaður. Félagar úr
Víkurleikflokknum og Kristinn Ágústsson fara með gamanmál.
Hljómsveit Geirmundar Valtýssonar leikur fyrir dansi.
Framsóknarfélögin.
Héraðsmót
framsóknarmanna
í V-Skaftafellssýslu verður í Leikskálum í Vík í Mýrdal
laugardaginn 24. ágúst. Hljómsveit Geirmundar Valtýssonar
leikur fyrir dansi, dagskrá auglýst nánar síðar.
, Framsóknarfélögin
■ Fjöldi erlendra þátttakenda hefur skráð sig í hlaupið og meðal þeirra er Lesley Watson, sem sigraði
í kvennaflokki í fyrra. Hún er einnig heimsmethafi í 50 mflna hlaupi. Myndin hér að ofan sýnir Watson
í hlaupinu í fyrra.
Reykjavíkurmaraþonið:
Mesta hlaup ársins
■ Það verður ekki aðeins stór-
leikur í knattspyrnu á morgun,
heldur verður eitt mesta hlaup
ársins einnig á dagskrá. Hér er
um að ræða Reykjavíkurmara-
þonið sem nú fer fram í annað
sinn.
Það hefst klukkan 10 í fyrra-
málið og geta þátttakendur val-
ið um heilt maraþonhlaup, hálft
eða sjö km hlaup.
í fyrrnefndu tveimur
hlaupunum er hlaupið um eftir-
taldar götur: Fríkirkjuveg,
Skothúsveg, Suðurgötu, Hjarð-
arhaga, Fornhaga, Starhaga
(aðeins á síðari hring hjá mara-
þonhlaupurum), Ægisíðu,
Nesveg, Suðurströnd, Eiðs-
granda, Ánanaust, Mýrargötu,
Tryggvagötu, Kalkofnsveg,
Skúlagötu, Sætún, Kleppsveg,
Elliðavog, Suðurlandsbraut,
Langholtsveg, Laugarásveg,
Sundlaugaveg, Borgartún,
Kringlumýrarbraut, Sóleyjar-
götu og Lækjargötu.
í sjö km hlaupinu liggur leiðin
um eftirtaldar götur: Fríkirkju-
veg, Skothúsveg, Suðurgötu,
Hjarðarhaga, Fornhaga, Ægi-
síðu, Nesveg, Suðurströnd,
Eiðsgranda, Ánanaust, Mýrar-
götu, Tryggvagötu, Kalkofns-
veg og Lækjargötu.
Reykvíkingar og aðrir í höf-
uðborginni eru eindregið hvattir
til að fara út á göturnar og
hvetja keppendur, einkanlega
er vonast til þess að áhorfendur
láti vel í sér heyra þegar hlaup-
ararnir skeiða lokasprettinn.
Bþróttir
Holl ráð
■ Hér á eftir fylgja nokk-
ur holl ráð varðandi hlaup-
ið. Hitið upp með léttu
skokki og teygjum í 15-20
mínútur fyrir hlaupið. Far-
ið rólega af stað í fyrstu,
einkanlega ef þið eruð ekki
vön að hlaupa svona löng
hlaup. Athugið að þægi-
legra er að hlaupa í hópi en
einn. Takið mið af hlaupa-
lengdinni og vindi þegar
þið reiknið út hraðaáætlun.
Ef hiti er 10-15 stig þá
þarf ekki að drekka mikið.
Drekkið frekar oft en mik-
ið í einu. Blandaðir drykkir
geta verið varhugaverðir,
alltént er oft minni hætta á
hlaupasting sé vatn notað í
stað annarra vökva. Reyn-
ið ekki að drekka á hlaupum
ef þið getið það ekki, þá er
betra að stoppa.
Þegar hlaupinu lýkur
ættu keppendur að notfæra
sér þá þjónustu sem býðst
við markið. Haldið ykkur
heitum meðan þið leitið að
utanyfirfötunum, t.d. með
því að vefja utan um ykkur
teppi. Fáið ykkur súpu eða
heitan drykk.
Munið svo að skokka
daginn eftir, það er nauð-
synlegt þótt sársaukafullt
geti það vitanlega verið,
þar sem allir vöðvar verða
líklega mjög stífir.
Reykjavíkur
Maraþon
25. Ágúst 1985
Háltmaraþon: Einn hringur.
Maraþon: Tveir hringir.
.....(punktalina) Maraþonhlauparar eingongu (á seinni hring).
O: Drykkiarstöóvar
Haltmarathon: One lap.
Marathon Two laps
N B - - Dotted Ime: Second lap m lull marathon
D Refreshment stations
■ Kortið sýnir þá leið sem hlaupin verður í hlaupunum þremur.
Grand Prix leikarnir í Vestur-Berlín:
Heimsmet í 1500 metrunum
- Said Aquita hljóp á 3:29,45 og bætti met Cram um 0,22 sek.
■ Marokkómaðurinn Said
Aquita setti í gærkvöldi nýtt
heimsmet í 1500 m hlaupi á
Grand Prix frjálsíþróttamóti í
Vestur-Berlín. Hann hljóp á
3:29,45 mín. og bætti met Steve
Cram um 22 hundraðshluta.
Englendingurinn setti met sitt í
síðasta mánuði.
Þetta var annað heimsmet
Aquita á innan við mánuði,
hann setti nýtt met í 5000 m
hlaupi í Osló fyrir stuttu.
Aquita naut aðstoðar tveggja
héra í hlaupinu í gærkvöldi.
Vestur-Þjóðverjinn Volker
Blumenthal keyrði upp hraðann
fyrstu 800 metrana hljóp þá á
1:53,50 og í þriðja hringnum sá
írinn Frank O’Mara um að
halda uppi góðum hraða.
O’Mara hljóp hringinn á 55
sekúndum. Þá var röðin komin
að Marokkómanninum og hann
kom í mark nær þremur og
hálfri sekúndu á undan Sydney
Maree, Bandaríkjunum. Pierre
Deleze, Sviss, varð þriðji á
3:33,04 mín.
Aquita var nærri því að setja
met á Grand Prix leikunum í
Zúrich á miðvikudag. Þá hljóp
hann míluna á 3:46,92, aðeins
0,61 sekúndu frá heimsmeti
Cram.
Árangur Aquita var sá lang-
besti á mótinu í Vestur-Berlín.
Petra Felke, A-Þýskalandi, sigr-
aði í spjótkastinu með kast upp
á 74,56 m, tæpum metra stytttra
en heimsmet sitt.
Valerie Brisco-Hooks, sem
sigraði í 100 og 200 metrunum í
Sviss, vann nú í 400 m hlaupi.
Tími hennar var 49,65 sek.
í 100 m hlaupi sigraði Marian
Woronon, Póllandi, á 10,20 og
Steffen Bringhmann, A-Þýska-
landi, varð annar á 10,22 sek.
Desai Williams, Kanada, þriðji
á 10,33 sek.
Naumt hjá Islandi
■ fslan'd sigraði Færeyjar son skoraði markið á síðustu
1-0 í unglingalandsleik í' mínútumleiksins,hörkuskot
kriattspyrnu í Þórshöfn í eftir góða fyrirgjöf Ólafs
gærkvöldi. Páll Guðmunds- Kristjánssonar.