Morgunblaðið - 10.09.2004, Side 19
MINNSTAÐUR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. SEPTEMBER 2004 19
Til leigu eru 278,1 fm á 2. hæð. Húsnæðið
er nýlega endurnýjað á smekklegan hátt
og getur verið laust til afhendingar fljót-
lega.
Upplýsingar gefur Þorlákur Ómar
í síma 533 4800 eða 820 2399.
Suðurlandsbraut 4a • 108 Rvk. • Fax 533 4811 • midborg@midborg.is
533 4800
AUSTURSTRÆTI
Björn Þorri hdl., lögg. fastsali, Karl Georg hrl., lögg. fastsali.
Laugavegur 182 • 105 Rvík • Fax 533 4811 • midborg@midborg.is
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
nemendum í Skólahljómsveit
Kópavogs. Valgerður segir að um
500 krakkar hafi tekið þátt í göng-
unni, og segir að hún hafi verið á
að giska 400 metra löng þar sem
hún hlykkjaðist um Kópavoginn.
Grillað í rigningunni
Þrátt fyrir rigningu gekk vel að
grilla pylsur fyrir göngumenn.
„Við vorum með grill á þremur
stöðum, enda er húsið byggt þann-
ig að við getum verið þar sem við
viljum eftir veðri. Þetta gekk mjög
vel, við fengum lánuð stór grill hjá
áhaldahúsi Kópavogs. Svo var
Kópavogur | Krakkarnir í Smára-
skóla í Kópavogi fögnuðu 10 ára
afmæli skólans með því að fara í
skrúðgöngu um hverfið í gær-
morgun. Þrátt fyrir óhagstæða
veðurspá var sólskin á meðan á
göngunni sjálfri stóð, þó nokkuð
rigndi bæði fyrir hana og eftir.
Valgerður Snæland Jónsdóttir,
skólastjóri í Smáraskóla, segir að
allt hafi gengið eins og í sögu á af-
mælinu. Það var sannkölluð karni-
valstemming í skrúðgöngunni,
krakkarnir höfðu búið til litrík
höfuðföt og gengu um hverfið und-
ir glymjandi trommuslætti frá
bara fólk í þessu og allt gekk vel.
Þetta er svo samhent lið hérna að
það er enginn vandi að gera
svona,“ segir Valgerður.
Um kvöldið voru svo haldnir
tónleikar, þar sem hljómsveitir nú-
verandi og fyrrverandi nemenda
skólans voru í aðalhlutverki, auk
þess sem Birgitta Haukdal og
Vignir Snær Vigfússon í Írafári
voru bókuð til að skemmta krökk-
unum. Gefinn var út geisladiskur í
tilefni af afmælinu, en Valgerður
segir að hver einasti nemandi í
skólanum syngi eitthvað í ein-
hverju lagi á diskinum.
Morgunblaðið/Kristinn
Karnivalstemning í skrúðgöngu
AKUREYRI
Grafarvogur | Grafarvogsdag-
urinn verður haldinn hátíðleg-
ur á laugardag, og er þema
dagsins að þessu sinni vinátta.
Dagskráin er vegleg, og hefst
með morgunkaffi í pottunum í
Grafarvogslaug, og vatnsleik-
fimi með sr. Lenu Rós Matth-
íasdóttur, nýjasta presti Graf-
arvogssóknar, sem ætlar að
hressa upp á líkama og sál
Grafarvogsbúa.
Í tilefni af þema dagsins
verður unnið vináttulistaverk,
sem gæti jafnvel verið stærsta
verk sinnar tegundar hér á
landi. Grafarvogsbúar eru
hvattir til að koma vináttuboðs-
kap sínum á framfæri á stóran
stranga í Húsaskóla, og getur
það verið í formi orða, mynda
eða ljóða.
