Morgunblaðið - 10.09.2004, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 10.09.2004, Blaðsíða 17
ERLENT MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. SEPTEMBER 2004 17 SENDUM Í PÓSTKRÖFU Rauðsmára- Phytoestrogen Fyrir konur á breytingarskeiðinu www.islandia.is/~heilsuhorn Glerártorgi, Akureyri, s. 462 1889 fæst m.a. í Lífsinslind í Hagkaupum, Fjarðarkaupum Árnesaptóteki Selfossi og Yggdrasil Kárastíg 1. Vandaðar og öflugar dælur fyrir alla verktakastarfsemi Sími 594 6000 Brunndælur RÉTTARHÖLD hófust í München í gær yfir 86 ára meintum stríðsglæpa- manni, Ladislav Niznansky, sem sak- aður er um að hafa fyrirskipað dráp á 164 manns í Tékkóslóvakíu í síðari heimsstyrjöldinni. Niznansky neitaði sök. Hann fædd- ist í Þýskalandi, var foringi í SS-sveit- um nasista og sagður hafa farið fyrir sveit, sem myrti 146 manns í tveimur þorpum í janúar og febrúar 1945, og fyrirskipað dráp á átján gyðingum. Saksóttur fyrir stríðsglæpi Reuters Ladislav Niznansky ræðir við verjanda sinn, Steffen Uffer (t.h.), í réttarsal. München. AFP. Konur og börn drepin í Írak KONUR og börn voru á meðal tólf Íraka, sem voru drepnir í loft- árásum bandarískra herþotna á borgina Fallujah í gærmorgun. Bandaríkjamenn telja að uppreisn- armenn hafi leynst á svæðinu. Ein bandarísku eldflauganna lenti á íbúðarhúsi og fjarlægði fólk úr nágrenninu líkamsleifar úr rúst- um þess í gærmorgun. Íbúarnir voru í fasta svefni þegar eldflaugin hæfði bygginguna. Að sögn Mushtak Taleb, læknis á sjúkrahúsinu í Fallujah, var komið með tólf lík þangað, þar af fimm barna og tveggja kvenna, þá hefðu a.m.k. níu manns særst í árásunum. Að sögn vitna var fólkið í fasta svefni á þaki húss síns þegar eld- flaugin kom eins og þruma úr heið- skíru loft beint á húsið. Nokkur önnur hús skemmdust. Bandarísk hernaðaryfirvöld segja að árásin hafi verið gerð á felustaði meintra liðsmanna Jórd- anans Abu Musab al-Zarqawi, sem er talinn vitorðsmaður Al-Qaeda- hryðjuverkasamtakanna. Árásin hafi verið gerð á hús, sem iðulega sé notað af hryðjuverkamönnum, þrír liðsmenn Zarqawis hafi verið í húsinu og engir aðrir þegar til skarar hafi verið látið skríða. Þá hermdu fréttir að 26 menn hið minnsta hefðu fallið í gær í loft- og landárásum Bandaríkjamanna á stöðvar skæruliða við bæinn Tall Afar sem er nærri Fallujah. Bar- dagar landsveita og skæruliða stóðu yfir linnulítið í 12 klukku- stundir. Bandaríkjamenn segja að erlendir vígamenn haldi til í Tall Afar og komist þeir þangað frá Sýr- landi. Lík lágu á götum bæjarins og óstaðfestar fregnir hermdu að mannfallið hefði verið enn meira. Hryðjuverka- menn felldir í Pakistan HÁTTSETTIR menn í her og leyni- þjónustu Pakistans sögðu í gær, að fimmtíu manns hefðu verið felldir þegar pakistanskar herflugvélar gerðu loftárás á meintar þjálf- unarbúðir fyrir hryðjuverkamenn hvaðanæva úr heiminum. Árásin var sögð hafa verið gerð snemma í gærmorgun. Sögðu þeir Al-Qaeda-hryðju- verkanetið hafa rekið þjálfunar- búðirnar skammt frá afgönsku landamærunum. Langflestir þeirra sem voru felldir munu hafa verið útlendingar, þ.á m. Úsbekar, Téts- enar og arabar. Talsmaður pakistanska hersins sagði að búðunum hefði verið ger- eytt og allir sem í þeim voru verið drepnir. Pakistanskir hermenn hefðu rannsakað rústir búðanna og fundið 50 lík. Pakistönsk stjórnvöld hefðu komist á snoðir um búðirnar í tengslum við rannsókn á hryðju- verkum í Pakistan. AUGLÝSINGADEILD netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.