Morgunblaðið - 10.09.2004, Side 40
DAGBÓK
40 FÖSTUDAGUR 10. SEPTEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Heilsa þín og atvinna verða þér of-
arlega í huga næsta mánuðinn. Þú vilt
bæta heilsu þína og það sama á við um
vinnuaðferðir þínar.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Þú munt njóta þess að spreyta þig á
hvers konar þrautum og leikjum næsta
mánuðinn. Þú munt einnig njóta þess
að lesa eitthvað skemmtilegt.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Þú færð tækifæri til að komast að ein-
hverju nýju varðandi fortíð þína. Eitt-
hvað verður til þess að þú sérð hlutina
í nýju ljósi.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Það er að færast meiri hraði í lífið hjá
þér og næsti mánuður ætti því að
verða bæði örvandi og skemmtilegur.
Þetta er sem sagt ekki rétti tíminn til
að sitja heima.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Þú hefur eytt miklu að undanförnu og
því ertu að velta fyrir þér nýjum fjár-
öflunarhugmyndum.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Það eru fjórar stjörnur í merkinu þínu,
sólin, Merkúr, Mars og Júpíter. Þessu
fylgir mikil orka sem þú ættir að nýta
sem best því þetta gerist ekki oft.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Þú þarft á hvíld og friði og ró að halda.
Reyndu að vinna sem mest ein/n og
láttu félagslífið aðeins bíða.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Þú nýtur þess að vera með öðrum
þessa dagana. Það er þó hætt við að
einhver fari í taugarnar á þér. Reyndu
að sýna viðkomandi þolinmæði.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Þetta er góður tími til að ígrunda
framtíðaráform þín. Veltu því fyrir þér
hvað er líklegt til að ganga upp og
hvað ekki og hvað þú vilt helst láta
ganga.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Þú ættir að reyna að bæta á einhvern
hátt við menntun þína eða starfs-
þjálfun á næstunni. Afstaða stjarnanna
hvetur þig til þess að víkka sjóndeild-
arhring þinn með einhverjum hætti.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Þú ert að velta fyrir þér stórum spurn-
ingum þessa dagana. Þú vilt vita hvað
skiptir raunverulegu máli.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Þetta er góður tími til að ræða við
maka þinn um vandamálin í samband-
inu. Þú átt auðvelt með að koma sjón-
armiðum þínum á framfæri á sama
tíma og þú hefur góðan skilning á sjón-
armiðum annarra.
Stjörnuspá
Frances Drake
Meyja
Afmælisbörn dagsins:
Eru vel gefin, ábyrg og samviskusöm. Á
næsta ári þurfa þau á aukinni einveru
að halda til að læra eitthvað nýtt.
Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár
af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
Staðurogstund
idag@mbl.is
Árnaðheilla
dagbók@mbl.is
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
Krossgáta
Hægt er að kaupa 10 krossgátur á 600 kr. á mbl.is. Slóðin er: http://www.mbl.is/mm/f olk/krossgata/index.html
Lárétt | 1 blökkumaður, 8
hrósum, 9 lipurð, 10 eldi-
viður, 11 vísa, 13 ákveð,
15 mjög hallandi, 18
stjórna, 21 fag, 22 kátt, 23
uxinn, 24 steins.
Lóðrétt | 2 loftrella, 3
hæsi, 4 reiðra, 5 tröllkona,
6 óhapp, 7 drótt, 12 hold,
14 fum, 15 flói, 16 flýtinn,
17 nafnbót, 18 bands, 19
úði, 20 geta gert.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt | 1 gumar, 4 drepa, 7 lýgur, 8 kofar, 9 tík, 11 aðra, 13
áður, 14 sukks, 15 kusk, 17 tjón, 20 fró, 22 tunna, 23 liðnu,
24 raust, 25 rúman.
Lóðrétt | 1 gúlpa, 2 magur, 3 rýrt, 4 dekk, 5 erfið, 6 arrar,
10 ískur, 12 ask, 13 ást, 15 kætir, 16 sunnu, 18 Júðum, 19
nautn, 20 falt, 21 ólar.