Flugeldasýning í lokin
Dagskráin stendur svo fram
á kvöld, meðal þess sem boðið
verður upp á er söguganga um
Keldnaholt og Húsahverfi,
Grafarvogshlaupið verður
hlaupið, helgistund verður
haldin við Hjúkrunarheimilið
Eir, glímukeppni haldin milli
stofnana og fyrirtækja, tón-
leikar haldnir, og svo mætti
lengi telja. Dagskráin endar
svo með veglegri flugeldasýn-
ingu um kl. 22 á laugardags-
kvöldið.
Vináttu-
listaverk
á Grafar-
vogsdegi
Mótmæla frestun | Höfuðborgar-
samtökin mótmæla harðlega frestun
á endurbótum við gatnamót Miklu-
brautar og Kringlumýrarbrautar,
sem þau segja löngu tímabærar. Í yf-
irlýsingu samtakanna kemur fram að
um leið og ríkið haldi að sér höndum
við fjármögnun nauðsynlegustu sam-
göngubóta í höfuðborginni færi borg-
arstjórn Reykjavíkur ríkinu að gjöf
lóðir að verðmæti á bilinu 4–5 millj-
arða króna. Á sama tíma standi ríki
og borg saman að „alfráleitustu
gatnaframkvæmd í sögu borgarinn-
ar“ með færslu Hringbrautar.
„Höfuðborgarsamtökin krefjast
þess að borgarstjórn Reykjavíkur
rifti nú þegar samningi Þórólfs Árna-
sonar borgarstjóra og Jóns Kristjáns-
sonar heilbrigðisráðherra frá 27. apríl
sl. um ofangreinda gjöf og noti verð-
mætin þess í stað til að fjármagna
framkvæmdir við þessi mikilvægu
gatnamót. Reykjavíkurborg hefur áð-
ur lánað ríkinu fé til framkvæmda við
stofnbrautir í borginni,“ segir í yfir-
lýsingunni. Einnig er lagt til að sveit-
arfélög á höfuðborgarsvæðinu yfir-
taki stofnbrautir, svipað og þegar
rekstur grunnskólana var yfirtekinn.
Hausthátíð í Vesturbæ | Um
helgina fer fram hausthátíð í Vest-
urbænum. Hátíðin fer fram á KR-
svæðinu á laugardag, en á sunnudag
er dagskrá í Vesturbæjarlaug, Nes-
kirkju, skátaheimilinu og í íþrótta-
húsi Hagaskóla. Á laugardag verður
nýr gervigrasvöllur vígður og vetr-
arstarf KR kynnt. Á sunnudag er
m.a. keppt í þríþraut; sundi, hjólreið-
um og hlaupum; og nýtt safnaðar-
heimili Neskirkju blessað. Skemmti-
dagskrá og leiktæki verða í boði, og
vetrarstarf frístundamiðstöðvarinn-
ar Frostaskjóls, skátafélagsins Æg-
isbúa, KFUM og K, félagsmiðstöðv-
arinnar Aflagranda, KR, Hagaskóla
o.fl. verður kynnt.
♦♦♦
ÞEIM féll ekki lyktin, sænsku nem-
endunum sem fóru í skoðunarferð
um borð í ísfisktogarann Björgúlf
EA í Dalvíkurhöfn. En að öðru leyti
virtist þeim þykja nokkuð varið í að
skoða sig um um borð í togaranum
og fá upplýsingar um hvernig veið-
ar færu fram á Íslandsmiðum.
Um fjörutíu manns, 25 nem-
endur, fimm kennarar og tíu for-
eldrar, hafa dvalið á Dalvík í vik-
unni og kynnt sér líf og störf
bæjarbúa. Dalvíkurskóli er þátttak-
andi í þriggja ára Comeniusarverk-
efni sem heitir „Þegar sólin rís“ en
níu skólar víðs vegar um Evrópu
taka þátt í verkefninu. Skólinn
fékk svo boð frá Sveaskolan í
Örebro um að vera með í verkefni
sem styrkt er af Nord Plus Junior
en sá sjóður styrkir m.a. nem-
endaheimsóknir milli Norður-
landanna. Nemendur í 5. bekk Dal-
víkurskóla munu svo næsta vor
endurgjalda heimsókn sænsku
nemendanna.
