Morgunblaðið - 10.09.2004, Page 34

Morgunblaðið - 10.09.2004, Page 34
MINNINGAR 34 FÖSTUDAGUR 10. SEPTEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ ✝ Karl Valur Karls-son fæddist í Reykjavík 27. sept- ember 1939. Hann lést á Sjúkrahúsi Akraness 1. septem- ber síðastliðinn. For- eldrar hans voru hjónin Júlíana Jens- dóttir húsmóðir, f. á Haukabrekku á Snæ- fellsnesi 26. desem- ber 1913, d. 17. jan- úar 1959, og Karl Björnsson gullsmið- ur, f. á Vakursstöðum í Vopnafirði 20. febr- úar 1908, d. 16. ágúst 1980. Bræð- ur Karls eru Björn, f. 1936, kona hans er Hilma Magnúsdóttir, Jens, f. 1938, kona hans er Jónína Magn- úsdóttir, og Garðar, f. 1942, kona hans er Þuríður Guðjónsdóttir. Karl kvæntist 31. desember 1960 Önnu Elísabetu Oliversdótt- ur, f. í Ólafsvík 28. október 1941. Foreldrar hennar eru Oliver Kristjánsson, f. 10. júní 1913, og Helga Rósa Ingvarsdóttir, f. 2. júní 1915, d. 3. febrúar 1996. Börn Karls og Önnu eru 1) Júlíana, f. 17. mars 1960, maki Sigurður R. Lúð- víksson, skildu. Börn þeirra eru Halldór (látinn), Anna Sigríður, Lísa, Ólöf og Örlygur. 2) Oliver, f. 21. janúar 1962, kona hans er Anna Guðný Egilsdóttir. Börn þeirra eru Davíð Geir og Anna El- ísabet, stjúpdóttir Agla Rún og kjörsonur Jón Albert. 3) Vífill, f. 22. desember 1965, kona hans er Jónína Erna Arnar- dóttir. Börn þeirra eru Valur Örn og Unnur Helga. 4) Helga, f. 3. febrúar 1968, maki hennar er Jón Bek. Börn þeirra eru Guð- mundur Sigurður, Karl Valur og Guð- jón Hilmar. Langafa- barn er Alexandra Björk. Karl Valur ólst upp í Reykjavík en var öll sumur frá tveggja til sextán ára aldurs á Brimilsvöllum í Fróð- árhreppi hjá hjónunum Kristólínu Kristjánsdóttur og Ólafi Bjarna- syni. Eftir það fór hann til Ólafs- víkur í almenna fiskvinnu og síðan til sjós. Árið 1959 fór hann á vél- stjóranámskeið og var vélstjóri meira og minna til ársins 1970. Á því tímabili gerði hann út tvo báta og tók þátt í útgerð þess þriðja. Eftir það fór hann í land og vann ýmis störf, m.a. netavinnu og vörubílaakstur. Árið 1980 fór Karl Valur á saltfisks- og skreiðarmats- námskeið og vann sem matsmaður til 1983, þá réðst hann til Ríkis- mats sjávarafurða og starfaði þar til ársins 1992, er stofnuninn var lögð niður. Eftir það réðst hann til Fiskistofu og vann þar til dánar- dags. Útför Karls Vals fer fram frá Ólafsvíkurkirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 16. Glettni, einurð og stóísk ró ein- kenndu lundarfar föður míns. Hann gat þusað en varð sjaldan reiður. Gamansemi og glettni voru ávallt skammt undan og hann lét fátt koma sér úr jafnvægi. Sem barni þóttu mér brellur hans og leikir mikil skemmtun. Umburð- arlyndi hans var mikið þegar hann tók mig með sér til vinnu og vinnan hans varð minn leikur og skóli. Agi hans og hvatning var til staðar þegar ég tók mín fyrstu skref á vinnumark- aði og það kenndi mér hvernig vinn- an göfgar manninn. Samverustundir okkar urðu færri eftir að ég fór frá Ólafsvík til náms, 16 ára gamall. En hollráð, félagsskap og annan stuðn- ing mátti alltaf til hans sækja, þótt í fjarska væri. Eftir því sem árin liðu þóttist hann hafa færri hollráð uppi í erminni þeg- ar ég leitaði til hans. Reyndin var hins vegar sú að þar fundust alltaf gullkorn sem komu að góðum notum, lítil og stór. Vinskapur okkar tók breytingum og við eignuðumst ýmis ný sameiginleg áhugamál sem gam- an var að karpa um á góðri stundu. Við gátum alltaf spjallað, gantast, hlegið, heilsast, kvatt og faðmast. Hann var mér góður faðir, félagi og vinur. Ég kveð hann með trega. Hans verður sárt saknað. Vífill. Ég sit hér í sófanum heima og reyni að finna einhver orð sem lýsa þeim hugsunum sem þjóta í gegnum hugann á svona stundu. Hann tengdapabbi minn