Morgunblaðið - 06.09.2004, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 06.09.2004, Qupperneq 14
ERLENT 14 MÁNUDAGUR 6. SEPTEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ 410 4000 | landsbanki.is Banki allra landsmanna Í SL EN SK A AU G LÝ SI N G AS TO FA N /S IA .I S LB I 25 42 2 09 /2 00 4 Í SL EN SK A AU G LÝ SI N G AS TO FA N /S IA .I S LB I 25 42 2 09 /2 00 4 Fjárfestingarfélagi› Atorka hf., kt. 600390-2289, Laugavegi 182, 105 Reykjavík, tilbo›sgjafi, b‡›ur hluthöfum í Afli fjárfestingarfélagi hf., kt. 61195-2069, Laugavegi 182, 105 Reykjavík, a› kaupa hlutabréf fleirra í félaginu. Tilbo› fletta er sett fram í samræmi vi› VI. og VII. kafla laga nr. 33/2003, um ver›bréfavi›skipti. Samkvæmt 32. grein laganna er me›al annars kve›i› á um a› a›ilum sem eignast 40% atkvæ›isréttar í hlutafélagi, sem skrá› er á skipulegum ver›bréfamarka›i, er skylt a› gera ö›rum hluthöfum yfirtökutilbo›. Fjárfestingarfélagi› Atorka hf. sem á 54,98% af virku hlutafé í Afli fjárfestingarfélagi hf. gerir flví hluthöfum tilbo› í hlutabréf fleirra. Í kjölfar yfirtökutilbo›sins er stefnt a› afskráningu Afls fjárfestingarfélags hf. úr Kauphöll Íslands. Tilbo›sver›i› er 2,50 kr. fyrir hverja krónu nafnver›s í Afli fjárfestingarfélagi hf. Greitt ver›ur fyrir hlutina me› n‡jum hlutum í Fjárfestingarfélaginu Atorku hf. mi›a› vi› gengi› 4,25. Skiptigengi› er flví 0,588 kr. hlutafjár í Fjárfestingarfélaginu Atorku hf. fyrir hverja krónu nafnver›s í Afli fjárfestingarfélagi hf. Tilbo› fletta gildir frá klukkan 9:00 föstudaginn 10. september 2004 til kl. 16:00 föstudaginn 8. október 2004. Hluthafar í Afli fjárfestingarfélagi hf. fá tilbo›syfirlit og ey›ubla› til samflykkis tilbo›inu sent í pósti næstu daga. Umsjónara›ili yfirtökutilbo›sins fyrir hönd Fjárfestingarfélagsins Atorku hf. er Fyrirtækjará›gjöf Landsbanka Íslands hf., Hafnarstræti 5, 155 Reykjavík. Nánari uppl‡singar um yfirtökutilbo›i› er hægt a› nálgast hjá umsjónara›ila. Tilboð til hluthafa í Afli fjárfestingarfélagi hf. Reuters Ættingjar og nágrannar átta ára barns, sem lét lífið í skólanum í Beslan, kveðja hann áður en hann var borinn til grafar í gær. „Við sýndum veikleika og veikt fólk fer halloka,“ sagði Pútín. Hann rakti þessa veikleika til hruns Sovétríkj- anna, erlendra óvina sem leituðust við að splundra Rússlandi og spilltra embættismanna. Hann sagði að Rúss- ar gætu ekki lengur lifað „áhyggju- lausu lífi“ og þyrftu allir að taka hönd- um saman í baráttunni við hryðjuverkamenn. „Sumir vilja skera safaríkan kjöt- bita frá okkur, aðrir vilja hjálpa þeim,“ sagði Pútín. „Þeir aðstoða, telja að þeim stafi enn hætta af Rúss- landi sem einu af mestu kjarnorku- veldum heims. Þess vegna þurfi að uppræta þessa hættu. Og hryðju- verkastarfsemi er auðvitað aðeins tæki til að ná þess- um markmiðum.