Morgunblaðið - 06.09.2004, Qupperneq 34
34 MÁNUDAGUR 6. SEPTEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Mikill mannfjöldi var ámenningar- og fjöl-skylduhátíðinni Ljósa-nótt í Reykjanesbæ á
laugardag, á milli tuttugu og þrjá-
tíu þúsund. Skipuleggjendur hátíð-
arinnar eru hæstánægðir með
hvernig til tókst.
Ljósanæturhátíðin stóð yfir í
fjóra daga, frá fimmtudegi til
sunnudags. Aðal dagskráin var á
laugardeginum. Strax eftir hádegið
var komið margt fólk í miðbæ
Keflavíkur þar sem fram fór flug-
sýning. Mikið var um að vera í
bænum, meðal annars um þrjátíu
myndlistarsýningar sem voru al-
mennt vel sóttar og um fimmtíu
hljómsveitir komu fram.
Hápunktur hátíðarinnar var á
laugardagskvöldið. Svokallað Bæj-
arstjórnarband sem skipað fimm
bæjarfulltrúum flutti nokkur lög við
texta Árna Sigfússonar bæjarstjóra
á útisviði og lék síðan undir með
Védísi Hervöru Árnadóttur sem
söng sigurlag sitt úr Ljóslags-
samkeppninni. Þá kveikti Rut
Skúladóttir, dúx úr Fjölbrautaskóla
Suðurnesja í vor, á lýsingu Bergs-
ins en hátíðin tekur einmitt nafn
sitt af þeirri athöfn. Þá var mikil
flugeldasýning. Talið er að fleira
fólk hafi sótt dagskrá Ljósanætur
en áður og hefur hátíðin fest sit í
sessi sem fjölsóttasta menning-
arhátíð landsins, utan höfuðborg-
arinnar. Í fyrra var áætlað að 20–
25 þúsund manns hafi verið á laug-
ardagskvöldinu og sumir töldu
fjöldann hafa slagað upp í þrjátíu
þúsundin. Lögreglan telur að nú
hafi meira en tuttugu þúsund
manns verið í miðbænum á laug-
ardagskvöldinu og Steinþór Jóns-
son, formaður Ljósanæturnefndar,
áætlar að vel yfir þrjátíu þúsund
manns hafi verið á svæðinu öllu.
Eftir að fjölskyldudagskránni
lauk tóku við tónleikar og dans-
leikir víða í bænum. Erilsamt var
hjá lögreglunni um nóttina. Hún
fékk tilkynningu um fimm minni-
háttar líkamsárásir frá miðnætti og
fram á morgun. Þá voru fimm ein-
staklingar settir í fangageymslur
vegna ölvunar og óspekta. Tveir
voru teknir ölvaðir við akstur.
Nokkur börn sem eru yngri en
sextán ára og voru ein síns liðs í
bænum voru færð í upplýsinga-
miðstöð lögreglunnar og útideildar
og foreldrar beðnir um að sækja
þau þangað.
Hátíð | Menning og fjölskylduskemmtun í fyrirrúmi á Ljósanæturhátíðinni í Reykjanesbæ
Tugþúsundir
komu saman
og nutu lista og
menningar
Ljósmynd/Hilmar Bragi
Hápunktur Ljósanætur er þegar kveikt er á lýsingu Bergsins
og flugeldar lýsa upp himininn með drunum og dynkjum.
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
„Þú mátt ekki brenna myndina,“ sagði ungur áhorfandi þegar
Inga Rósa Loftsdóttir myndlistarmaður kastaði mynd á bál.
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Bæjarstjórnarbandið, hljómsveit fimm bæjarfulltrúa, með
Árna Sigfússon bæjarstjóra fremstan í liði, gerði mikla lukku.
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Leikmenn gullaldarliðs Keflavíkur
sem urðu fjórum sinnum Íslands-
meistarar í knattspyrnu á árunum
1964 til 1973 voru heiðraðir með
því að afhjúpuð var hella til minn-
ingar um afrek þeirra en henni
hefur verið komið fyrir í gangstétt
við Hafnargötu.
Myndlistarsýningar voru
í öllum sýningarsölum
Reykjanesbæjar og
fjölda verslana og
stofnana. Listhópurinn
Arg sýndi á óvenjulegum
stað, í Sundhöll Kefla-
víkur.
Miðasala opnar kl. 15.30
Sýnd kl. 8 og 10.40. B.i. 14 ára.
Mjáumst
í bíó!
Uppáhalds köttur allrar
fjölskyldunnar er
kominn í bíó!
Sjáið frábæra
gamanmynd
um frægasta, latasta
og feitasta kött í heimi!
Sýnd kl. 6. ísl tal.Sýnd kl. 5.45.
Myrkraöflin eru með okkur!
Mögnuð ævintýra-spennumynd!
Sýnd kl. 5.20, 8 og 10.40.
EINI THX LÚXUSSALUR LANDSINS
Sýnd kl. 4 og 6. ísl tal. / Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10. Enskt tal.
Yfir 25.000 gestir! Mjáumst
í bíó!
Ein besta ástarsaga allra tíma.
EFTIR METSÖLUBÓK
NICHOLAS SPARKS
Nicole Kidmani l iSýnd kl. 8 og 10.
Sýnd kl. 8.
Sýnd kl. 10.15.
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10.
kl. 4, 6, 8 og 10.
HJ MBL
"Fjörugt bíó"
Þ.Þ. FBL
Ný íslensk mynd gerð eftir
samnefndri metsölubók,
í leikstjórn
Silju Hauksdóttur,
með Álfrúnu Helgu
Örnólfsdóttur í
titilhlutverkinu.
Stórskemmtileg nútímasaga
úr Reykjavík sem tekur á
stöðu ungs fólks í
íslenskum samtíma með
húmorinn að vopni.
óvenjulega venjuleg stelpa
Ný íslensk mynd gerð eftir
samnefndri metsölubók,
í leikstjórn
Silju Hauksdóttur,
með Álfrúnu Helgu
Örnólfsdóttur í
titilhlutverkinu.
Stórskemmtileg nútímasaga
úr Reykjavík sem tekur á
stöðu ungs fólks í
íslenskum samtíma með
húmorinn að vopni.
óvenjulega venjuleg stelpa