Morgunblaðið - 06.09.2004, Qupperneq 10
FRÉTTIR
10 MÁNUDAGUR 6. SEPTEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
S
igrar og sár vonbrigði eru
fylgifiskar eins af vin-
sælustu sjónvarpsþátt-
um landsins, stjörnuleit-
arinnar eða Idol-
keppninnar. Keppnin sló í gegn á
síðasta ári og nú stendur undirbún-
ingur fyrir aðra þáttaröðina, sem
fer í loftið 1. október næstkomandi,
yfir. Prufur verða á fimm stöðum
en auk Reykjavíkur og Akureyrar
er farið til Vestmannaeyja, Ísa-
fjarðar og að lokum Egilsstaða í leit
að stjörnu. Blaðamaður slóst í för
með dómurum og fékk að sniglast í
kringum önnum kafið starfsfólk við
prufur í Höllinni í Vestmannaeyjum
á föstudag. Alls reyndu 29 fyrir sér
í söng og sviðsframkomu í Eyjum
og af þeim komust átta áfram.
Keppendur sem blaðamaður
ræddi við voru ánægðir með að
geta farið í prufur í Eyjum en þurfa
ekki að gera sér ferð upp á land.
„Það gerði útslagið. Annars hefðum
við ekki farið,“ sagði einn þeirra.
Kvíðablandin eftirvænting fyllti
andrúmsloftið í anddyri Hallarinnar
þar sem keppendur og stuðnings-
menn biðu átekta. Eftirvæntingin
braust út í gleði og söng en kvíðann
virtist hópurinn ná að fela vel.
Blaðamaður, sem fékk að stíga inn í
myndavélum fyllt dómaraherbergið
áður en leikurinn hófst, er ekki í
vafa um að kvíðinn safnast fyrir í
hnút í maganum þegar keppendur
hefja þar upp raust sína, berskjald-
aðir fyrir framan mikla reynslu-
bolta í bransanum.
Dómararnir, Bubbi Morthens,
Sigga Beinteins og Þorvaldur
Bjarni, voru að sögn eins keppand-
ans „ótrúlega brosmild“. Sjálf segja
þau mestu máli skipta að vera heið-
arleg. „Það er engum greiði gerður
með því að ljúga því að hann sé
góður en síðan er ekkert þar að
baki,“ segir Sigga. Hún segist oft
sjá mikla taugaspennu hjá kepp-
endum, og sumir nái ekki að sýna
sitt rétta andlit vegna álags. Sigga
segir þó erfitt að segja til um hverj-
ir eigi eftir að fara langt í keppn-
inni fyrr en keppendur séu búnir að
syngja með undirspili.
Tveggja daga vinna
fyrir 25 manns
Það vakti athygli blaðamanns að
starfsfólk í kringum prufurnar var
næstum jafnmargt keppendum. Að
sögn Þórs Freyssonar, framleið-
anda þáttanna, kostar það tveggja
daga vinnu fyrir um 25 manns að
setja upp prufurnar í Eyjum. „Við
vildum stækka þessa keppni og fara
út á land og reyna að fá fleiri kepp-
endur inn sem annars hefðu ekki
komið.“ Enn fleira starfsfólk, eða
um 35 manns, kom að prufunum í
Reykjavík. Þór hefur staðið í
ströngu undangengna mánuði við
skipulagningu þáttanna. „Þetta er
alveg brjálæðislega skemmtilegt en
alveg ofboðslega mikil vinna.
Næstu sjö mánuðir hjá mér eru al-
veg fráteknir í Idol.“
Sannar tilfinningar í Idol
Keppendur sem komu í prufur
með stjörnublik í augum voru
dyggilega studdir af vinum og
vandamönnum með lófataki og
stuðningsköllum. Gilti þá einu hvort
þeir sem reyndu fyrir sér komust
áfram eða ekki, stuðningurinn var
til staðar hvort sem var.
„Á meðan fólkið fær að ráða
þessu hafa allir áhuga á þessari
keppni,“ segir Jóhannes Ásbjörns-
son, Jói, sem ásamt Sigmari Vil-
hjálmssyni, Simma, sér um að
kynna þáttinn. Starf þeirra felst þó
í meiru en kynningum. „Við erum
með svona skyndihjálp. Reynum að
tjasla fólki saman eins og hægt er
þegar það kemur út. Þetta eru svo
sannar tilfinningar hjá fólkinu því
þetta er ógeðslega erfitt. Fólk er
titrandi, skjálfandi á beinunum,“
segir Simmi og Jói bætir við að það
sé dagsformið sem gildir. „Besti“
söngvarinn geti á slæmum degi
þurft að víkja fyrir góðum söngvara
sem á betri dag. „Beckham er ekki
besti knattspyrnumaður í heimi, en
hann selur mest og það er gott að
hafa hann í liðinu sínu,“ segir
Simmi til útskýringar. Blaðamanni
verður á að bæta því við að hann sé
líka sætastur knattspyrnumanna.
