Morgunblaðið - 16.10.2004, Page 36
36 LAUGARDAGUR 16. OKTÓBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
MESSUR Á MORGUN
ÁSKIRKJA: Barnastarf kl. 11. Gítarleikari
Pétur Þór Benediktsson, organisti Kári Þor-
mar. Prestur sr. Þórhildur Ólafs. Guðsþjón-
usta kl. 14. Félagar úr kór Áskirkju syngja,
organisti Kári Þormar, prestur sr. Þórhild
Ólafs.
BÚSTÐAKIRKJA: Barnastarf kl. 11:00. For-
eldrar, afar og ömmur hvött til þátttöku í
barnastarfinu. Guðsþjónusta kl. 14:00. Fé-
lagar úr Kór Bústaðakirkju syngja. Org-
anisti Guðmundur Sigurðsson. Molasopi
eftir messu. Pálmi Matthíasson.
DÓMKIRKJAN: Messa kl. 11:00 við upp-
haf Kirkjuþings. Sr. Magnús Erlingsson pré-
dikar. Dómkórinn og barnakór Dómkirkj-
unnar syngja. Marteinn Friðriksson og
Kristín Valsdóttir stjórna. Barnastarf á
kirkjuloftinu meðan á messu stendur.
GRENSÁSKIRKJA: Barnastarf kl. 11 í
umsjá Jóhönnu Sesselju Erludóttur og ung-
linga úr kirkjustarfinu. Messa kl. 11. Alt-
arisganga. Samskot til kirkjustarfsins. Árni
Gunnarsson syngur einsöng. Kirkjukór
Grensáskirkju syngur. Organisti Árni Ar-
inbjarnarson. Ólafur Jóhannsson.
GRUND dvalar- og hjúkrunarheimili: Guðs-
þjónusta kl. 14:00. Organisti Pavel Man-
ásek. Sr. Þórir Stephensen. Félag fyrrum
þjónandi presta.
HALLGRÍMSKIRKJA: Fræðslumorgunn kl.
10. Trúarbragðafræðsla í fjölmenningar-
samfélagi: Sr. Sigurður Pálsson. Messa og
barnastarf kl. 11. Sr. Jón Dalbú Hróbjarts-
son prédikar og þjónar fyrir altari ásamt sr.
Sigurði Pálssyni. Umsjón barnastarfs
Magnea Sverrisdóttir. Sérstök áhersla
verður lögð á almennan sálmasöng undir
stjórn Harðar Áskelssonar, organista. Hóp-
ur úr Mótettukór Hallgrímskirkju syngur.
HÁTEIGSKIRKJA: Messa kl. 11:00. Org-
anisti Douglas A. Brotchie. Sr. Tómas
Sveinsson. Barnaguðsþjónusta kl. 13:00.
Umsjón Ólafur J. Borgþórsson.
LANDSPÍTALI – HÁSKÓLASJÚKRAHÚS:
Hringbraut: Guðsþjónusta kl. 10:30. Sr.
Birgir Ásgeirsson.
LANGHOLTSKIRKJA: Kirkja Guðbrands
biskups. Messa og barnastarf kl. 11.
Prestur séra Jón Helgi Þórarinsson. Org-
anisti Jón Stefánsson. Félagar úr Kór Lang-
holtskirkju leiða söng. Fjölbreytt barnastarf
í safnaðarheimilinu á sama tíma. Kaffisopi
eftir messu.
LAUGARNESKIRKJA: Messa og sunnu-
dagaskóli kl. 11. Sr. Bára Friðriksdóttir,
héraðsprestur, þjónar ásamt Sigurbirni Þor-
kelssyni, meðhjálpara. Sunnudagaskólinn
er í umsjá leikskólastjóranna Hildar Eirar
Bolladóttur, Heimis Haraldssonar og Þor-
valds Þorvaldssonar. Gunnar Gunnarsson
leikur á orgel, Kór Laugarneskirkju syngur,
fulltrúar lesarahóps kirkjunnar flytja texta
og messukaffi Sigríðar kirkjuvarðar bíður
svo allra að messu lokinni.
NESKIRKJA: Messa kl. 11. Félagar úr Há-
skólakórnum leiða safnaðarsöng. Org-
anisti Steingrímur Þórhallsson. Prestur dr.
