Morgunblaðið - 10.09.2004, Page 44
Svona lítur dagskráin út:
12 Tónar, föstudagur, 10. sept-
ember, kl. 17.00. Ásamt Þóri.
KlinK & BanK, föstudagur, 10.
september, kl. 21.00. Ásamt Ki-
mono og I Adapt. Aðgangseyrir er
800 krónur (Ekkert aldurs-
takmark).
Stúdentakjallarinn, laugardagur,
11. september, kl. 21.00. Ásamt
Jan Mayen, Retron og Skátum.
Aðgangseyrir er 800 krónur (20
ára aldurstakmark).
Paddy’s (Keflavík), mánudagur, 13.
september, kl. 21.00. Ásamt Ælu
og Skátum.
NÝBYLGJUÞYRSTIR Íslendingar
geta nuddað eyrun um helgina við
tóna bresku rokksveitarinnar I’m
Being Good, sem kemur frá strand-
bænum sólarsæla Brighton. Sveitin
mun halda hér ferna tónleika ásamt
ýmsum innlendum listamönnum.
I’m Being Good hefur verið starf-
andi í ýmsum útgáfum í um ellefu
ár. Breiðskífurnar eru nú orðnar
þrjár, allar gefnar út af þeirra eigin fyrirtæki, Infinite Chug. Í dag er
sveitin skipuð þeim Andrew Clare
(gítar og rödd), Tom Barnes (gítar),
Dave Evan Campell (trommur) og
Stuart O’ Hare (bassi). I’m Being
Good hefur vakið athygli und-
anfarið í Bretlandi en meðal aðdá-
enda er útvarpsmaðurinn virti John
Peel, sem hefur boðið sveitinni oft-
ar en einu sinni að hljóðrita lög fyr-
ir útvarpsþáttinn sinn (hinar frægu
Peel Sessions). Fagurfræði I’m
Being Good er að mörgu leyti kom-
in frá bandarísku jaðarrokki og
hafa meðlimir starfað með risum
þaðan á borð við Thurston Moore
og Jad Fair.
Tónleikar | Bresk nýbylgjusveit á Íslandi
Andrew úr I’m Being Good er góð-
ur strákur eins og sjá má.
I’m Being Good
44 FÖSTUDAGUR 10. SEPTEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Allsherjarpassinn gildir áfram á allar aukasýningar.
FRAMLENGING!
KEN PARK SLÆR Í GEGN!
3000 manns hafa séð Ken Park á einni viku
og fimm sinnum hefur verið uppselt.
ccc „Sterk og óvægin.“ - Ó.Ö.H., DV.
ccc
„Grípandi!“
– H.L., Mbl.
Vegna gríðarlegrar aðsóknar og fjölda áskorana sýnum
við vinsælustu myndirnar áfram í nokkra daga.
COFFEE & CIGARETTES
„Nálgast það besta sem komið hefur frá þessum mergjaða
furðufugli, sem jafnan fer ótroðnar slóðir og kollegar hans
reyna að feta út um allar jarðir.”
– Sæbjörn Valdimarsson, MBL.
cccc
– Mbl.
cccc
– Mbl.
Capturing
the Friedmans
cccc
– Mbl. Super Size Me
Aðsóknarhæsta myndin!
„Kostuleg bleksvört gamanmynd... frábærlega vel
gerð í alla staði...“ – Sæbjörn Valdimarsson, MBL.
Allra síðastu sýningar á sunnudaginn!
„Vægast sagt einstök heimildarmynd og því
glæpur að láta hana framhjá sér fara.”
– Einar Árnason, Fréttablaðið
ÓRITSKOÐUÐ - STRANGLEGA BÖNNUÐ BÖRNUM
Hamraborg 7, Hamrabrekkumegin • Sími 544 8030 • makeupforever.is
Digranesvegur
Hamraborg
Hamrabrekka
Nýbýlavegur
Hafnarfjarðarvegur
SPENNANDI
LJÓSMYNDA-
HEFST 13.SEPTEMBER.
OG TÍSKUFÖRÐUN
KOMIÐ OG SKOÐIÐ SKÓLANN.
OPIÐ HÚS ALLA DAGA.
SKRÁNING Á STAÐNUM OG
Í SÍMA 544 8030 OG 551 1080.
GÓÐ GREIÐSLUKJÖR.
13 VIKNA NÁM Í
SÖNGKONAN Beyoncé Knowles
hefur tilkynnt að hún ætli að stofna
eigin tískulínu í samvinnu við Tinu,
móður sína. Á hún að heita The House
of Dereon eftir ömmu Beyoncé,
Agnes Dereon, sem var fær sauma-
kona og hefur veitt bæði Beyoncé og
mömmu hennar innblástur. „Mér
finnst þetta góð leið til að fara í tísku-
heiminn. Innblásturinn kemur frá
ömmu, ég vinn með mömmu minni í
því að láta drauma okkar allra rætast,
að stofna mikilvægt tískufyrirtæki,“
sagði Beyoncé í yfirlýsingu.
Slagorð tískuhússins verður „Cout-
ure. Kick. Soul.“ Tískulínan verður
framleidd af fyrirtæki Beyoncé,
Beyond Productions, og er búist við
því að hún komi á markað haustið
2005.
Beyoncé mætti ásamt stöllum sín-
um í Destiny’s Child á Fashion Rocks
í New York á miðvikudagskvöld en
þetta er árlegur viðburður sem fagnar
þeirri tengingu sem er á milli tísku og
tónlistar. Beyoncé var ennfremur á
meðal þeirra sem tróðu upp á uppá-
komunni, sem fram fór í Radio City
Music Hall.
Tíska | Tónlist og tíska rokka saman
Beyoncé
stofnar eig-
in tískulínu
Það er ekki oft sem stelpurnar í
Destiny’s Child eru myndaðar sam-
an en Kelly Rowland, Michelle Will-
iams og Beyoncé Knowles mættu
allar á Fashion Rocks.