Morgunblaðið - 06.09.2004, Blaðsíða 33
MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 6. SEPTEMBER 2004 33
Rakarinn morðóði
Óperutryllir eftir Stephen Sondheim
Frumsýning fös. 8. okt. kl. 20
Miðasala á Netinu verður opnuð
þriðjudaginn 7. september: www.opera.is
Símasala kl. 10-18 virka daga: 511 4200
Endurnýjun áskriftarkorta
er hafin
PARIS AT NIGHT e. Jacques Prévert
í samstarfi við Á SENUNNI
Fi 9/9 kl 20,
Fö 10/9 kl 20,
Lau 11/9 kl 20
Su 12/9 kl 20
Örfáar sýningar
Stóra svið Nýja svið og Litla svið
LÍNA LANGSOKKUR e. Astrid Lindgren
Su 12/9 kl 14, Su 19/9 kl 14, Su 26/9 kl 14
CHICAGO e. Kender, Ebb og Fosse
Grímuverðlaunin: Vinsælasta sýning ársins!
Lau 18/9 kl 20, Lau 25/9 kl 20, Lau 2/10 kl 20,
Lau 9/10 kl 20
THE CONCEPT OF BEAUTY e. Nadiu Banine
WHERE DO WE GO FROM THIS
e. Peter Anderson
Fi 9/9 kl 20
NÚTÍMADANSHÁTÍÐ 3/9 - 11/9
MANWOMAN e. Ólöfu Ingólfsdóttur
& Ismo-Pekka Heikenheimo
Fö 10/9 kl 20
Lau 11/9 kl 20
Opnunartími miðasölu: Mánudaga og þriðjudaga: 10:00-18:00
Mið-, fim- og föstudaga: 10:00-20:00
Laugar- og sunnudaga: 12:00-20:00
Miðasölusími 568 8000 - miðasala á netinu: www.borgarleikhus.is
Passi á allar sýningar hátíðarinnar á aðeins 4.900.
ÓSÓTTAR PANTANIR SELDAR DAGLEGA
Lau . 11 .09 20 .00 ÖRFÁ SÆTI
Sun . 12 .09 20 .00 NOKKUR SÆTI
F im . 16 .09 20 .00 NOKKUR SÆTI
Lau . 18 .09 20 .00 NOKKUR SÆTI
„G l im rand i ! F rábæ r uppse tn ing ,
óg leyman lega r senur og tón l is t i n
e r f rábæ r . . .að e i l í fu . “
-S tefán H i lma rsson söngva r i -
MIÐASALAN er opin á fame.is,
á þjónustuborði Smáralindar
og í síma 528 8008
JÓNSI
SVEPPI
Fim. 9. sept. kl. 19.30
Fös. 10. sept. kl. 19:30
SÍÐUSTU SÝNINGAR:
Sun. 12. sept. kl. 19.30
Vegna mikils álags á símkerfinu viljum við benda á
að hægt er panta miða með tölvupósti í
miðasala@smaralind.is eða inn á www.fame.is.
4 600 200
leikfelag.is
Miðasölusími
BRIM - e. Jón Atla Jónasson gestasýning
Lau 11/9 kl. 18
Lau 11/9 kl. 21
SVIK e. Harold Pinter
frumsýning 1/10 kl. 20
2. sýning 3/10 kl. 20
HÁRIÐ - sýnt í Íþróttahöllinni gestasýning
fös 24/9 kl. 20 - sala hafin!
LEIKLISTARNÁMSKEIÐ
skráning stendur yfir
HÁRIÐ
„tryggðu þér miða“
STOPPLEIKHÓPURINN hefur
senn níunda leikár sitt, en á verk-
efnaskrá hópsins eru sex íslensk
leikrit og leikgerðir sem ætluð eru
leik-, grunn- og framhaldsskólum
landsins. Tvær frumsýningar verða
á leikárinu auk þess sem teknar
eru upp fjórar leiksýningar frá
fyrri leikárum. Fyrri frumsýning
leikársins verður í lok september
og er þar um að ræða Hrafnkels-
sögu Freysgoða í leikstjórn og leik-
gerð Valgeirs Skagfjörð, Vignir Jó-
hannsson sér um leikmynd og
búninga, en með hlutverkin í verk-
inu fara Eggert Kaaber og Sig-
urþór Albert Heimisson.