90 ÁRA afmæli. Ídag, 10. sept-
ember, er níræð Guð-
rún Símonardóttir,
Hagamel 25, Reykja-
vík. Hún mun fagna
deginum með ætt-
ingjum og vinum í
samkomusal KR-
hússins, Meistaravöllum 33 í Reykja-
vík, frá kl. 17–20.
ÞESSA dagana stendur yfir sýning
dönsku listakonunnar Lone Mertz í Gallerí
Kambi. Innsetning hennar byggist á ferð
sem hún fór til Himalaja árið 1994, en um
er að ræða glerkistu sem Lone smíðaði í
minningu eiginmanns síns, Alberts Mertz.
Kistan sú hefur farið víða, m.a. í 4.400
metra hæð á fjallstindi á mörkum Nepals
og Tíbets. Listakonan talar um Himalaja
og Heklu sem tvo andstæða póla, austur
og vestur sem sameinast á sýningunni í
Kambi.
Einnig er á sýningunni eitt verk eftir
Lawrence Weiner sem hann gerði fyrir
hjónin Lone og Albert Mertz.
Sýningin stendur til 3. október 2004, en
Gallerí Kambur er opinn alla daga nema
miðvikudaga milli 13 og 18.
Víðförul glerkista í Galleríi Kambi
Staður og stund á mbl.is.
Nánari upplýsingar um viðburði
dagsins er að finna á Stað og
stund á forsíðu mbl.is.
Meira á mbl.is
Skemmtanir
Árnes | Réttarball með Pöpum.
Gaukur á Stöng | Eftir sumarfrí hafa Jack
Live kvöld Xins-977 snúið aftur. Þessir
mánaðarlegu tónleikar byrja aftur í kvöld
þar sem Ensími, Dr. Spock og Tommy Gun
Preachers skemmta. Húsið opnað kl. 22.
Gullöldin | Hljómsveitin Hafrót skemmtir
um helgina.
Kringlukráin | Hljómar frá Keflavík verða
með dansleik helgina 10. og 11. september.
Hljómsveitin Hljómar átti nýlega 40 ára
starfsafmæli. Dansleikirnir hefjast kl. 23.
Nasa | Dj Ísi. Húsið opnað kl. 23.
Tónlist
Café Rosenberg | Hljómsveitin Hraun! mun
leika frumsamin lög auk nokkurra vel val-
inna gestalaga í kaffihúsaútgáfum á Café
Rosenberg um helgina.
Gamla Bókasafnið Hafnarfirði | Tónleikar
með Lödu Sport, Kingstone og Bob. Hefj-
ast klukkan 20:00 og standa til 23:00.
Grand Rokk | Drep og Sagtmóðigur leika
fyrir gesti.
Hótel Borg | Söngkvartettinn OPUS með
tónleika kl. 21, húsið opnað kl. 20. Kvart-
ettinn skipa söngvararnir Valgerður
Guðnadóttir sópran, Rósalind Gísladóttir
mezzó-sópran, Einar Örn Einarsson tenór
og Gunnar Kristmannsson barítón, en
Vignir Þór Stefánsson leikur á píanó
Kaffi List | Hljómsveitin The Zuckakis
Mondeyano Project, með útgáfutónleika.
Klink og Bank | Hljómsveitin I’m being
good frá Brighton í Bretlandi leikur á föstu-
dag ásamt ásamt Kimono og I Adapt. Tón-
leikarnir hefjast klukkan 21.
Miðborg Reykjavíkur | Hollenska blás-
arasveitin Van Alles Wat leikur á Laugavegi
og víðar í miðborginni í dag. Hljómsveitin,
sem spilar létta tónlist úr öllum áttum, er
karnivalsveit sem heimsækir Reykjavík í
tilefni af Hollenskum dögum.
Bækur
Þjóðmenningarhúsið | Föstudaginn 10.
september kl. 17 verður sýningin Skáld
mánaðarins Gunnar Gunnarsson opnuð í
bókasal Þjóðmenningarhússins. Við það
tækifæri mun Sigrún Hjálmtýsdóttir syngja
hluta úr Sonnettusveig Gunnars við lag Ás-
kels Mássonar.
