Morgunblaðið - 10.09.2004, Síða 30
MINNINGAR
30 FÖSTUDAGUR 10. SEPTEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
✝ Njáll Guðmunds-son fæddist á
Böðmóðsstöðum í
Laugardalshreppi 9.
sept. 1929. Hann lést
á heimili sínu í
Reykjavík 30. ágúst
síðastliðinn. Foreldr-
ar hans voru Guð-
mundur Njálsson, f.
10. júlí 1894, d. 18.
nóv. 1971, og Karól-
ína Árnadóttir, f. 20.
nóv. 1897, d. 25. mars
1981. Njáll var tíundi
í röð fimmtán systk-
ina en þau eru: Guð-
brandur, f. 16. maí 1919, d. 12. júlí
1919, Guðbjörn, f. 16. júní 1920, d.
27. jan. 1999, Ólafía, f. 29. ágúst
1921, Aðalheiður, f. 18. des 1922,
Kristrún, f. 2. apríl 1924, d. í Sví-
þjóð 10. okt. 1994, Jóna Sigríður,
f. 11. maí 1925, Valgerður, f. 10.
jan. 1927, Fjóla, f. 19. júlí 1928,
Lilja, f. 19. júlí 1928, Ragnheiður,
f. 29. mars 1931, Árni, f. 13. júní
1932, Guðrún, f. 18. júní 1933, d.
20. apríl 1974, Herdís, f. 14. sept.
1934, og Hörður, f. 30. jan. 1936.
Njáll ólst upp á Böðmóðsstöðum
og lærði öll venjuleg
sveitastörf sem þá
voru unnin. Barna-
skóli var farskóli.
Hann stundaði nám
við íþróttaskóla Sig-
urðar Greipssonar í
Haukadal. Lauk
námi við Bændaskól-
ann á Hvanneyri.
Lærði húsasmíði við
Iðnskólann í Reykja-
vík og varð húsa-
smíðameistari. Við
húsasmíði vann hann
í nokkur ár, en fór
svo til Danmerkur
og lauk þaðan námi vorið 1962
sem byggingafræðingur. Njáll
vann síðan við húsateikningar
o.fl. m.a. hjá Vegagerð ríkisins við
brúarteikningar. Einnig fór hann
til Svíþjóðar og vann þar sem
verkstjóri við smíði stórskipa. En
lengst af vann hann á eigin vegum
við húsateikningar.
Njáll verður jarðsunginn frá
Grafarvogskirkju í dag og hefst
athöfnin klukkan 13.30. Jarðsett
verður í Miðdalskirkjugarði í
Laugardal.
Njáll vinur minn og mágur er fall-
inn frá. Það er mikil eftirsjá að hon-
um, þessum ljúfa og drenglundaða
manni.
Hann ólst upp í stórri fjölskyldu
og þurfti sem aðrir að taka þátt í öll-
um störfum. Hann var heldur ekki
að víkja sér undan því. Hann gekk
alltaf í erfiðustu verkin og leyfði
ekki af sér. Hann var stór og sterk-
ur, áhugasamur, útsjónarsamur og
fylginn sér í öllu sem hann tók sér
fyrir hendur. Hann hafði enda á
yngri árum mikinn áhuga á að þjálfa
sig og styrkja í íþróttum, aðallega í
köstum og glímu, og fór í því skyni á
Íþróttaskóla Sigurðar Greipssonar í
Haukadal. Hann tók þátt í ýmsum
íþróttamótum, bæði í frjálsum og
glímu, og stóð sig alltaf vel. Hann
rak sjálfstæða teiknistofu og hann-
aði fjölmörg einbýlishús, raðhús og
blokkir. Allt var þetta unnið af mik-
illi natni og útsjónarsemi. Frágang-
ur hans á teikningum þótti til fyr-
irmyndar.
Njáli var mjög umhugað um hag
systkina sinna og ekki síður systk-
inabarna. Hann var einstaklega
barngóður og gætti þess alltaf að
eiga eitthvað til að gleðja lítið
frændfólk, þegar það kom í heim-
sókn, svo og börn nágranna sinna.
