Morgunblaðið - 10.09.2004, Side 6

Morgunblaðið - 10.09.2004, Side 6
Það blés hressilega á konungsfjölskylduna og aðra gesti á hverasvæðinu við Námaskarð. Það viðraði heldur betur á sænsku kon-ungsfjölskylduna í heimsókn hennarnorðan heiða í gær en gert hafðisyðra. Það var skaplegt og þurrt veð- ur þegar Karl VXI Gústaf Svíakonungur, Silvía drottning og Viktoría krónprinsessa ásamt fylgdarliði komu til Akureyrar í gærmorgun. Kristján Þór Júlíusson bæjarstjóri, eiginkona hans Guðbjörg Ringsted og Þóra Ákadóttir, for- seti bæjarstjórnar, tóku á móti hinum tignu gestum ásamt hópi barna úr 2. bekk Síðuskóla. Leiðin lá fyrst í Háskólann á Akureyri en þar kynnti Þorsteinn Gunnarsson, rektor háskól- ans, fjölbreytta starfsemi, kennslu, rannsóknir og fjarnám. „Þau sýndu afskaplega jákvæð við- brögð, spurðu margs og höfðu hug á að kynna sér okkar starf enn frekar,“ sagði Þorsteinn. Meðal þess sem konungsfjölskyldunni lék for- vitni á að kynna sér var umfangsmikið fjarnám sem nemendum skólans býðst að stunda, hátt hlutfall kvenna í hópi nemenda skólans og hvernig menntakerfið væri fjármagnað. „Þau voru greinilega búin að kynna sér starfsemi stofnunarinnar áður,“ sagði Þorsteinn. „Það var ánægjulegt að fá þau í heimsókn enda voru þau mjög áhugasöm.“ Þá var haldið í Stofnun Vilhjálms Stef- ánssonar þar sem Níels Einarsson for- stöðumaður tók á móti hópnum og fræddi um verkefni stofnunarinnar. Níels sagði konung Svía vel að sér í málefnum norðurslóða og áhugasaman, enda væri einn helsti vís- indaráðgjafi hans forstjóri sænsku heim- skautastofnunarinnar. „Við ræddum um verk- efni stofnunarinnar og einnig um Vilhjálm Stefánsson og hvernig hans hugmyndir tengjast nútímanum,“ sagði Níels, sem færði konungi bókina Veiðimenn á hjara heimsins eftir Vil- hjálm, en hún kom út í Svíþjóð árið 1934. Níels sagði krónprinsessuna hafa nefnt að stórkost- legt væri að svo öflug heimskautastofnun væri starfandi á Akureyri, „þannig að ég vona bara að hún komi aftur í heimsókn til okkar“. Níels sagði það mikla viðurkenningu fyrir Stofnun Vilhjálms Stefánssonar að fá heimsókn af þessu tagi, „það bendir til þess að hvað alþjóðlega samvinnu varðar séum við á réttri braut“. Stofnunin færði konungi ullarteppi, drottningu handprjónað sjal og krónprinsessan fékk ker- amikskál að gjöf, þá fékk utanríkisráðherra Sví- þjóðar, Laila Freivald, ljósmyndabók að gjöf. Næst var haldið á minningarfyrirlestur Vil- hjálms Stefánssonar, sem nú var efnt til í fimmta sinn. Hann var í tveimur hlutum. Fyrst fjallaði Laila Freivalds utanríkisráðherra um stefnu Svía varðandi heimskautasvæðin og gerði ítarlega grein fyrir stefnu þeirra varðandi alþjóðlega samvinnu í þeim efnum, samstarf á vettvangi vísindarannsókna en fram kom að Svíar ætluðu sér að vera fullir þátttakendur bæði innan alþjóðasamfélagins og eins innan Norðurlandasamstarfsins í þeim efnum. Þá flutti Sverker Sörling, prófessor í umhverf- issögu við háskólann í Umeå, fyrirlestur þar sem hann tengdi saman líf, störf og skoðanir Vilhjálms Stefánssonar og hins sænska prófess- ors Ahlman, sem var landfræðingur og jökla- fræðingur og stundaði rannsóknir á Vatnajökli árið 1936. Konungsfjölskyldan snæddi hádegisverð á veitingahúsinu Friðriki V. Að því búnu var hald- ið sem leið lá að byggðasafninu á Grenjaðarstað en við komuna léku börn á slagverkshljóðfæri á túninu