Sigurður Árni Þórðarson. Börnin byrja í
messunni en fara síðan í safnaðarheimilið.
Brúður, söngur, leikir, bækur, límmiðar og
fleira. Umsjón með barnastarfinu hefur
Guðmunda I. Gunnarsdóttir, guðfræðingur.
SELTJARNARNESKIRKJA: Messa kl.11.
Kammerkór Seltjarnarneskirkju leiðir safn-
aðarsöng.
Fermingarbörn aðstoða við messuna.
Gunnar Einar Steingrímsson, guð-
fræðinemi predikar. Organisti Pavel Man-
asek. Sr. Arna Grétarsdóttir. Sunnudaga-
skóli á sama tíma.
FRÍKIRKJAN í Reykjavík: Barnaguðsþjón-
usta kl. 11. Notast verður við gömlu góðu
Jesú-myndirnar sem margir foreldrarnir
fengu í kirkjunni á sínum tíma. Umsjón
hafa Ása Björk, safnaðarprestur og Ari
Bragi. Heitt verður á könnunni fyrir hina full-
orðnu og auðvitað verður munað eftir anda-
brauðinu og fuglunum við tjörnina í lok
samveru. Kvöldmessa kl. 20. Einu sinni í
mánuði eru kvöldmessur í Fríkirkjunni þar
sem kvöldmáltíðarsakramenntið er haft
um hönd. Boðið er upp á fyrirbæn, kyrrð og
íhugun við kertaljós og fagra tónlist. Predik-
un flytur Ása Björk Ólafsdóttir guð-
fræðinemi. Fríkirkjuprestur Hjörtur Magni
Jóhannsson þjónar fyrir altari.
ÁRBÆJARKIRKJA: Tónlistarguðsþjónusta
kl.11. Martial Nardiau leikur nokkur verk á
þverflautu. Krisztina Kalló Szklenár org-
anisti leiðir söng kórsins og kirkjugesta.
Ólafur Jóhann Borgþórsson guðfræðinemi
predikar. Sunnudagaskólinn á sama tíma í
safnaðarheimilinu. Kirkjukaffi og meðlæti
á eftir.
BREIÐHOLTSKIRKJA: Barnaguðsþjónusta
kl. 11. Messa kl. 11. Djús, kaffi og kex eftir
messuna. Prestur sr. Sigurjón Árni Eyjólfs-
son. Organisti Keith Reed.
DIGRANESKIRKJA: Messa kl.11. Prestur
sr. Magnús Björn Björnsson. Organleikari
Kjartan Sigurjónsson. Kór Digraneskirkju
B-hópur. Sunnudagaskóli á sama tíma í
kapellu. Léttur málsverður í safnaðarsal að
messu lokinni. (Sjá nánar www.digra-
neskirkja.is)
FELLA- OG HÓLAKIRKJA: Guðþjónusta kl.
11. Sr. Guðmundur Karl Ágústsson prédik-
ar og þjónar fyrir altari. Kirkjukór Fella- og
Hólakirkju leiðir safnaðarsöng. Organisti er
Lenka Mátéová. Sunnudagaskóli í safn-
aðarheimilinu á sama tíma í umsjón sr.
Helgu Helenu Sturludóttur og Ásdísar
Hjálmtýsdóttur.
GRAFARHOLTSSÓKN: Messa kl. 11 í þjón-
ustusalnum, Þórðarsveig 3. Söngstundin
fyrir þau sem leiða sönginn hefst 10:30.
GRAFARVOGSKIRKJA: Guðsþjónusta kl.
11 í Grafarvogskirkju. Séra Lena Rós
Matthíasdóttir prédikar og þjónar fyrir alt-
ari. Kór Grafarvogskirkju syngur. Organisti:
Sigrún Þórsteinsdóttir. Barnaguðsþjónusta
kl. 11 í Grafarvogskirkju. Umsjón: Hjörtur
og Rúna. Undirleikari: Stefán Birgisson.
Barnaguðsþjónusta kl. 11 í Borgarholts-
skóla. Prestur séra Vigfús Þór Árnason.
