Morgunblaðið - 10.09.2004, Síða 1
Siggi sæti
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
N
A
T
25
83
2
09
/0
4
Opnað upp
á gátt
Fjórtán þjóðir taka þátt í þjóðhátið
Austfirðinga | Minnstaður
Borða skyr á
hverjum degi
Matreiðslumaðurinn George
Holmes býður í mat | Daglegt líf
Íþróttir í dag
Miðjan höfuðverkur Íslenskir kylfingar
Endurkomu Lárusar Orra seinkar
Höfum gleymt okkur í sigurvímu
STOFNAÐ 1913 246. TBL. 92. ÁRG. FÖSTUDAGUR 10. SEPTEMBER 2004 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is
FELLIBYLURINN Ívan magnað-
ist í Karíbahafinu og stefndi að
Jamaíka og hugsanlega Flórída í
gær eftir að hafa kostað yfir 33
manns lífið í Grenada, Dóminíska
lýðveldinu, Tobago og Venesúela.
Má á myndinni sjá indjánakonu á
smáeyjunni Manaure Baja í Kar-
íbahafinu bíða óveðursins í gær.
Almannavarnayfirvöld voru með
mikinn viðbúnað á Jamaíka og veð-
urfræðingar vöruðu við mestu
náttúruhamförum á eyjunni í hálfa
öld.
Búist var við að Ívan gengi yfir
Jamaíka í dag, síðan Kúbu og í átt
að Flórída fyrir sunnudag. Banda-
rísk yfirvöld fyrirskipuðu íbúum
Florida Keys-eyjanna, suður af
Flórída-skaga, að forða sér þaðan.
Fregnir hermdu að 90% af
100.000 íbúðarhúsum Grenada
hefðu skemmst í fellibylnum.
Margir notuðu tækifærið til að láta
greipar sópa um verslanir í höf-
uðborginni, St. George’s, og her-
menn voru sendir þangað til að
koma á lögum og reglu.
Reuters
Nálgast
Jamaíka
33 látnir af völdum fellibylsins Ívans í Karíbahafinu
FANGAR frá austanverðri
Evrópu, sem afplána dóm í
norskum fangelsum, fá eins og
innlendir fangar dagpeninga
og geta líka drýgt verulega
tekjurnar með aukavinnu. Aft-
enposten segir að fangarnir
gefi haft rösklega 20 þúsund
ísl. kr. á mánuði sem svarar til
mánaðarlauna í Litháen.
Margir A-Evrópubúar hafa
komist í kast við lögin í S-
Noregi á árinu og er oftast um
að ræða innbrot eða þjófnað.
„Þeim virðist finnast ágætt að
vera í fangelsi í Noregi og fá
dagpeninga. Sumir spara og
taka því með sér peninga þeg-
ar afplánun er lokið,“ segir
Arne Pedersen hjá lögregl-
unni í Agder. Hann segir að
langflestir hafni því að gang-
ast við sök og fá þannig af-
plánun sína stytta.
Þénað bak
við rimlana
„MÆTTI bjóða ungfrúnni upp í
dans?“ gæti vegfarandinn virst
vera að segja við gínuna sem stóð
uppáklædd fyrir framan verslun á
Klapparstígnum. Raunar væri líka
hægt að ímynda sér að gínan væri
þátttakandi í samræðum mannanna
tveggja.
Morgunblaðið/Ómar
Félagslynd gína
Rússar segja a.m.k. sex mannanna
sem stóðu að gíslatökunni í Beslan í
N-Ossetíu í síðustu viku hafa komið
frá Tétsníu. Var Sergei Lavrov, ut-
anríkisráðherra Rússlands, afar
harðorður í gær í garð vestrænna
ríkja sem hann sagði hafa átt þátt í
að valda þeim hörmungum sem Tét-
senar hafa mátt þola undanfarin ár.
