Morgunblaðið - 06.09.2004, Side 1
STOFNAÐ 1913 242. TBL. 92. ÁRG. MÁNUDAGUR 6. SEPTEMBER 2004 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is
N
O
N
N
I
O
G
M
A
N
N
I
Y
D
D
A
/
S
IA
.I
S
/
N
M
1
3
3
3
5
fiÚ fiARFT EKKI
A‹ HAFA ÁHYGGJUR
AF fiVÍ A‹ VEXTIRNIR
HÆKKI NÆSTU
40 ÁRIN
KB ÍBÚ‹ALÁN
– kraftur til flín!
Vaskir
víkingar
Bitið í skjaldarrendur á víkinga-
hátíð í austurbænum | Daglegt líf
Fasteignir | „Veggjakrot“ í svefnherberginu Skil leiguhús-
næðis Íþróttir | Tíu leikmenn fóru veikir til Búdapest
Spenna og titringur á Hellu Eriksson hangir á bláþræði
Fasteignir og Íþróttir í dag
„HANN er ótrúlegur.“ „Þetta er alveg hreint
magnað.“ „Hugsið ykkur, áttatíu og fjögurra ára
gamall,“ hvísluðu meðlimir ónefnds karlakórs sín
á milli þegar Guðmundur Jónsson, óperusöngv-
ari, kom sér fyrir á sviði Langholtskirkju á af-
mælis- og kveðjutónleikum Guðfreðs Hjörvars
Jóhannssonar, í gærkvöldi. Guðfreður lætur nú af
störfum eftir sjö ára þjónustu við kirkjuna en
hann hefur sjálfur lagt stund á söng og meðal
annars fengið leiðsögn frá Guðmundi Jónssyni.
Guðmundur tók því vel í bón hans um að syngja
á tónleikunum í gær en hann hefur ekki sungið
opinberlega í fjórtán ár að undanskildum nokkr-
um jarðarförum.
Það er þó fjarri því að hann hafi láti söng eiga
sig, því ásamt því að syngja sjálfur kennir hann
enn mörgum nemendum.
Það fór kliður um þéttsetinn salinn þegar Guð-
mundur kom sér fyrir á sviðinu. Hann ýtti göngu-
grindinni til hliðar, rétti úr sér og söng Lofsöng
Beethovens svo gæsahúð fór eflaust um fleiri en
blaðamann. Í lokin dæsti hann og greip aftur í
göngugrindina en áheyrendur stóðu upp og fögn-
uðu ákaft og lengi.
Guðmundur Jónsson, 84 ára, söng á tónleikum í Langholtskirkju
Áheyrendur
stóðu upp
og fögnuðu
Morgunblaðið/Golli
Guðmundur syngur Lofsöng Beethovens. Hjá honum stendur afmælisbarnið Guðfreður Hjörvar.
ÍBÚAR Beslan í Norður-Ossetíu
jarðsettu í gær börn, foreldra og
kennara sem létu lífið í skóla bæj-
arins eftir að hryðjuverkamenn tóku
þar um þúsund manns í gíslingu.
Íbúar Beslan grófu grafir á túni,
sem er á stærð við knattspyrnuvöll,
við kirkjugarð bæjarins.
Tugir bæjarbúa lögðu blóm og
vatnsflöskur úr plasti við íþróttahús
skólans þar sem fólkinu var haldið í
gíslingu. Vatnsflöskurnar áttu að
minna á að börnunum var meinað um
mat og vatn í nær þrjá daga í mikilli
hitasvækju í byggingunni.
Ákærður fyrir þátttöku
í gíslatökunni
Mikil reiði er meðal íbúa bæjarins
vegna framgöngu rússneskra yfir-
valda í málinu. Einn þeirra, Aslanb-
ek Badtíjev, 38 ára fyrrverandi lög-
reglumaður, sagði að hryðjuverka-
mennirnir hefðu getað smyglað
vopnum inn í Norður-Ossetíu vegna
spillingar lögreglumanna og landa-
mæravarða. Hann sagði þá nær alla
þiggja mútur og þeir sem gerðu það
ekki væru reknir.