Umsjón: Dagný og Gummi. Undirleikari:
Guðlaugur Viktorsson.
HJALLAKIRKJA: Messa kl. 11. Sr. Íris
Kristjánsdóttir þjónar. Félagar úr kór kirkj-
unnar leiða safnaðarsönginn undir stjórn
Jóns Ól. Sigurðssonar, organista. Barna-
guðsþjónusta kl. 13. Við minnum á bæna-
og kyrrðarstund á þriðjudag kl.18 (sjá einn-
ig á www.hjallakirkja.is).
KÓPAVOGSKIRKJA: Barnastarf í kirkjunni
kl. 12:30 í umsjón Önnu Kristínar, Péturs
Þórs og Laufeyjar Fríðu. Guðsþjónusta kl.
14, en í henni verður lögð sérstök áhersla
á þakkargjörðina. Sr. Ægir Fr. Sig-
urgeirsson predikar og þjónar fyrir altari,
kór kirkjunnar syngur, organisti Julian
Hewlett. Bæna- og kyrrðarstund þriðjudag
kl. 12:10.
LINDASÓKN í Kópavogi: Guðsþjónusta í
Lindaskóla kl. 11. Sunnudagaskóli fer
fram í kennslustofum meðan á guðsþjón-
ustu stendur. Félagar úr kór Lindakirkju
leiða safnaðarsöng. Organisti: Hannes
Baldursson. Akstur frá Vatnsenda- og Sala-
hverfi í guðsþjónustuna, sjá nánar á
www.lindakirkja.is.
SELJAKIRKJA: Barnaguðsþjónusta kl. 11.
Söngur, sögur, líf og fjör! Guðsþjónusta kl.
14. Sr. Bolli Pétur Bollason prédikar. Kór
Seljakirkju leiðir söng. Organisti Jón
Bjarnason. Kvöldguðsþjónusta kl. 20. Sr.
Valgeir Ástráðsson prédikar. Þorvaldur Hall-
dórsson leiðir söng. Altarisganga.
ÍSLENSKA KRISTSKIRKJAN: Morgunguðs-
þjónusta kl.11.00. Fræðsla fyrir börn og
fullorðna. Friðrik Schram ritskýrir valda
kafla úr Rómverjabréfinu. Samkoma kl.
20.00. Mikil lofgjörð, vitnisburðir og fyr-
irbænir. Þáttur kirkjunnar „Um trúna og til-
veruna“ er sýndur á Ómega kl.13.30.
BOÐUNARKIRKJAN, Hlíðasmári 9, Kóp:
Samkomur alla laugardaga kl. 11:00.
Bænastund alla þriðjudaga kl. 20:00. Bibl-
íufræðsla allan sólarhringinn á Útvarp Boð-
un FM 105,5. Allir alltaf velkomnir.
FÆREYSKA SJÓMANNAHEIMILIÐ: Sam-
koma sunnudag kl. 20.30. Erný Ásgeirs-
dóttir talar. Allir velkomnir.
HJÁLPRÆÐISHERINN: Sunnudagur:
Bænastund kl. 19.30. Samkoma kl. 20.
Umsjón Áslaug Haugland. Mánudagur:
Heimilasamband. Harold Reinholdtsen tal-
ar.
FRÍKIRKJAN KEFAS, Vatnsendabletti
601: Laugardaginn 16. október verður
Marteinn Steinar Jónsson, sálfræðingur,
með fyrirlestur kl. 17.00 og fjallar hann um
ferli fyrirgefningarinnar. Að loknum fyr-
irlestri er boðið upp á súpu, brauð og kaffi.
Allir eru velkomnir. Sunnudaginn 17. okt.
er samkoma kl. 14.00. Sigrún Einarsdóttir
talar. Lofgjörð og fyrirbænir. Tvískipt barna-
starf fyrir 1–5 ára og 6–12 ára börn á sam-
komutíma. Kaffi og samfélag eftir sam-
komu. Allir eru velkomnir. Þriðjudaginn 19.
okt. er bænastund kl. 20.30. Föstudaginn
22. október er 10–16 ára starf kl. 20.00.
Sjá: www.kefas.is.
KFUM og KFUK v/Holtaveg: Samkoma kl.