er dáinn. Maður getur ekki annað en hugsað til þess þegar þau hjónin komu hérna við snemma í vor á leið til læknis sem átti að vera ferðin sem mundi laga það sem hafði hrjáð hann Kalla svo lengi. En annað kom á daginn, ekkert fór eins og ætlað var. Okkar fyrstu kynni urðu fyrir um 18 árum þegar ég fór í heimsókn með kærustunni til Ólafsvíkur og ári seinna útvegaði Kalli mér pláss á bát frá Ólafsvík á vetrarvertíð. Þessir mánuðir reyndust mér afar dýrmæt- ir þegar fram liðu stundir enda var ég einungis óharðnaður unglingur sem tók út mikinn þroska á þessum tíma. Hann tengdapabbi minn reyndist mér alltaf einstaklega vel og það var ekkert sem hann var ekki tilbúinn að aðstoða mig með. Á síðustu dögum ævi sinnar hringdi hann til að hjálpa mér við að koma fellihýsinu í lag, sem hann hafði lánað mér, þrátt fyrir að heilsan væri alls ekki í lagi og nokkr- um dögum seinna þegar við vorum að leggja af stað hringdi hann margoft til að tryggja að allt væri eins og það átti að vera, þetta finnst mér lýsa honum vel. Við vorum svo heppin að hann kom oft við hjá okkur, bæði fyrir vestan og hér í Borgarnesi, eftir að við flutt- um, á ferðum sínum um landið í tengslum við starf sitt hjá Fiskistofu. Það var alltaf gaman að fá hann í heimsókn og fá fréttir af fjölskyld- unni og eina eða tvær gamansögur sem hann hafði svo gaman af að segja. Kæri tengdapabbi, þín verður sárt saknað á þessu heimili. Guð geymi þig. Jón Bek. Okkur strákana á Þórðargötu í Borgarnesi langar að minnast afa okkar. Afi sem kom svo oft við hjá okkur ýmist á leið vestur eða suður. Alltaf var hann glaðlyndur og sagði skemmtilegar sögur. Hann sýndi okkur peningana sem hann geymdi í brjóstvasanum og sagðist vera ríkur. Honum fannst fiskur voðalega góður og líka var hann hrifinn af afgöngum sem pabbi kallaði ónýtan mat, það var meira að segja einu sinni dolla í frystinum sem á stóð Karl Valur ónýtur matur. Einu sinni þegar við vorum í heim- sókn í Ólafsvík og afi kom fram um morguninn spurði hann okkur hvort við værum búnir að fá okkur að borða. Við sögðumst ekki vera búnir að fá baun í bala. Þá sótti hann baun og henti henni í bala og sagði byrjiði á þessu. Svona var hann afi okkar alltaf hress og skemmtilegur. Elsku afi við gleymum þér aldrei. Guð blessi þig. Karl og Guðjón. Það haustar að, Kalli Valli farinn. Ekki suður eins og oft áður heldur yfir móðuna miklu og kemur ekki aft- ur. Hann kom fyrst að Völlum með móður sinni sumarið 1942, þá tveggja ára snáði. Móðir hans gekk þá með fjórða strákinn. Þau dvöldu ásamt fleirum um sumarið í Lækjarbug sem var síðasti hjáleigubærinn er uppi stóð á Brimilsvöllum. Síðari heimsstyrjöldin geisaði, hermenn við hvert fótmál í Reykjavík og allt gat gerst. Því lögðu margir kapp á að koma börnum sínum úr borginni út á land í meira öryggi. Stutt var á milli Lækjarbugs og bæjarins á Völlum enda átti Kalli Valli mörg sporin heim til okkar þetta sumar og var ætíð aufúsugestur. Eftir þetta kom hann á hverju vori fram yfir fermingu um leið og far- fuglarnir og fór suður um réttir. Það vildi svo til að á milli okkar Kalla Valla myndaðist taug sem aldrei slitnaði. Hann kúrði hjá mér um nætur fyrstu sumrin og leitaði til mín ef eitt- hvað bjátaði á. Kalli Valli var skemmtilegur strákur, viljugur og áreiðanlegur. Hann reyndist foreldr- um mínum góður drengur og ber að þakka það. Seinna var það ég sem fór suður en Kalli Valli fann lífsförunaut sinn, hana Önnu, í Ólafsvík og var hún honum stoð og stytta til æviloka. Þau eignuðust fallegt heimili og fjögur mannvænleg börn ásamt fjölda barnabarna. Hann bar svo sannar- lega hag þeirra fyrir brjósti eins og góðum föður sæmir. Eins og oft vill verða hefðu sam- verustundirnar mátt vera fleiri. Kalli