Morgunblaðið - 10.09.2004, Síða 42
SÝNISHORN af breskri samtíma-
listasenu gefur að líta þessa dagana í
græna sal Klink og Bank. Lista-
mennirnir eiga það sameiginlegt að
búa og starfa í London, en eru af
ýmsum þjóðernum, frá Japan, Jam-
aíka, Hollandi og Íslandi meðal ann-
ars. Verkin voru flest unnin hér á Ís-
landi og bera þess merki. Eitt er t.d.
eldflaug unnin í umbúðir utan af
1944 skyndiréttum, annað er högg-
mynd af Halldóri Laxness, enn ann-
að eru blýants-, vatnslita og penna
skissur af íslenskri náttúru. Af öðr-
um verkum sem má segja að séu
undir áhrifum af íslenskri náttúru
(maður gefur sér það að listamenn-
irnir hafi einmitt sóst eftir að verða
fyrir áhrifum af landi og þjóð) er
heillandi verk eftir Vinita Hassard.
Hún hefur skorið fjölda gegnsærra,
bláleitra plastsflaskna í sundur og
raðað síðan saman eftir endilöngum
veggnum og á gólfið. Verkið heitir
Hydrotherapy, eða vatnsmeðferð.
Hydrotheraphy þýðir lækn-
ingaaðferð þar sem vatn er notað til
heilsubótar, eins og til dæmis þegar
farið er í heit böð. Stemningin sem
listamaðurinn nær að laða fram í
verkinu er mjög svalandi og hress-
andi, eins og ferskvatnsalda hafi lent
á veggnum.
Ólöf Björnsdóttir, íslenskur Lund-
únabúi, sýnir verkið Andalas. Þetta
er verk sem kemur á óvart miðað við
fyrri verk listakonunnar, en hún hef-
ur hingað til einkum verið þekkt fyr-
ir vinnu sína við „alter ego“ sitt
Lopameyjuna. Andalas er lítið mál-
verk af litlum samnefndum nashyrn-
ingi, málað einföldum dráttum. Við
hliðina eru svo heyrnartól og þar er
saga Andalas rakin af þul. Andalas
er Súmötru nashyrningur, ákaflega
sérstakur og í útrýmingarhættu.
Andalas varð fyrsti nashyrningurinn
í 112 ár af þessari tegund til að fæð-
ast í dýragarði, og þótti fæðing hans
miklum tíðindum sæta. Þetta er
hjartnæm saga um sérkennilega
dýrategund og á að því er verkið seg-
ir manni að vera okkur Íslendingum
áminning um að fórna ekki nátt-
úruverðmætum.
Verkið er unnið af næmni og lista-
maðurinn nær tengslum við áhorf-
endur. „Verkið á að vera trekkur inn
í íslenskt samfélag,“ segir þulurinn.
Sú fullyrðing gefur verkinu dálítið
húmorískan undirtón, svo lágstemmt
er það.
Fleiri góð verk eru á sýningunni.
Myndband Saki Satom er til dæmis
fallegt, dálítið kitlandi eins og saka-
málasaga, en gott. Hún sýnir gamla
japanska heimakvikmynd af fólki að
ganga úti í náttúrunni, líklega á
sunnudegi, eftir einhverjum hrygg,
líklega nálægt á. Nokkrir aðilar
segja síðan frá sama atvikinu hver á
eftir öðrum, atviki sem hefur greini-
lega gerst þegar þeir voru litlir, og
allir saman að ganga eftir árbakka.
Barnavagn rúllar niður með barni í,
vagninn fer út í á, en barnið dettur úr
vagninum og lendir á árbakkanum.
Þau segja ekki foreldrunum frá
þessu, þau hlæja að þessu eftir á, en
prísa sig sæla fyrir að ekki fór verr.
Þetta er sett upp eins og minning úr
æsku, eins og einhver yfirsjón sem
líður seint ef nokkurn tíma úr minni.