Seinni frumsýning Stopp-
leikhópsins verður í lok nóvember
og er þar á ferðinni jólaleikritið
Síðasta stráið er byggist á sam-
nefndri bók Frederiks H. Thurys í
leikgerð Eggerts Kaaber og Katr-
ínar Þorkelsdóttur, en þetta er í
fyrsta sinn sem Stoppleikhópurinn
vinnur leikrit tengt jólunum. Frá
fyrri leikárum eru teknar upp sýn-
ingarnar Landnáma eftir Valgeir
Skagfjörð í leikstjórn höfundar er
fjallar um landnám Íslands og sögu
Ingólfs Arnarsonar, ævintýrið
Hans klaufi eftir H.C. Andersen í
leikstjórn Katrínar Þorkelsdóttur,
unglingaleikritið Í gegnum eldinn
eftir Valgeir Skagfjörð í leikstjórn
höfundar þar sem tvö ungmenni
segja frá dvöl sinni og angist í
heimi fíkniefna og barnaleikritið
góðkunna Palli var einn í heiminum
í leikstjórn Katrínar Þorkelsdóttur.
Að sögn Eggerts Kaaber er leik-
ár Stoppleikhópsins í vetur það
allra viðamesta í sögu leikhópsins.
„Annars vegar í þeim skilningi að
við höfum aldrei áður verið með
jafnmargar sýningar í gangi á einu
leikári og hins vegar í ljósi þess að
Hrafnkelssaga Freysgoða er mun
umfangsmeiri uppsetning en fyrri
sýningar okkar, sem helgast að-
allega af því að Stoppleikhópurinn
hlaut styrk frá menntamálaráðu-
neytinu til að færa verkið á svið
sem gerði það að verkum að við
gátum t.d., í fyrsta sinn í sögu leik-
hópsins, ráðið til verkefnisins sér-
stakan leikmyndar- og bún-
ingahönnuð, Vigni Jóhannsson. En
það er gífurlegur fengur og styrkur
sem felst í því að hafa slíkan fag-
mann með sér í vinnu við uppsetn-
inguna,“ segir Eggert.
Hrafnkelssaga Freysgoða eða
Hrafnkatla er í hópi þekktustu Ís-
lendingasagna, en þar segir frá því
þegar Hrafnkell Freysgoði drepur
Einar Þorbjarnarson smalamann
fyrir þá sök að ríða hestinum Frey-
faxa í leyfisleysi. Í kjölfarið stefnir
Sámur Bjarnason Hrafnkeli fyrir
vígið og dregur það mál mikinn
dilk á eftir sér. Spurður hvers
vegna Hrafnkelssaga hafi orðið fyr-
ir valinu svarar Eggert því til að
Stoppleikhópinn hafi einfaldlega
langað til að setja þessa þjóð-
argersemi okkar í nýtt og
skemmtilegt samhengi.
„Við höfum orðið vör við að
mörgum krökkum finnist erfitt og
jafnvel leiðinlegt að lesa Íslend-
ingasögurnar og þá er tilvalið að
setja þær í svona leikrænan bún-
ing,“ segir Eggert og Valgeir
Skagfjörð bætir við: „Ein ástæða
þess að mörgum finnst sagan tyrfin
stafar af því hversu fornt og
kannski flókið tungutakið virkar á
fólk í dag. Í leikgerðinni förum við
þá leið að umskrifa og einfalda
málfarið í því skyni að opna fyrir
krökkunum þennan heillandi
heim.“ Það að nota leiklistina sem
fræðsluaðferð er einmitt eitt af höf-
uðmarkmiðum Stoppleikhópsins.