„Já, þess vegna erum við Jói með
þennan þátt. Við erum alls ekki
bestu sjónvarpsmennirnir á land-
inu. Við erum bara svo ógeðslega
sætir,“ segir Simmi. Og Jói kveðst
hlakka til vetrarins. „Það er svo
gaman núna að byrja aftur því fólk
hefur samanburð. Fólk horfir á
þáttinn öðruvísi og hefur meiri
skoðanir á honum. Það er meiri
pressa og gaman að takast á við
það.“
Plata með Kalla Bjarna
kemur út 1. október
Þorvaldur Bjarni segist hafa ver-
ið fús til að taka þátt í stjörnuleit-
inni annað árið vegna þess að í
fyrra hafi hún orðið að nokkurs
konar fjölskyldusporti. „Fjöl-
skyldur sameinuðust um þetta,
stórfjölskyldan kom saman yfir
þessu og þetta varð að ástæðu til að
hafa rosa skemmtun. Og í kringum
tónlist, það er alveg brillíant.“
Þessa dagana er Þorvaldur
ásamt Kalla Bjarna, sigurvegara
Idol í fyrra, að leggja lokahönd á
plötu með þeim síðarnefnda. Plat-
an, sem er 12 laga og hefur enn
ekki fengið nafn, á að koma út 1.
október.
Bubbi Morthens tjáir blaðamanni
í flugvélinni á leiðinni aftur til
Reykjavíkur að í þeim átta manna
hópi sem komst áfram í Vest-
mannaeyjum séu sterkir kepp-
endur, jafnvel mögulegir sigurveg-
arar. „Yfirhöfuð var þessi hópur í
dag alveg ferlega flottur. Nú er
bara spennandi að sjá hvernig Ísa-
fjörður gerir sig. Landsbyggðin er
allavega að koma rosalega sterk
inn.“ Hann segir mikilvægt að dóm-
arar segi það sem þeim finnst, en
það geti verið erfitt. „Það koma
augnablik þar sem maður er á 150
þúsund kílómetra hraða inni í höfð-
inu að leita að útgöngu til þess að
maður eyðileggi ekki viðkomandi.
Það er óþarfi að segja við einhvern
sem er á barmi taugaáfalls: hey
djöfull ertu glataður. Það er algjör
óþarfi að vera nastí,“ segir Bubbi.
Átta Eyjapæjur og -peyjar áfram í Idol
Morgunblaðið slóst í för með dómurum í Idol til Vestmannaeyja og upplifði rafmagnaða stemmningu
Morgunblaðið/Eyrún Magnúsdóttir
„Þetta er bara Eyjastemmning, þjóðhátíðarstemmning eins og hún gerist
best. Fólk stendur saman í að koma sem flestum áfram,“ segir Sæþór Þor-
bjarnarson (sá á gítarnum fremst) um andrúmsloftið í anddyri hallarinnar
meðan prufur stóðu yfir. Hann var „plataður“ í prufu en sá ekki eftir því.
Dómararnir þurftu að stíga nokkrum sinnum út úr flugvélinni því töku-
menn vildu vera vissir um að festa þann atburð almennilega á filmu. Þor-
valdur Bjarni segist reyna að vara sig á því að vera of meðvitaður um
myndavélarnar, reyna að gleyma því að þetta sé sjónvarp. „Maður verður
að reyna að vera blátt áfram. En það er pínu erfitt,“ viðurkennir hann.
Morgunblaðið/Sigursveinn Þórðarson
„Ég var stressuð áður en ég fór inn, svo var þetta ekkert mál,“ segir Krist-
ín Halldórsdóttir sem var fegin að fá að spreyta sig í Eyjum, enda hefði hún
líklega ekki gert sér sérstaka ferð til Reykjavíkur til þess að taka þátt í
stjörnuleitinni. Hún var fyrst í röðinni í prufunum í Eyjum og flaug í gegn.
eyrun@mbl.is
Morgunblaðið/Eyrún Magnúsdóttir
LAILA Freivalds, utanríkisráðherra Svíþjóðar,
flytur opinberan fyrirlestur í Háskóla Íslands á
morgun. Fyrirlesturinn fer fram í Odda stofu
101 og hefst kl. 12.15.
