Morgunblaðið - 06.09.2004, Side 31
DAGBÓK
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 6. SEPTEMBER 2004 31
kr
Ármúla 31 • S. 588 7332
Opi›: Mán. - föst. 9-18,
Laugardaga 10-14
www.i-t.is
Úrval handlauga í bor›
53,5x41,5 sm, 43x39 sm, 56x47 sm.
Ver› frá kr. 7.900,- stgr
Handlaugar á vegg
45x35 sm
50x24 sm
Ver› frá kr. 3.250,- stgr
WC til innbyggingar.
Hör› seta fylgir.
Lok hvítt e›a stál fylgir.
Ver› kr. 39.900,- stgr
Sturtuhorn
65-80
75-90
Hvítt e›a króm
4-6 mm gler
Ver› frá
22.900,- stgr
Harmonikuhlífar
f. ba›kör
Öryggisgler.
Stær›ir 86 e›a 125
Ver› frá
kr. 15.900,- stgr
Ba›kars-
vængur
76 e›a 85 sm.
Öryggisgler.
Ver› frá
kr. 13.900,-
stgr
Heilir sturtuklefar í horn
Öryggisgler, segullæsing,
sturtu-sett, blöndunartæki,
botn og vatnslás.
70x70 cm.
Kr. 49.900,- stgr
80x80 cm.
Kr. 52.900,- stgr
75x90 cm.
Kr. 59.900,- stgr
90x90 cm.
Kr. 61.900,- stgr
Rúnna›
sturtuhorn
65-80
75-90
Hvítt e›a króm
4-6 mm gler
Ver› frá
39.850,- stgr
Heilir rúnna›ir
sturtuklefar í horn
Öryggisgler,
segullæsing, sturtu-
sett, blöndunartæki,
botn og vatnslás.
80x80 cm.
Kr. 76.900,- stgr
90x90 cm.
Kr. 78.900,- stgr
Stylo hitast‡r›
tæki fyrir sturtu e›a ba›.
Me› hita- og
vatnsöryggi.
Ver› frá
kr. 9.800,- stgr
MT
f. handlaug
m. lyftitappa
Kr 4.900,- stgr
WC me› stút í
vegg e›a gólf
Hör› seta og
festingar fylgja.
Ver› frá kr.
15.900,- stgr
Ba›kör
160x70, 170x70
170x83, 180x83
Ver› frá kr. 10.900,-
Handlaugar á fæti
55x45 sm
Ver› frá kr.
9.450,- stgr
Antico f. handlaug
Frá kr. 8.900,- stgr
Nostalgia
90x60 sm
105x60 sm
70x57 sm
kr
kr
kr kr krkr
krHreinlætistæki
Hagstæ›asta ver›i› er hjá okkur
MT
ba› - sturta
m. sturtusetti
Kr 5.900,- stgr
Úrval
handlauga
ofan á bor›
Frá kr. 12.920,- stgr
Norræn ráðstefna um skapandi greinarverður haldin hér á landi næstafimmtudag, 9. september. Ráð-stefnan er hluti af samstarfi Impru,
nýsköpunarmiðstöðvar við Jenka-verkefnið sem
styrkt er af Nordisk Innovations Center, en
Jenka-verkefninu er ætlað að efla uppbyggingu
og þróun á skapandi greinum, sem stundum eru
nefndar upplifunar- og afþreyingariðnaður.
Fyrirlesarar úr ýmsum áttum atvinnulífs og
menningarmála munu flytja erindi og fræða
gesti ráðstefnunnar um stöðu skapandi greina
hérlendis og í nágrannalöndunum með það að
leiðarljósi að marka ákveðna stefnu auk þess að
ræða möguleika á hugsanlegu styrkhæfu sam-
starfi við nágrannaþjóðirnar. Meðal umfjöll-
unarefna eru Latibær, ferðamennska, leikhús
og tónlist.
Verkefnastjóri ráðstefnunnar er Helga Sig-
rún Harðardóttir.
Hversu margir gestir sækja þessa ráðstefnu
og hvað verður í boði?
„Við eigum von á um 30–40 manns hingað til
lands í tengslum við ráðstefnuna auk þess sem
fjölmörgum aðilum innanlands hefur verið boð-
ið að sækja hana. Er það von okkar að þar
myndist tengsl sem verði til þess að menn
kynnist því sem nágrannaþjóðirnar eru að að-
hafast og hugsanlega finni sér samstarfsvett-
vang. Í kjölfar ráðstefnunnar fara erlendir
gestir í eins og hálfs dags ferð til að kynnast
sérstöðu landsins og náttúru. Þar á meðal verð-
ur farið í Bláa lónið, kajaksiglingu, hestaferð og
hvalaskoðun.“
Í hverju felst mikilvægi hinna skapandi
greina?
„Það felst í raun og veru í því að á Vest-
urlöndum eru fjölskyldur og fólk farið að eyða
meiri peningum í menningu, listir, upplifun og
afþreyingu en í ýmsar nauðsynjavörur. Norð-
menn eyða meiru í menningu en í mat og
Bandaríkjamenn eyða meiru í þessar greinar en
í bíla. Þetta þýðir að við þurfum að vera vel á
verði með hvað er að gerast á þessum vettvangi
til að geta tekið réttar ákvarðanir, t.a.m. um
það hvaða greinar stjórnvöld eiga að styrkja
sérstaklega, til þess að fylgjast með og dragast
ekki aftur úr.
