Morgunblaðið - 06.09.2004, Síða 23
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 6. SEPTEMBER 2004 23
Elskulegur bróðir okkar og frændi,
GUÐJÓN LOFTSSON,
Bjarkarbraut 7,
Dalvík,
sem lést sunnudaginn 29. ágúst, verður jarð-
sunginn frá Davíkurkirkju þriðjudaginn
7. september klukkan 13.30.
Þórgunnur Loftsdóttir,
Bergljót Loftsdóttir,
Hildur Björk Loftsdóttir,
Sigríður Loftsdóttir,
Loftur Gunnar Sigvaldason,
Helga Björk Sigvaldadóttir,
Sveinn Haukur Sigvaldason.
Móðir mín, fósturmóðir og amma okkar,
HALLDÓRA KRISTINSDÓTTIR,
áður Stórholti 31,
lést á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Grund
laugardaginn 21. ágúst.
Hún verður jarðsungin frá Fossvogskapellu
þriðjudaginn 7. september kl. 13.30.
Árni Þórðarson,
Hulda Ólafsdóttir,
Þórður Árnason,
Guðni Friðrik Árnason,
Kristinn Árnason.
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi, langafi
og langalangafi,
JÓHANN VALDEMARSSON,
frá Möðruvöllum
í Eyjafirði,
lést á Dvalarheimilinu Hlíð á Akureyri föstu-
daginn 3. september sl.
Jarðarförin auglýst síðar.
Gerður Jóhannsdóttir, Kjartan Á. Kjartansson,
Gunnar Jóhannsson, Heiðdís Norðfjörð,
María Jóhannsdóttir,
Guðrún Jóhannsdóttir, Garðar Karlsson,
Jóhann Jóhannsson, Anna María Halldórsdóttir,
barnabörn, barnabarnabörn
og barnabarnabarnabarn.
Elskuleg móðir mín, tengdamóðir og amma,
SIGRÚN SKARPHÉÐINSDÓTTIR,
Stóragerði 5,
Reykjavík,
verður jarðsungin frá Fríkirkjunni í Reykjavík
þriðjudaginn 7. september kl. 13.30.
Sigríður Magnea Njálsdóttir,
Björgvin Þ. Valdimarsson,
Sigrún Ósk Björgvinsdóttir,
Helga Þóra Björgvinsdóttir
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengda-
móðir og amma,
HELGA SIGURÐARDÓTTIR,
Sólvallagötu 5a,
Reykjavík,
verður jarðsungin frá Dómkirkjunni í Reykjavík
miðvikudaginn 8. september kl. 15.00.
Þeim, sem vilja minnast hennar, er bent á
Umhyggju, félag langveikra barna.
Lárus B. Björnsson,
Þórhildur Lárusdóttir, Vilmundur Jósefsson,
Ólafur Björn Lárusson, Ásgerður Hallgrímsdóttir
og barnabörn.
Ástkær móðir mín,
ELÍN SIGRÍÐUR JAKOBSDÓTTIR,
síðast til heimilis í
Hraunbæ 103,
Reykjavík,
lést þriðjudaginn 31. ágúst sl.
Útförin fer fram frá Árbæjarkirkju þriðjudaginn
7. september kl. 13.30.
Sérstakar þakkir eru færðar starfsfólki á dvalar-
heimilinu Blesastöðum á Skeiðum.
Fyrir hönd aðstandenda,
Halldóra M. Halldórsdóttir.
✝ Kristján Einars-son fæddist í
Hveragerði 14. jan-
úar 1940. Hann lést á
Landakotsspítala 26.
ágúst síðastliðinn.
Foreldrar hans voru
Guðrún Guðmunds-
dóttir, f. 16. maí 1910,
d. 2. október 1999 og
Einar Kristinsson, f.
18. mars 1911, d. 27.
janúar 1949.
Bræður Kristjáns
eru Svavar, f. 23. júní
1934 og Guðmundur,
f. 7. maí 1943, hálfsystkin sam-
mæðra eru Arndís Hjartardóttir,
f. 16. nóvember 1950; Einar Hjart-
arson, f. 18 maí 1953; Guðbjörg
Hjartardóttir, f. 29. mars 1955.
Stjúpsystkin eru Sverrir Hjartar-
son, f. 1931; Bernharð Hjartarson,
f. 1932, d. 2002; Anna Hjartardótt-
ir, f. 1935, d. 1995; Hjördís Hjart-
ardóttir, f. 1939.
Árið 1965 gekk Kristján að eiga
Margrét Matthildi Björnsdóttur
frá Álftafirði, f. 19. október 1945.