17. „Ég, unglingurinn og Guð“ Ræðumað-
ur: sr. Ragnar Gunnarsson. Börn úr Vin-
argarði, leikskóla KFUM og KFUK syngja,
mikil lofgjörð og mikill söngur. Undraland
fyrir börnin í aldursskiptum hópum. Matur á
eftir samkomu á hagkvæmu verði. Allir vel-
komnir.
FÍLADELFÍA: Brauðsbrotning kl. 11. Ræðu-
maður Kristinn P. Birgisson. Almenn sam-
koma kl. 16:30. Ræðum. Ólafur Zophon-
íasson. Gospelkór Fíladelfíu leiðir lofgjörð.
Fyrirbænir í lok samkomu. Barnakirkja á
meðan samkomunni stendur. Allir eru hjart-
anlega velkomnir. Miðvikudaginn 20. okt.
kl 18:00 er fjölskyldusamvera - „súpa og
brauð“. Fimmtudaginn 21. okt. kl. 15:00
er samvera eldri borgara. Allir velkomnir.
Alla laugardaga kl. 20:00 er bænastund.
Bænastundir alla virka morgna kl. 06:00.
www.gospel.is
KIRKJA JESÚ KRISTS hinna síðari daga
heilögu, Mormónar, Ásabraut 2, Garðabæ.
Sunnudaginn 17. október verður guðsþjón-
usta kl: 9 árdegis á ensku og kl: 12 á ís-
lensku. Ræðumenn eru Öldungur W. Craig
Zwick frá Bandaríkjunum og James Will-
iams, trúboðsforseti frá Bandaríkjunum.
KROSSINN: Almenn samkoma að Hlíða-
smára 5 kl. 16.30.
BETANÍA, Lynghálsi 3: Samkoma kl. 11
sunnudaga. Einnig samkomur kl. 19.30 á
föstudögum.
KAÞÓLSKA KIRKJAN:
Reykjavík, Kristskirkja í Landakoti, dóm-
kirkja og basilíka: Sunnudaga: Messa kl.
10.30. Messa á ensku kl. 18.00. Alla virka
daga: Messa kl. 18.00. Mánudaginn 18.
október, miðvikudaginn 20. október og
föstudaginn 22. október er einnig messa
kl. 8.00 (á latínu). Laugardaga: Barna-
messa kl. 14.00 að trúfræðslu lokinni.
Októbermánuður er sérstaklega tileink-
aður rósakransbæninni. Alla mánudaga og
föstudaga er beðin rósakransbæn fyrir
kvöldmessu kl. 17.30 og alla miðvikudaga
að kvöldmessu lokinni. Jóhannes Páll II
páfi boðaði það heimskirkjunni allri við há-
tíðlega messu í Róm á dýradag, 10. júní á
þessu ári, að sérstakt ár yrði haldið sem
„ár altarissakramentisins“. Við viljum
gjarnan fylgja þessari hvatningu páfans.
Þannig verður frá októbermánuði á þessu
ári haldin tilbeiðslustund í Kristskirkju á
hverju fimmtudagskvöldi að messu lokinni,
þ.e. frá kl. 18.30 til 19.15. Reykjavík,
Maríukirkja við Raufarsel: Sunnudaga:
Messa kl. 11.00. Laugardaga: Messa á
ensku kl. 18.30. Virka daga: Messa kl.
18.30. Rósakransinn er beðinn á hverjum
degi fyrir kvöldmessu. „Ár altarissakra-
mentisins“: Tilbeiðslustund á mánudögum
frá kl. 19.00 til 20.00. Riftún í Ölfusi:
Sunnudaga: Messa kl. 16.00. Miðviku-
daga kl. 20. Hafnarfjörður, Jósefskirkja:
Sunnudaga: Messa kl. 10.30. Rósa-
kransbænin hefst kl. 10.00. Karmel-
klaustur: Sunnudaga: Messa kl. 08.30.
Virka daga: Messa kl. 8.00. Keflavík,
Barbörukapella: Skólavegi 38: Sunnu-
daga: Messa kl. 14.00. Stykkishólmur,
Austurgötu 7: Alla virka daga: Messa kl.