Litlar rannsóknir hafa verið gerðar á þessu
hérlendis og töluvert vantar upp á það, svo við
vitum ekki hver hegðun Íslendinga er á þessu
sviði. Það er mikilvægt að gera frekari rann-
sóknir til að fé sé veitt í greinar sem skila ein-
hverju til baka.“
Eru miklir útrásarmöguleikar í þessari
grein?
„Tvímælalaust. Við sjáum hvað Gísli Örn
Garðarsson er að gera með Vesturportleikhúsið
og Rómeó og Júlíu og Magnús Scheving er að
gera við Latabæ. Ef rétt er á spilunum haldið
og við höfum næga þekkingu getur þetta reynst
mikill vaxtarbroddur í útflutningstekjum.“
Atvinnulíf | Norræn ráðstefna um skapandi greinar á Hótel Loftleiðum
Helga Sigrún
Harðardóttir er
þrjátíu og fjögurra
ára. Hún er kenn-
ari og námsráð-
gjafi að mennt og
hefur meistara-
gráðu í mannleg-
um samskiptum
frá Oklahomahá-
skóla. Helga hefur
aðallega unnið við
fjölmiðla, kennslu
og ráðgjöf og er
nú verkefnastjóri
á Impru, nýsköp-
unarmiðstöð.
Helga býr með Gunnlaugi Kristjánssyni
framkvæmdastjóra og eiga þau saman eina
dóttur.
Vona að mikilvæg tengsl myndist
Nýtt leiðakerfi strætó
ÉG vil þakka Kjartani Magnússyni
borgarfulltrúa, fyrir að vekja at-
hygli á nýju leiðakerfi strætó sem
á að taka gildi um næstu áramót.
Undirritaður býr á Bræðraborg-
arstíg og fer daglega með strætó
nr. 2 frá Vesturgötu upp á
Hlemm, þaðan í strætó nr. 6 beint
áfram upp í Hamrahlíð þar sem
undirritaður starfar í Hlíðarskóla.
Nú á að leggja báðar þessar leiðir
niður og verður langt að ganga í
næsta vagn, rétt eins og Kjartan
Magnússon er að segja. Maður er
að nálgast eftirlaunaaldur og öllu
snúið á hausinn.
P.s. Því í ósköpunum eru þessar
breytingar gerðar yfir svartasta
skammdegið en ekki yfir sumarið
þegar samgöngur eru greiðari?
Vestarr Lúðvíksson.
Maðurinn sem fann veskið
MAÐURINN sem fann veskið
mitt og hafði samband við minn
vinnustað, Droplaugarstaði, er
beðinn að hringja aftur í síma
869 9637.
Leiðabreytingar strætó
VEGNA leiðabreytinga hættir
strætó að ganga í hverfið mitt en
ég hef tekið strætó á hverjum
morgni í vinnu. Ég spyr, hvers
eigum við að gjalda, við sem tök-
um strætó daglega? Ég efast um
að nokkur noti strætó eftir þessar
breytingar.
Farþegi.
Jakkaföt týndust í rútu
LJÓS brúnteinótt jakkaföt í burð-
arpoka týndust líklega í rútu á
leiðinni frá Borg í Grímsnesi með
viðkomu á Selfossi, þar sem skipt
var um rútu, að stoppustöð á
Miklubraut við Kringluna. Skilvís
finnandi vinsamlega hafið sam-
band í síma 553 1760 eða 892 2001.
Stór regnhlíf týndist
TÝNST hefur regnhlíf á tímabilinu
júní-júlí. Regnhlífin er stór og
hægt að nota hana sem staf. Gæti
hafa gleymst í verslun. Hún er
græn á litinn með svörtum lit
neðst og efst og rendur fyrir neð-
an svarta litinn efst. Skilvís finn-
andi hafi samband í síma 553 6045.
Kvenreiðhjól í óskilum
RAUÐBLEIKT kvenreiðhjól hef-
ur verið í óskilum í Laugardal í
sumar. Upplýsingar gefur Dóra í
síma 695 6813.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 kl. 10–12
og 13–15 | velvakandi@mbl.is
Morgunblaðið/Golli
VEGNA umfjöllunar um bóka-
útgáfu haustsins í Lesbók á
laugardag skal tekið fram að
ekki var sagt frá öllum bókum
sem væntanlegar eru að þessu
sinni heldur aðeins völdum titl-
um. Vegna misskilnings voru
ekki birtar upplýsingar um
þýðingar allra forlaganna sem
leitað var til. Og um sumar
væntanlegar bækur fengust
engar upplýsingar hjá viðkom-
andi forlögum. Morgunblaðið
mun fjalla nánar um þessar
bækur og fleiri sem út kunna að
koma í haust.
Þröstur Helgason,
umsjónarmaður Lesbókar.
Athuga-
semd