“ Nokkrir sérfræðingar í öryggismálum sögðu að svo virtist sem Pútín kenndi Vesturlöndum um hryðju- verkin og ræðan markaði því þáttaskil í utanríkisstefnu hans. „Hverjir óttast kjarnavopnin okkar? Að hverjum beinast þau? Það eru Vesturlönd, ekki Osama bin Laden,“ sagði Pavel Felgenhauer, óháður sér- fræðingur í varnarmálum Rússlands. Pútín hét ráðstöfunum til að stokka upp í öryggisstofnunum, sem hann viðurkenndi að væru flekkaðar af spillingu, og herða eftirlitið á landa- mærunum. Réttindi borgaranna verði ekki skert Sergej Markov, sérfræðingur í rússneskum stjórnmálum, sagði að Pútín væri að búa sig undir viðamiklar breytingar á öryggisstofnunum í lík- ingu við þær sem hófust í Bandaríkj- unum eftir hryðjuverkin þar 11. sept- ember 2001. Hann spáði því að þessar breytingar myndu hafa mikil áhrif á líf Rússa á næstu árum, t.a.m. stór- hert öryggisgæsla við skóla. „Gerðar verða ráðstafanir til að hindra að hryðjuverkamenn geti not- að fjölmiðlana í auglýsingaskyni og mikilvægt er að erlendu fjölmiðlarnir skilji þetta líka,“ sagði Markov. Pútín sagði þó í ávarpinu að stjórn- arskrárbundin réttindi borgaranna yrðu ekki skert. „Ég vil leggja áherslu á þetta: allar þessar aðgerðir verða í fullu samræmi við stjórnarskrá lands- ins.“ Illa skipulagðar aðgerðir Rússnesk yfirvöld segja að þau hafi ekki ætlað að fyrirskipa sérsveitar- mönnum að ráðast inn í skólann í Beslan til að frelsa gíslana og áhlaupið á föstudag hafi því ekki verið undirbú- ið. Franskir og breskir sérfræðingar í aðgerðum til að frelsa gísla segja að þetta hafi einmitt verið meinið; sér- sveitarmennirnir hafi augljóslega ekki verið undir það búnir að takast á við gíslatökumennina og aðgerðir yf- irvalda hafi verið illa skipulagðar. Rússnesk yfirvöld hafa meðal ann- ars verið gagnrýnd fyrir að hafa ekki látið loka svæðinu umhverfis skólann. Fréttamenn og foreldrar barnanna hafi fengið að fara mjög nálægt bygg- ingum skólans og því truflað aðgerðir sérsveitarmannanna. Þá hafi þeir ver- ið illa búnir vopnum og tækjum til að njósna um gíslatökumennina í skól- anum. Sérfræðingarnir viður- kenna þó að sérsveitar- mennirnir voru í mjög slæmri aðstöðu vegna þess að hættan á blóðsúthellingum var alltaf mjög mikil. Beiðni um skýringar mótmælt Rússnesk stjórnvöld hafa mótmælt harðlega ummælum Bernards Bots, utanríkisráðherra Hollands, sem fer með formennsku í Evrópusamband- inu, um að sambandið þyrfti að „fá skýringar frá rússneskum stjórnvöld- um á því hvers vegna þessi sorglegi atburður gat átt sér stað“. Bot lét þessi orð falla skömmu eftir að sér- sveitarmennirnir réðust inn í skólann og Rússar túlkuðu þau þannig að ráð- herrann kenndi þeim um blóðsúthell- ingarnar. Utanríkisráðherra Rússlands, Sergej Lavrov, sagði ummæli Bots „ósvífin, viðbjóðsleg og afar móðg- andi“. Enn er óljóst hverjir gíslatöku- mennirnir voru. Talsmaður innanrík- isráðuneytis Norður-Ossetíu sagði að tíu arabar, Ossetíumaður, Rússi, Ing- úsar og Tétsenar hefðu tekið þátt í gíslatökunni. Rússneskir embættis- menn segja að gíslatökumennirnir tengist tétsensku stríðsherrunum Shamil Basajev og Doku Umarov og hafi notið stuðnings alþjóðlega hryðjuverkanetsins al-Qaeda. Sendimaður tétsenskra uppreisn- armanna