Morgunblaðið - 10.09.2004, Blaðsíða 31
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. SEPTEMBER 2004 31
Elsku Njalli, mikill er missir okk-
ar allra þegar þú ert nú horfinn á
braut. Þú varst einstakur maður,
góðmennskan uppmáluð, bæði heið-
arlegur og hreinskilinn. Þín verður
lengi minnst, bæði fyrir allar stund-
irnar okkar saman og einnig fyrir
afrekssögurnar sem aðrir hafa sagt
okkur af þér.
Þú hefur alla tíð verið sérlega vin-
sæll á meðal ungmenna, hlotið virð-
ingu þeirra og reynst góð fyrir-
mynd. Þú varst sérstakur
reglumaður og hreystin geislaði af
þér.
Einhvern veginn var alltaf hægt
að ræða við þig um alla hluti. Það
gátu verið nýjustu afrek manns í
barnaskólanum, furðufréttir úr út-
löndum þar sem ekkert virtist
ómögulegt, skrafræður um fótbolta
eða hrossarækt, alltaf hlustaðir þú
af áhuga og hafðir eitthvað athygl-
isvert til málanna að leggja. Alltaf
var líka stutt í gamansemina.
Á Böðmóðsstöðum hefur löngum
reynst árangursríkt að byrja leit að
týndum börnum hjá þér því þangað
laumuðust þau oft á öllum aldri. Öll
munum við eftir gestrisni þinni
gegnum tíðina, alltaf bauðstu okkur
fagnandi í bæinn. Á yngri árum
bauðstu okkur oft rausnarlega af
óþrjótandi gos- og sælgætisbirgðum
þínum og það breyttist svo sem ekk-
ert eftir því sem við urðum eldri,
nema hvað í seinni tíð bauðstu okk-
ur kannski að auki eitthvað sterkara
en gos.
Öll eigum við kærar minningar
um þig. Hulda man til dæmis eftir
því þegar hún var að heimsækja þig
á sínum yngri árum og hún sýndi því
Vilborgu skilning þegar hún var að
hlaupa í heimsókn til þín án þess að
láta vita af ferðum sínum.
Elfar minnist þess hvernig hon-
um fannst það vera þú sem komst
með jólin. Þegar þú komst með jóla-
trén frá Dísu og Villa á bæina á Böð-
móðsstöðum og settir upp útijóla-
seríuna hjá ömmu, þá var hátíðin í
nánd.
Einhverju sinni var Guðmundur
að undra sig á því hvers vegna þú
hefðir enga konu og hvort ekki væri
hægt að bæta úr því. Ungur að árum
vissi litli guttinn ekki um margar
einhleypar konur og því færri sem
hentuðu þér. En það var þó ein kona
sem honum fannst vera þér sam-
boðin og það var Vigdís Finnboga-
dóttir. Ekkert varð honum þó úr
verki að koma slíku sambandi í
kring.
Öll munum við hve hlýtt var á
milli þín og Palla bróður, þau voru
víst ófá skiptin sem orðin „Nei!
Komdu nú SÆLL og blessaður Palli
minn“ hljómuðu glaðlega og var
fylgt eftir með hraustlegu klappi á
kollinn.
Eitt er víst að minningin um þig
mun lifa með okkur alla tíð og sögur
af þér munu hljóma í eyrum afkom-
enda okkar um ókomin ár. Minning-
arnar um þig hjálpa okkur öllum í
sorginni.
Elfar, Hulda Karólína,
Guðmundur og fjölskyldur.
Nú legg ég augun aftur,
ó, Guð, þinn náðarkraftur
mín veri vörn í nótt.
Æ, virst mig að þér taka,
mér yfir láttu vaka
þinn engil, svo ég sofi rótt.
(Sveinbjörn Egilsson.)
Við systkinin eigum margar ljúfar
minningar um Njál frænda okkar,
eða Njalla frænda eins og við köll-
uðum hann. Ekki er nokkur leið að
festa á blað allar þær minningar
sem fljúga um hugann við fráfall
Njalla, í stað þess skipa þær var-
anlegan sess í hjarta okkar. Efst í
huga okkar er þakklæti fyrir öll
hans margvíslegu vinahót og að hafa
notið þeirra forréttinda að kynnast
og umgangast Njalla öll þessi ár. Af
Njalla mátti læra margt, ekki síst
tryggð, trúmennsku og nákvæmni í
öllum þeim verkum sem hann tók
sér fyrir hendur. Njáll var góð fyr-
irmynd.
Með þessum fátæklegu orðum
viljum við kveðja Njál, blessuð sé
minning hans.
Garðar, Karólína og Auðunn
frá Böðmóðsstöðum.
