Morgunblaðið - 06.09.2004, Qupperneq 28
HESTAR
28 MÁNUDAGUR 6. SEPTEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Heimsmeistaramót hesta
í Norrköping 2005
Við höfum tryggt okkur nokkrar íbúðir í miðbæ Norrköping
4ra til 7 manna til útleigu á meðan á VM 2005 stendur
í Norrköping, 1.- 7. ágúst 2005.
Auk þess bjóðum við: Hótelherbergi 2ja-4ra manna á 4ra stjörnu hóteli, og á
mótssvæði verða: hjólhýsi, húsbílar, „hyttur 4ra manna“ auk bílaleigubíla.
Höfum sett upp frekari upplýsingar á heimasíðu okkar og fyrirspurnarform.
Fylkir - Bílaleiga ehf.
ferðaskrifstofa
sími 456-3745
heimasíða www.fylkir.is
MEISTARAMÓT Andvara er fyrir
löngu búið að tryggja sig í sessi sem
eitt af áhugaverðari hestamótum árs-
ins hér á landi og talar mikil skráning
nú á mótinu sínu máli þar um. Sextíu
og tveir hestar í B-flokki gæðinga og
fimmtíu og tveir í A-flokki. Reyndar
vekur það nokkra athygli að einungis
þrjátíu og einn knapi var skráður í
töltkeppni mótsins.
Ný stjarna skaust upp á yfirborðið
í B-flokknum þar sem er Röðull frá
Kálfholti sem Ísleifur Jónasson sýndi
en þetta er það sem kalla má heima-
ræktaður hestur það er hann er und-
an tveimur hrossum frá Kálfholti en
faðirinn er Asi frá Kálfholti sem hefur
að því er virðist lítið vera notaður ut-
an síns heimabæjar en er að gefa
prýðisgóð hross að því er virðist af
fjölmörgum ræktunarhópssýningum
þeirra feðga frá Kálfholti. En það var
sem sagt Kálfholtsræktun á bæði
mönnum og hestum sem tróndi á
toppnum í B-flokki eftir forkeppnina
með 8,84 í einkunn. Stóðhesturinn
Kolviður frá Skeiðháholti kom næst-
ur með 8,70 og Bruni frá Hafsteins-
stöðum vermdi þriðja sætið með 8,65
en nú var það eigandinn sjálfur Jón
Olsen sem sat við stjórnvölinn. Knapi
á Kolviði var Sigurður V. Matthías-
son.
Hinni nýju stjörnu B-flokksins var
ekki ógnað í úrslitum en Hinrik
Bragasyni tókst að skjóta sér og sín-
um nýja hesti Sæla frá Skálakoti úr
fjórða í annað sætið og höfðu þeir
sætaskipti við Kolvið og Sigurð V.
Matthíasson. Bruni og Jón náðu svo
fjórða sætinu og Sigurbjörn Bárðar-
son seiglaðist með alhliða gæðinginn
Óskar frá Litladal í fimmta sætið.
Í A-flokki var það Skuggabaldur
frá Litladal sem efstur stóð í for-
keppni með 8,77 en Stakkur frá Hall-
dórsstöðum sem Páll Bjarki Pálsson
sat var ekki langt undan með 8,72.
Nokkuð var í næsta kepppanda sem
var Leiknir frá Laugarvöllum og
Sveinn Ragnarsson sat að venju en
þeir voru með 8,55. Tryggvi Björns-
son keypti sig inn í B-flokks úrslit
með hest sinn Gamm frá Steinnesi og
höfnuðu þeir í áttunda sæti.
Úrslit A-flokks voru nokkuð
dramatísk en Skuggabaldur og Sig-
urður hröpuðu niður í áttunda sæti en
allt gekk upp hjá Stakki og Páli
Bjarka og fóru þeir yfir níuna í úrslit-
um, góð sárabót eftir hrakfarir þeirra
á landsmótinu þar sem þeir misstu af
úrslitunum þar sem Stakkur greip illa
á sig. Skuggabaldur týndist kvöldið
fyrir úrslitin og var á einhverju næt-
urgöltri í nágrenni Kjóavalla um nótt-
ina en fannst á sunnudagsmorgni og
hefur þetta næturævintýri hans ef til
vill dregið úr honum fyrir átökin en
vonandi hefur hann skemmt sér vel.