Dans
Harmonikufélag Reykjavíkur | Harm-
onikufélag Reykjavíkur heldur fyrsta dans-
leik haustsins í Lionshúsinu við Auðbrekku
25, Kópavogi, laugardaginn 11. september
og hefst hann kl. 22. Lýkur kl. 1.
Félagsstarf
Aflagrandi 40 | Bingó kl. 14, allir velkomn-
ir, hár- og fótsnyrtistofur opnar frá kl. 9.
Félag eldri borgara | Hafnarfirði. Brids kl.
13, pútt á Hrafnistuvelli kl. 14–16.
Félag eldri borgara | Reykjavík Opið hús
verður laugardaginn 11. sept. í Ásgarði kl.
14 þar sem félagsstarfið verður kynnt. Fjöl-
breytt skemmtiatriði úr félagsstarfinu.
Leikið á harmoniku. Kaffiveitingar. Allir vel-
komnir.
Félagsstarf aldraðra, Garðabæ | Slök-
unarjóga og teygjur kl. 10.30. Opið í Garða-
bergi kl. 13–17. Síðasti skráningardagur í
Þórsmerkurferðina.
Furugerði 1 | Kl. 9 aðstoð við böðun, kl. 14
verður Aðalheiður Þorsteinsdóttir við pí-
anóið fram að kaffi.
Hvassaleiti 56–58, | Kaffiveitingar og
kynning á vetrarstarfinu frá kl. 14.30. Kos-
ið í notendaráð. Ingibjörg Aldís Ólafsdóttir
syngur við undirleik. Allir velkomnir. – Hár-
greiðslu- og fótaaðgerðastofur opnar.
Hæðargarður 31 | Opin vinnustofa, mynd-
list kl. 9, hárgreiðslustofan opin, gönuhlaup
kl. 9.30, brids kl. 13.30. Hugmynda- og
kynningarfundur verður laugard. 11. sept.
kl. 14. Lagðar fram hugmyndir að dagskrá,
starfsemin kynnt. Söngur og gítarleikur.
Veitingar í boði.
Norðurbrún 1 | Kl. 9–12 myndlist, kl. 10–11
boccia, kl. 14 leikfimi. Fótaaðgerðastofa er
opin mánudaga og miðvikudaga frá kl. 9–
16. Hárgreiðslustofan opin þriðjudaga og
föstudaga frá kl. 9.
Vesturgata 7 | Hárgreiðsla, fótaaðgerðir
hannyrðir, sungið við flygilinn við undirleik
Sigurgeirs, dansað í kaffitímanum við laga-
val Halldóru. Gott með kaffinu. Haustferð
14. september, Eyrarbakki/Stokkseyri, Sel-
foss, Seljalandsfoss, Hvolsvöllur, Skóg-
arfoss. Sólheimajökull, kirkjan í Vík skoðuð,
heimsókn í Kötlusafnið Dyrhólaey. Borðað
á hótel Lundi. Leiðsögumaður Helga Jörg-
ensen. Skráning í síma 535 2740.
Vitatorg | Smiðja kl. 8.45–11.45, leirmótun
kl. 9–13, morgunstund, leikfimi kl. 10–11,
bingó kl.13,30. Skráning stendur yfir í nám-
skeiðin.
Kirkjustarf
Breiðholtskirkja | Foreldramorgunn í Safn-
aðarheimili Breiðholtskirkju alla föstudaga
kl. 10–12.
Glerárkirkja | Kyrrðarstundir í kapellu
þriðjudaga kl. 18.10. Hádegissamvera mið-
vikudaga kl. 12. Mömmumorgnar fimmtu-
daga kl. 10–12. Barnastarf sunnudaga kl. 11.
Kirkjuskóli laugardaga fyrir 1.–4. bekk kl. 11–
12. TTT starf kl. 13–14.
Selfosskirkja | Hjónanámskeið verður
haldið miðvikudaginn 20. okt. kl. 19.30 og
stendur í 3 klukkustundir, meðtalið kaffihlé.