Við inngang sýningarinnar er
fyrsta verkið sem mætir manni tvö
vídeó Jeroen Offerman, hvort á móti
öðru. Það er eins og myndavélin snú-
ist í endalausa hringi og tónlist
hljómar yfir. Botn fæst ekki í verkið
fyrr en maður kemur í hinn enda sal-
arins. Þar snýst plata í hringi og ljós-
myndirnar sem maður greindi í
vídeóverkinu eru þar fyrir ofan.
Greinileg að vídeóið hefur einmitt
verið tekið þarna ofan í. Tónlistin er
söngur, sunginn aftur á bak og spil-
aður aftur á bak, þannig að hann
kemur rétt út. Minnir mann á frægar
sögur af því þegar djöfullegar yf-
irlýsingar áttu að heyrast ef rokk-
plötur sýrutímans væru leiknar aftur
á bak. Enn eru ónefnd verk með
húmorískum undirtóni eins og verk
Neil Zakiewicz , Foam Man &
Sponge Man, og Cat Trap. Þá kemur
verkið House in in the ceiling á óvart,
en því hefur verið komið fyrir uppi í
loftinu. Lítil hús, stigar og aðrar
byggingar, eftir Tonico Lemos Auad.
Eins og þorp fyrir lítið fólk.
Önnur verk sýningarinnar, mál-
verk, skúlptúrar eru af sama gæða-
flokki og þau sem hér hafa verið
nefnd. Þetta er góð sýning, dálítið
skrýtin vegna hinnar lundúnísk/
íslensku blöndu, en gæðin ótvíræð.
Morgunblaðið/Jim Smart
MYNDLIST
Klink og Bank
ÝMSIR LISTAMENN, ÝMSIR MIÐLAR
Opið frá kl. 14–18 fimmtudaga – sunnu-
dags. Til 12. september.
Þóroddur Bjarnason
MENNING
42 FÖSTUDAGUR 10. SEPTEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
VEGLEGUR og glæsilegur dag-
skrárbæklingur Sinfóníuhljóm-
sveitar Íslands fyrir veturinn er
kominn út og er óhætt að fullyrða að
aldrei hafi jafn mikið verið í hann
lagt, enda fullar 207 blaðsíður með
ítarupplýsingum um hverja tón-
leika.
Það verður ánægjulegt að sjá
Osmo Vänskä
aftur á stjórn-
andapallinum,
sem og þá Gerrit
Schüil og Guð-
mund Óla Gunnarsson sem báðir
mættu að ósekju fá fleiri tækifæri
með hljómsveitinni. Íslenskir ein-
söngvarar verða talsvert í sviðsljós-
inu og nokkrir úrvals einleikarar,
þar á meðal fiðluleikararnir Maxim
Vengerov og Leila Josefowicz.
Eitt mest spennandi viðfangsefni
hljómsveitarinnar er áframhald á
flutningi allra sinfónía Sjostakovitsj,
sem aðalstjórnandinn, Rumon
Gamba hóf í fyrravetur. Í vetur
verða þær 5. 6. og 7. leiknar, en
furðu vekur hvers vegna þær eru
ekki allar í sömu litaröð til hagræðis
fyrir Sjostakovitsj-aðdáendur. Tón-
leikum, þar sem úrvalseinleikar-
arnir Einar Jóhannesson og Dimitri
Ashkenazy leika á tvær klarinettur
með hljómsveitinni má tæpast missa
af og 8. sinfóníu Bruckners undir
stjórn Petris Sakaris verður líka
beðið með eftirvæntingu.
Það er hins vegar ótrúlegt sem við
blasir, að Sinfóníuhljómsveit Íslands
skuli ekki ætla af eigin hvötum að
frumflytja eitt einasta íslenskt tón-
verk í vetur ef frá eru taldar þjóð-
lagaútsetningar Jóns Þórarinssonar
sem Maríus Sverrisson söng með
hljómsveitinni í vikunni. Hverju sæt-
ir það? Að vísu verða tvö til þrjú ís-
lensk verk frumflutt á tónleikum á
Myrkum músíkdögum, en þess ber
að geta að þótt hljómsveitin standi
að tónleikunum í samvinnu við Tón-
skáldafélag Íslands er frumkvæðið
að verkefnavali þeirra tónleika ekki
í höndum hljómsveitarinnar.
