Morgunblaðið - 10.09.2004, Page 52
)
* $ +
FORSETI sveitarstjórnar Skaga-
fjarðar, Gísli Gunnarsson, vill að
Skatastaðavirkjun úr Austari-
Jökulsá verði sett inn á nýtt að-
alskipulag sveitarfélagsins, sem nú
er í vinnslu. Meirihluti Sjálfstæð-
isflokks og Vinstri hreyfingarinnar –
græns framboðs, VG, í sveitarstjórn
vildi fresta því að setja Vill-
inganesvirkjun inn á skipulag.
Gísli segir aðspurður í samtali við
Morgunblaðið að um nokkurs konar
stefnubreytingu meirihlutans sé að
ræða. Fyrir liggi drög að að-
alskipulagi, þar sem ákveðið hafi
verið að fresta því að setja virkjanir
á skipulagið. Þetta hafi verið gert
m.a. vegna deilna um Villinganes-
virkjun. Gísli segir Vinstri græna
vera á sömu skoðun og hann, þ.e. að
setja virkjanir inn á skipulagið.
Einnig verði gerð tillaga um iðn-
aðarlóðir á skipulaginu, m.a. við
Brimnes og Kolkuós í austanverðum
Skagafirði.
„Við höfum alltaf sagt að við vilj-
um virkja ef einhver iðnaðarkostur
er fyrir hendi. Núna virðist vera
mikil umræða um það á Norðurlandi
og við viljum af fullum þunga taka
þátt í þeirri umræðu. Við teljum það
ekkert vera of seint. Þá værum við
að tala um talsvert stærri virkjun en
við Villinganes,“ segir Gísli.
Meiri hagur fyrir héraðið
Gísli telur að meiri sátt muni
skapast um Skatastaðavirkjun.
Varðandi Villinganesvirkjun hafi
verið talað um „mikla fórn fyrir lítið“
en við Skatastaði sé virkjunin
stærri, með frekar lítil umhverfis-
áhrif og skapi stærri vinnustað.
„RARIK ætlaði að virkja Vill-
inganes og lýsti því beint yfir að það
væri gert til að kaupa ekki eins
mikla orku af Landsvirkjun. Þess
vegna er það meiri hagur fyrir hér-
aðið að fá stærri virkjun.“
Forseti sveitarstjórnar Skagafjarðar vill Skatastaðavirkjun inn á aðalskipulag
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 FÖSTUDAGUR 10. SEPTEMBER 2004 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK.
Næring ekki
refsing
Lágmúla og Smáratorgi
opið kl. 8-24
alla daga
SKATASTAÐAVIRKJUN innst í Skagafirði, skammt norðan Hofsjök-
uls, er einn þeirra kosta í vatnsaflsvirkjunum sem Orkustofnun hef-
ur skoðað og unnið forathugun á. Að afli og orkugetu yrði þessi
virkjun meira en fimmfalt stærri en Villinganesvirkjun, sem á sínum
tíma fór í gegnum mat á umhverfisáhrifum. Afl Skatastaðavirkjunar
yrði 180 MW en 33 MW í Villinganesi. Til samanburðar þá er afl
Kárahnjúkavirkjunar tæp 700 MW og 110 MW í Búðarhálsvirkjun.
Skoðaðir hafa verið tveir valkostir við Skatastaði, annars vegar
með veitu frá Fossá og Hölkná og þremur stíflum í Austari-Jökulsá
og hins vegar með öllum þessum veitum að viðbættri Hraun-
þúfuveitu, auk stíflu í Vestari-Jökulsá. Stofnkostnaður við fyrri val-
kostinn yrði rúmir 25 milljarðar króna en rúmir 32 milljarðar af
seinni valkostinum. Stofnkostnaður Villinganesvirkjunar var metinn
tæpir fimm milljarðar.
Miðlunarlón beggja kosta yrðu tæpir 30 ferkílómetrar að
flatarmáli.