Njáll var alla tíð einhleypur og má
segja að hann hafi helgað líf sitt for-
eldrum sínum meðan þau lifðu. Þeg-
ar þau hættu búskap þá teiknaði
hann og byggði fyrir þau notalegt
hús á jörðinni. Eftir að Guðmundur
faðir hans dó lifði Karólína móðir
hans í tíu ár og allan þann tíma
hugsaði hann um að henni liði sem
best. Eftir fráfall móður sinnar
keypti hann húsið og gerði það allt
upp og lagði ríkulega vinnu í að gera
það sem best úr garði. Njáll var
mikið snyrtimenni og öll hans verk
voru fáguð og unnin af vandvirkni.
Njáll hafði mjög ákveðnar skoð-
anir á ýmsum málum og lét þær
gjarnan í ljós. Ef honum mislíkaði
eitthvað þá sagði hann gjarnan:
Þetta er nú ekki svaravert.
Með Njáli er genginn mjög heil-
steyptur maður sem mátti ekki
vamm sitt vita í neinu.
Við sem þekktum hann best sökn-
um hans sárt og biðjum guð að
blessa minningu þessa öðlings.
Vilhjálmur Sigtryggsson.
Hjartkær frændi okkar er látinn.
Hann dó snögglega og það var sárt
fyrir ættingja hans og vini. Þegar
hugsað er til baka til samveru-
stunda með Njáli brjótast fram
minningar frá löngu liðnum tímum
þegar við áttum heima á Böðmóðs-
stöðum. Við systurnar munum fyrst
eftir Njáli þegar við vorum 2ja og 5
ára og fluttum í sveitina. Hann bjó
þá ásamt yngri systkinum sínum hjá
afa og ömmu. Þessi ungi maður var
hávaxinn, myndarlegur með mikið
liðað hár og hlýlegt viðmót, en oftast
var hann alvarlegur og hugsandi.
Hann var sérlega barngóður og
hændust börn að honum. Kalla, sem
var 2ja ára, var fljót að uppgötva
það og hékk í honum um leið og
hann birtist á kvöldin. Hún gat setið
tímunum saman og greitt honum og
snúið upp á hárið á honum. Kallaði
hún hann lilluna sína og sagðist vera
mamma hans. Aldrei sagði hann
styggðaryrði við hana sama hvernig
hún snerist í kringum hann, en þeg-
ar hann varð alveg uppgefinn sagði
hans aðeins „Jæja Kalla mín.“ Tók
hana síðan á háhest og hljóp með
hana út um allt hús.
Árin liðu við leik og störf og Njáll
vildi fara út í heiminn að læra, sem
hann og gerði. Varð hann bygginga-
tæknifræðingur frá erlendum skóla.
Alltaf kom hann samt heim á Böð-
móðsstaði á jólum og á sumrin. Það
var mikið hlakkað til og dagarnir
taldir. Yngri systkini hans komu
líka heim í sveitina á jólum meðan
þau voru ógift. Á aðfangadag var vel
fylgst með bílaumferð. Við systurn-
ar sátum í glugganum hjá ömmu og
afa og biðum spenntar. Gleðin náði
hámarki þegar bíllinn renndi loks í
hlaðið. Ætíð komu systkinin fær-
andi hendi og húsið ilmaði af epla-
lykt. Um kvöldið safnaðist öll fjöl-
skyldan saman, dansaði í kringum
jólatréð og allir sungu saman.
Systkinin giftust síðan eitt af öðru
og hættu að koma heim á jólum, en
Njáll hélt áfram að koma í sveitina
sína og hugsaði um afa og ömmu.
Þegar Njáll var ungur æfði hann
frjálsar íþróttir. Hann var góður í
þeim og krakkarnir fylgdust spennt
með. Ekki dugði honum að æfa
sjálfur heldur tók allan krakkaskar-
ann undir sinn verndarvæng og á
kvöldin voru haldnar íþróttaæfingar
á árbakkanum. Hann var óþreyt-
andi, ásamt Herði bróður sínum, að
hvetja krakkana áfram. Árangurinn
varð samt misjafn og ekki urðu allir
íþróttamenn. Kalla var nokkuð
spretthörð og Njáll var fljótur að
uppgötva það og tók til við að æfa
hana í hlaupi. Skyldi hún keppa á
næsta ungmannafélagsmóti. Hún
stóð sig vel og varð önnur í hlaup-
inu. Þá varð nú Njalli frændi glaður
og hreykinn af frænku sinni.