Foreldrar Margrétar eru Stella
Fanney Guðmunds-
dóttir og Björn Jóns-
son, f. 21. ágúst 1912,
d. 12. desember
1993. Börn Kristjáns
og Margrétar eru: 1)
Guðmundur Einar, f.
16. september 1965,
maki Norine Krist-
jánsson, dóttir þeirra
Lydia Margrét, Guð-
mundur átti dóttur
af fyrra hjónabandi,
Aðalheiði Ósk. 2)
Björn Ingi, f. 16.
september 1965,
maki Amelita Ýr Caparida, þau
eiga tvö börn Katrínu Marie og
Kolbein Frey. 3) Róbert, f. 2. júní
1969, maki Þórlaug Svava Arnar-
dóttir, þau eiga tvö börn, Kristján
Örn og Rebekku Heiðu, Róbert
átti af fyrra hjónabandi dóttur,
Emblu Isabellu-Pearl. 4) Friðrik
Bergmann, f. 1. mars 1972, unn-
usta Elfa Dögg Blumenstein. 5)
Kristinn Rúnar, f. 2. ágúst 1984.
Útför Kristjáns fer fram frá Frí-
kirkjunni í Reykjavík í dag og
hefst athöfnin klukkan 13.30.
Elsku pabbi, nú ert þú kominn í
þína hvíld. Það er gott að eiga góðar
minningar um þig. Ég sakna þess að
hafa ekki getað séð þig og talað við
þig eins oft og ég óskaði mér, það
fylgir því að búa erlendis, en við töl-
uðumst oft við í síma. Það er stundum
erfitt að koma orðum að tilfinningum
sínum á svona stundu. Ég vissi alltaf
af ást og kærleika þínum.
Mig langar að þakka þér fyrir að
kenna mér þolinmæði í bílaviðgerð-
um, þú gafst ekki upp þó að þessar
viðgerðir væru að gera mig vitlausan,
þú hélst alltaf ró þinni. Ég sakna þess
að sitja hjá þér yfir spjalli og kaffi-
bolla, þú hefur alltaf verið til staðar
fyrir okkur.
Þakka þér fyrir allt sem þú hefur
látið af þér leiða.
Ég sakna þín.
Guðmundur Einar Kristjánsson.
Nú ertu farinn á braut faðir minn
og er þín sárt saknað, við hefðum vilj-
að hafa þig lengur hjá okkur. Faðir
minn þú hjálpaðir okkur mikið í gegn-
um okkar líf með þína lífsspeki og
hjartahlýju. Að eiga þig fyrir vin var
að eiga gull. Að hafa þig fyrir föður er
einstakt. Faðir það er svo margt sem
ég vil segja þér um allt það sem á
daga okkar hefur drifið. Með þessa
hæfileika sem þú notaðir fyrir fólkið,
ættingja og fjölskyldu. Faðir þú vildir
hjálpa öllum sem til þín leituðu án
þess að kvarta yfir því sem hrjáði þig.
Faðir þú ert alveg einstök persóna,
það var svo gott að koma til þín þegar
manni leið illa og finna heitar hendar
losa mig undan þreytu. Í mínum huga
og hjarta ertu faðir og vinur og sakna
ég þín mjög mikið eins og við öll. Þú
vissir oft hvað við þurftum þótt við
segðum ekki frá. Nú ert þú kominn á
þinn stað og ég veit að þér líður betur
og heldur áfram að hjálpa fólki eins
og þú gerðir alla tíð. Við vitum að þú
faðir minn kemur oft í heimsókn til
okkar og hjálpar okkur eins og alltaf.
Hvíl þú í friði og ljósi sem voru kenni-
orð þín í þessari vinnu að heila. Og
hvað sem gekk á hjá þér vildir þú allt-
af að við myndum lifa lífinu lifandi og
það ætlum við að gera. Ég kveð þig í
þessu jarðneska lífi og fagna þér í
hinu andlega, því að ég veit að þar
getur þú faðir minn fylgst betur með
því hvað við erum að gera. Við biðjum
öll fyrir góðar kveðjur til englanna
sem vaka yfir okkur með þér. Með
kærar kveðjur þér til handa og megir
þú njóta himnaverunnar með guði.
Við strákarnir munum hugsa vel um
mömmu. Kveðja
Björn Ingi Kristjánsson.
Kæri afi.
Það var gaman þegar þú varst
hérna, þá passaði ég þig þegar amma
fór upp í búð. Þegar ég fór að gráta
eða í fýlu þá kallaðir þú mig Petrínu.