Viljum virkja ef iðnaðarkostur er fyrir hendi
Fimmfalt stærri en
Villinganesvirkjun
ÍSFIRSKA rokksveitin Grafík hélt tónleika í Austurbæ í gærkvöldi í tilefni
af endurútgáfu plötunnar Get ég tekið cjéns. Kom sú plata fyrst út fyrir
tuttugu árum. Á plötunni má m.a. finna lögin Þúsund sinnum segðu já og
Húsið og ég eða Mér finnst rigningin góð.
Sveitin er nú skipuð þeim Haraldi Þorsteinssyni, Hirti Howser, Agli Erni
Rafnssyni, Rúnari Þórissyni og Helga Björnssyni. Tveir þeir síðarnefndu
eru í góðri sveiflu á þessari mynd sem ljósmyndari Morgunblaðsins tók á
tónleikunum í gær.
Morgunblaðið/Sverrir
Grafík rokkar á ný
STJÓRNARFORMAÐUR Sam-
herja telur eðlilegra að heimila er-
lendum aðilum að fjárfesta beint í ís-
lenskum félögum í sjávarútvegi sem
skráð eru á markaði í stað þess að
kaupin verði að fara í gegnum eitt
eða fleiri félög líkt og reglur segja til
um í dag. Telur hann að til greina
komi að miða reglurnar við að sam-
anlögð fjárfesting erlendra aðila, og
nefnir sérstaklega erlenda lífeyris-
sjóði og fagfjárfesta sem oft kaupa
aðeins 1–5% hlutafjárins, geti numið
allt að 40% af heildarhlutafé viðkom-
andi félags.
„Þessir fjárfestar fara ekki að
stofna sérstök félög hér á landi til að
fjárfesta í sjávarútvegi, annaðhvort
kaupa þeir beint í þessum félögum
eða alls ekki,“ segir Finnbogi Jóns-
son, stjórnarformaður Samherja.
„Auðvitað væri mjög áhugavert að
fá slíka fjárfesta að íslenskum sjáv-
arútvegi. Í heild myndi það ein-
göngu hafa mjög jákvæð áhrif á
efnahagslífið og um leið efla hluta-
fjármarkaðinn hér á landi.“
Hann segist hins vegar ekki sjá
sérstaka ástæðu til að breyta
reglum varðandi óskráð félög.
Markmið erlendra félaga sem áhuga
hafa á slíkum félögum gæti verið að
tryggja sér aðgang að hráefni og af-
urðum.
Halldór Ásgrímsson utanríkisráð-
herra sagðist í ræðu sem hann hélt á
alþjóðlegri ráðstefnu Íslandsbanka
um sjávarútveg á miðvikudag vera
sannfærður um að þær aðstæður
eigi eftir að skapast að takmarkanir
á erlendum fjárfestingum verði ekki
lengur nauðsynlegar hér á landi.
Gætu boðið hlutabréf
sem greiðslu
Finnbogi segir að breytingar á
fjárfestingastefnu í íslenskum sjáv-
arútvegi myndu ekki hafa mikil áhrif
á útrás Samherja. „Við gætum
vissulega boðið hlutabréf sem
greiðslu sem ekki er hægt í dag og í
einhverjum tilvikum gæti það ef til
vill verið áhugavert fyrir hinn er-
lenda aðila,“ segir Finnbogi.
Stjórnarformaður Samherja um
erlenda fjárfestingu í sjávarútvegi
Bein fjárfesting í
félögum á mark-
aði verði heimil
Bein/8
KAJAKRÆÐARARNIR fjórir
sem róa suður með austurströnd
Grænlands fyrir Blindrafélagið
hafa verið í sjálfheldu vegna veð-
urs síðastliðna fjóra daga,
skammt frá lokaáfangastað sínum
við suðurodda Grænlands. Þeim
tókst að þoka sér 11 km áleiðis í
gær og tjölduðu við heldur bág-
bornar aðstæður. Höfðust þeir við
í tjaldi sínu í roki og rigningu í
gærkvöldi þegar Morgunblaðið
náði tali af þeim. Spáð er stormi í
dag, föstudag, svo ólíklegt er að
þeim takist að færa sig í dag.