„Þegar vinir okkar á Vesturlönd-
um þrýsta á okkur að endurskoða
stefnu okkar og aðferðir í Tétsníu þá
ráðlegg ég þeim að skipta sér ekki af
því hvernig Rússland hagar stefnu
sinni í innanríkismálum – en það
gera þeir með því að veita hryðju-
verkamönnum hæli sem bera beina
ábyrgð á þeim hörmungum sem tét-
senska þjóðin hefur mátt upplifa,“
sagði Lavrov. Hann nefndi engin
lönd í þessu sambandi en vitað er að
Rússar voru afar reiðir Bretum þeg-
ar þeir veittu Akhmed Zakajev, full-
trúa Maskhadovs, pólitískt hæli á
sínum tíma og Bandaríkjamönnum
þegar þeir veittu Iljas Akhmadov
hæli, öðrum nánum samstarfsmanni
Maskhadovs.
Fé sett til
höfuðs Pútín
Utanríkisráðherra Rússlands
harðorður í garð Vesturlanda
Moskvu, Kaíró. AFP, AP.
Ef þið/16
TÉTSENSKIR uppreisnarmenn settu í gær 1.460 milljónir ísl. kr. til höfuðs
Vladímír Pútín Rússlandsforseta. Guldu þeir þannig líku líkt en rússnesk yf-
irvöld hétu í fyrradag hverjum þeim, sem gæti gefið upplýsingar sem dygðu
til að gera tétsensku uppreisnarleiðtogana Shamil Basajev og Aslan Maskha-
dov „óvirka“, samanlagt þessari sömu upphæð. Þá lýstu íslömsk samtök sem
segjast hafa grandað tveimur farþegaflugvélum yfir Rússlandi nýverið, með
þeim afleiðingum að 90 fórust, því yfir að Pútín væri þeirra næsta skotmark.
KB banki óx mest allra banka í heim-
inum í fyrra. Bankinn var í 911. sæti
yfir stærstu banka heimsins í fyrra
en er nú í 459. sæti, samkvæmt lista
breska tímaritsins Banker Magazine
sem Financial Times gefur út.
„Við hjá KB banka áætlum að við
verðum í árslok í um 260. sæti hvað
bankastærð varðar, þ.e. eftir að við
höfum gengið frá kaupunum á
danska bankanum FIH,“ segir
Hreiðar Már Sigurðsson, forstjóri
KB banka.
Hann segir að á sama tíma og
markmið bankans um vöxt hafi náðst
sé ekki síður mikilvægt að lánshæf-
ismat bankans hafi batnað. Það
sanni að hraður vöxtur hafi ekki
komið niður á gæðum starfseminnar.
Á lista Bankers Magazine er Ís-
landsbanki í 635. sæti yfir stærstu
banka í heiminum og Landsbankinn
í 724. sæti.
KB banki
vex hraðar
en aðrir
bankar
KB banki/12
NÝJA plata Bjarkar Guð-
mundsdóttur, Medúlla, fór í
14. sæti bandaríska breið-
skífulistans,
sem birtur var
í gær.
Engin af
fyrri plötum
Bjarkar hefur
stokkið svo
hátt í fyrstu
söluviku. Seld-
ust 65.000 ein-
tök af Medúllu í fyrstu vikunni
í Bandaríkjunum. Hér á landi
fór platan beint á topp Tónlist-
ans og hefur selst í yfir eitt
þúsund eintökum./46
Besta byrjun
Bjarkar
AYMAN al-Zawahiri, næstráðandi Osama bin Ladens,
leiðtoga al-Qaeda-hryðjuverkasamtakanna, fullyrðir að
ósigur herja Bandaríkjamanna í Írak og Afganistan sé
einungis tímaspursmál í nýju myndbandi sem arabíska
sjónvarpsstöðin Al-Jazeera sýndi í gær. Bandaríkjamenn
hafi hörfað í skotgrafir sínar.
Ár er nú liðið síðan al-Zawahiri sást síðast í sambæri-
legu myndbandi. Hann vekur athygli á því í myndbandinu,
þar sem hann sést með hvítan túrban á höfði og árás-
arriffil, að bandarískir ríkisborgarar séu hvergi óhultir á
meðan stjórnvöld í Washington „halda áfram glæpum sínum í Írak, Afganist-
an og Palestínu“. Fullyrðir hann jafnframt að liðsmenn al-Qaeda ráði „aust-
ur- og suðurhluta Afganistans að fullu leyti“ með aðstoð borgara landsins.
Al-Zawahiri sigurviss
Dubai. AFP.