Morgunblaðið - 10.09.2004, Side 43

Morgunblaðið - 10.09.2004, Side 43
MENNING MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. SEPTEMBER 2004 43 Classic Rock Ármúla 5 sími: 568-3590 spilar föstudagskvöldið 10/9 og laugardagskvöldið 11/9 Svo náttúrlega boltinn í beinni á risaskjám. h l j ó m s v e i t i n D ú r - X Grímsbæ & Ármúla 15 Haustvörurnar komnar Stærðir 36 - 50 Glæsilegur fatnaður fyrir allar konur Þú færð skóna hjá okkur PARÍS mun hýsa marga af fremstu listamönnum íslensku þjóðarinnar í tvær vikur í kringum næstu mán- aðamót. Fyrir dyrum stendur viða- mikil íslensk menningarkynning, sem fara mun fram í nokkrum af virtustu listamiðstöðvum borgarinnar og víð- ar um Frakkland. Kynningin ber yfirskriftina Isl- ande, de glace et de feu, sem útleggst á íslensku sem Ísland, íss og elds, og hefur undirbúningur fyrir hana staðið yfir í nokkur ár. Íslenska menntamálaráðu- neytið er forsvarsaðili verk- efnisins og voru tveir verk- efnisstjórar útnefndir af hálfu beggja landa, Sveinn Einarsson úr mennta- málaráðuneytinu fyrir Ís- lands hönd og Chérif Khaznadar, forstjóri heims- menningarhússins í París, fyrir hönd Frakklands. Þeir hafa borið hitann og þung- ann af undirbúningnum með dyggum stuðningi Sigríðar Snævarr, sendiherra Ís- lands í Frakklandi, síðan hún tók við embætti í apríl 1999. Margir hafa komið að fjármögnun og undirbúningi verkefn- isins, þar á meðal menntamálaráðu- neyti og utanríkisráðuneyti beggja landa, auk forsætis- og samgöngu- ráðuneytis hérlendis og íslenska sendiráðsins í Frakklandi. Fjölda- mörg íslensk einkafyrirtæki hafa ennfremur styrkt verkefnið og vonast aðstandendur menningarkynning- arinnar til að það leiði til þess að þau verði meira áberandi á franskri grundu. Byggist á gagnkvæmum menningarsamningi Eitt af helstu markmiðum íslensku utanríkisþjónustunnar er að efla við- skipta- og menningarsamskipti milli Íslands og annarra þjóða, að sögn Sigríðar Snævarr sendiherra. Um þessar mundir eru liðin tuttugu ár frá því að Frakkar og Íslendingar und- irrituðu gagnkvæman menningar- samning og byggist menningarkynn- ingin, sem nú fer í hönd, að nokkru leyti á þeim samningi. „En endanleg ákvörðun má segja að hafi verið tekin á fundi Davíðs Oddssonar forsætis- ráðherra og Jacques Chirac, forseta Frakklands í apríl 2001. Samning- urinn vísar til möguleika um að gera sérstakt samkomulag um gagn- kvæma menningar- og vísindakynn- ingu. Það felur í sér að Ísland kynnir sjálft sig, sína menningu og sín vísindi í Frakklandi, á þeim forsendum að Frakkar aðstoði það í einu og öllu og velji atburðina. Síðar borgum við í sömu mynt – þegar Frökkum hentar gefum við Íslendingar þeim aðgang að íslenskum menningarstofnunum,“ segir Sigríður. Hún leggur á það áherslu að það hafi verið forstöðumenn þeirra stofn- ana sem fengust til að taka þátt í íslensku menning- arkynningunni í París sem völdu þau íslensku viðfangs- efni og listamenn sem þeim leist vel á, úr þeim sem verk- efnisstjórar kynningarinnar stungu upp á. „Það fer að sjálfsögðu eftir því hvað við- komandi stofnun fæst við, hvað valið er inn. Þannig þýðir til dæmis lítið að hyggj- ast koma með myndlist- arsýningu inn í vísindasafn, eða nútímalist inn í Louvre. Og ekki nóg með það, heldur þarf viðkomandi stofnun líka að hafa laust pláss á þeim tíma sem kynningin fer fram á.“ Í ljósi þessa fyrirkomulags vekur það athygli hve mikill fjöldi þeirra stofnana sem taka þátt í kynn- ingunni eru hátt skrifaðar í frönsku menningarlífi. Íslenskir fræði- og listamenn koma fram í Pompidou- listamiðstöðinni, Chatelet-tónleika- höllinni og Lúxemborgarhöll svo dæmi séu tekin. Aðalsýning hátíð- arinnar fer síðan fram í vísindasafn- inu Palais de la Découverte, undir heitinu Islande, terre vivante eða Ís- land, lifandi jörð. Sýningunni er ætlað að varpa ljósi á grunnatriði í íslenskri menningu, og því er náttúran í fyr- irrúmi á sýningunni; við innganginn í safninu verður ísjaka af Jökulsárlóni komið fyrir, teppi sem virðist úr mosa verður sett á gólfið innandyra og þar er jafnframt að finna goshveri og hraun, svo dæmi séu tekin. „Þessi leið er mjög í anda Frakka,“ segir Sigríð- ur. „Þeir hafa ætíð slíka heildstæða nálgun á viðfangsefnin. Grunnsýn- ingin í Palais de la Découverte mun standa til 4. janúar og halda þannig áfram lifandi þessari viðamiklu kynn- ingu á Íslandi í París, eftir að viðburð- irnir sem fara fram í kringum mán- aðamótin eru yfirstaðnir.