✝ Lilja Þórarins-dóttir fæddist í
Stígprýði á Eyrar-
bakka 17. október
1921. Hún lést á
Hjúkunarheimilinu
Eir 5. september síð-
astliðinn. Foreldrar
hennar voru Þórar-
inn Einarsson, f. 7.
október 1885, d. 16.
maí 1930 og Oddný
Magnúsdóttir, f. 11.
maí 1889, d. 6. mars
1982. Lilja var sjötta
barn af átta börnum
þeirra Þórarins og
Oddnýjar. Systkini Lilju voru: 1)
Jón, f. 12. ágúst 1913, d. 15. ágúst
1914. 2) Þorbergur Jón, f. 10. júlí
1915, d. 1. febrúar 1998, maki
Guðrún Guðjónsdóttir, f. 1913. 3)
Geirlaug, f. 13. ágúst 1916, d. 4.
maí 2000, maki Eggert Guðjóns-
son, f. 1918, d. 1996, börn þeirra
A) Guðjón Ingi, f. 12. september
1946, fv. maki Ingibjörg Þóra
Gunnarsdóttir, dóttir þeirra Dóra
Björg, f. 1985, B) Oddur Jónas, f.
25. mars 1949, maki Jóhanna
Katrín Björnsdóttir, f. 1955, börn
þeirra a) Geirlaug Dröfn, f. 18.
október 1975, maki Helgi Magn-
ússon, f. 1972, börn Anna Dögg, f.
14. maí 1997, Helena Ýr, f. 4. nóv-
ember 2001. b) Jónas Þór, f. 3.
október 1977, maki Lilja Guðríð-
ur Karlsdóttir, f. 1975, sonur
þeirra Magni Snær, f. 9. mars
2003. c) Atli Már, f. 7. mars 1985.
d) Ari Freyr, f. 18. janúar 1990.
4) Ingvar, f. 13. júlí 1919, d. 1930.
5) Magnea, f. 25. september 1920,
d. 26. október 1996, dóttir Erna
Marline. Maki Magneu Guðmund-
ur Friðriksson, f. 1922, d. 1998,
sonur þeirra Friðrik, f. 22. mars
1954, maki Gitte Jakopsen, börn
þeirra Íris, f. 13. október 1981,
Kristín, f. 5. júní 1989 og Guð-
mundur, f. 6. febrúar 1994. 6)
Magnús, f. 23. júní 1923, maki
Sigurbjörg Guðmundsdóttir, f.
1925, synir þeirra a) Guðmundur,
f. 10. október 1958, sambýliskona
María Erla Bjarnadóttir, f. 1965,
dóttir þeirra Sigurbjörg, f. 21.
ágúst 2002 og b) Ingvar, f. 13.
apríl 1962. 7) Einar
Þórarinsson, f. 2.
ágúst 1928.
Lilja giftist 30.
maí 1942 Ólafi H.
Guðlaugssyni, f. 8.
ágúst 1917, d. 23.
desember 1995.
Börn þeirra eru: 1)
Þórarinn Ingi, f. 17.
október 1942, maki
Guðný Björnsdóttir,
f. 1943. Börn þeirra
eru: a) Guðbjörg
Lilja, f. 27. apríl
1968, maki Valdi-
mar Gestur Haf-
steinsson, f. 1968, börn þeirra
Þórarinn Ingi, f. 1990, Birgitta
Ósk, f. 1992, Hafsteinn Gísli, f.
1996. b) Drífa, f. 16. apríl 1973,
sambýlismaður Ómar Árnason, f.
1973, dóttir þeirra Eygló, f. 1.
ágúst 1999. Dóttir hennar frá
fyrra sambandi er Guðný Jóns-
dóttir, f. 11. júlí 1991. 2) Erling, f.
3. mars 1947, maki Bergþóra
Gísladóttir, f. 1942. Dóttir þeirra
er Auður Lilja, f. 23. ágúst 1979,
maki Freyr Rögnvaldsson, f.
1978. 3) Óli Sævar, f. 25. desem-
ber 1950, maki Gréta Kjartans-
dóttir, f. 1952. Börn þeirra El-
ísabet, f. 4. mars 1974, Ásdís, f.
24. ágúst 1976 og Erna, f. 15.
október 1979. 4) Oddný, f. 18.
nóvember 1955, maki Ingvar
Unnsteinn Skúlason, f. 1956.
Börn þeirra eru Elfar Aðalsteinn,
f. 13. mars 1979 og Kristín María,
f. 13. desember 1985. Börn Odd-
nýjar frá fyrra hjónabandi eru
Ólafur Brynjar Þórsson, f. 23. júlí
1972 og Guðrún Unnur Þórsdótt-
ir, f. 26. mars 1974.
Lilja fluttist á unglingsárum til
Reykjavíkur þar sem hún starfaði
sem vinnukona, þar til hún
kynntist Ólafi manni sínum og
hóf með honum búskap. Eftir að
börn þeirra komust á legg starf-
aði hún við ýmis þjónustustörf,
m.a. hjá Byggingarfélaginu
Breiðholti hf. og sem starfsstúlka
í þvottahúsi.
Útför Lilju verður gerð frá Bú-
staðakirkju í dag og hefst athöfn-
in klukkan 13.30.
Þú hvarfst
þér sjálfum og okkur
hvarfst
inn í höfuð þitt
dyr eftir dyr luktust
og gátu ei opnast á ný
þú leiðst
hægt á brott
gegnum opnar bakdyr
bústaður sálarinnar
er hér enn
en stendur auður
sál þín er frjáls
líkami þinn hlekkjaður
við líf
sem ekki er hægt að lifa
þú horfðir framhjá mér
tómum augum
engin fortíð
engin framtíð
engin nútíð
við fengum aldrei að kveðjast.