Daníel Ingi sem keypti sig inn í úr-
slitin sýndi að þangað átti hann og
hestur hans Krapi fullt erindi er þeir
náðu sjötta sætinu.
Sigurbjörn Bárðarson lumaði á
nokkrum trompum í erminni þegar
kom að úrslitum í töltkeppninni en
hann sigraði á óþekktum hesti Ugga
frá Kvíabekk en í forkeppni voru þeir
í þriðja til fjórða sæti en í úrslitunum
sýndu þeir félagar á sér sparihliðina
og sigruðu nokkuð örugglega. Þá
vann Sigurbjörn það fágæta afrek að
koma tveimur hestum í úrslit í
B-flokki á nákvæmlega sömu ein-
kunn. Það voru þeir Kári frá Búlandi
og Óskar frá Litladal.
Þrátt fyrir rysjótt veður gekk mót-
ið prýðilega fyrir sig enda vanir karl-
ar og konur á ferð. Auk þess að vera
vinsæll og áhugaverður viðburður á
sviði hestamennsku er mót þetta afar
góð fjáröflun hjá Andvara og má
undrum sæta hversu vel þeir halda
dampi ár eftir ár.
Meistaramót Andvara á Kjóavöllum um helgina
Mót hinna óþekktu hesta
Botninn var sleginn í
hestamótahald ársins á
Kjóavöllum um helgina
þar sem skiptust á skin
og skúrir hvað veðrinu
viðkom. Valdimar
Kristinsson viðraði sig á
völlunum milli skúra og
fylgdist með keppninni.
Morgunblaðið/Vakri
Gæðingakeppni meistaramótsins er ávallt spennandi enda valinn gæðingur í hverju rúmi og miklar kröfur gerðar til þeirra. Ís-
leifur og Röðull hlutu afar veglegan bikar fyrir sigur í B-flokknum.
Valdimar Bergstað hefur farið mikinn á þessu keppnis-
tímabili, keppt í unglingaflokki en einnig glímt við hina eldri
og staðið sig. Hann endaði keppnistímabilið vel á lánshest-
inum Feykivindi frá Svignaskarði.
Röðull og Ísleifur Jónasson, báðir frá Kálfholti í
Ásahreppi, gerðu góða ferð í bæinn, sigruðu
örugglega í B-flokki og hafa þar með skipað sér á
bekk meðal hinna fremstu.
Það var lítið gefið eftir í keppni vekringanna og allt lagt undir í hverjum spretti. Hér má
sjá þau Döllu frá Dallandi, Óðin frá Efstadal og Vask frá Vöglum á mikilli siglingu.
TÍMABÆRT er orðið fyrir hesta-
menn að fara að huga að uppsetn-
ingu á úrslitum frá hestamótum til
birtingar í fjölmiðlum. Er það orð-
ið nokkuð fjölbreytilegt hvernig
atriðum er raðað upp svo ekki sé
nú meira sagt. Gera má ráð fyrir
að nú í lok keppnistímabilsins fari
fram endurskoðun á hinu nýja for-
riti Kappa sem notað hefur verið á
allmörgum mótum í sumar og þar
á meðal öllum þeim stærri.
Venjan hefur verið sú að í gæð-
ingakeppni er fyrst nafn og fæð-
ingarstaður hests. Þá kemur nafn
eiganda hests og þar á eftir nafn
knapa og síðast einkunnir. Þegar
um íþróttamót er að ræða er það
nafn knapans sem kemur fyrst og
þá nafn og fæðingarstaður hests
og síðast einkunnir. Þegar um
kynbótahross er að ræða er gjarn-
an nafn og fæðingarstaðir foreldra
látið fylgja með en það er önnur
saga því Mótafengur og Kappi eru
að sjálfsögðu ekki hannaðir fyrir
kynbótahross. En nú á þessum
tímamótum þegar þessi tvö kerfi
hafa verið notuð eitt tímabil ætti
að vera kjörið tækifæri á að koma
skikki á þessa hluti þannig að
samræmi verði í birtingu úrslita.