Njáll var einstaklega góður við
foreldra sína. Kom til þeirra í öllum
sínum fríum og hjálpaði þeim að
byggja sér nýtt hús. Ef eitthvað bil-
aði eða vantaði þá var hann boðinn
og búinn að hjálpa þeim og eftir að
afi dó fyllti hann alltaf frystikistuna
hennar ömmu og gerði fyrir hana
allt sem hann gat. Í hvert skipti sem
komið var í heimsókn til ömmu
sýndi hún eitthvað nýtt sem Njáll
hafði gert í húsinu og það sem hann
gerði var bæði vandað og fallegt.
Árin hafa liðið og fjölskyldan er
stór. Undanfarið höfum við helst
hitt Njál á jólaskemmtunum eða
kaffidögum í ættarreit Böðmóðs-
staða. Hann var alltaf brosandi og
hlýlegur og það er erfitt að hugsa til
þess að við eigum ekki eftir að sjá
hann aftur.
Minningarnar um góðan frænda
gleymast ekki, en vonandi líður hon-
um nú vel hjá ömmu og afa.
Svala og Karólína.
Minn kæri frændi Njáll er fallinn
frá. Hann hefur verið stór þáttur í
mínu lífi alla tíð þar sem faðir minn
og hann voru mjög nánir bræður.
Njáll var með eindæmum barngóð-
ur og fengu börnin mín að njóta þess
ríkulega. Ég vil þakka fyrir alla þá
góðmennsku sem Njáll hefur sýnt
mér og fjölskyldu minni.
Takk fyrir tímann sem með þér
áttum, tímann sem veitti birtu og
frið.
Ljós þitt mun loga og leiðbeina
áfram, lýsa upp veg okkar fram á
við.
Gefi þér Guð og góðar vættir
góða tíð yfir kveðjuna hér,
þinn orðstír mun lifa um ókomna daga,
indælar minningar í hjarta okkar ber.
(P.Ó.T.)
Ég votta systkinum hans, fjöl-
skyldum þeirra og vinum mína
dýpstu samúð.
Hvíl í friði.
Þín frænka,
Jóhanna Guðbjörnsdóttir.
Elsku Njáll frændi.
Ég er strax farin að sakna heim-
sóknanna með mömmu til þín í Vest-
urhúsin. Ég þekki engan sem á jafn
mikið nammi og þú áttir alltaf. Mér
fannst alltaf svo gaman úti í kart-
öflugarði með þér því þú hlóst svo
mikið, ég var nefnilega duglegri að
tína ánamaðka en kartöflurnar. Það
var gaman að sjá hvað þú varst
ánægður með nýja jeppann þinn
þegar við mamma fórum í bíltúr
með þér.
Þú sýndir öllu áhuga sem ég var
að gera og stundum sýndi ég þér
fimleikaæfingar því þú vildir fylgj-
ast með framförum mínum.
Vertu yfir og allt um kring
með eilífri blessun þinni,
sitji Guðs englar saman í hring
sænginni yfir minni.
(Sig. Jónsson frá Presthólum.)
Blessuð sé minning þín, kæri
frændi.
Þín frænka
Anna Björk Eggertsdóttir.
Mig langar að minnast mágs míns
og vinar Njáls frá Böðmóðsstöðum.
Hann var sérstakur persónuleiki
miðsvæðis í stórum systkinahópi.
Engan þekkti ég meiri Laugdæling
en hann né elskari að sínum heima-
högum, enda sprottinn upp í fögru
umhverfi.
Í fjallahring skjólveggs norðurs-
ins blöstu við Kálfstindar, Klukku-
tindar, Gullkista, Rauðafell. Þegar
fjær dró blasti margt við en svo
kvað Guðmundur Dan á sínum
sokkabandsárum þegar hann sat á
skólabekk Laugarvatnsskóla:
Mikilli vitinn hulinn hita
Hekla skín í morgun átt.
Það er ekkert auðvelt að stoppa
hér við er skyggnst er um og skoð-
aðir útverðir sjóndeildarhrings Böð-
móðsstaða en þetta læt ég nægja í
bili.
Leið Njáls lá í bændaskólann á
Hvanneyri þegar aldur leyfði. Hann
reyndist vera afbragðs námsmaður.