(Tove Findal Bengtsson –
þýð. Reynir Gunnlaugsson.)
Kveðja, þín
dóttir.
Lilja fæddist í Stígprýði á Eyr-
arbakka þar sem hún ólst upp hjá
móður sinni Oddnýju en faðir
hennar Þórarinn lést þegar hún
var aðeins níu ára gömul. Á þess-
um árum hafði fráfall fyrirvinnu oft
alvarlegar afleiðingar en Oddnýju
móður Lilju tókst að halda saman
heimilinu og ala upp sín börn,
kenna þeim vinnusemi og mann-
kærleik ásamt virðingu fyrir sam-
ferðamönnum sínum. Þessum upp-
eldisgildum var Lilja óþreytandi að
koma áfram til barna sinna og
barnabarna.
Lilja giftist Ólafi H. Guðlaugs-
syni 1942 og var samband þeirra
ástríkt og varði í meira en hálfa
öld. Það veitti okkur hjónunum
mikla gleði að halda fyrir þau litla
veislu á gullbrúðkaupsdegi þeirra
1992, en það var í þannig sam-
kvæmum sem Lilja naut sín best.
Lilja var glaðvær og kát og hafði
gaman af söng og dansi og þess
sáust líka merki á heimili þeirra
hjóna í Hólmgarði 49, þar var glað-
værðin í fyrirrúmi og tónlistin
hljómaði þar stöðugt öllu heimilis-
fólki til mikillar ánægju.
Það er því með hlýhug og þakk-
læti sem ég kveð Lilju tengdamóð-
ur mína en hún lést á hjúkrunar-
heimilinu Eir eftir langvarandi
baráttu við Alzheimer-sjúkdóminn.
Lilja var glæsileg kona sem bar sig
vel þó svo að veikindi hennar hafi
varað lengi og verið henni erfið.
Ég sendi þér kæra kveðju,
nú komin er lífsins nótt.
Þig umvefji blessun og bænir,
ég bið að þú sofir rótt.
Þó svíði sorg mitt hjarta
þá sælt er að vita af því
þú laus ert úr veikinda viðjum,
þín veröld er björt á ný.
(Þórunn Sigurðardóttir.)
Ingvar Unnsteinn Skúlason.
LILJA
ÞÓRARINSDÓTTIR
REYNSLA • UMHYGGJA • TRAUST
Þegar andlát ber að höndum
Önnumst alla þætti útfararinnar
ÚTFARARSTOFA
KIRKJUGARÐANNA
Vesturhlíð 2 • Fossvogi • Sími 551 1266 • www.utfor.isS. 555 4477 • 555 4424
Erfisdrykkjur
Verð frá kr. 1.150
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir og afi,
JÓN VÍÐIR STEINDÓRSSON
frá Teigi,
Bröttukinn 20,
lést þriðjudaginn 7. september.
Jarðarförin auglýst síðar.
Rannveig S. Guðmundsdóttir,
Sæunn Jónsdóttir,
Margrét Ólöf Jónsdóttir, Hilmar Jónsson,
Oddný Jóhanna Jónsdóttir, Björgvin Þór Ingvarsson,
Laufey Brá Jónsdóttir, Jón Ingi Hákonarson,
Edda Rún Jónsdóttir, Sigþór Marteinsson
og barnabörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir og afi,
ÁRNI GUÐMUNDSSON,
áður Fellsmúla 2,
Reykjavík,
lést á hjúkrunarheimilinu Droplaugarstöðum
fimmtudaginn 9. september.
Jarðarförin auglýst síðar.
Sigurrós Ólafsdóttir,
Ragnar Árnason,
Atli Árnason,
Gylfi Árnason,
Ólafur Helgi Árnason,
tengdabörn og barnabörn.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
ÞÓRARINN ÞÓRARINSSON
húsasmíðameistari,
Mánabraut 9,
Kópavogi,
lést miðvikudaginn 8. september.
Jarðarförin auglýst síðar.
Ólöf Bjarnadóttir,
Margrét Þórarinsdóttir, Frímann Ólafsson,
Þórey Þóranna Þórarinsdóttir, Hjálmar Bjarnason,
Bjarney Þórarinsdóttir, Þorsteinn Jón Haraldsson,
Sóley Þórarinsdóttir, Páll Einarsson
og barnabörn.
Okkar ástkæri,
HAUKUR SMÁRI GUÐMUNDSSON,
lést mánudaginn 6. september.
Jarðarförin auglýst síðar.
Hólmfríður María Hauksdóttir, Arnar Eyfjörð Helgason,
Hjálmar Hauksson, Gyða Björk Aradóttir,
Lilja Björg Jones Hauksdóttir, Mark Alan Jones,
Birgir Hauksson, Hlín Garðarsdóttir,
Pálmey Hjálmarsdóttir,
María Magnúsdóttir.