Mikilvægt er að ganga þannig frá
hnútunum að ekki þurfi eyða
miklum tíma að loknu móti í að
setja upp úrslit fyrir fjölmiðla
heldur að kerfið sjái að mestu
leyti um það. Og svo hitt að
starfsmenn fjölmiðla þurfi svo
ekki í framhaldinu að leggja
ómælda vinnu í setja upplýsing-
arnar upp á nýjan leik sé á annað
borð metnaður fyrir að ganga
þannig frá hlutum að aðgengilegt
sé fyrir lesendur. Oft hefur viljað
brenna við á netmiðlum að úrslit-
um sé dengt óbreyttum inn á við-
komandi miðil og er útkoman oft
og tíðum klúðursleg. Ætla má að
hægt sé að gera þetta einfalt á
tölvuöld.
Endurskoðunar á röðun úrslita þörf
A-flokkur
1. Stakkur frá Halldórsstöðum, Páll B. Pálsson, 8,72/9,08
2. Arna frá Varmadal, Edda R. Ragnarsdóttir, 8,51/8,56
3. Léttir frá Stóra-Ási, Benedikt Líndal, 8,46/8,56
4. Sjöfn frá Akranesi, Logi Þ. Laxdal, 8,46/8,49
5. Kolskeggur frá Oddhóli, Sigurbjörn Bárðarson, 8,53/8,46
6. Krapi frá Kaldbak, Daníel Ingi Smárason, 8,34/8,36
7. Skafl frá Norður-Hvammi, Sigurður V. Matthíasson, 8,53/8,20
8. Skugga-Baldur frá Litla-Dal, Sigurður Sigurðarson, 8,70/8,19
9. Leiknir frá Laugavöllum, Sveinn Ragnarsson, 8,55/7,80
B-flokkur
1. Röðull frá Kálfholti, Ísleifur Jónasson, 8,84/8,94
2. Sæli frá Skálakoti, Hinrik Bragason, 8,64/8,84
3. Bruni frá Hafsteinsstöðum, Jón B. Olsen 8,65/8,76
4. Kolviður frá Skeiðháholti, Sigurður V. Matthíasson 8,70/8,69
5. Óskar frá Litla-Dal, Sigurbjörn Bárðarson 8,53/8,61
6. Skúmur frá Neðri-Svertingsstöðum, Róbert Petersen, 8,63/8,54
7. Kári frá Búlandi, Sigurbjörn Bárðarson/Sylvía Sigurbjörnsdóttir
8,53/8,51
8. Gammur frá Steinnesi, Haukur Tryggvason, 8,48/8,43
9. Dröfn frá Höfða, Birgitta D. Kristinsdóttir 8,55/8,32
Tölt/A-úrslit
1. Sigurbjörn Bárðarson og Uggi frá Kvíabekk, 6,90/7,39
2. Sigurður Sigurðarson og Sólon frá Stóra-Hofi 7,00/7,25
3. Sveinn Ragnarsson Loftfari frá Laugavöllum 6,90/7,14
4. Hulda Gústafsdóttir Glæsir frá Ytri-Hofdölum 7,10/7,06
5. Edda R. Ragnarsd. Hreggur frá Sauðafelli, 6,73/7,03/7,03
6. Hinrik Bragason Víkingur frá Efri-Gegnishólum 6,87/6,92
B-úrslit
7. Ingólfur Jónsson og Tumi frá Stóra-Hofi 6,60/6,74
8. Jón B. Olsen og Númi frá Miðsitju, 6,60/6,64
9.Hallgrímur Birkisson og Þröstur frá Hóli, 6,57/6,26
10. Valdimar Bergstað og List frá Vakursstöðum, 6,77/5,13
100 metra flugskeið
1. Valdimar Bergstað á Feykivind frá Svignaskarði
2. Valdimar Bergstað á Bleikju frá Akureyri
3. Sigurður Sigurðarson á Drífu frá Hafsteinsstöðum
4. Sigurbjörn Bárðarson á Flosa frá Keldudal
5. Árni B. Pálsson á Hróðri frá Keldudal
250 metra skeið
1. Hekla frá Vatnsholti, kn.: Sigursteinn Sumarliðason, 22,31 sek.
2. Feykivindur frá Svignaskarði, kn.: Valdimar Bergstað, 22,36 sek.
3. Kafteinn frá Kálfhól, kn.: Logi Þ. Laxdal, 23,46 sek.
4. Óðinn frá Búðardal, kn.: Sigurbjörn Bárðarson, 23,60 sek.
5. Vaskur frá Vöglum, kn.: Siguður V. Matthíasson, 24,13 sek.
Úrslit meistaramóts Andvara