Lesbók Morgunblaðsins - 06.11.2004, Síða 2

Lesbók Morgunblaðsins - 06.11.2004, Síða 2
2 | Lesbók Morgunblaðsins ˜ 6. nóvember 2004 ! Ég get seint talið mig í hópi aðdá- enda amerísks lífsstíls og menn- ingar. Kann vel við Bandaríkja- menn sem ég þekki, drekk kók og les bókmenntir þeirra, en er eins og flestir sennilega haldin smáfor- dómum í garð „raunveruleikasjón- varpsmenningar“ þeirra. Finnst það sem við sjáum sem þeirra lífsstíl oft á tíðum yfirborðskennt. Ég var í Seattle í viðskiptaerindum í síð- ustu viku. Ferðin byrjaði nú ekki glæsilega hjá mér. Eftir að hafa innritað mig í flug, skoðað mig um í fríhöfninni og farið í gegn- um vegabréfsskoðun var ég stöðvuð af starfskonu Flugleiða sem var að athuga brottfararspjöld og vegabréf við inngang í flugvélina. Og viti menn! Vegabréfið mitt er ekki tölvulesanlegt og það átti að banna fólki að ferðast til Bandaríkjanna með svona ferðaskilríki eftir tvo daga. Konan var ansi hneyksluð og leyndi ekki undr- un sinni á ábyrgð- arleysi mínu. Hélt þvílíka ræðu yfir okkur öll farþegagreyin. Þetta var nóg til að stressa mig þannig að ég gat ekki slappað af alla sex klukkutím- ana í vélinni yfir hafið. Ég var ekki einu sinni í skapi til að dást af vesturströnd Grænlands sem mér finnst alveg æðisleg, líkt og stækkað Ísland. Ætla Ameríkanar að senda mig til baka með látum? Hvernig stóð á því að ég hef misst af tilkynningum um nýjar reglur, ég sem les allt og fylgist með öllu? Komið var til Minneapolis og ég fór taugaóstyrk í áttina að vegabréfs- skoðun. Eftir viðbrögð konunnar í Keflavík var ég búin undir enn meiri skammir. Auk þess bið ég lesendur að hafa í huga að áður en ég varð íslenskur ríkisborgari ferðaðist ég um heiminn með júgóslavneskt vega- bréf, og það hefur sjaldan verið skemmti- leg reynsla, að þurfa að útskýra fyrir lög- reglumönnum hvað í ósköpunum ég vildi gera í landinu þeirra. Allavega, röðin kem- ur að mér eftir að allir Íslendingar á undan mér reyndust vera með gömul vegabréf en náðu að sleppa inn í landið. Og nú kemur að fyrsta samanburði milli Íslendinga og Am- eríkana sem ég ætla að gera og er Amerík- önum í hag. Amerískur lögreglumaður hafði fullan skilning á því að ég notaði ennþá gamalt vegabréf og var alveg til í að leyfa mér að komast inn. Sagði meira að segja að ég þyrfti ekki að fjárfesta í nýju vegabréfi strax, nóg væri að fá mér tölvu- lesanlega vegabréfsáritun. Áfram hélt ég til Seattle. Ég leigði bíl með þessu frábæra „never-lost“ staðsetn- ingartæki, sem undir minni stjórn breyttist fljótlega í „ever-lost“ tæki. Ég var í tómum vandræðum að fara eftir fyrirmælum tölvukvennmannsraddarinnar fyrstu tím- ana. Ég beygði á röngum stöðum, stöðvaði á miðjum þjóðveginum og var ansi óörugg til að byrja með, sem gerist alltaf þegar ég er að keyra á nýjum stað. Og aftur sýndu Ameríkanar mér meiri skilning en ég átti von á. Hleyptu mér inn á akrein, biðu eftir mér á meðan ég var að átta mig á því hvort ég vildi keyra áfram eða ekki. Ég get rétt ímyndað mér viðbrögð manna á Miklu- brautinni kl. 17.00 á virkum degi ef ég reyndi allt í einu að skipta um akrein á fullri ferð og troða mér fyrir framan Jón á jeppanum. Í sumar var keyrt aftan á mig þegar ég hægði aðeins á mér á hringtorgi hér í bæ! Samstarfsmenn mínir