Morgunblaðið - 06.09.2004, Page 35

Morgunblaðið - 06.09.2004, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 6. SEPTEMBER 2004 35 Fyrr í sumar gafst borg-arbúum kostur á að skoðatvær afar ólíkar ljós- myndasýningar sem hvor um sig vörpuðu áhugaverðu ljósi á okkur Íslendinga jafnt sem umheiminn. Annars vegar var um að ræða hina stórbrotnu World Photo Press- ljósmyndasýningu í Kringlunni, þar sem sjá mátti bestu fréttaljósmyndir síðasta árs, og hins vegar ljós- myndasýninguna Íslendingar, sem saman stóð af völdum myndum úr samnefndri bók sem ljósmyndarinn Sigurgeir Sigurjónsson, betur þekktur sem Spessi, og rithöfund- urinn Unnur Jökulsdóttir unnu í samein- ingu. Næstu þrjár vikur býðst þeim er leggja leið sína í Perluna tækifæri til að skoða einstaka ljós- myndasýningu er nefnist En dag i Sverige (Dagur einn í Svíþjóð) og sett er upp hérlendis fyrir milli- göngu sendiráðs Svíþjóðar.    Hér er um að ræða sýningu semer afrakstur eins stærsta ljós- myndaverkefnis Svía fyrr og síðar, en verkefnið var þríþætt og skiptist í ljósmyndasýningu, ljósmyndabók og gjöf ljósmynda til Sænska þjóð- skjalasafnsins. Forsaga verkefnisins er sú að hinn 3. júní á síðasta ári tóku þrjú þúsund ljósmyndarar, jafnt atvinnu- sem áhugamenn, víðs vegar um Svíþjóð sig saman og mynduðu allt landið á einum sólar- hring. Óhætt er að fullyrða að aldrei hafi verið teknar fleiri ljósmyndir á einum degi í Svíþjóð, því samtals tóku ljósmyndararnir rúmar milljón myndir á þessum eina sólarhring. Ljósmyndararnir gátu sent allt að tíu myndir til þátttöku í verkefnið; sumir sendu aðeins eina eða tvær, en aðrir sendu fullan kvóta. Ritstjórn verkefnisins tók við samtals nærri 24 þúsund myndum, en úr því voru valdar rúmar hundrað, er sjá má á sýningunni sem opnuð verður í Perl- unni í dag, og rúmar tvö hundruð þeirra voru valdar til þátttöku í bók- ina sem út kom í tengslum við ljós- myndaverkefnið. „Lífið er röð venjulegra daga, sem eru uppfullir af venjulegum atburð- um. Þrátt fyrir það er daglegt líf alltof sjaldan fest á blað,“ er haft eft- ir Jeppe Wikström, bókaútgefanda hjá Bókaútgáfunni Max Ström í Stokkhólmi og forsprakka ljós- myndaverkefnisins. Að sögn Wik- ströms láu nokkrar ástæður fyrir því að dagurinn 3. júní varð fyrir valinu. „Veðurfræðingur benti okk- ur á að 3. júní væri einn sólríkasti dagur ársins. Við vildum einmitt sýna breiddina í veðurfari landsins, en snemma í júní er enn snjór í fjöll- um norðanlands á meðan sumarið er í fullum blóma sunnanlands. Byrjun júní er jafnframt viðburðaríkur tími bæði hvað varðar leik og störf og náttúran iðar af lífi.“ Og það var svo sannarlega margt sem gerðist í lífi sænsku þjóðarinnar einmitt þennan dag, jafnt lítilfjör- legir sem stórir viðburðir. Þannig má nefna að 334 Svíar fæddust hinn 3. júní á sama tíma og 234 Svíar kvöddu þennan heim. Þennan dag giftu sig 22 og 68 skildu, 92 fluttust af landi brott á meðan 187 ein- staklingar settust að í landinu. Sænska krónan féll og gríðarlegur olíuleki varð úti fyrir ströndum landsins, svo eitthvað sé nefnt.    Ljósmyndirnar á sýningunni end-urspegla hversdagsleikann í öllum sínum fjölbreytileika. Fyrir augu bera myndir sem sýna okkur Svía við nám og störf á hinum ýmsu tímum sólarhringsins. Við verðum þannig vitni að rólegu heimilislífi og óeirðum á götum úti, við sjáum fólk sinna jafn ólíkum hlutum eins og að vökva leiði, tilbiðja guð sinn, senda smáskilaboð, búa um rúm sitt, fara í sokka, versla, faðmast, bíða, hvíla sig og læra. Eins og fyrr var getið voru ljós- myndirnar 24 þúsund sem teknar voru hinn 3. júní árið 2003 gefnar Sænska þjóðskjalasafninu sem gjöf frá sænskum ljósmyndurum til kom- andi kynslóða. Ljóst má vera að myndirnar verða þegar fram í sækir dýrmæt heimild sem endurspeglar einn dag í lífi þjóðar. Dagur í lífi þjóðar ’Hér er um að ræðasýningu sem er afrakst- ur eins stærsta ljós- myndaverkefnis Svía fyrr og síðar.