18.30. Sunnudaga: Messa kl. 10.00. Ísa-
fjörður: Sunnudaga: Messa kl. 11.00. Flat-
eyri: Laugardaga: Messa kl. 18.00. Bol-
ungarvík: Sunnudaga kl. 16.00.
Suðureyri: Sunnudaga: Messa kl. 19.00.
Akureyri, Kaþólska kirkjan: Péturskirkja,
Hrafnagilsstræti 2: Laugardaga: Messa kl.
18.00. Sunnudaga: Messa kl. 11.00.
Rósakransinn er beðinn á mánudögum til
fimmtudags í Brálundi 1 kl. 19.00, og
föstudaga og laugardaga kl. 17.30 í Pét-
urskirkju, sem og á sunnudögum kl.
10.30, einnig í Péturskirkju. „Ár alt-
arissakramentisins“: Tilbeiðslustund á
föstudögum frá kl. 17.00 til 17.55.
KIRKJA SJÖUNDA DAGS AÐVENTISTA:
Aðventkirkjan Ingólfsstræti 19, Reykjavík.
Biblíufræðsla kl. 10:00. Guðþjónusta kl.
11:00. Ræðumaður: Eric Guðmundsson.
Loftsalurinn Hólshrauni 3, Hafnarfirði:
Guðþjónusta/Biblíufræðsla kl. 11:00.
Ræðumaður: Björgvin Snorrason. Safn-
aðarheimili aðventista Gagnheiði 40, Sel-
fossi: Biblíufræðsla kl. 10:00. Guðþjón-
usta kl. 11:00. Ræðumaður Gavin
Anthony. Safnaðarheimili aðventista
Blikabraut 2, Keflavík: Biblíufræðsla kl.
10.15. Guðþjónusta kl. 11:00. Aðvent-
kirkjan Brekastíg 17, Vestmannaeyjum:
Biblíufræðsla kl. 10:00.
BRAUTARHOLTSKIRKJA á Kjalarnesi:
Barnaguðsþjónusta kl. 11 f.h. Gunnar
Kristjánsson sóknarprestur.
LANDAKIRKJA í Vestmannaeyjum: Kl.
11:00 Sunnudagaskóli í Landakirkju. Lóa
(ó)kurteisa (Helga Braga) heimsækir okkur
í sunnudagaskólann. Biblíusagan verður á
sínum stað, við biðjum saman ofl. Barna-
fræðarar kirkjunnar halda utan um stund-
ina ásamt presti kirkjunnar. Fjölmennum
með börnin. Kl. 14:00 Messa í Landa-
kirkju. Kór kirkjunnar syngur undir stjórn
Guðmundar H. Guðjónssonar. Ferming-
arbörn lesa ritningarlestra. Foreldrar mæt-
um með fermingarbörnunum í kirkju. Prest-
ur sr. Þorvaldur Víðisson. Kl. 20:30 Frí hjá
æskulýðsfélaginu vegna Landsmóts æsku-
lýðsfélaga í Vatnaskógi.
LÁGAFELLSKIRKJA: Guðsþjónusta kl.
20.30. Athugið breyttan tíma. Predikun: Sr.
Gunnar Kristjánsson, prófastur. Einsöngur:
Hanna Björk Guðjónsdóttir. Fiðluleikur:
Hjörleifur Valsson. Kirkjukór Lágafells-
sóknar. Organsisti: Jónas Þórir. Kirkjukaffi í
safnaðarheimilinu að Þverholti 3. Sunnu-
dagaskóli í safnðarheimilinu kl. 13.00 í
umsjá Hreiðars Arnar og Jónasar Þóris.
Prestarnir.
HAFNARFJARÐARKIRKJA: Guðsþjónusta
kl. 11. Prestur sr. Yrsa Þórðardóttir. Org-
anisti Antonía Hevesi. Kór Hafnarfjarð-
arkirkju syngur. Sunnudagaskólar í Strand-
bergi og Hvaleyrarskóla á sama tíma.
KRÝSUVÍKURKIRKJA: Messa kl. 14. Upp-
risa, altaristafla kirkjunnar tekin ofan til
veturdvalar í Hafnarfjarðarkirkju. Prestur sr.
