Morgunblaðið - 16.10.2004, Side 28
28 LAUGARDAGUR 16. OKTÓBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
ÚR VESTURHEIMI
Álftagerðisbræður og djass-tríóið Cold Front komu tilWinnipeg undir miðnættiog komu fram á blaða-
mannafundi morguninn eftir. Þaðan
var haldið í þinghúsið í borginni en
eftir tónleika í Listasafni Winnipeg
þar sem Rachelle Gislason, sem er af
íslenskum ættum og býr í Victoria í
Bresku-Kólumbíu, kom einnig fram,
skildu leiðir. Tenórarnir fjórir eins og
bræðurnir Sigfús, Pétur, Gísli og
Óskar Péturssynir voru kynntir
ásamt undirleikaranum Stefáni
Gíslasyni, héldu tónleika ásamt
Rachelle í Árborg, Gimli og Lundar
auk þess sem þeir sungu fyrir eldri
borgara á hverjum stað og reyndar í
Winnipeg einnig. Djasstríóið lék hins
vegar fyrir matargesti á tveimur veit-
ingastöðum í Winnipeg á hverju
kvöldi.
,,Við höfum hlustað á marga góða
söngvara í þinghúsinu en Tenórarnir
fjórir eru þeir bestu sem hafa komið
hér fram,“ sagði Dwight MacAuley,
prótokollmeistari Manitobastjórnar,
og orð hans bergmáluðu hvar sem
skagfirsku söngsveinarnir, eins og
Björn Jóhann Björnsson kallar sveit-
unga sína í bók sinni um Álftagerð-
isbræður, komu fram.
Djasstríóið Cold Front, eða Björn
Thoroddsen, Richard Gillis og Steve
Kirby, fékk líka frábærar mótttökur
og kastljósinu var sérstaklega beint
að Birni í októberútgáfu djass-
tímaritsins dig! sem gefið er út af tón-
listarskóla Manitobaháskóla í Winni-
peg. ,,Þetta var frábært og næst á
dagskrá er að koma út diski sem við
tókum upp í Winnipeg í sumar,“ sagði
Björn. Hann bætti við að þeir hefðu
fengið nokkur boð um að spila vest-
anhafs á næstunni, meðal annars í
New York, Boston og Ottawa.
Rachelle, sem er 18 ára píanóleik-
ari, lagahöfundur og söngvari og tók
þátt í Snorraverkefninu á Íslandi í
sumar, vakti einnig athygli en hún
söng meðal annars eigin söngva á há-
tíðarhöldunum í Reykjavík 17. júní.
Bræðurnir voru í sinni fyrstu utan-
landsferð sem Álftagerðisbræður en
þeir hafa farið út um allt með karla-
kórnum Heimi í Skagafirði, meðal
annars til Manitoba 1996. Þeir voru
með langa dagskrá en hvar sem þeir
komu fram vildu áheyrendur fá
meira að heyra. ,,Að síðustu syngjum
við eitt lag og síðan syngjum við
mörg lög til viðbótar,“ voru viðbrögð
Óskars, fyrir hönd listamannanna.
,,Það er svo gaman að syngja fyrir
þetta fólk,“ sagði Pétur og gat þess
að þeir bræður ættu margt skyldfólk
í Vesturheimi og flest í Bresku-
Kólumbíu. ,,Langafi okkar, Eyjólfur
Stefánsson, sem tók sér nafnið
Stevenson, flutti vestur með fjöl-
skylduna en afi okkar varð eftir
heima og átti að fara árið eftir. Hann
fór aldrei.“
Sérstaklega var til þess tekið að
Gísli kom fram sárþjáður síðustu tvo
dagana eftir að hafa fengið slæmt tak
í mjöðmina. ,,Það hefur aldrei verið
betra að syngja en nú svona haltur,
enda hef ég góðar töflur,“ sagði Gísli,
en meðferð og verkjalyf gerðu honum
mögulegt að halda settu striki.
,,Hann upplifir það hér að vera í góð-
um efnum,“ sagði Óskar og Sigfús
bætti við: ,,Þetta hefur verið ljómandi
gott, bara verið eins og að syngja
heima.“
Eins og að syngja heima
Íslenskir listamenn og
listafólk af íslenskum
ættum vöktu mikla at-
hygli á Íslandskynning-
unni í Manitoba í Kan-
ada á dögunum. Stein-
þór Guðbjartsson fylgd-
ist með gangi mála.
Djasstríóið Cold Front eða Richard Gillis, Steve Kirby og Björn Thoroddsen
á tónleikum í Winnipeg. Þeir hafa fengið nokkur boð um að spila vestanhafs.
Rachelle Gislason á tónleikunum í Listasafni Winnipeg.
Álftagerðisbræður í hátíðarsalnum í Gimli. Frá vinstri: Sigfús Pétursson,
Stefán Gíslason söngstjóri, Óskar, Pétur og Gísli Péturssynir.
steg@mbl.is
Morgunblaðið/Steinþór
410 4000 | landsbanki.is
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
L
BI
2
40
64
10
/2
00
4
Landsbankinn varð fyrstur íslenskra banka til að bjóða verðbréfa-
viðskipti á erlendum mörkuðum í gegnum netið. Landsbankinn tekur
nú enn forystuna og býður nýjung í verðbréfaviðskiptum á netinu sem
markar tímamót á Íslandi.
Tryggðu þér hlut í framtíðinni