á skrifstof- unni í Seattle voru eins og vanalega mjög vingjarnlegir og hjálpsamir. Í umræðum yfir kaffi var sagt að Bill Gates og fé- lagarnir hans í Microsoft græddu svo mikið að þeir dældu á hverju ári stórum peningaupphæðum í skólana í öllu ríkinu og menntakerfið blómstraði því þar. Betra en að borga allt í skattana og auk þess telja þeir sig hafa samfélagslega skyldu til þess að styðja og styrkja menntakerfið. Í ljósi þess að börnin mín sátu iðjulaus í sex vikur heima var þetta eins og að strá salti í sárin. Eftir þessa ferð og allan samanburð sem reyndist jákvæðari í garð Bandaríkjanna en ég átti von á hef ég lofað sjálfri mér að horfa á þá með opnara hugarfari en áður. Okkur veitir ekki af að taka þá til fyrir- myndar. Ekki bara í Rambó-leikjum frið- argæsluliða heldur líka í almennri kurteisi og framkomu gagnvart fólki í kringum okkur. Bill Gates getum við tekið til fyrir- myndar. Við gætum stungið upp á því við t.d. forstjóra olíufélaganna hér á landi að gefa hluta af sínum tekjum í skólakerfið. Þeir gætu e.t.v. ákveðið sameiginlega verðskrá um framlög sín. Ísland – Ameríka Eftir Tatjönu Latinovic tlatinovic@ossur.com Ég borga þrjátíukall sænskar fyrirþað merkilega tímarit Faktum semgefið er út hér í Gautaborg. Blaðiðer málgagn heimilislausra í borg- inni sem selja það sjálfir á götum úti og fá fimmtán krónur í eigin vasa fyrir stykkið. Faktum átti í erfiðleikum í sumar og það var óljóst hvort hægt yrði að halda útgáfunni áfram. Systurblaðið í Stokkhólmi, Situation, hefur átt í svipuðum vandræðum en nú er búið að stofna hlutafélag um það og tryggja útgáfu þess áfram. Faktum lifir á styrkjum og auglýs- ingum, auk þessara króna frá lesendunum. Margir hafa spurt af hverju heimilislausir þurfi málgagn, væri ekki nær að nota peningana sem fara í útgáfu og prentun í húsnæði fyrir þá? En það myndi nefnilega ekki duga til fram- tíðar. Faktum verður að vera til á meðan heim- ilisleysi er til. Heimilisleysi er til í Gautaborg eins og annars staðar í heiminum. Faktum er til m.a. til þess að þeir heimilislausu séu sýni- legir og þeir gleymist ekki. Stærsta markmiðið er þó auðvitað að útrýma heimilisleysi, því allir hafa jú rétt á að eiga heimili, hvort sem er í Sví- þjóð, á Íslandi eða annars staðar. Það eru mannréttindi. Í sumar var heimsmeistaramót heim- ilislausra í fótbolta haldið hér í Gautaborg. Ég hélt fyrst að þetta væri grín. Var ekki vön því að heimilislausir væru svo áberandi í samfélag- inu og væru viðurkenndir með eigin knatt- spyrnukeppni og eigið tímarit. Hafði þó heyrt í heimilislausum Íslendingum fyrr á árinu og sagt sögur tveggja í Tímariti Morgunblaðsins. Þar eru minnisstæð nokkur „komment“ í þessu sambandi: „Við megum ekki hafa það of gott.“ „Er ég eitthvað verri maður þótt ég sé alki?“ „Við höfum sömu mannréttindi og aðrir þó svo að við drekkum.“ „Við erum engir asnar þótt við séum fyllibyttur.