Gunnþór Þ. Ingason. Sigrún M. Þorsteins-
dóttir leikur á hljómborð og stjórnar kirkju-
söng. Sveinshús er opið eftir messuna og
boðið þar upp á kaffi og kökur á vægu
verði. Ókeypis sætaferð frá Hafnarfjarð-
arkirkju kl. 13 og til baka eftir kirkjukaffið.
VÍÐISTAÐAKIRKJA í Hafnarfirði: Barna-
guðsþjónusta á Hrafnistu kl. 10.45.
Sunnudagaskólinn fer að þessu sinni fram
á Hrafnistu. Skemmtileg stund fyrir alla fjöl-
skylduna. Útvarpsguðsþjónusta kl. 11. Kór
Víðistaðasóknar syngur undir stjórn Úlriks
Ólasonar. Unglingakór Víðistaðakirkju
syngur undir stjórn Áslaugar Bergsteins-
dóttur. Einsöngur Sigurður Skagfjörð. Fiðlu-
leikur Hjörleifur Valsson. www.vidistada-
kirkja.is
FRÍKIRKJAN í Hafnarfirði: Kirkjudagurinn.
Barnasamkoma kl.11. Umsjón hafa Edda,
Hera og Skarphéðinn. Guðsþjónusta kl.
13. Hera Elfarsdóttir guðfræðinemi predik-
ar. Suðræn sveifla mun setja svip á sálma-
sönginn að þessu sinni sem kór kirkjunnar
leiðir við undirleik hljómsveitar kirkjunnar.
Að lokinni guðsþjónustu hefst svo hin ár-
lega kaffisala kvenfélagsins í safn-
aðarheimilinu en allur ágóði af sölunni
rennur til safnaðarstarfsins.
ÁSTJARNARSÓKN, samkomusdal Hauka,
Ásvöllum. Barnaguðsþjónusta sunnudaga
kl. 11–12. Guðsþjónusta sunnudag kl. 20–
21. Léttar kaffiveitingar eftir helgihaldið.
KÁLFATJARNARSÓKN: Kirkjuskóli í Stóru-
Vogaskóla á laugardögum kl. 11.15.
VÍDALÍNSKIRKJA: Guðsþjónusta kl 11.00.
Sunnudagaskólinn á sama tíma. Félagar úr
kór Vídalínskirkju leiða safnaðarsönginn
undir stjórn Jóhanns Baldvinssonar, org-
anista. Sr. Friðrik J. Hjartar þjónar. Léttur
málsverður í safnaðarheimilinu á eftir í
boði sóknarnefndar, í umsjá Lionsfólks. All-
ir velkomnir. Prestarnir.
BESSASTAÐAKIRKJA: Guðsþjónusta kl.
14.00. Kirkjudagur safnaðarins. Félagar úr
Álftaneskórnum leiða safnaðarsönginn.
Nýr organisti, Sigrún Þórsteinsdóttir, stjórn-
ar. Sr. Friðrik J. Hjartar þjónar ásamt Grétu
djákna og sr. Hans Markúsi Hafsteinssyni.
Kaffisala Kvenfélagsins í tilefni dagsins
verður í Hátíðasal íþróttahússins að lokinni
athöfn. Allir velkomnir. Prestarnir.
BESSASTAÐASÓKN: Sunnudagaskóli kl.
11.00 í sal Álftanesskóla. Ágeir Páll, Krist-
jana og Sara gleðjast yfir öllum sem mæta.
Fjölmennum. Prestarnir.
ÞORLÁKSKIRKJA: Sunnudagaskóli kl. 11.
HJALLAKIRKJA: Messa kl. 14. Sókn-
arprestur.
YTRI-NJARÐVÍKURKIRKJA: Guðsþjónusta
sunnudaginn 17. október kl.14.Barn borið
til skírnar. Kór kirkjunnar syngur undir
stjórn Natalíu Chow Hewlett. Fundur með
foreldrum fermingarbarna á eftir. Meðhjálp-
ari Ástríður Helga Sigurðardóttir. Sunnu-
dagaskóli sunnudaginn 17. október kl.11.
í umsjá Margrétar H. Halldórsdóttur og
Gunnars Þórs Haukssonar. Foreldrar eru
hvattir til að mæta með börnunum.
