Morgunblaðið - 10.09.2004, Page 45

Morgunblaðið - 10.09.2004, Page 45
ERLENDAR UMSAGNIR: BBC  Empire  Guardian  metacritic.com 41/100 The New York Times: 30/ 100 Roger Ebert ½ Rolling Stone Variety 60/100 (skv. metacritic) GAMANMYNDIN Nágrannastelpan er gerð af sama náunga, Luke Green- field, og gerði myndina The Animal með Rob Schneider. Aðalleikarinn Emile Hirsch, sem leikur Matthew í myndinni, þykir með efnilegri leikurum Hollywood í dag. Hann er 19 ára gamall og hlaut mikið lof fyrir frammistöðu sína í Danger Lives of Altar Boys. El- isha Cuthbert, sem leikur ná- grannastelpuna Danielle, er 22 ára og muna margir eflast eftir henni sem amerísku gyðunni í Love Actually og í Old School. Í læri hjá „leikkonu“ Prúður og samviskusamur menntaskólastrákur fellur fyrir nágrannastelpu sinni sem hann síðan kemst að sér til mikillar skelfingar að er fyrrver- andi leikkona í djörfum myndum. Frumsýning | Nágrannastelpan (Girl Next Door) Stúlka með fortíð. MENNING MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. SEPTEMBER 2004 45 SKÓLADAGAR Sjáðu betur í vetur Gleraugnasalan Laugavegi 65 s. 551 8780 www.gleraugnasalan.com FRÍHÖFNIN (The Terminal) er gerð eftir sögu Andrew Niccol hins sama og átti hina frá- bæru sögu sem varð að myndinni The Truman Show. Valinn maður er líka í hverju rúmi. Steven sjálfur Spielberg leikstýrir og uppáhaldsleikarinn hans og perlu- vinur, Tom Hanks, leikur aðal- hlutverkið „Forrest Gump með rússneskan hreim“ eins og einhver gagnrýnandi orðaði það á svo við- eigandi máta. Hann er staddur á JFK- flugvellinum í New York þegar tollgæsluyfirvöld stöðva för hans og meina honum aðgang inn í landið á þeim forsendum að vega- bréfsáritun hans sé ógild. Borg- arastryrjöld hafi brotist út í heimalandinu Krakoziu og uns úr deilunni leysist þurfi hann að dúsa í fríhöfninni, án ríkisfangs, strandaglópur. Myndin er að hluta byggð á sannri sögu Íranans Merhan Kar- imi Nasseri sem líkt og skáldsagn- arpersónan Navorski varð strandaglópur í fríhöfn Charles de Gaulle-flugvallar. Nasseri hefur búið þar í heil 16 ár og gengur þar undir nafninu Sir Alfred. Fjar- stæðukennd saga þessa lánlitla Ír- ana verður rakin nánar í Lesbók- inni sem fylgir Morgunblaðinu á morgun. Frumsýning | Fríhöfnin (The Terminal) Fastur í fríhöfninni Viktor Navorski lendir í miklum tilfinningarússíbana í fríhöfninni á JFK-flugvellinum. Tom Hanks leikur Viktor Nav- orski, ferðalang frá austur- evrópska smáríkinu Krakoziu, sem verður innlyksa í banda- rískri fríhöfn þegar borg- arastríð brýst út í heimalandi hans og vegabréfið verður ógilt. ERLENDIR DÓMAR BBC  Empire  Guardian  Metacritic.com 53/100 The New York Times 70/100 (skv. metacritic.com) Roger Ebert Rolling Stone Variety 80/100 (skv. metacrit- ic.com)

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.