„Ég veit ekki betur en að Stopp-
leikhópurinn sé eina starfandi
fræðsluleikhúsið á landinu. Erlend-
is eru fræðsluleikhús þekkt fyr-
irbæri og finnast víða, enda stað-
reynd að leikhúsið er mjög sterkur
fræðslumiðill og leiklistin sem slík
öflugt tæki í kennslu,“ segir Val-
geir.
Að sögn Eggerts var ein af
fyrstu leiksýningum Stoppleikhúss-
ins fyrir tæpum níu árum umferð-
arleikrit sem féll í góðan jarðveg
hjá unga fólkinu. „Okkur varð fljót-
lega ljóst að formið á sýningunni
virkaði mjög vel, þ.e. að bjóða fram
sýningu sem væri skemmtileg á
sama tíma og í henni væri að finna
ákveðinn boðskap, án þess nokkurn
tímann að vera að predika. Þetta
virkaði svo vel og við fengum það
góða svörun að við höfum haldið
áfram með þetta form síðan. Á
þeim árum sem við höfum starfað
höfum við borið víða niður, þannig
höfum við m.a. fjallað um kynlíf, of-
beldi, reykingar, dóp og umferð-
armál svo eitthvað sé nefnt. Við
hugsum sýningar okkar fyrir mis-
munandi aldurshópa, allt frá leik-
skólum og yngstu bekkjum grunn-
skólans upp í framhaldsskólana.“
Aðspurður um jólaleikritið Síð-
asta stráið segir Eggert það ein-
mitt hugsað fyrir leikskólana og
yngstu bekki grunnskólans. „Sögu-
þráður verksins er fenginn úr jóla-
guðspjallinu og segir söguna af úlf-
aldanum Hósmakaka sem fær þann
heiður að vera valinn til að flytja
vistir og gjafir vitringanna til
Betlehem,“ segir Eggert og vill
ekki gefa of mikið upp um í hvaða
ævintýrum úlfaldinn lendir.
„Kannski má segja að sagan birti
okkur nýja hlið á jólaguðspjallinu.
Þetta er alla vega afar falleg og
hrífandi saga sem hentar vel til að
róa börnin niður í jólaæðinu sem
oft virðist heltaka samfélagið síð-
ustu vikur fyrir jól,“ segir Eggert
að lokum.
Leiklist | Stoppleikhópurinn sýnir sex íslensk leikrit
og leikgerðir á leikárinu
Leikhúsið sterkur fræðslumiðill
Morgunblaðið/Árni Torfason
Sigurþór Albert Heimisson og Eggert Kaaber bregða á leik.
www.stoppleikhopurinn.com
FORSALA miða á tónleika söng-
konunnar Marianne Faithfull hefst
í dag hjá fyrirtækinu Concert, en
það eru handhafar Mastercard-
kreditkorta sem fá að kaupa fyrstu
miðana. Faithfull mun mæta til
lands með fullskipaða hljómsveit og
ætlar hún að flytja safn sinna
þekktustu laga í bland við lög af
síðustu plötu sinni Kissin Time sem
kom út árið 2002.
Marianne Faithfull hóf feril sinn
sem söngkona árið 1964 með laginu
As Tears Go By, sem samið var fyr-
ir hana af Mick Jagger og Keith
Richards.
Einar Bárðason, sem flytur
Faithfull til landsins á vegum
Concert ehf., segir það stefnu fyr-
irtækisins að flytja inn „eldri og
reyndari“ tónlistarmenn, en til-
kynnt verði um miðasölu síðar.
Söngkonan Marianne Faithfull er væntanleg til Íslands í haust og mun
halda tónleika hinn 11. nóvember í Háskólabíói. Söngkonan, sem er nú 58
ára gömul, er á leið í Skandinavíutúr og heimsækir Reykjavík, Kaup-
mannahöfn, Helsinki og Osló.
Forsala haf-
in á tónleika
Marianne
Faithfull
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111