Þar kynntist hann ævintýrum um
sög og hamar sem tóku mjög hug
hans. Stríðinu var nýlokið þegar
þetta var og margslags varningur
blasti við okkur lítt búinni þjóð sem
að gagni gæti komið, sér í lagi til
sveita.
Leið Njáls lá þá þegar á þessar
„vígstöðvar“ sem gáfu meira í aðra
hönd heldur en umhirða um kýr og
kindur. Draumurinn um Njál bónda
á Böðmóðsstöðum varð ekki að
veruleika. En Njáll undi ekki lengi
við bragga og hernámsdót. Hugur
hans beindist að því að byggja var-
anlegt. Þörfin fyrir það var alstaðar
brýn. Hann fór í nám. Leið hans lá
til Danmerkur, þar lærði hann iðn-
fræði sem gaf réttindi til að teikna
hús og alls lags mannvirki.
Nú var ekki setið auðum höndum
því mörg verkefni blöstu við. Þetta
þýddi þó ekki það að hans heima-
byggð væri lítils verð, nei, öðru nær.
Böðmóðsstaðir skyldu verða höfuð-
ból, já að því stefndi hann.
Breytingar höfðu nú orðið á Böð-
móðsstöðum, eigendur jarðarinnar
nú orðnir fimm talsins. Njáll átti
einn þeirra hluta. Framkvæmdir
hófust nú á Böðmóðsstöðum en að
öflun jarðhita sem bar árangur.
Einnig sameiginleg kaldavatnslögn
fyrir staðinn. Njáll var mjög virkur í
þessum framkvæmdum og kostaði
þær af sínum hluta enda þótt hann
ræki engan búskap á staðnum. Allt
skyldi gert til þess að byggja upp
Böðmóðsstaði sem ríkmannlegast
að hans áliti. Það var á ferðinni lífs-
gleði að því er virtist, þar sem Njáll
var.
Nú bar skugga á, það sáu þeir
sem glöggir voru, að hann gekk ekki
heill til skógar. Ekki vitjað læknis
um sinn, einn með sínar hugsanir.
Hafði alltaf verið fílhraustur. Þetta
hlyti að lagst. Enginn til þess að
ráðfæra sig við. Þetta hafði áhrif á
sálarlífið, hugarstríð er erfitt við-
fangs. Ekki hlutverk mitt eða þitt að
dæma.
Við Lilja vorum löngum í nánu
sambandi við Njál, ég læt hana taka
við.
Það var skömmu áður en bróðir
minn dó, að ég hringdi til hans. „Ég
er svo dapur, því ég er svo einmana.
En ég þakka þér fyrir að þú hringir
það er svo gott að heyra röddina
þína, Lilja.“ Þetta hafði djúp áhrif á
mig. Ég dreifði huganum inn á
gamla tímann þegar við vorum börn.
Þá rákum við bú vestan við hlið.
Njáll var einu ári yngri en við tví-
burasysturnar, en hann var bæði
stærri og sterkari.
Við höfðum þarna búskap, byggð-
um hús en mjög skorti á um bygg-
ingarefni. Verst var það með þökin,
yfirgerðina. Við Fjóla notuðum
birkigreinar, en Njáll hafði ráð á
betra efni og á hans húsi var ris, það
var flott.
Þá var það bústofninn, Njáll hafði
stærri hornin og vænni leggina,
þetta fannst okkur rökrétt því
strákar höfðu meiri rétt heldur en
stelpur, það leiddi af sjálfu sér og
var í hlutarins eðli.
Enginn ágreiningur því bróðirinn
var okkur innanhandar ef þörf
krafði. Fljótt kom í ljós snyrti-
mennskan hjá Njáli, þar skyldi allt
vera í röð og reglu, þeim eiginleika
hélt hann æ síðan.
Ég og börnin okkar minnast
Njáls og jólanna samtímis því þá
kom hann ævinlega með fullan skó-
kassa af „gotti“. Fyrsti jólapakkinn
sem opnaður var ævinlega skókassi
Njáls.
Nú er Njáll horfinn sjónum og við
hjónin söknum hans, en minning um
handtakið hans og hlýja viðmótið
mun ylja okkur þótt leiðir skiljist
um sinn.
Hafðu þökk fyrir allt. Blessuð sé
minning þín.
Lilja og Ingimundur.
