Morgunblaðið - 10.09.2004, Blaðsíða 18
Höfuðborgin | Akureyri | Suðurnes | Austurland | Landið
Minnstaður
Reykjanesbær | Heilbrigðisráðuneytið
hefur staðfest fyrir sitt leyti samkomu-
lag sem sveitarstjórnarmenn og heil-
brigðisstofnanir á Suðurnesjum gerðu
með sér í júlí um uppbyggingu þjónustu
við aldraða. Í samkomulaginu felst að
byggt verði nýtt 30 rúma hjúkrunar-
heimili í Reykjanesbæ og gerðar end-
urbætur á hjúkrunarheimilinu Garðvangi
í Garði.
Í bréfi ráðuneytisins er fallist á að
unnið skuli eftir þeim hugmyndum sem
kynntar hafa verið um þjónustukjarna
fyrir aldraða á Suðurnesjum en sam-
kvæmt skipulagsdrögum er gert ráð fyr-
ir að hann verði á núverandi knatt-
spyrnuvelli Njarðvíkinga. Ráðuneytið
telur eðlilegt að þrjátíu vistrýma hjúkr-
unarheimili verði í hinum nýja kjarna
með stækkunarmöguleikum í framtíð-
inni. Jafnframt er viðurkennd þörfin á
endurbótum á Garðvangi sem hafa munu
í för með sér fækkun vistrýma þar og
sagt að einhver hjúkrunarrými færist frá
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. Er því
lýst yfir að ráðuneytið muni afla heim-
ilda fyrir þeim rýmum sem á vantar.
Þá kemur fram að heilbrigðis- og
tryggingamálaráðuneytið muni nú þegar
hefja vinnu við að ljúka frumathugun
vegna verkefnisins, í samvinnu við
heimamenn, en hún er grundvöllur óska
um fjárveitingu.
Legið þungt á íbúunum
„Þessi staðfesting ráðherra er mikið
fagnaðarefni fyrir okkur. Hér er að
koma lausn á máli sem hefur legið þungt
á íbúum um langan tíma. Málefni hjúkr-
unarsjúklinga í Reykjanesbæ hafa verið
í ólestri um árabil vegna tafa á byggingu
D-álmu og síðan breyttra forsendna á
rekstri hennar. Við unnum saman að
framtíðarlausn og nú hefur hún verið
staðfest af heilbrigðisráðherra,“ segir
Árni Sigfússon, bæjarstjóri í Reykja-
nesbæ.
Í samkomulagi sveitarfélaganna í sum-
ar fólst að ráðist verði í endurbætur á
Garðvangi á næstu tveimur árum og nýtt
dvalarheimili verði tekið í notkun árið
2007. Jafnframt er miðað við að til að
leysa brýnasta vandann, þangað til búið
verður að byggja, verði tíu dvalarrýmum
í Hlévangi í Keflavík breytt í hjúkr-
unarrými. Miðað er við að Dvalarheimili
Suðurnesjum sem reka Garðvang og
Hlévang muni annast uppbyggingu
hjúkrunarheimilisins í Reykjanesbæ.
Samkomulag
staðfest af
ráðherra
Hjúkrunarheimili
í Reykjanesbæ
Miðbær | Íslendingar hafa verið duglegir að skoða
ljósmyndasýninguna sem verið hefur á Aust-
urvelli í sumar og enn er uppi og ber þeirra nafn.
Myndirnar hefur einnig vakið athygli fleiri er-
lendra ferðamanna en Bills Clintons sem skoðaði
þær í Íslandsferð á dögunum. Á sýningunni er
fjöldi stækkaðra ljósmynda Sigurgeirs Sigurjóns-
sonar við texta Unnar Jökulsdóttur.
Morgunblaðið/Ómar
Úti á ljósmyndasýningu
Þjóðlegt
Kvennareið í Þistilfirði | Það er orðið al-
kunna í Þistilfirði og nærliggjandi byggð-
arlögum að þegar uppákomur eru hjá Kven-
félagi Þistilfjarðar „þá brestur hann á með
byl“ og vonskuveður verður. Í sumar urðu þó
kærkomin veðrabrigði þegar kvenfélags-
konur stóðu fyrir mikilli kvennareið en þá
fjölmenntu þær og fleiri kynsystur þeirra í
útreiðartúr.
Einmuna veðurblíða og þurrkar höfðu ríkt
vikum saman svo bændur voru orðnir ugg-
andi um vatnsbúskap á heiðum og jörðin
skrælþurr síðari hluta júlí þegar kvenfélags-
konur lögðu upp í kvennareiðina. Veður skip-
uðust þá skjótt í lofti og úrhellisrigning skall
á og var bændum næsta kærkomin.
Ragnari Sigfússyni bónda á Gunnarsstöðum
í Þistilfirði varð þá þetta að orði:
Út þær riðu ærlega,
áttu daginn sætan,
kom á jörðu kærlega
kvennareiðarvætan.
Ekki fór sögum af því hvort reiðkonur voru
jafnánægðar með veðrabrigðin og bændur
þeirra.
Úr
bæjarlífinu
HÉÐAN OG ÞAÐAN
Vanefndir á samningi | Sveitarstjóri
Skagafjarðar fór yfir og kynnti á fundi
byggðaráðs í vikunni vanefndir Elements
ehf. á samningi við sveitarfélagið um nýtt
upplýsingakerfi, að því er fram kemur í
fundargerð. Samþykkt var að boða for-
svarsmenn fyrirtækisins á fund byggð-
aráðs.