„Ef yfirvöld hefðu gert skyldu
sína hefði þetta ekki gerst,“ sagði
Badtíjev. Hann bætti við að fólk
kæmist ekki einu sinni með kassa af
tómötum í gegnum varðstöðvar lög-
reglunnar án þess að þurfa að greiða
mútur. „Hvers vegna gátu hryðju-
verkamennirnir smyglað hingað
vopnum úr því að lögreglan skoðar
tómatakassana tuttugu sinnum?“
Sergej Frídínskí, aðstoðarríkis-
saksóknari Rússlands, sagði í gær að
30 hryðjuverkamenn hefðu fallið í
átökum við sérsveitarmenn á föstu-
dag. Þrír hefðu verið handteknir
vegna málsins og einn þeirra yrði
ákærður fyrir að hafa tekið þátt í
gíslatökunni.
Aðstoðarríkissaksóknarinn vildi
ekki greina frá nafni og þjóðerni
mannsins.
Enn var óljóst í gær hversu marg-
ir biðu bana í hildarleiknum í skól-
anum. Embættismenn sögðu að 324–
340 hefðu látið lífið en starfsmaður
líkhúss í bænum sagði að þangað
hefðu þegar verið flutt 394 lík.
Óstaðfestar fregnir hermdu að um
180 til viðbótar væri enn saknað.
AP
Ættingjar tveggja systra, sem létu lífið í skólanum í Beslan, við líkkistur þeirra áður en þær voru jarðsettar í gær.
Mikil reiði í Beslan í garð
rússneskra yfirvalda
Fórnarlömb
gíslatökunnar í
Norður-Ossetíu
borin til grafar
Pútín lofar/14
AP
Rússneskir lögreglumenn færa
meintan gíslatökumann í fangelsi.
FLOKKUR þýskra jafnaðarmanna,
undir forystu Gerhards Schröders
kanslara, galt mikið afhroð í kosn-
ingum til þings
sambandslands-
ins Saarlands í
gær.
Kjörfylgi
flokksins minnk-
aði um þriðjung,
úr 44,4% í aðeins
30,8%. Er þetta
minnsta fylgi sem
flokkurinn hefur
fengið í Saarlandi
í rúma fjóra áratugi, eða frá 1960.
Ósigurinn er einkum rakinn til
umdeildra áforma Schröders um að
gerbreyta atvinnuleysisbótakerfinu.
Kristilegir demókratar juku fylgi
sitt um tvö prósentustig í 47,5% og
fengu meirihluta sætanna á þingi
Saarlands, 27 af 51.
Flokkur
Schröders
galt afhroð
Berlín. AFP.
Gerhard Schröder
SÆNSKUR vélvirki kvaðst í gær
ekki ætla að greiða stöðumælasekt
sem hann hefur fengið fyrir að hafa
lagt snjóbíl sínum ólöglega í enska
bænum Warwick í sumar.
Vélvirkinn Krister Nylander í
bænum Bollstrabruk í Norður-
Svíþjóð kvaðst hafa orðið furðu
lostinn þegar hann fékk kröfu um
greiðslu sektar að andvirði 12.000
íslenskra króna frá fyrirtækinu
Euro Parking Collection sem ann-
ast innheimtu breskra stöðumæla-
sekta erlendis.
Hafa fengið 37 kvartanir
„Ég hef geymt snjóbílinn í hlöð-
unni minni í allt sumar,“ sagði Ny-
lander og kvaðst aldrei hafa farið
til Warwick. „Ég var síðast í Bret-
landi fyrir sextán árum og sá þá að
þar eru ekkert sérlega góð skilyrði
til að aka snjóbíl á sumrin.“
Sænsku neytendasamtökin segj-
ast hafa fengið 37 kvartanir frá Sví-
um sem hafa fengið stöðumælasekt-
ir frá Euro Parking Collection en
segjast ekki hafa ekið bílum sínum í
Bretlandi.
Furðar sig
á sektinni
Stokkhólmi. AFP.