Það myndi sjálfsagt hvína í bóka-
ormum hér á landi ef útgáfu ís-
lenskra skáldverka yrði hætt og ein-
ungis erlend verk gefin út í staðinn.
Er þetta sambærilegt? Já, og rúm-
lega það, því meðan bókaútgefendur
bera engar lagalegar skyldur gagn-
vart lesendum sínum gerir Sinfón-
íuhljómsveit Íslands það svo sann-
arlega gagnvart hlustendum sínum.
Henni ber samkvæmt landslögum að
leggja áherslu á flutning íslenskrar
tónlistar og auðga tónmenningu
þjóðarinnar. Varla er hægt að segja
að hljómsveitin standi undir þeirri
skyldu í vetur; jafnvel þótt eldri ís-
lensk verk hljómi á sjö tónleikum, og
hljómsveitin leiki undir með Nýrri
danskri á einum tónleikum, þegar
tónleikar verða alls um þrjátíu.
Íslensk tónskáld hljóta að hafa
meir en lítið langlundargeð, því
hvaða hljómsveit önnur ætti að spila
verk þeirra?
Sinfó á síðasta söludegi
’Það er ótrúlegt að Sin-fóníuhljómsveit Íslands
skuli ekki ætla að frum-
flytja eitt einasta ís-
lenskt tónverk í vetur. ‘
AF LISTUM
Bergþóra Jónsdóttir
begga@mbl.is
Áskriftarkort á 6 sýnigar
Aðeins kr. 10.700
Stóra svið Nýja svið og Litla svið
MANWOMAN e. Ólöfu Ingólfsdóttur & Ismo-Pekka Heikenheimo
Í kvöld kl 20, Lau 11/9 kl 20
NÚTÍMADANSHÁTÍÐ 3/9 - 11/9
Opnunartími miðasölu: Mánudaga og þriðjudaga: 10:00-18:00
Mið-, fim- og föstudaga: 10:00-20:00
Laugar- og sunnudaga: 12:00-20:00
Miðasölusími 568 8000 - miðasala á netinu: www.borgarleikhus.is
GEITIN - EÐA HVER ER SYLVÍA? e. E. Albee
Frumsýning su 26/9 kl 20 - UPPSELT
Fi 30/9 kl 20
Fö 1/10 kl 20
PARIS AT NIGHT e. Jacques Prévert
í samstarfi við Á SENUNNI
Í kvöld kl. 20,
Lau 11/9 kl 20,
fi 16/9 kl 20,
fö 17/9 kl 20
Takmarkaður sýningafjöldi
LÍNA LANGSOKKUR e. Astrid Lindgren
Su 12/9 kl 14, Su 19/9 kl 14, Su 26/9 kl 14
CHICAGO e. Kender, Ebb og Fosse
Grímuverðlaunin:
Vinsælasta sýning ársins!
Lau 18/9 kl 20, Lau 25/9 kl 20,
Lau 2/10 kl 20, Lau 9/10 kl 20
Aðeins örfáar sýningar í haust
KVÆÐAMANNAFÉLAGIÐ IÐUNN
SIGURRÓS ofl. Afmælis- og útgáfuhátíð
Mi 15/9 kl 20 - Aðeins einir tónleikar
Frumsýning fös. 8. okt. kl. 20
Sun. 10. okt. kl. 20 • fös. 15. okt. kl. 20 • sun. 17. okt. kl. 20
ATH. Allar sýningar hefjast kl. 20
Miðasala á Netinu: www.opera.is
Símasala kl. 10-18 virka daga: 511 4200
Rakarinn morðóði
Óperutryllir eftir Stephen Sondheim
Miðasölusími: 511 1200 Netfang: midasala@leikhusid.is Veffang: www.leikhusid.is
Opið kl. 13:00-18:00 mán.-þri. Aðra daga kl. 13:00-20:00. Símapantanir frá kl. 10:00 virka daga.
