Morgunblaðið - 06.09.2004, Page 9
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 6. SEPTEMBER 2004 9
MIRALE
Grensásvegi 8
sími: 517 1020
Opið:
mán.- föstud.11-18
laugard. 11-15
Í tilefni af því að MIRALE hefur tekið við Cassina
umboðinu á Íslandi veitum við 15% afslátt
af öllum sérpöntuðum húsgögnum til 31. ágúst.
Mörkinni 6,
sími 588 5518.
Stakir sparijakkar
Tweed, svartir og margir skærir litir
Opið frá kl. 10-16 laugardaga
Vattúlpur
Símar 561 1525
og 898 3536.
Upplýsingar og innritun
kl. 15-21 alla daga.
Málað með olíu, vatnslitum og akrýl. Teiknun.
Byrjendahópur — Framhaldshópur — Fámennir hópar.
Nýbýlavegi 12 • 200 Kópavogi • Sími 554 4433
Opið virka daga 10-18, laugardaga 10-16
Galla- og
flauelsfatnaður í úrvali
Hér erum við
egur
Sæbraut
ata
kk
as
tíg
ur
LindargataHverfisgata
Vi
ta
stí
gu
r
Ba
ró
ns
stí
gu
r
ta
Njálsgata
Bergþórugata Skarphéð.gKa lau
t
au
ða
rá
rs
tíg
ur
rh
ol
t
Ski h lt
Brautarholt
Laugavegur
Hát
M
Hátún
Miðtún
Nó
at
ún
Samtún
Borgartún
H
öf
ða
tú
n
Sæ
Sæt
únSkúlatún
Skúlagata
Steintún
HLEMMUR
M
jö
ln
is
h.
Eldaskálinn
Brautarholti 3
105 Reykjavík
Sími: 562 1420
eldaskalinn@simnet.is
www.invita.com
Vegna 30 ára afmælis Invita fá kaupendur Elite
framtíðareldhússins afmælisgjöf frá Invita.
Við höfum nýtt 30 ára reynslu og sérhæfingu við
hönnun framtíðareldhússins, sem við köllum Elite
og viljum lofa þér að njóta þess með okkur.
Afmælistilboð á Elite allan septembermánuð
Komdu og sjáðu hvernig Elite afmælisinnréttingin
getur orðið þitt persónulega eldhús. En hafðu
hraðann á - þetta afmælistilboð Invita stendur
aðeins frá 23.ágúst til og með 30.september 2004.
Invita heldur upp á 30 ára afmæli
NÝJUNG
Elite Gæði að utan sem innan
Invita gæði eru ekki eingöngu í útlitinu,
því við samhæfum frábæra hönnun og
notagildi. Til dæmis ýmis skemmtileg
innlegg úr akasíutré í skúffur frá 30cm
breiddum og upp í 120cm breidd.
Fáanleg spónlögð
eða litlökkuð
Tvöfaldur
afsláttur í
september!
ÞEIR sem fóru um Keflavíkurflug-
völl sl. föstudagsmorgun hafa ef til
vill rekið augun í þessa mjög svo
nýstárlegu flugvél sem þar hafði
viðdvöl í nokkrar klukkustundir.
Proteus heitir vélin og er hún sú
eina sinnar tegundar í heiminum.
Geimferðastöð Bandaríkjanna,
NASA, þróaði vélina en flugfröm-
uðurinn Burt Rutan hannaði hana,
sá hinn sami og byggði SpaceShip-
One, fyrsta einkarekna geimfarið
sem fór út í geiminn í sumar.
Vélin getur farið í allt að 65 þús-
und feta hæð. Hún er notuð til ým-
issa verkefna, m.a. til að koma
litlum gervihnöttum á loft og gera
rannsóknir á lofthjúpnum.Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Torkennileg
flugvél á Kefla-
víkurflugvelli
„ÞAÐ voru komnir nokkrir laxar í
gildruna í laxastiganum í Faxa, en
það hafa einhverjir óprúttnir aðilar
stolið þeim. Það hefur kostað tals-
verða fyrirhöfn, því vatnið var tekið
af stiganum og laxinn væntanlega
háfaður upp. Þetta er ótrúlegur
dónaskapur og bara skemmdarverk,
þetta eru fyrstu klaklaxarnir okkar
en við erum að byrja á stórfelldu lax-
ræktarátaki í Tungufljóti,“ sagði
Árni Baldursson, leigutaki Tungu-
fljóts í Biskupstungum, í samtali við
Morgunblaðið.
Árni sagðist ekki vita hver eða
hverjir hefðu stolið löxunum, en
smíðað yrði yfir laxastigann til að
koma í veg fyrir að fleiri löxum yrði
stolið, en laxar eru þegar farnir að
ganga í gildruna aftur. „Það frábæra
við þessa tilraun okkar til þessa er að
það eru laxar að skila sér úr lítilli
sleppingu í fyrra, þeir hafa bæði skil-
að sér í gildruna og verið að veiðast
fyrir neðan Faxa, niður eftir öllu.
Þetta svæði er algjört gull og við er-
um að leggja mikið undir að koma
laxi í það,“ bætti Árni við.
Þverá/Kjarrá fjarar út
Síðustu hollin eru að veiða í Þverá
og Kjarrá og að sögn Jóns Ólafsson-
ar, eins leigutaka svæðisins, hefur
verið afar rólegt á bökkunum að und-
anförnu. „Veiðin kemur til með að
slaga eitthvað upp undir 1.400 laxa.
