Morgunblaðið - 21.12.2003, Síða 34
34 | 21.12.2003
Í Design Museum í London stendur nú yfir athyglisverð sýning áöllu því besta sem fram á sjónarsviðið hefur komið í evrópskrihönnun undanfarin tvö ár. Sýningin er sú fyrsta sinnar tegundar
en stefnt er að því að hún verði gerð að reglulegum viðburði annað
hvert ár.
Verk eftir 136 hönnuði og listamenn í 19 löndum víðsvegar um Evr-
ópu hafa verið valin til sýningar, þ.á m. verk eftir hönnuðina Katrínu
Pétursdóttur og Michael Young. Á sýningunni má sjá verk af öllum
sviðum hönnunar; frá Rolls Royce-þotuhreyfli til brúðarkjóla og frí-
merkja, en saman eru komnir undir einu þaki jafnt heimsþekktir hönn-
uðir sem nýútskrifaðir listnemar.
Gott og slæmt, best og verst Notagildi, útlit, tækni-
leg útfærsla og umhverfissjónarmið voru meðal þeirra
fjölmörgu þátta sem við var stuðst við val verkanna.
Gestir eru samt sem áður hvattir til þess að velta fyrir
sér hugmyndum um „góða“ og „slæma“ hönnun og er
boðið að taka þátt í kosningu á „besta“ og „versta“
verkinu í sýningunni. Til að hvetja gesti ennfremur til
umhugsunar eru þeir beðnir að útskýra hvers vegna
þeir velji tiltekin verk.
Eitt eftirtektarverðasta verk sýningarinnar, og jafn-
framt eitt hið dýrasta, eru þrjár stórar kristalsljósa-
krónur gerðar úr Swarovski-kristal og hannaðar fyrir
Crystal Palace í London, en hver þeirra er margra
milljóna króna virði.
Einnig má sjá íburðarmikinn brúðarkjól hannaðan
af franska fatahönnuðinum Jean Paul Gaultier sem kostar margar milljónir ís-
lenskra króna.
Ekki hafa öll verk sýningarinnar þó notagildi en hafa þess í stað einfaldlega
verið valin því þau fá fólk til að hlæja. Sem dæmi um það er refsskott með sams-
konar tengil og tölvumótald sem stinga má „í samband“ í tölvu eða vegg. Fram
kemur að gott sé að strjúka skottið í vinnutíma enda muni það hafa róandi áhrif
á viðkomandi.
Rolls Royce-þotuhreyfillinn er dýrasta og umfangsmesta verk sýningarinnar,
en hönnun hans tengjast hundruð hönnuða og verkfræðinga. Hreyfillinn er
hannaður fyrir nýja kynslóð risafarþegaþotna, hina tveggja hæða Airbus A340-
600, sem taka mun fleiri farþega og fljúga lengra en nokkrar farþegaþotur til
þessa. Einnig má sjá flugvélasæti sem breyta má í rúm og verða í boði fyrir far-
þega á fyrsta farrými í risaþotunum.
Blómamynstur í ýmsum útfærslum Alls voru þrjú verk eftir hollenska hönnuð-
inn Tord Boontje valin á sýninguna. Eitt þeirra er blómamynstur á vegg, gert úr
hundruðum örsmárra Swarovski-kristalla, annað er kristalsljósakróna sem sömu-
leiðis er gerð úr Swarovski-kristal en einnig ljósleiðurum. Hið þriðja er samsetn-
ing um 50 eintaka af Garland-ljósakrónunni sem Boontje hannaði fyrir Habitat
og hlaut svo miklar vinsældir að verslunin varð að takmarka sölu hennar við
þrjú stykki á hvern viðskiptavin. Hún er afskaplega einföld; ljósapera í per-
ustæði umlukt fíngerðum, gylltum málmi sem skorið hefur verið í blómamynstur
með leysigeisla. Verkin þrjú bera sterkan keim hvert af öðru og byggjast á sama
blómamynstrinu þótt mismunandi efni séu notuð.
Verk Katrínar Pétursdóttur á sýningunni kallast „tré“ og er fatahengi sem er í
laginu eins og tré sem skorið hefur verið út í tvívídd í hvítt plast. Michael
Young á tvö verk á sýningunni, annars vegar litríkt barnahúsgagnasett úr plasti
og hins vegar plastbakka með stálfótum sem nota má til þess að bera fram og
snæða morgunverð í rúminu og kallast „náttborð“. Bakkinn er jafnframt til sölu
í verslun safnsins ásamt öðrum sérútvöldum hlutum sem þykja bera merki um
snilldarhönnun.
Sýningin hefur verið nefnd „Somewhere Totally Else – The European Design
Show“ eða Einhvers staðar allt öðruvísi – Evrópska hönnunarsýningin, sem er
tilvísun í titil á grein eftir hönnunargagnrýnandann Reyner Banham og birt var
árið 1968.
Design Museum er á suðurbakka Thames, austan við Tower Bridge. Næsta neðanjarðarlestarstöð er London
Bridge og þaðan er um 15 mínútna gangur í safnið. Design Museum, Shad Thames, London SE1 2YD
| www.designmuseum.org.
HÖNNUN | SIGRÍÐUR DÖGG AUÐUNSDÓTTIR
RJÓMINN AF
EVRÓPSKRI HÖNNUN
L
jó
sm
yn
di
r:
G
ol
li
Ekki hafa öll verk
sýningarinnar þó notagildi
en hafa þess í stað
einfaldlega verið valin því
þau fá fólk til að hlæja