í Evrópu, Ahmed Zakajev, segir hins vegar að Tétsenar hafi ekki tekið þátt í gíslatökunni. Uppreisnar- mennirnir segja að íslamistar í Osset- íu kunni að hafa staðið fyrir gíslatök- unni. Flestir íbúar Norður-Ossetíu eru kristnir og múslímar eru þar í minnihluta. Enn var óljóst í gær hversu margir biðu bana í hildarleiknum í skólanum. Embættismenn sögðu að 324–340 hefðu látið lífið en starfsmaður lík- húss í bænum sagði að þangað hefðu þegar verið flutt 394 lík. Óstaðfestar fregnir hermdu að um 180 til viðbótar væri enn saknað, en rússneskir fjöl- miðlar leiddu getum að því að sumir þeirra kynnu að vera á meðal þeirra sem særðust og voru fluttir á nokkur sjúkrahús í Norður-Ossetíu. Pútín lofar miklum um- bótum í öryggismálum Moskvu. AP, AFP. ’Við sýndumveikleika og veikt fólk fer halloka.‘ INNANRÍKISRÁÐHERRA Norður-Ossetíu bauðst í gær til að segja af sér vegna gíslatökunnar, sem kostaði á fjórða hundrað manns lífið, í skóla í bæn- um Beslan í rússneska sjálfstjórnarlýðveldinu Norður-Ossetíu. Vladímír Pútín Rússlandsforseti ávarpaði þjóðina í sjónvarpi um helgina og viður- kenndi veikleika Rússa frammi fyrir hryðjuverkamönnum sem hann kvað hafa lýst yfir allsherjarstríði á hendur Rússum. Hann skoraði á rússnesku þjóðina að fylkja liði gegn óvinunum og lofaði víðtækum umbótum til að efla öryggisstofnanir landsins og uppræta spillingu. INNFLYTJENDUM í Svíþjóð gefst nú kostur á að sækja und- irbúningsnámskeið við Lög- regluháskólann í Málmey. Í frétt á vef dagblaðsins Dagens Nyheter kemur fram að starfs- fólk sænsku lögreglunnar á að endurspegla samsetningu sam- félagsins en í Málmey eru a.m.k. 25% íbúa innflytjendur af fyrstu eða annarri kynslóð. Hlutfallið er alls ekki svo hátt innan lög- reglunnar á staðnum, en raunar er ekki vitað hve margir af 2.100 lögregluþjónum á Skáni eru af innflytjendaættum. Undirbúningsnámskeiðið hófst í júní og stendur yfir í sex mánuði. Því er ætlað að búa at- vinnulausa innflytjendur undir inntökupróf í Lögregluháskól- ann. Standast þarf skrifleg og verkleg próf. „Ég held að það sé gott fyrir Svíþjóð að hafa lögregluþjóna með innflytjendabakgrunn, sér- staklega konur,“ segir Masallah Kartal frá Kúrdistan, ein 34 sem sitja undirbúningsnámskeiðið. Til bóta fyrir lögregluna Mostafa Alshawi flutti til Sví- þjóðar frá Írak þegar hann var þriggja ára og hefur langað í lögguna síðan hann var strákur. „Ég hef séð hvernig margir af vinum mínum hafa farið út af réttri braut. Ég á samfélaginu og fótboltanum mikið að þakka og mér finnst ég geta gefið sam- félaginu eitthvað til baka með því að verða lögregluþjónn.“ Jan Jönsson, talsmaður sænsku lögreglunnar, segir í Dagens Nyheter að það væri til bóta fyrir sænsku lögregluna að fá í sínar raðir lögregluþjóna úr hópi innflytjenda. „Arabískur lögregluþjónn þekkir arabískar hefðir og tungumál og á auð- veldara með að mynda tengsl og ávinna sér traust.“ Svíþjóð Vilja inn- flytjendur í lögregluna Gautaborg. Morgunblaðið.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.