Óhapp varð í fyrradag þegar
þeir voru að koma bátunum á flot,
þegar brimskafl kastaði einum
bátnum upp á klett þar sem einn
leiðangursmanna varð fyrir hon-
um. Báturinn laskaðist nokkuð en
hægt var að gera við hann og ekki
hlutust af meiðsli. Að sögn Bald-
vins Kristjánssonar fararstjóra er
hópurinn með sterkt tjald og eiga
þeir félagar nóg af vistum, þótt
púðursykurinn sé á þrotum. Hann
segist velta því fyrir sér hvort vet-
urinn sé skollinn á í ljósi þess að
hver illviðrakaflinn rekur annan
þessa dagana. Næsti áfangi frá
Otterude-eyju krefst skaplegs
veðurs í heilan dag þar sem róa
þarf fyrir ísstál skriðjökuls sem
gengur í sjó fram. Þar er ekki
hægt að taka land ef veður versn-
ar skyndilega og skiptir því höf-
uðmáli að geta róið í friði fyrir
stormum. Baldvin sagði þá fé-
lagana leggja áherslu á að fara
sér ekki að voða, heldur bíða færis
þangað til gæfi á sjóinn á ný.
Bíða færis í stormi
HÆSTIRÉTTUR hefur hafnað kröf-
um lyfjafyrirtækisins Omega Farma
ehf. um að héraðsdómur afli ráðgef-
andi álits EFTA-dómstólsins um
skýringu á tilteknum ákvæðum til-
skipunar ráðherraráðs ESB í
tengslum við innlenda reglugerð um
markaðsleyfi fyrir sérlyf, merkingar
þeirra og fylgiseðla. Með dómi sínum
hnekkti Hæstiréttur úrskurði Hér-
aðsdóms Reykjavíkur frá 21. júní sl.
Málið höfðaði Omega Farma gegn
Lyfjastofnun og ríkinu í kjölfar þess
að Lyfjastofnun hafnaði umsókn
Omega Farma um markaðsleyfi fyrir
Arizil sem samkvæmt Omega Farma
er sambærilegt alzheimerlyfinu Ari-
cept, sem fékk markaðsleyfi hérlend-
is 1998. Varðaði ágreiningurinn þá
málsástæðu Omega Farma að skýra
bæri reglugerðina þannig að hún
heimilaði stjórnvaldi að falla frá því
að hið sambærilega lyf þyrfti að hafa
verið minnst sex ár á markaði á EES-
svæðinu og vera á markaði hérlendis
væri einkaleyfi ekki til staðar.
Að mati Hæstiréttar fer sönnunar-
færsla um staðreyndir máls, skýring
innlends réttar og beiting gerða, sem
getið sé í viðaukum við EES-samn-
inginn, að íslenskum lögum og fari
fram fyrir íslenskum dómstólum.
Leit rétturinn ekki svo á að það hefði
þýðingu fyrir úrslit málsins að bera
upp spurningu við EFTA-dómstólinn
um skýringu á ákvæðum tilskipunar-
innar, sem efnislega væri samhljóða
ákvæði reglugerðarinnar.
Kröfum um
ráðgefandi
álit EFTA
hafnað
FULLTRÚAR R-listans í sam-
göngunefnd samþykktu að láta loka
einni akrein Miklubrautar og Hring-
brautar fyrir allri umferð nema
strætisvagna á bíllausa daginn. Á
mánudaginn neitaði lögreglan að
taka þátt í því. Gísli Marteinn Bald-
ursson varaborgarfulltrúi sagði á
fundi borgarstjórnar að R-listinn
vildi draga úr afkastagetu mikilvæg-
ustu samgönguæðar borgarinnar um
helming á miðvikudegi þegar fólk
væri að hraða sér í vinnu.
Lögreglan vildi
ekki fara að
óskum R-listans
♦♦♦