“ Úr öllum menningargeirum Íslenskur verkefnisstjóri menning- arkynningarinnar, Sveinn Einarsson, segir hugmyndina að henni fyrst hafa komið upp í hópi íslenskra listamanna í París. „Síðan er til þessi gagnkvæmi menningarsamningur milli Íslands og Frakklands og hann hefur gengið að mörgu leyti vel, en á síðasta fundi lét- um við í ljósi ánægju okkar með sam- starfið sem þegar er til staðar á vís- indasviðinu og sömuleiðis í kennslumálum, en einnig að við hefð- um meiri metnað fyrir hönd listanna heldur en tekist hefur að efna til þessa. Þá var þessari hugmynd varp- að fram,“ segir Sveinn. Hann segist telja að menning- arkynningin í París sé sú umfangs- mesta sem ráðist hefur verið í af Ís- lands hálfu. „Það sem er fyrst og fremst athyglisvert er hvernig er staðið að vinnuferlinu, þar sem stofn- anirnar velja sjálfar inn listamenn,“ segir Sveinn. „Hingað til hefur sú leið oftast verið farin, að við höfum valið hluti hérna heima og leigt okkur inn á staði erlendis, eins og gengur. Þetta er mikil breyting frá því fyr- irkomulagi.“ Hann bætir við að þetta hafi haft það í för með sér að íslensk list hafi fengið inni á eftirsóknarverðustu stöðunum í París. „Því fylgir líka að þeir bera ábyrgð á því að kynna við- burðina fyrir gestum sínum, sem gæti orðið til þess að þeir vektu mikla athygli.“ Að sögn Sveins taka íslenskir lista- menn úr öllum geirum þátt í hátíðinni með fjölbreytilegum hætti. Sem dæmi má nefna íslenska kvik- myndahátíð, útgáfu bókar sem inni- heldur sýnishorn af íslenskum nú- tímabókmenntum, fyrirlestraröð um fornbókmenntir, myndlistarsýningu í bænum Sérignan sem er vaxandi suðupottur myndlistar í Frakklandi, þrjár ljósmyndasýningar, ógrynni tónleika, meðal annars með Kamm- ersveit Reykjavíkur og Schola Cant- orum, auk einleikara, einsöngvara og margra popphljómsveita, svo dæmi séu nefnd. „Auk þess mun ein þekkt- asta hljómsveit Evrópu, Ensemble Intercontemporain, flytja dagskrá með verkum íslenskra tónskálda. Síð- an erum við auðvitað með Hrafna- galdurinn, sem er gríðarmikið fyr- irtæki. Þannig að þarna er stór akur,“ segir Sveinn. Hann segir marga Frakka þekkja lítið til íslenskrar menningar, utan víkinga og Bjarkar. „En við erum ekkert að kynna sérstaklega það sem þeir þekkja þegar – við viljum þvert á móti benda á að hér sé af mörgu að taka.“ Sveinn segist ekki vera stoltur af einum viðburði umfram annan, enda geri maður ekki upp á milli barnanna sinna eins og hann segir sjálfur. „Ég er stoltastur af því hvað þetta er fjöl- breytilegt og þarna verður áreið- anlega brugðið upp myndarlegri mynd af okkar menningarlífi. En það er líka gott til þess að vita að við erum ekkert að tæma okkar sjóði – við eig- um hér heima mikið af jafngóðum listamönnum sem ekki taka þátt í þetta sinn, sem gætu tekið þátt næst ef af slíku verður,“ segir Sveinn Ein- arsson að lokum. Viðamikil kynning á íslenskri menningu í París dagana 27. september–10. október Frá Pompidou til Chatelet Ragnar Axelsson tekur þátt í ljósmynda- og myndbandasýningu í Maison Européenne de la Photographie. Morgunblaðið/Jim Smart Kristinn Sigmundsson og Jónas Ingimundarson koma fram í Chatelet- tónlistarhöllinni í París hinn 28. september næstkomandi. www.islande-glacefeu.com Sveinn Einarsson Sigríður Snævarr Morgunblaðið/Ragnar Axelsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.