Við umfjöllun málsins lét Bjarni Jónsson
byggðaráðsfulltrúi bóka að tilgangur þess
að gerður var samningur við Element ehf.
um nýtt bókhaldskerfi hefði verið að hjálpa
fyrirtæki í heimabyggð að hasla sér völl á
nýju sviði. Samningurinn hefði gert fyr-
irtækinu kleift að sækja inn á nýjan mark-
að, í þjónustu sveitarfélaga.
„Ætla má að þessi samningur hafi aukið
verðgildi fyrirtækisins og gefið því ný sókn-
arfæri. Skömmu eftir að þessi tímamóta-
samningur var gerður seldi hins vegar
Kaupfélag Skagfirðinga fyrirtækið Elem-
ent ehf. úr héraði. Sú sala var áfall fyrir at-
vinnulíf í Skagafirði. Þær vanefndir sem
síðan hafa orðið af hálfu Element ehf. á
samningi við sveitarfélagið eru vonbrigði og
óásættanlegar,“ segir í bókun Bjarna.
Höfuðborgarsvæðið Brjánn Jónasson, brjann@mbl.is, sími 569-1100. Suðurnes Helgi
Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri Skapti Hallgrímsson, skap-
ti@mbl.is, Margrét Þóra Þórsdóttir, maggath@mbl.is og Kristján Kristjánson,
krkr@mbl.is, sími 461-1600. Vesturland Ásdís Haraldsdóttir, asdish@mbl.is, sími 898-
5258. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, austurland@mbl.is, sími 669-1115. Árborg-
arsvæðið og Landið Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290.
Mínstund frett@mbl.is
Opinn fundur verðurhaldinn í þjónustu-miðstöðinni í
Skaftafelli næstkomandi
sunnudag um stækkun
Skaftafellsþjóðgarðs sem
fyrsta skref í Vatnajök-
ulsþjóðgarði. Siv Friðleifs-
dóttir umhverfisráðherra
kynnir ákvörðun rík-
isstjórnarinnar um að fara
í verkefnið í nánu sam-
starfi við heimamenn og
kynnt verða ný mörk
garðsins. Að því er fram
kemur á Samfélagsvef
Hornafjarðar verður einn-
ig sagt frá hugmyndum
um starfsmannahald í
framtíðinni. Haft er eftir
Magnúsi Jóhannessyni
ráðuneytisstjóra á vefnum
að formlegum undirbún-
ingi að stofnun þjóðgarðs-
ins ætti að ljúka í haust.
Þjóðgarður
Grundarfjörður | „Það er
eins og skrúfað hafi verið
frá holuhöggunum,“
sagði einn golfarinn á
Bárarvelli þegar Svandís
Þorsteinsdóttir úr Stykk-
ishólmi fór þar holu í
höggi. Svanhvít byrjaði í
golfi í sumar og var að
vonum kát eftir höggið á
áttundu braut sem er par
þrjú hola. Á þrettán dög-
um hafa þrír kylfingar
farið holu í höggi Á Bár-
arvelli. Svanhvít er fyrsta
konan sem það gerir.
Ljósmynd/Sverrir Karlsson
Eins og skrúfað frá
Jón Ingvar Jónssonlá í makindum áströndinni við
Adríahafið og skrifaði
póstkort til föður síns
heima á Íslandi.
Þangað rataði þessi vísa
hans:
Strýk ég sveittri hönd um
haus,
horfi á kroppa bera,
því að alveg iðjulaus
enginn skyldi vera.
Sigrún Haraldsdóttir
sendir Jóni Ingvari
kveðju frá Fróni og segir
það dæmigert fyrir karl-
menn að geta ekki einu
sinni slakað á í sólar-
landaferðum.
Eftirfarandi vísa fylgdi
kveðjunni:
Þið eruð voðaleg vandræða tól
og vonlítið ykkur að passa.
Í stað þess að liggja og
steikjastí sól
þá starið á ókunna rassa.
Við Adríahafið
pebl@mbl.is
Fagridalur | Til að eignast góðan
smalahund þarf oft að leggja á sig
mikla vinnu og þolinmæði við þjálf-
un. Gunnar Einarsson, fjárbóndi og
hundaþjálfari frá Daðastöðum í
Norður-Þingeyjarsýslu, hélt nám-
skeið fyrir hunda og eigendur þeirra
á Suður-Hvoli í Mýrdal á dögunum.
Síðastliðin tíu ár hefur Gunnar
haldið fjárhundanámskeið á vegum
Landbúnaðarháskólans á Hvann-
eyri. Níu hundar og eigendur þeirra
mættu á námskeiðið og voru flestir
af Border Collie-kyni. Flestir
hundar af þessu kyni hafa meðfædda
hæfileika til að smala fé og geta því
orðið til mikils gagns fyrir bændur
ef þeir eru þjálfaðir á réttan hátt.
Gunnar kenndi undirstöðuatriðin
við þjálfun smalahunda því oft er
ekki síður nauðsynlegt fyrir eigend-
urna að læra að umgangast hundinn
heldur en fyrir hundana að umgang-
ast sauðfé. Að sögn Gunnars tekur
álíka langan tíma að þjálfa upp góð-
an smalahund og að temja hest.
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
Smalahundur: Magnús Þór Snorrason, bóndi í Sólheimahjáleigu, og Gunn-
ar Einarsson frá Daðastöðum kenna hundi Magnúsar að gæta fjárhóps.
Eigendurnir læra að
umgangast hundana
Styrkja bátakaup | Hreppsnefnd Höfða-
hrepps á Skagaströnd hefur samþykkt
beiðni Björgunarbátasjóðs Húnaflóa um
styrk til kaupa á björgunarskipi. Skipið verð-
ur á Skagaströnd og þjónar Húnaflóa.
Höfðahreppur mun greiða liðlega 230 þús-
und krónur í ár og sömu fjárhæð á næsta ári.