Morgunblaðið - 06.09.2004, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 6. SEPTEMBER 2004 37
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 8 og 10.20
KRINGLAN
Sýnd kl. 6 og 8
AKUREYRI
Sýnd kl. 6.
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 3.50 og 6. Ísl tal.
AKUREYRI
Sýnd kl. 6, 8 og 10. B.i 12 ára.
AKUREYRI
Sýnd kl. 6, 8 og 10. B.i 14 ára.
Þeir hefðu átt að láta hann í friði.
KEFLAVÍK
Sýnd kl. 10.
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10.10.
S.V. Mbl.
HP. Kvikmyndir.com
Kemur steiktasta grínmynd ársins Kemur steiktasta grínmynd ársins
KRINGLAN
sýnd kl. 5.50
KRINGLAN
sýnd kl. 8 og 10.20.
KRINGLAN
sýnd kl. 6, 8 og 10. b.i. 12 ára
Julia Stilesli il
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 4 og 6.
The
KEFLAVÍK
Sýnd kl. 8 og 10. B.i 12 ára.
KEFLAVÍK
Sýnd kl. 10. B.i 14 ára.
Ó.H.T Rás 3.
LEIÐSÖGUNÁM
Hnitmiðað og skemmtilegt nám fyrir þá, sem vilja kynnast Íslandi í máli og mynd-
um. Námið er opið öllum þeim, sem áhuga hafa á að læra hverning standa skal að
leiðsögn erlendra og innlendra ferðamanna um Ísland.
Stuðst er við námsskrá menntamálaráðuneytisins um viðurkennt leiðsögunám.
Helstu námsgreinar:
Helstu viðkomustaðir ferðamanna í máli og myndum.
Saga landsins, jarðfræði, bókmenntir og listir, menningartengd ferðaþjónusta.
Mannleg samskipti. Skyndihjálp og skipulag.
Skipulagðar ferðir og afþreyingaferðir. Ritgerðarverkefni og margt fleira.
Leiðbeinendur eru þaulvanir leiðsögumenn og sérfræðingar á hinum ýmsu sviðum.
Boðið er uppá dag- og kvöldnám, auk þess sem farið er í vettvangsferðir.
Umsögn:
„Síðasta haust hóf ég leiðsögunám við Ferðamálaskóla Íslands.
Námið fór fram úr mínum björtustu vonum. Ég hef ferðast mikið
um landið frá barnsaldri, en þrátt fyrir það öðlaðist ég nýja sýn á
landið í skólanum. Námið er hnitmiðað og að auki mjög
skemmtilegt, reyndar svo skemmtilegt að ég vil helst fá framhalds-
nám. Þetta nám kemur mér að miklu gagni í starfi mínu sem
kennari og vonandi sem leiðsögumaður í framtíðinni“.
FERÐAMÁLASKÓLI ÍSLANDS
Bíldshöfða 18, sími 567 1466,
Opið til kl. 22.00.
Heimasíða: www.menntun.is
Martha Jensdóttir
kennari.
að þjálfa fólk í hvernig hlutirnir eru
gerðir erlendis. Þegar erlendir að-
ilar koma hingað að gera auglýs-
ingar lærum við af þeim,“ segir
hann.
„Tæknin hefur minnkað heiminn í
heild og ekki síst í kvikmyndabrans-
anum. Þetta er spennandi til-
raunaverkefni hvað það snertir fyrir
Ísland ef það er hægt að gera svona
myndir hér. Það eru miklu meiri
markaðsmöguleikar fyrir svona
mynd þó auðvitað sé nauðsynlegt að
gera ódýrar íslenskar myndir. Það
er og verður alltaf áhugi hjá fólki að
fara í bíó og horfa á íslenskar mynd-
ir sem fjalla um íslenskan veru-
leika,“ segir hann og telur að með
uppbyggingu kvikmyndaiðnaðarins í
heild á Ísland greiði það farveginn
fyrir íslensku myndirnar frekar en
að ýta þeim úr vegi.