‘ AF LISTUM Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is Ljósmynd/Jörgen Ahlström Í IÐNÓ í vetur verður boðið upp á fjölbreytta menningardagskrá, sem þó markast mest af sviðs- listum. Boðið verður uppá nýtt verk eftir Hlín Agnarsdóttur, nýtt hádegisleikrit eftir Auði Haralds. Sýningin Tenórinn með Guðmundi Ólafssyni snýr aftur, barna- leikritið Rauðu skórnir verður tekið til sýninga, mánaðarlega verða tónleikar í samstarfi við Tónlist.is og tangókvöld verða haldin í hverjum mánuði. Fimm leikverk Sýningin Tenórinn hefur fengið frábæra dóma fyrir söng og leik. Guðmundur Ólafsson er í hlut- verki tenórsins sem kemur að ut- an til að jarða föður sinn og held- ur tónleika fyrir heimamenn í sínu stutta stoppi á landinu. Sig- ursveinn M. Magnússon er í hlut- verki undirleikarans. Sýningar hefjast 17. september Faðir vor nefnist nýtt verk eftir Hlín Agnarsdóttur. Verkinu er leikstýrt af einum af leikstjórum yngri kynslóðarinnar, Agnari Jóni Egilssyni. Með aðalhlutverkin fara Elma Lísa Gunnarsdóttir, Þrúður Vilhjálms, Hjálmar Hjálmarsson og Arndís Egilsdóttir. Leikmynd og búninga gerir Rebekka A. Ingi- mundardóttir, danshöfundur er Jóhann Freyr Björgvinsson, ljósa- meistari er Jón Þorgeir Krist- jánsson, dramatúrg er Kristín Ey- steinsdóttir og framkvæmdastóri Lísa Kristjánsdóttir. Nýtt verk eftir Auði Haralds verður sett upp í byrjun nóvember í Hádegisleikhúsinu. Með aðal- hlutverkið fer leikkonan Erla Ruth Harðardóttir, sem hefur meðal annars leikið í Spaugstof- unni. Verðlaunaleikritið Röðin, sem var m.a. valið besta leikrit Lond- on-borgar árið 2002 verður frum- sýnt milli jóla og nýárs. Verkið er eftir Caryl Churchill og er leik- stýrt af Gunnari Gunnsteins. Verkið fjallar um þægilega lausn foreldra á vandræðabörnum, en faðir erfiðs pilts lætur klóna hann og losar sig síðan við frummynd- ina. Þetta hljómar einsog vandinn sé að baki en enn meiri vandræði taka við vegna mistaka í klón- uninni, eintökin verða mörg og á endanum veit enginn hver er hver, hvað eða hvers vegna. Aðal- hlutverkið er í höndum Hjalta Rögnvaldssonar, um búninga sér María Ólafsdóttir og sviðsmyndina hannar Vignir Jóhannsson. Barnasýningin Rauðu skórnir vakti athygli á síðasta ári og verð- ur sýnd í Iðnó í október á morgn- ana fyrir skólakrakka. Hin gamla flökkusaga sem þekktust er í frá- sögn H.C. Andersen er hér sett fram á frumlegan hátt í leikstjórn Benedikts Erlingssonar. Tangókvöld Fyrsta þriðjudag í hverjum mánuði verður hinn glæsilegi og fornfrægi salur Iðnó opinn öllum tangódönsurum. Tangósveit lýð- veldisins leikur fyrir dansi. Hljóm- sveitina skipa Hjörleifur Valsson fiðluleikari, Tatu Kantomaan bandoneonleikari, Ástvaldur Traustason harmonikkuleikari, Vignir Þór Stefánsson á píanóinu og Gunnlaugur Stefánsson kontra- bassaleikari. Tónleikar Á hverju fimmtudagskvöldi í október og nóvember verða síðan tónleikar í samstarfi við tónlist.is sem verða í beinni útsendingu á netinu. Verður boðið uppá fjöl- breytta tónlistardagskrá. Myndlistarsýningar Með reglubundnum hætti verða litlar myndlistarsýningar á jarð- hæð Iðnó. Harpa Björnsdóttir ríð- ur á vaðið nú í byrjun september. Fjölbreytt vetrar- dagskrá í Iðnó Tenórinn snýr aftur í Iðnó í vetur. Á myndinni má sjá Guðmund Ólafsson í aðalhlutverkinu og Sigursvein Magnússon. Morgunblaðið/Kristinn www .regnboginn.is Hverfisgötu  551 9000 Nýr og betri Mjáumst í bíó! Sýnd kl. 6. ísl tal. Sýnd kl. 6. Enskt tal.  SV MBLÓÖH DV Sýnd kl. 10. B.i. 12 ára. YFIR 40000 GESTIR Yfir 25.000 gestir! SÝND UM HELGAR. www.laugarasbio.is Sýnd kl. 6, 8 og 10. Sýnd kl. 5.40, og 8. Yfir 25.000 gestir! „Myndir á borð við þessar segja meira en þúsund orð.“ HJ. MBL „Drepfyndin“ Ó.Ö.H. DV S.K., Skonrokk Ó.H.T Rás2 Sýnd kl. 10.15. Nicole Kidmani l i The Stepford Wives Sýnd kl. 6, 8 og 10. Sýnd kl. 8 og 10.30. Sýnd kl. 8. Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30 Sýnd kl. 8 og 10.15. B.i. 14 ára. Sýnd kl. 6. ísl tal S.V. Mbl.  Ó.H.T Rás 3.  HP. Kvikmyndir.com Ný íslensk mynd gerð eftir samnefndri metsölubók, í leikstjórn Silju Hauksdóttur, með Álfrúnu Helgu Örnólfsdóttur í titilhlutverkinu. Stórskemmtileg nútímasaga úr Reykjavík sem tekur á stöðu ungs fólks í íslenskum samtíma með húmorinn að vopni. Ný íslensk mynd gerð eftir samnefndri metsölubók, í leikstjórn Silju Hauksdóttur, með Álfrúnu Helgu Örnólfsdóttur í titilhlutverkinu. Stórskemmtileg nútímasaga úr Reykjavík sem tekur á stöðu ungs fólks í íslenskum samtíma með húmorinn að vopni. óvenjulega venjuleg stelpaóvenjulega venjuleg stelpa

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.