Leiðbeinandi verður sr. Þórhallur Heim-
isson. Innritun á námskeiðið annast kirkju-
vörður í síma 482 2175 og sóknarprestur í
síma 899 1908.
Myndlist
Listasafn Sigurjóns Ólafssonar | Sýningin
Mánasigð, með verkum grænlensku lista-
konunnar Isle Hessner, opnuð í dag kl. 17.
Útivist
Kayakklúbburinn | Á laugardagsmorg-
uninn kl. 10–13 verður Kayakklúbburinn
með opið hús á eiðinu út í Geldinganes, þar
sem klúbburinn er með aðstöðu og kynnir
þar kayakróður.
90 ÁRA afmæli.15. september
nk. verður níræð Mál-
fríður (Fríða) Þor-
valdsdóttir, Akra-
nesi. Fríða býður til
afmælisfagnaðar í sal
Grundaskóla á Akra-
nesi sunnudaginn 12.
sept. kl. 15 og vonast til að sjá sem
flesta en afþakkar vinsamlegast allar
gjafir.
80 ÁRA afmæli. Ídag, 10. sept-
ember, verður áttræð
Arndís Sigurð-
ardóttir, Brunnum
11, Patreksfirði. Hún
er að heiman í dag.
50 ÁRA afmæli.10. ágúst sl.
varð fimmtugur Sæv-
ar Pálsson. Af því til-
efni býður hann vinum
og vandamönnum að
samgleðjast sér í dag,
10. september, kl.
18.30 í salnum í Skip-
holti 70, 2. hæð.
Vöggusæn
gur
vöggusett
PÓSTSENDUM
Skólavörðustíg 21 sími 551 4050 Reykjavík
1. d4 d6 2. e4 Rf6 3. Rc3 g6 4. f4 Bg7 5.
Rf3 0–0 6. Bd3 Ra6 7. 0–0 c5 8. d5 Bg4
9. De2 Rc7 10. a4 e6 11. h3 Bxf3 12.
Dxf3 exd5 13. exd5 Rd7 14. Rd1 He8
15. Bd2 De7 16. c3 Rf6 17. f5 Rd7 18.
Bf4 Re5 19. Bxe5 Bxe5 20. Rf2 Dh4 21.
Rg4 g5 22. Hfe1 f6
Staðan kom upp á franska meist-
aramótinu sem lauk fyrir skömmu í Val
d’sere. Anatoly Vaisser (2.580) hafði
hvítt gegn Jean-Marc Degraeve
(2.530). 23. Hxe5! fxe5 24. g3 Dxh3
svarta drottningin lendir nú í miklum
ógöngum sem leiðir til þess að skjól
svarta kóngsins verður lítið. 25. f6! Kf7
ekki gat drottningin farið í vörnina
með 25. … Dh5 vegna 26. f7+! Dxf7 27.
Rh6+ og drottningin fellur. 26. Kf2! e4
27. Bxe4 h5 28. Df5! Kf8 29. Dh7 Hxe4
30. Dh8+ og svartur gafst upp enda
mát eftir 30. … Kf7 31. Rh6+ Kg6 32.
Dg7#.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | dagbok@mbl.is
Hvítur á leik.
DANSÍÞRÓTTAFÉLAG Hafnar-
fjarðar hefur í nógu að snúast und-
anfarið, en innritun nemenda lýkur
í dag. Þá verður opið hús í dag milli
fimm og sjö. Þar gefst fólki kostur
á að koma og spjalla við danskenn-
arana, sjá danssýningar, fá sér
snúning og kaffi og vöfflu.
Félagið mun í vetur einbeita sér
að uppbyggingu barna- og ung-
lingahópa. Í skólanum eru börnum
frá þriggja ára aldri kenndir ýmsir
hefðbundnir dansar auk þess sem
þar má læra Freestyle, Break og
línudans.
Í ár verður í fyrsta skipti haldin
samhliða Lottó-keppninni Lottó
Open, en þar gefst erlendum
keppnispörum tækifæri á að koma
til Íslands og keppa á móti íslensk-
um danspörum.
Allar nánari upplýsingar er að
finna á www.dih.is.
Opið hús hjá DÍH