“ Þarna vísaði viðmælandinn m.a. til þess út- breidda viðhorfs að heimilisleysi sé ástand sem fólk velur sér af aumingjaskap, hinir heim- ilislausu þurfi að læra sína lexíu og halda sér til hlés svo þeir trufli ekki daglegt líf hins al- menna borgara í samfélaginu. Faktum lýsir staðreyndum gegn fordómum. Faktum er litríkt tímarit með stuttum og löngum greinum, stórum ljósmyndum og teikningum. Það er lesvænt og vel skrifað en þar vinna tveir blaðamenn og ljósmyndari auk ritstjóra. Í blaðinu hefur t.d. verið fjallað um fótboltakeppnina sem ég held að Pólland hafi unnið á endanum, birt viðtöl við seljendur Faktum og úttektir eins og á því af hverju farið var að læsa dyrum stærstu verslunarmið- stöðvar Gautaborgar á nóttunni nú rétt í vetr- arbyrjun. Í blaðinu birtast líka litlir rammar t.d. með ummælum stjórnmálamanna um heimilisleysi, tilkynningar um tónleika og fleira. Í síðasta blaði var opna með myndum af innihaldi úr vösum nokkurra heimilislausra, stundum aleigu þeirra: Sígarettur, penni, greiða, sprauta, sími, túrtappar, passi. Til að halda stjórnmálamönnum við efnið og gleyma ekki þeim sem minnst mega sín í sam- félaginu er blað eins og þetta mikilvægt. Það er gott að geta styrkt þá með því að kaupa Fakt- um, en það er bara ekki nóg. Hvað með íslenskt Faktum og íslenskt fótboltalið heimilislausra? Staðreyndir gegn fordómum Fjölmiðlar Eftir Steingerði Ólafsdóttur steingerdur@mbl.is ’Í sumar var heimsmeistaramót heimilislausra í fót-bolta haldið hér í Gautaborg. Ég hélt fyrst að þetta væri grín. Var ekki vön því að heimilislausir væru svo áber- andi í samfélaginu og væru viðurkenndir með eigin knattspyrnukeppni og eigið tímarit. ‘ I Hversu mikinn þátt taka listamenn ogfræðimenn á sviði mannvísinda í skoð- anamyndun samfélagsins? Er hægt að segja að þessir tveir hópar eigi í samræðu við til dæmis stjórnmálamenn og fjölmiðla um grundvallarspurningar í þjóðlífinu? Taka þeir jafn mikinn þátt og til dæmis lögfræð- ingar? Eiga þeir ef til vill ekki jafn greiðan aðgang að umræðunni og lögfræðingar? Tala listamennn og fræði- menn kannski með þeim hætti að þeir séu vart viðræðuhæfir? Er kannski erfitt að bregðast með röklegum hætti við tákna- hrúgum og kenningahröngli þessa fólks? II Sigfús Bjartmarsson skáld lýsir þeirriskoðun sinni í viðtali í Lesbók í dag að nú kalli margt á það að bókmenntirnar taki virkari þátt í skoðanamyndun og umræðu. Reyndar finnst honum að fræðimenn í húm- anískum greinum mættu einnig láta meira í sér heyra. „En þeim finnst það kannski hægara sagt en gert. Sérhæfingin hefur náttúrlega fjarlægt fræðin og þeirra vit frá fólkinu. Almenningur skilur ekki einu sinni tungumálið. Og margur virðist annað hvort ekki nenna eða geta einfaldlega ekki brúað bilið. Ef það er eitthvað til í því að skáldin yrki aðallega hvert fyrir annað þá gildir það um margan fræðimanninn líka.“ III Það er varla hægt að horfa fram hjáþví að samfélagsumræðan fer fram á ólíkum plönum – örugglega fleirum en þeim tveimur sem hér hafa verið nefnd – sem lítt eða ekkert snertast. Það er mjög sjaldgæft að til að mynda bókmenntaverk, kvikmynd, leikverk, hvað þá myndlist verði tilefni til umræðna um samfélagsmál – menntun, atvinnumál, siðferði, réttlæti, hugmyndafræði – á hinum pólitíska vett- vangi, á Alþingi, í leiðurum dagblaðanna eða jafnvel í hinni endalausu umræðu fjöl- miðlanna í spjallþáttum, fréttatengdum þáttum eða aðsendum greinum. Ástæðan getur að hluta til verið sú að fá listaverk nú um stundir fjalli um samfélagsmál eða hug- myndafræði. Ástæðan getur verið sú að fræðimenn hafi talað sig út í horn. Ástæðan kann einnig að vera sú að þeir sem