• Litla sviðið kl. 20:00
EDITH PIAF - Sigurður Pálsson
DÝRIN Í HÁLSASKÓGI - Thorbjörn Egner
Sun. 12/9 kl. 14:00 örfá sæti laus,
sun 19/9 kl. 14:00 nokkur sæti laus, sun 26/9 kl. 14:00
ÞETTA ER ALLT AÐ KOMA - Hallgrímur Helgason Leikgerð Baltasar kormákur
Aukasýning lau. 11/9 kl. 16:00, sun. 12/9 örfá sæti laus,
mið. 15/9 nokkur sæti laus. Örfáar sýningar eftir!
GRÆNA LANDIÐ - Ólafur Haukur Símonarson
ÁSKRIFTARKORT - ÞITT SÆTI!
Norður, Öxin og jörðin, Mýrarljós, Dínamít og Jesús Kristur ofurstjarna. Verð: 9.900
OPIÐ KORT - ÞITT VAL!
5 sýningar að eigin vali hvenær sem er leikársins! Verð: 9.900
GRÆNA LANDIÐ
Aukasýning laugardag kl. 16:00
Í kvöld fös. 10/9 örfá sæti laus, lau 11/9 örfá sæti laus, lau 18/9 nokkur
sæti laus, fim 23/9 örfá sæti laus, fös 24/9 örfá sæti laus, fös. 1/10 nokkur
sæti laus, lau 2/10 nokkur sæti laus
• Stóra sviðið kl. 20:00
Fös. 17/9 nokkur sæti laus, lau. 25/9, fim 30/9.
ÓSÓTTAR PANTANIR SELDAR DAGLEGA
Lau . 11 .09 20 .00 ÖRFÁ SÆTI
Sun . 12 .09 20 .00 NOKKUR SÆTI
F im. 16 .09 20 .00 NOKKUR SÆTI
Lau . 18 .09 20 .00 NOKKUR SÆTI
Fös . 24 .09 20 .00 AKUREYRI
„Fu l lkomin kvö ldskemmtun .
Ó lýsan leg s temning f rá upphaf i t i l enda .
Hár ið er mál ið ! “
- G ís l i Mar te inn Ba ldursson s jónvarpsmaður -
4 600 200
leikfelag.is
Miðasölusími
BRIM - e. Jón Atla Jónasson gestasýning
Lau 11/9 kl. 18 NOKKUR SÆTI LAUS
Lau 11/9 kl. 21 ÖRFÁ SÆTI LAUS
Sun 12/9 kl. 20 NOKKUR SÆTI
SVIK e. Harold Pinter
frumsýn. fös. 1/10 kl. 20 UPPSELT
2. sýn. sun. 3/10 kl. 20 ÖRFÁ SÆTI
3. sýn. fim. 7/10 kl. 20 ÖRFÁ SÆTI
4. sýn. fös. 8/10 kl. 20 ÖRFÁ SÆTI
HÁRIÐ - sýnt í Íþróttahöllinni
fös 24/9 kl. 20 - sala í fullum gangi
HÁRIÐ
„tryggðu þér miða“
MIÐASALAN er opin á fame.is,
á þjónustuborði Smáralindar
og í síma 528 8008
JÓNSI
SVEPPI
Fös. 10. sept. kl. 19:30
Sun. 12. sept. kl. 19:30
SÍÐUSTU SÝNINGAR:
ATH. 2 AUKASÝN. Vegna
gríðarlegrar eftirspurnar
Fös. 17. sept. kl. 19.30
Sun. 19. sept. kl. 19.30
Vegna mikils álags á símkerfinu viljum við benda á
að hægt er panta miða með tölvupósti í
miðasala@smaralind.is eða inn á www.fame.is.
Hljómar
í kvöld
Leikhúsgestir munið spennandi matseðil S: 568 0878
Moggabúðin
Geisladiskahulstur, aðeins 700 kr.