við gamla bæinn. Guðni Halldórsson, forstöðumaður Menningarmiðstöðvar Þing- eyinga, fór með gestum um safnið og sýndi þeim gamla torfbæinn og það sem þar er að finna. Í Mývatnssveit var ágætis veður þegar kon- ungsfjölskyldan kom þangað um miðjan daginn en nokkuð hvasst. Ari Trausti Guðmundsson var leiðsögumaður í gönguferð um Dimmuborg- ir og Námaskarð og fræddi gestina um staðina. Í lokin var staldrað við í Hótel Reynihlíð, þar sem boðið var upp á veitingar. Hinir tignu gest- ir héldu svo aftur suður til Reykjavíkur frá Ak- ureyrarflugvelli í gærkvöldi. Fengu betra veður á Norðurlandi Viktoría, krónprinsessa Svíþjóðar, heilsar nemendum í 2. bekk í Síðuskóla á Ak- ureyri í gærmorgun. Hjá henni standa Guðbjörg Ringsted bæjarstjórafrú, Krist- ján Þór Júlíusson bæjarstjóri og Þóra Ákadóttir, forseti bæjarstjórnar. Gestirnir hlýða á börn úr Hafralækjarskóla leika á hljóðfæri við gamla bæinn á Grenjaðarstað. Morgunblaðið/Kristján Sænska konungsfjölskyldan í heimsókn á Akureyri. FRÉTTIR 6 FÖSTUDAGUR 10. SEPTEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ flutt 410 4000 | landsbanki.is Banki allra landsmanna ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S U R V 2 25 63 9 0 9/ 20 04 Verðbréfa- og lífeyrisþjónusta Landsbankans hefur flutt í aðalútibú Landsbankans í Austurstræti. Velkomin til okkar í Austurstræti. Nýtt símanúmer: 410 4000 Við erum HAGDEILD Alþýðusambands Ís- lands segir að það uppgreiðslugjald sem bankarnir áskilja sér ef húsnæð- islán er greitt upp á lánstímanum virðist ekki í samræmi við lög. Þá segir hagsdeildin að einnig orki tví- mælis ströng skilyrði bankanna um að lántakandi sé með önnur viðskipti í viðkomandi banka. Slík skilyrði dragi úr möguleikum lántakanda til þess að bregðast við breyttum að- stæðum t.d. ef gjaldskrá fyrir aðra þjónustu hækkar, segir í minnisblaði hagdeildar sem lagt var frá mið- stjórnarfundi ASÍ. „Breytingarnar á húsnæðislána- markaðinum með virkri samkeppni hafa því orðið til þess að við höfum færst nær þeim kjörum sem þekkj- ast í nágrannalöndunum. Vonandi heldur sú þróun áfram. Hér er þó rétt að staldra við og hafa í huga að þessi þróun getur gengið hratt til baka. Íslenskur bankamarkaður er fákeppnismarkaður og alltaf er hætta á að kjör bankanna færist í fyrra horf. Tilvist Íbúðalánasjóðs við þessar aðstæður skiptir því sköpum til að veita bönkunum aðhald,“ segir ennfremur. Vextir geta hækkað í 5,1% Hagdeildin segir að hver og einn lántakandi verði að vega það og meta hvort það borgi sig að taka húsnæð- islán bankanna. Meðal annars þurfi að hafa í huga hvort fólk sé tilbúið að skuldbinda sig til að vera í viðskipt- um við bankann, en það að hætt sé viðskiptum við viðkomandi banka þýði að vextir lánanna hækki í 5,1%. Þá verði að hafa í huga kostnað við endurfjármögnun eldri lána vegna lántökugjalds og stimpilgjalds upp á 2,5% samanlagt. Þá verði að taka til- lit til þess ef lánstíminn lengist og meta kostnaðinn af lengingunni á móti hagræðinu af lækkaðri greiðslubyrði. Loks segir: „Ef greitt er upp eldra húsbréfalán eða annað jafngreiðslu- lán, þá þarf að hafa það í huga að í upphafi greiðir lántakandi aðallega vexti en lítið af höfuðstól. Eigna- myndunin á sér því aðallega stað þegar líður á lánstímann..“ Uppgreiðslugjald virðist ekki í samræmi við lög

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.