Valli var alltaf að flýta sér – kem næst sagði þessi heimfúsi frændi minn og brunaði vestur. Það sýnir tryggð hans við æskuheimili mitt á Brimilsvöllum að hann óskaði eftir að vera jarðsettur í kirkjugarðinum þar. Að lokum vil ég fyrir hönd allra í fjölskyldu minni þakka Kalla Valla fyrir árin öll. Önnu og fjölskyldu sendum við samúðarkveðjur og biðj- um þann sem öllu ræður að gæta þeirra í framtíðinni. Björg Ólafsdóttir. Hvað er ljós ef ekki er myrkur? Hvað er mótlæti ef enginn er styrkur? Hvað er sorg ef ekki er gleði? Hvað er söknuður ef engin er minning? (Höf. ók.) Í dag kveð ég minn gamla vin og æskufélaga með söknuði, þó svo sátt- ur við að hann fékk hvíld frá erfiðum veikindum. Samleið okka Valla var orðin býsna löng, kynntumst smápjakkar á Leifsgötunni, Skólavörðuholtið para- dís til leikja, sundhöllin okkar annað heimili. Oft var hjólað upp að Rauðavatni og Elliðavatni og þóttumst við þá miklir garpar. Valli fór snemma til sumardvalar vestur á Brimilsvelli eins og títt var með stráka á þessum árum. Svo fór að Valli ílengdist fyrir vestan og kynntist hann henni Önnu sinni, heimasætu úr Ólafsvík og settust þau þar að. Ekki rofnaði vinskapurinn þótt Valli væri fluttur vestur, enda við félagarnir samstiga með að festa ráð okkar ungir að árum. Konurnar okkar urðu vinkonur og börnin bætt- ust í hópinn á svipuðum tíma hjá okk- ur. Var þá oft glatt á hjalla þegar setið var í eldhúsinu í Sandholti og síðar í Vallholtinu. Ógleymanlegar berja- ferðir voru árvissar okkur stóra fólk- inu til ánægju en við misjafna gleði yngra fólksins, sem fannst tíma- eyðsla að rápa um allar koppagrund- ir við berjatínslu. Einnig var gaman að hlusta á Valla segja skondnar sög- ur t.d. af gullinu sem geymt er á leynistað inni í sveit, því ef einhver kunni að segja frá þá var það Valli. Það er sárt að sjá á eftir góðu sam- ferðafólki, var Valli sannur og traust- ur félagi alla tíð. Elsku Anna, þú ert búin að standa eins og hetja við hlið Valla í hans veikindum. Við Stenna og strákarnir sendum þér og allri þinni fjölskyldu innileg- ustu samúðarkveðjur. Megi góður Guð gefa ykkur styrk í sorginni. Kæri vinur þakka samfylgdina. Hvíl í friði. Þinn gamli vinur Birgir. Góður vinur og vinnufélagi er genginn. Karl Valur Karlsson lést á Sjúkra- húsinu á Akranesi fyrsta september sl., eftir langa og erfiða baráttu við óvæginn sjúkdóm. Við sem hittum hann á göngu í byrjun maí hefðum varla trúað því að hann yrði allur áður en árið væri lið- ið. Þegar hann var spurður um líð- anina svaraði hann því oftast til „að þetta færi allt að koma“. Við sem á hlýddum töldum því að nú væri hon- um að batna, en hefðum auðvitað átt að vita betur, því Valli gerði aldrei mikið úr veikindum sínum, hann sló frekar á létta strengi og fór að tala um annað. Fyrstu kynni mín af Kalla Valla voru þegar ég heimsótti frænku mína, Önnu Oliversdóttur, sem þá var nýbúin að eignast elsta barn þeirra, Júlíönu. Unga parið leigði þá hjá frænku Önnu í næsta húsi við okkur á Ólafsbrautinni, það var stutt að skreppa og sjá þá litlu, þá voru fá börn í fjölskylduni. Valli var skemmtilegur og stríðinn, en hann beitti stríðninni aldrei þannig að sviði undan. Þannig var hann líka löngu síðar þegar við unnum á sama vinnu- stað. Í kaffitímanum var verið að spila bridds og oft voru líka háværar umræður um það sem efst var á baugi. Þegar allt var komið á suðu- punkt og karlarnir orðnir verulega æstir sló Valli iðulega á létta strengi og allir fóru sáttir að vinna aftur. Eftir að Valli skipti um vinnustað og fór að vinna við eftirlitsstörf minnkuðu samskiptin, hann var oft að heiman vegna vinnunnar, en þeg- ar við hittumst var alltaf sama góða viðmótið. Elsku Anna, þú hefur sýnt ótrúleg- an