„Fólk er orðið hæfara, það er
hægt að gera ódýrari myndir á
styttri tíma. Stærri verkefni hjálpa.
Þau skila peningum inn í landið,
skila vinnu og þá stöðugri vinnu. Það
eru sumir sem gefast upp á að vera
hérna í kvikmyndabransanum því
það er ekki nóg af stöðugri vinnu,“
segir hann.
Ekki mikil yfirbygging
„Að vísu er dýrt að borða hér og
sofa og annað slíkt fyrir ferðamenn
en aðrir hlutir eru ekkert svo dýrir.
Við erum ekki með mjög mikla yf-
irbyggingu á kvikmyndagerðinni
hér eins og þekkist í Hollywood. Við
erum líka með endurgreiðslu, sem
mætti helst vera enn meiri, en hún
gerir okkur ennþá samkeppnisfær-
ari,“ segir Sigurjón.
A Little Trip to Heaven verður
klippt í Los Angeles „með reyndum
klippurum. Svo komum við og hljóð-
blöndum hér því við erum með frá-
bæran hljóðblandara sem heitir
Kjartan Kjartansson,“ segir hann,
„en við munum fá með okkur í
eftirvinnsluna einn, tvo ameríska
aðila því enska er ekki móðurmál
okkar .“
Ekki er ljóst hvenær myndin
verður frumsýnd. „Það er svona ár
frá því að mynd fer í undirbúning á
tökum þar til hún er tilbúin. Svo get-
ur tekið aðra sex eða átta mánuði að
koma henni út. Myndin á helst að
vera tilbúin næsta vor,“ segir hann
en þá gæti verið að myndin yrði
frumsýnd um haustið.
Tökur hafa gengið vel og er áætl-
aður kostnaður við myndina um 700
milljónir króna, tíu milljónir dala.
Mike Myers verður Elling
Sigurjón er líka að klára mynd
sem heitir Pretty Persuasion og
næsta mynd á dagskrá er Elling en í
ljós er komið að Jay Roach leikstýrir
en hann er þekktur fyrir Austin
Powers-myndirnar. Enginn annar
en Mike Myers fer með titilhlut-
verkið og verður það spennandi að
sjá.
Morgunblaðið/Þorkell
„Þetta er ein af fyrstu myndunum þar sem Ísland er notað ekki af því að það er Ísland,“ segir Sigurjón m.a. í við-
talinu en hér er hann (t.h.) ásamt Baltasar Kormáki leikstjóra.
Morgunblaðið/Halldór Kolbeins
Kanadíski leikarinn heimskunni Mike Myers leikur í næstu mynd sem Sig-
urjón mun framleiða, bandarískri endurgerð á norsku myndinni Elling.
ingarun@mbl.is
UPPSELT er á tónleika Blonde
Redhead í Austurbæ sunnudaginn
19. september og hefur verið ákveð-
ið að halda aukatónleika í Austurbæ
20 sept. í ljósi þess mikla áhuga sem
er á komu hljómsveitarinnar til Ís-
lands. Slowblow og Skúli Sverrisson
munu einnig koma fram á auka-
tónleikunum. Miðaverð er 3.500 kr.
og hefst forsala aðgöngumiða í versl-
un 12 Tóna og á midi.is á morgun.
Grímur Atlason, skipuleggjandi
tónleikanna, kveðst himinlifandi yfir
þessari þróun mála, bæði vegna
áhuga á hljómsveitinni og prýðilegs
hlutverks Austurbæjar sem tón-
leikahúss. Nú sé ötullega unnið að
því að gera Austurbæ að þeirri
menningarmiðstöð sem hann geti
orðið og sé þar um að ræða frábær-
an vettvang fyrir smærri, en heims-
þekkt nöfn í tónlistarheiminum.
Tónlist | Aukatónleikar með Blonde
Redhead í Austurbæ
Mikill áhugi á hljóm-
sveitinni og Austurbæ
Íslendingar eru spenntir fyrir Blonde Redhead, enda er sveitin sérstök.