fyrst og fremst taka þátt í opinberri umræðu líti svo á að það sem listamenn eða fræðimenn geri komi málunum lítið við. Enn ein ástæðan getur verið sú að orðræðuhættir – talsmáti, hugtakakerfi, vísanakerfi, menn- ing – annars vegar stjórnmálamanna og annarra sem mest ber á í hinni daglegu umræðu og hins vegar listamanna og fræði- manna séu svo ólíkir að sífellt sé talað í kross. IV Lesbók hefur í dag umfjöllun umbókavertíð haustsins. Að vanda er gríðarlegur fjöldi bóka að koma út. Kannski mætti í tilefni af þessu varpa einni spurningu út í þjóðmálaumræðuna: Hvaða máli skipta bókmenntir í íslensku sam- félagi? Neðanmáls Píanóleikarinn, eftir Szpilman, staðfestir þó enn og aftur að fátt er jafnáhrifamikið og sjónarhorn þess sem upplifði þessa, að því er stundumvirðist, gjörsamlega ósegjanlegu grimmd. Bókin er óvenjuleg að ýmsu leyti, og þá einkum fyrir þá sök að hún er skrifuð mjög stuttu eftir atburðina. (Þetta er líka einkenni á bók Leifs Mullers, Í fangabúðum nasista eins og Álfrún Gunnlaugsdóttir bendir á í grein sinni í Ritinu (2003:3)). Verkið hefur því mörg einkenni dagbókar – frekar en endurlit til löngu liðinnar tíðar. Bókin er svo að segja algjörlega takmörkuð við stríðsárin, lítið er fjallað um lífið á undan, en í svona verkum er oft lýst fjölskyldu- og hversdagslífi sem síðan er eytt í stríðinu og ekkert stendur eftir af í lokin. Hjá Szpilman er það frekar í athugasemdum í framhjáhlaupi sem veitt er skyndileg innsýn í heiminn sem er að hrynja, og eyk- ur það enn á óhugnað frásagnarinnar. Einnig er þetta ólíkt bók Leifs Mullers, og flestra þekktustu rita gyðinga frá seinni heimsstyrjöldinni, ekki um fanga- búðavist, heldur um það að lifa í felum. Gunnþórunn Guðmundsdóttir Kristín Eiríksdóttir og Þórdís Björnsdóttir Hér eru ekki endilega nein meistaraverk á ferðinni, en í báðum tilfellum er auð- finnanlegur einhver ferskleiki sem birtist í myndmáli og nálgunarleiðum á kunnugleg fyrirbæri, hér er eitthvað nýtt, eitthvað skemmtilegt. Úlfhildur Dagsdóttir Furðulegt háttalag hunds um nótt List Haddons í þessu verki felst m.a. í því að smita lesandann smám saman af einstrengingslegri sýn Kristófers, sérviskum hans, nákvæmni og þörf fyrir að koma skikk á óreglulega tilveruna. Þetta gerir líka enn áþreifanlegri örvænt- ingu hans og hræðslu þegar heimurinn verður óviðráðanlegur, hvort sem það er í ofáreiti stórborgarinnar eða andspænis flóknum tilfinningum nákominna. Og það hafa 3 menn og 1 kona, 4 bláir bílar og 2 silfurlitir, að ógleymdum 1 brúnum hundi (lifandi), farið framhjá glugganum mínum síðasta klukkutímann. Gunnþórunn Guðmundsdóttir Eiríkur Örn Norðdahl og Kristian Guttesen En þrátt fyrir allt, líkt og Kristian nær að fanga athyglina með einföldum myndum nær Eiríkur að grípa með öllum látunum, það er einhver keyrsla þarna sem ekki er annað hægt en að fylgja eftir. Úlfhildur Dagsdóttir Bókmenntavefurinn | www.bokmenntir.is Um jólabækurnar Morgunblaðið/Golli „Menningin vex í lundi nýrra skóga.“ Lesbók Morgunblaðsins Kringlunni 1, 103 Reykjavík, sími 5691100, Útgefandi Árvakur hf. Umsjón Þröstur Helgason, throstur@mbl.is Auglýsingar sími 5691111 netfang augl@mbl.is Bréfsími 5691110 Prentun Prentsmiðja Árvakurs hf.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.