styrk og staðfestu við þessar erf- iðu aðstæður, þú og fjölskyldan öll hafið staðið þétt saman til að gera Valla þennan erfiða tíma sem bæri- legastan, hann hefur örugglega met- ið það. Okkur hérna í Brautarholtinu finnst mjög erfitt að geta ekki verið með ykkur við útförina. Við biðjum góðan Guð að vera með ykkur öllum þessar erfiðu stundir og í framtíðinni. Guð blessi minningu góðs manns. Jenný og Jónas. Með nokkrum orðum langar mig að kveðja góðan vin, Karl Val Karls- son, sem lést langt um aldur fram. Það er sárt til þess að hugsa að Valla, eins og hann var ávallt kallaður í fjöl- skyldunni, skuli ekki hafa enst aldur til að eiga gott ævikvöld eins og flest okkar horfa til. Valli var góður mað- ur, aldrei heyrði ég hann hallmæla neinum né öfundast út í aðra. Hann var mikill húmoristi og brosi ég í gegnum tárin þegar ég hugsa til orðaskipta okkar í gegnum árin. Valli var búinn að vera sárþjáður í langan tíma, en aldrei kvartaði hann. Hans létta lund hefur eflaust hjálpað honum framan af í hans veikindum. Valli var elskaður af fjölskyldu sinni sem vék ekki frá sjúkrabeði hans síð- ustu vikur og mánuði. Ég bið honum Guðs blessunar og fjölskyldu hans allri. Í lífsins hretum fýkur flest í skjólin, og frænda’ og vina myrkvast kærleikssólin. Þú, Drottinn Jesús, hrelldum huga mínum átt hlífð og skjól í náðarfaðmi þínum. Þú vegur eins hinn vesala og smáa og virðir jafnt þeim auðuga og háa, þú telur ei í tugum sljórra manna, þín tala’ er eitt á hjörtum þúsundanna. Ef einhver þig ei ennþá fundið hefur, sem öllum ljós í dauðans myrkrum gefur, ó, veit þá áheyrn veikum bænum mínum, og vísa þeim að náðarfaðmi þínum. (Ólína Andrésdóttir.) Minning mín um öðlinginn Valla lifir. Lára Kristjánsdóttir og fjölskylda. KARL VALUR KARLSSON  Fleiri minningargreinar um Karl Val Karlsson bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. Höfundar eru: Kolbrún Þóra, Jón Þorbergur og dætur. Innilegar þakkir sendum við öllum þeim, sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegs eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, MAGNÚSAR GUÐMUNDSSONAR, Strandgötu 3, Patreksfirði. Valdís Viktoría Pálsdóttir, Aron Magnússon, Kristbjörg Kristmundsdóttir, Ingibjörg Magnúsdóttir, Björn Bragi Sigmundsson, Anna Magnúsdóttir, Bob Tomolillo, Flosi Magnússon, afabörn og langafabörn. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát og útför ástkærrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, HANSÍNU MARGRÉTAR BJARNADÓTTUR (Haddýjar), Suður-Reykjum 3, Mosfellssveit. Sérstakar þakkir til Heimahlynningar Krabbameinsfélagsins. Ásta Jónsdóttir, Ragnar Björnsson, Bjarni Ásgeir Jónsson, Margrét Atladóttir, Kristján Ingi Jónsson, Einar Bogi Sigurðsson, Baldur Jónsson, Hugrún Svavarsdóttir, barnabörn og langömmubörn. Morgunblaðið birtir minningar- greinar alla útgáfudagana. Skil Minningargreinar skal senda í gegnum vefsíðu Morgunblaðsins: mbl.is (smellt á reitinn Morgun- blaðið í fliparöndinni – þá birtist valkosturinn „Senda inn minning- ar/afmæli“ ásamt frekari upplýs- ingum). Skilafrestur Ef birta á minningar- grein á útfarardegi verður hún að berast fyrir hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Ef út- för hefur farið fram eða grein berst ekki innan hins tiltekna skilafrests er ekki unnt að lofa ákveðnum birtingardegi. Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein berist áð- ur en skilafrestur rennur út. Myndir Ef mynd hefur birst í til- kynningu er hún sjálfkrafa notuð með minningargrein nema beðið sé um annað. Ef nota á nýja mynd er ráðlegt að senda hana á mynda- móttöku: pix@mbl.is og láta um- sjónarmenn minningargreina vita. Minningar- greinar

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.