Í fyrirlestrinum mun
Freivalds fara yfir mikil-
væga þætti í samstarfi
Norðurlanda og Eystrar-
saltsríkjanna og hvernig það
hefur gefið norrænu sam-
starfi nýtt líf. Hún mun fjalla
um sameiginlega hagsmuni
landanna eins og baráttu
gegn glæpum, mansali, um-
hverfisvernd o.fl.
Að fundinum standa Alþjóðamálastofnun og
Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála við Há-
skóla Íslands. Í síðari hluta fyrirlestrarins
fjallar hún um mikilvægi þjóðaréttar og alþjóða-
stofnana s.s. Alþjóðlega sakamáladómstólsins,
Sameinuðu þjóðanna og Öryggisráðs Sþ. Í lok
fyrirlestrarins fara fram umræður. Fundar-
stjóri verður Baldur Þórhallsson dósent.
Flytur fyrir-
lestur í HÍ
Laila Freivalds
KRISTINN H. Gunnarsson, þingmaður
Framsóknarflokksins í Norðvesturkjör-
dæmi, segir að það verði eitt af sínum fyrstu
verkum á haustþingi Alþingis að leggja fram
nýja þingsályktunartillögu um stofnun há-
skóla á Vestfjörðum, með aðsetri á Ísafirði.
Lagði hann slíka tillögu fram á síðasta þingi
ásamt Magnúsi Stefánssyni, Framsóknar-
flokki, og Einari Oddi Kristjánssyni og
Gunnari I. Birgissyni, Sjálfstæðisflokki, en
Kristinn segir hana ekki hafa komist lengra
en í menntamálanefnd að lokinni fyrri um-
ræðu, m.a. vegna andstöðu í stjórnarflokk-
unum.
Kristinn segir nýja tillögu verða svipaða
þeirri fyrri, með þeirri breytingu helstri að
leggja eigi til að háskóli á Vestfjörðum verði
sjálfseignarstofnun, líkt og t.d. Viðskiptahá-
skólinn í Bifröst og Háskólinn í Reykjavík,
með þjónustusamningi við ríkið. Vonast
Kristinn einnig eftir þátttöku atvinnulífsins
í stofnun slíks háskóla.
„Það er eindreginn vilji Vestfirðinga að
koma á fót háskóla. Þeir sem stundað hafa
háskólanám í fjarnámi hafa óskað eftir
þessu. Aðalmarkmiðið er að tryggja nám á
staðnum og huga að einhvers konar sér-
stöðu svæðisins m.a. í umhverfismálum,
ferðamálum, sjávarútvegi og tónlistarlífi.
Nefnir Kristinn sérstaklega góðan grunn
vera á Ísafirði fyrir háskólanámi í tónlist en
að öðru leyti sé stefnt að almennu námi. Há-
skóli á Vestfjörðum þurfi einnig að vera í
samstarfi eða fá stuðning frá öðrum háskól-
um.
„Svipuð þróun er að eiga sér stað nú og
þegar framhaldsskólum var fjölgað á lands-
byggðinni. Andstaðan er líka svipuð og var
vegna framhaldsskólanna. Það tók til dæmis
mörg ár að fá samþykkta tillögu á Alþingi
um Menntaskólann á Ísafirði. Menn héldu
að það væri verið að þynna út menntunina
með því að bjóða upp á hana um allt land.
Þessa sömu andstöðu finnur maður hjá
skólamönnum á Alþingi í dag. En háskóla-
menntun er að verða það almenn að nauð-
synlegt er að byggja hana upp sem víðast
um landið,“ segir Kristinn.
Finnur fyrir stuðningi hjá HÍ
Hann segir það vera jákvætt að finna fyr-
ir stuðningi innan Háskóla Íslands við stofn-
un háskóla á Vestfjörðum. Það hafi reyndar
komið sér eilítið á óvart en forráðamenn HÍ
hafi greinilega áttað sig á hvað öðrum há-
skólum hafi vegnað vel víða um land, eins og
á Akureyri og Bifröst.
Kristinn á von á að sömu flutningsmenn
verði á þingsályktunartillögunni og síðast og
jafnvel verði bætt við þingmönnum. „Við er-
um að reyna að finna málinu fylgi, utan hér-
aðs sem innan, og erum vissir um að það
hefst að lokum að stofna háskóla á Vest-
fjörðum,“ segir Kristinn og vonast til að
skólinn verði að raunveruleika haustið 2006
og rektor ráðinn til starfa þegar á næsta ári.
Ný þingsályktun um háskóla á Vestfjörðum verður lögð fram á haustþingi
Skólinn verði sjálfseignarstofnun