Þetta er ekki góð útkoma, en skilyrð-
in í sumar hafa verið afar erfið. Við
fengum þó 1.872 laxa í fyrra og það er
nær þeirri tölu sem við viljum sjá,“
sagði Jón sem var að ljúka veiðum í
Þverá, en fáir fiskar veiddust þótt
nóg væri af fiski. „Það hefur bara
ekkert vatn verið,“ bætti Jón við.
Smábati í Laxá
Nýleg tala úr Laxá í Aðaldal var
730 laxar og enn er veitt þótt vertíðin
styttist í annan endann. Heildartalan
í fyrra var 624 laxar sem olli mörgum
áhyggjum þess efnis að áin væri að
tapa stöðu sinni sem laxveiðiá. Enn
er talað um djúpan öldudal í Laxá, en
þetta er þó heldur betri tala en í fyrra
og þeir eru líka margir sem benda á
að ekki sé við öðru að búast en lægri
tölum úr Laxá héðan af, því áin er
krefjandi og aðeins veidd með flugu.
Áður var blandað agn og t.d. mikil
maðkaveiði fyrir neðan Æðarfossa.
Ýmsir kunnugir Laxárkarlar sem
rætt hefur verið við telja að heildar-
tala úr ánni væri miklu hærri heldur
en raun ber vitni ef enn hefði verið
veitt með maðki og spón í bland við
fluguna.
TVEIR stjórnarmenn í Sparisjóði
Hólahrepps segja að nýr sparisjóðs-
stjóri, Vilhjálmur Baldursson, for-
stöðumaður hjá Byggðastofnun, njóti
ekki trúnaðar þeirra. Gera þeir at-
hugasemdir við fyrirhugaða ráðningu
hans í bréfi til sparisjóðsstjóra á Ís-
landi og annarra „sparisjóðsmanna“
sem þeir sendu út nýlega. Þar kemur
fram að farið hafi verið algerlega á
bak við þá í aðdraganda málsins.
Sverrir Magnússon og Valgeir
Bjarnason sitja í stjórn sparisjóðsins
fyrir hönd gömlu stofnfjáreigendanna
en dótturfélög Kaupfélags Skagfirð-
inga (KS) og starfsmenn þeirra hafa
keypt verulegan stofnfjárhlut í sjóðn-
um frá árinu 2000. Harðar deilur hafa
ríkt um stjórn sparisjóðsins heima í
héraði á milli þessara hópa og um at-
kvæðisrétt einstakra aðila við stjórn-
arkjör á aðalfundi. Var sæst á Magn-
ús Brandsson, sparisjóðsstjóra á
Ólafsfirði, sem oddamann í stjórn á
síðasta aðalfundi og engin kosning fór
fram. Auk „héraðsmannanna“ eiga
sæti í stjórn KS-mennirnir Sigurjón
Rafnsson og Jón Eðvald Friðriksson.
Sverrir og Valgeir segja að samn-
ingur um að Kristjáns Hjelm viki sem
sparisjóðsstjóri um mánaðamótin
júní/júlí hafi verið gerður algerlega á
bak við þá. Magnús Brandsson hafi
tilkynnt að stjórn Sparisjóðasam-
bandsins hafi fallist á þessa kröfu full-
trúa KS í stjórninni. Jafnframt hafi
verið boðuð væntanleg sáttatillaga
sem ætti að leysa vanda sparisjóðsins.
Engin slík sáttatillaga hafi enn komið
fram og þessi gjörningur rýrt traust
stjórnarmannanna á stjórn Spari-
sjóðasambandsins.
Í bréfinu kemur fram að Magnús
hafi boðað þá á sinn fund í Efra-Ási í
Hjaltadal 9. júní sl. Þar hafi fyrst
komið fram krafan um að Kristján
viki. „Magnús tilkynnti okkur þá jafn-
framt að Sigurjón Rafnsson, aðstoð-
arkaupfélagsstjóri og stjórnarmaður í
Sparisjóð Hólahrepps, hefði farið
fram á að umræddur Vilhjálmur
Baldursson yrði ráðinn í stöðu spari-
sjóðsstjóra. Við tjáðum Magnúsi þá
að við myndum ekki samþykkja Vil-
hjálm þar sem hann væri augljóslega
orðinn fulltrúi Kaupfélags Skagfirð-
inga. Magnús samþykkti þá afstöðu
okkar og sagði Vilhjálm ekki koma til
greina í sparisjóðsstjórastöðuna,“
segir í bréfinu.
Opinbera afstöðu sína
Sverrir og Valgeir segja að Magn-
úsi hafi verið fullljóst frá 9. júní að
hann myndi ekki fá þeirra samþykki
fyrir að ráða Vilhjálm og hafi getað
greint honum frá því. Hann hafi líka
vitað að þeir myndu opinbera afstöðu
sína ef þetta yrði niðurstaðan. „Það
má öllum vera fullljóst að sparisjóðs-
stjóri verður að hafa trúnað stjórn-
armanna, þann trúnað hefur Vil-
hjálmur ekki. Hins vegar viljum við
óska honum velfarnaðar á öðrum
starfsvettvangi,“ segir í bréfi til spari-
sjóðsmanna.
Segja nýja sparisjóðsstjór-
ann ekki njóta trúnaðar
Enga sátt að finna í stjórn Sparisjóðs Hólahrepps
Morgunblaðið/Einar Falur
Bandaríski kvikmyndagerðarmað-
urinn Martin Bell með rúmlega
fjögurra kílóa hæng sem hann
veiddi á snældu í veiðistaðnum
Króki í Flekkudalsá.
ERU
ÞEIR AÐ
FÁ’ANN?
Klaklöxum úr
Tungufljóti stolið