Ekkert varir að eilífu, hvort sem
okkur líkar það betur eða verr. Njáll
frændi er látinn. Þar fór frá okkur
yndislegur maður. Eftir sitja minn-
ingar um mann, sem alltaf var kátur
og hress og naut þess að vera innan
um skyldfólk sitt, börn jafnt sem
fullorðna.
Við Haddi frændi komum oft við
hjá Njáli á grunnskólaárunum, því
að stutt var á milli heimila okkar.
Okkur Hadda var ávallt vel fagnað
og fengum við oft suðusúkkulaði og
mjólkurglas í bland við skemmtileg-
ar sögur úr sveitinni. Þetta voru
góðar stundir fyrir strákpatta og
gaman að eiga Njál að frænda og
vini. Njáll var mjög ættrækinn mað-
ur og áttum við þar sameiginlegt
áhugamál, því að þrátt fyrir ungan
aldur hef ég áhuga á ættfræði, bæði
manna og hrossa, og þótti Njáli
gaman að heyra hversu strákur var
fróður um forfeður sína. Hann lék
sér að því að spyrja mig út úr og at-
huga hvað ég vissi. Þá var nú glatt á
hjalla og mikið hlegið enda áttum
við frændur skap saman.
Þegar Böðmóðsstaðafjölskyldan
hittist 10. júlí síðastliðinn til þess að
minnast 110 ára afmælis Guðmund-
ar langafa lét Njáll sig að sjálfsögðu
ekki vanta, þó svo að heilsan væri
ekki sem best. Hann sýndi okkur
ömmu og afahús. Það var gaman að
sjá hversu vel Njáll hefur haldið því
við. Þá um kvöldið áttum við líka
saman eftirminnilega stund, þar
sem amma Dísa og Njáll rifjuðu upp
æskuárin og ýmislegt skemmtilegt.
Þegar Njáll kom í stutta heimsókn
til okkar í Lækjarás með Villa afa
fyrir rúmum hálfum mánuði óraði
mig ekki fyrir því er við kvöddumst
með handabandi, að þetta væru okk-
ar síðustu stundir saman. Enginn
veit sína ævi fyrr en öll er.
Ég kveð Njál frænda minn með
söknuð í hjarta, en samt þá trú, að
vel verði tekið á móti honum og
hann hafi það gott þarna hinum
megin.
Systkinum Njáls, vinum og
vandamönnum votta ég mína dýpstu
samúð.
Hvíl í friði, frændi.
Vilhjálmur Karl Haraldsson.
Deyr fé,
deyja frændur,
deyr sjálfur ið sama;
en orðstír
deyr aldregi,
hveim er sér góðan getur.
(Úr Hávamálum.)
Við áttum því láni að fagna að
kynnast hæfileikum Njáls sem
byggingafræðings. Frá upphafi fyr-
irtækis okkar hannaði hann öll þau
íbúðarhús sem við byggðum. Mátti
þar glöggt sjá smekkvísi og mikið
verksvit renna saman. Skipti það
ekki litlu fyrir upphaf rekstrar okk-
ar. Þá urðum við einnig þeirrar
gæfu aðnjótandi að njóta samvista
við Njál hversdags og á hátíðardög-
um, bæði á heimilum okkar í
Reykjavík og í sumarhúsum á Böð-
móðsstöðum. Gaman var að þeim
fundum því Njáll var mikill sagna-
maður og viskubrunnur. Sérstak-
lega var saga lands og þjóðar honum
mikill innblástur sem lét fáa
ósnortna.
Þökkum samfylgdina í gegnum
lífið.
Pálmar, Rannveig
og fjölskylda.
NJÁLL
GUÐMUNDSSON
INGIBJÖRG GUÐMUNDSDÓTTIR,
Syðri-Á,
Ólafsfirði,
lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri
fimmtudaginn 2. september.
Útför hennar fer fram frá Ólafsfjarðarkirkju
laugardaginn 11. september kl. 14:00.
Blóm eru vinsamlega afþökkuð, en þeim, sem
vilja minnast hennar, er bent á að láta félagasamtök í Ólafsfirði
njóta þess.
Árni Helgason, Sigurbjörg Ingvadóttir,
Unnur Guðmundsdóttir,
Guðrún Ólöf Guðmundsdóttir,
Ingi Viðar Árnason, Katrín Sigurðardóttir
og fjölskyldur.