Ég sýndi þér einkunnina mína, þú ert
besti afi minn, það er ekki hægt að fá
annan afa eins og þig en versta er að
þú ert ekki hér. Þú varst mjög
skemmtilegur. Það væri gaman ef þú
værir hér en amma saknar þín og allir
en ég skal hugsa um ömmu fyrir þig
og komdu til ömmu og farðu inn í
draumana hennar og láttu henni líða
vel að eilífu. Við reynum að gera hell-
ing fyrir hana og hugsum vel um
hana, en vertu hjá henni og hér er
bænin þín.
Vertu yfir og allt um kring
með eilífri blessun þinni,
sitji Guðs englar saman í hring
sænginni yfir minni.
(Sig. Jónsson frá Presthólum.)
Embla.
Kæri afi, ég er að verða góð í ís-
lensku, en það er sko mjög erfitt.
Takk fyrir að vera afi minn og
kennari. Ég hef átt mjög góðar og
skemmtilegar stundir með þér. Þú
hefur alltaf fengið mig til að brosa og
þá sérstaklega þegar ég hef verið í
fýlu. Ég sakna þín mjög mikið og mun
alltaf muna eftir þér afi minn. Hafðu
góða skemmtun uppi í himnaríki hjá
englunum og guði. Ég elska þig svo
mikið og Kolbeinn líka. Þú munt búa í
hjarta okkar og hugsaðu mikið til
ömmu, hún þarfnast þess. Vinátta er
eins og poki sem má ekki loka.
Kveðja,
Katrín Marie Björnsdóttir.
Mig langar að minnast vinar okkar
Kristjáns Einarssonar fyrir hönd fé-
lagsins á Suðurlandi. Kristján vann
óeigingjarna vinnu hjá okkur til
margra ára og það verður seint full-
þakkað. Þær voru ófáar ferðirnar
sem hann kom austur fyrir fjall í
hvaða veðri sem var. Hann var mikið
ljúfmenni og gerði allt á sinn hægláta
og yfirvegaða hátt.
Ég vil þakka honum allt það sem
hann gaf mér sem og öllum öðrum hjá
okkur.
Ég votta konu hans og fjölskyldu
dýpstu samúð.
Ég veit, Kristján minn, að það er
vel tekið á móti þér.
Hvíl þú í friði. Hittumst á öðrum
stað.
Fyrir hönd Sálarrannsóknafélags
Suðurlands,
Líney Tómasdóttir.
Ég kveð kæran vin með virðingu
og þökk. Vin, sem átti bara ekkert að
fara svona fljótt.
Hverslags svindl er þetta eiginlega
hjá máttarvöldunum? Það var heil-
mikil orka eftir hjá þessum frábæra
vini, orka sem var aflgjafi svo
margra.
Ógleymanlegt var að sitja hjá
Kristjáni og ræða um lífsins gagn og
nauðsynjar og fara á flug um víðan
völl á hugarfluginu einu saman. Því
víðáttu átti hann næga, í allar áttir.
Hann var áhugamaður um vítamín
og samsetningu þeirra, og var með al-
veg ótrúlega og yfirgripsmikla þekk-
ingu á því sviði.
Ég þakka samfylgdina sem sann-
arlega hefði mátt verða miklu, miklu
lengri.
Megi algóður guð varðveita og
blessa fjölskylduna sem nú kveður
frábæran fjölskylduföður.
Rósa Ingólfsdóttir.
KRISTJÁN
EINARSSON
Bless afi, við söknum þín.
Aðalheiður Rós Guðmundsdóttir,
Lydia Margrét Guðmundsdóttir.
HINSTA KVEÐJA Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
SIGRÍÐUR EGILSDÓTTIR,
sem lést á Hrafnistu í Hafnarfirði 30. ágúst sl.,
verður jarðsungin frá Bústaðakirkju fimmtu-
daginn 9. september kl. 13.30.
Una O. Guðmundsdóttir, Þórir Skúlason,
Erling R. Guðmundsson, Vilhelmína Ísaksen,
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma,
DÓRA GUÐBJARTSDÓTTIR
Aragötu 13,
Reykjavík,
andaðist 3. sept. á Landspítala- háskólasjúkrahúsi, Fossvogi. Jarðarförin
auglýst síðar.
Kristrún Ólafsdóttir, Einar G. Pétursson,
Dóra Ólafsdóttir,
Ólafur Jóhannes Einarsson, Laurence van Wymeersch,
Guðbjartur Jón Einarsson.