Þeir hafa fylgt krökkunum í
skólann en að auki hefur ýmislegt
skemmtilegt verið gert, m.a. farið í
gönguferðir upp í Lokugarnir, sem
eru ofan við Hámundarstaðaháls-
inn, í sund og slökun. Þá fengu
krakkarnir að kynnast því sem lífið
snýst um á Dalvík öðru fremur,
sjávarútvegi. Þau fóru í land-
vinnslu Samherja og fylgdust með
fiskvinnslunni. Einnig fóru þau um
borð í Björgúlf og fengu fræðslu
um fiskveiðar. Að sjálfsögðu þótti
einnig við hæfi að kynna þeim líf
og störf í sveit og því fór hópurinn
heim að Sökku í Svarfaðardal og
fékk að skoða sig um á íslenskum
bóndabæ. Heimsókn í Byggðasafn-
ið var á dagskrá og hvalaskoðun,
en heimsókninni lýkur með mikill-
imeð pítsuveislu og diskóteki.
Sænskir
krakkar
kynna sér
líf í sjávar-
útvegsbæ
Morgunblaðið/Kristján
Nemendur úr Sveaskolen í Örebro brugðu sér m.a. um borð í Björgúlf EA við bryggju á Dalvík.
Morgunblaðið/Kristján
Allt fullt af fiski: Krakkarnir skoða þorsk í landvinnslu Samherja á Dalvík.
ÓLAFUR Kjartan Sigurðarson
barítón syngur á fyrstu tónleikum
tónleikadagskrár Laugarborgar í
vetur, en þeir verða á morgun,
sunnudag kl. 15. Um er að ræða svo-
kallaða kaffitónleika, að loknum tón-
leikum býður Kvenfélagið Iðunn
gestum upp á kaffihlaðborð í eyfirsk-
um anda.
Ólafur Kjartan mun syngja þekkt
íslensk einsöngslög en einnig nokkr-
ar útsetningar á breskum þjóðlögum
eftir Benjamin Britten.
Undirleikari Ólafs verður Þórar-
inn Stefánsson.
Kaffitónleikar
í Laugarborg
Vetrarstarf | Kór Akureyrarkirkju
er að hefja vetrarstarfið. Inntökupróf
verða í kapellu kirkjunnar mánudag-
inn 13. september kl. 17–19.
Í vetur er ýmislegt á döfinni hjá
Kór Akureyrarkirkju, t.d. jólasöngv-
ar í desember, föstuvaka í mars, kaffi-
tónleikar og þátttaka í Kirkjulista-
viku 2005.
Kórinn hefur fastar æfingar á
þriðjudagskvöldum kl. 20 auk æfinga-
daga, æfingahelga og sérstakra æf-
inga fyrir guðsþjónustur á sunnudög-
um. Kórnum er skipt í 4 messuhópa
er skiptast á að syngja við messur en
auk þess syngur kórinn allur að jafn-
aði einu sinni í mánuði. Kórfélagar
syngja einnig við guðsþjónustur á
Hlíð og á hátíðum á FSA og í Minja-
safnskirkjunni. Stjórnandi Kórs Ak-
ureyrarkirkju er Björn Steinar Sól-
bergsson organisti og formaður
kórsins er Lúðvík Áskelsson.
Málþing | Málþing um hugmynda-
hefti fyrir Staðardagskrá 21 verður
haldið í í Ketilhúsinu í dag, föstudag.
Það er á vegum starfshóps um
dreifðar byggðir sem hefur starfað á
vegum nefndar undir Norrænu ráð-
herranefndinni. Á málþinginu verð-
ur hugmyndaheftið kynnt og fjallað
um nokkur verkefni sem þar eru til
umfjöllunar, s.s. vinabæjarsamband
Grästorp í Svíðþjóð og Marrupa í
Mósambík og gönguferðir með
þema. Einnig verður kynnt um-
hverfisvika í Grästorp og farið verð-
ur í heimsókn á Punktinn.
♦♦♦
♦♦♦