NJARÐVÍKURKIRKJA (Innri-Njarðvík):
Sunnudagaskóli hefst í Ytri-Njarðvíkurkirkju
sunnudaginn 17. október kl.11 í umsjá
Margrétar H. Halldórsdóttur og Gunnars
Þórs Haukssonar . Foreldrar eru hvattir til
að mæta með börnunum. Ekið frá Safn-
aðarheimilinu kl.10.45. og komið við í
strætóskýlinu Akurbraut á leið í Ytri-
Njarðvíkurkirkju.
KIRKJUVOGSKIRKJA (Höfnum): Sunnu-
dagaskóli sunnudaginn 17.október kl.
13.30. í umsjá Margrétar H. Halldórsdóttur
og Gunnars Þórs Haukssonar. Foreldrar
eru hvattir til að mæta með börnunum.
Baldur Rafn Sigurðsson.
KEFLAVÍKURKIRKJA: Sunnudagaskóli kl.
11 árd. Elín Njálsdóttir, umsjónarmaður
sunnudagaskólans. Guðsþjónusta kl. 14 í
stærri sal Kirkjulundar. Ræðuefni: Jesús
læknar lama manninn. Hefur það áhrif á
okkar afstöðu til lækninga? Prestur sr.
Ólafur Oddur Jónsson. Kór Keflavíkurkirkju
leiðir söng. Organisti og stjórnandi Hákon
Leifsson. Meðhjálpari Laufey Kristjáns-
dóttir. Veitingar í boði sóknarnefndar eftir
messu.
HVALSNESKIRKJA: Laugardagurinn 16.
október. Safnaðarheimilið í Sandgerði.
Kirkjuskólinn kl. 11. Allir velkomnir. NTT-
starfið -Níu til tólf ára starfið er í safn-
aðarheimilinu í Sandgerði á þriðjudögum
kl.17. Sóknarprestur.
ÚTSKÁLAKIRKJA: Laugardagurinn16.
október: Safnaðarheimilið Sæborg. Kirkju-
skólinn kl.13. Allir velkomnir. NTT-starfið
-Níu til tólf ára starfið er í safnaðarheimilinu
Sæborgu á fimmtudögum kl.17.
ÍSAFJARÐARKIRKJA: Messa og kirkjuskóli
kl. 11. Kór Ísafjarðarkirkju syngur undir
stjórn Huldu Bragadóttur. Sr. Stína Gísla-
dóttir.
MÖÐRUVELLIR í Hörgárdal: Messa sunnu-
dag kl. 14. Samfélag í trú og gleði. Messu-
kaffi hjá Pálínu og Bjarna, Möðruvöllum III,
eftir messu. Allir velkomnir. Sóknarprestur.
AKUREYRARKIRKJA: Sunnudagaskóli kl.
11. Guðsþjónusta kl. 11. Sr. Jóna Lísa Þor-
steinsdóttir. Félagar úr Kór Akureyrarkirkju
syngja. Organisti Lára Bryndís Eggerts-
dóttir.
GLERÁRKIRKJA: Barnasamvera og
messa. Sameiginlegt upphaf, börn fara
síðan í safnaðarsal í barnastarf. Sr. Arn-
aldur Bárðarson, þjónar. Félagar úr Kór
Glerárkirkju syngja. Organisti Hjörtur Stein-
bergsson. Fermingarbörn ásamt foreldrum
boðin sérstaklega velkomin.
HJÁLPRÆÐISHERINN á Akureyri: Almenn
samkoma kl. 11. Erlingur Níelsson flytur
ræðuna. Sunnudagaskóli kl. 11. Allir vel-
komnir.
LJÓSAVATNSPRESTAKALL: Þóroddsstað-
arkirkja: Fjölskylduguðsþjónusta laug-
ardagskvöldið 16. okt. kl. 20.30. Sr. Gylfi
og sr. Pétur annars báðir þjónustuna.
Messukaffi eftir messu.
LAUFÁSPRESTAKALL: Grenivíkurkirkja:
Fjölskylduguðsþjónusta sunnudag kl. 14.
Sérstaklega talað við börnin og spiluð tón-
list við þeirra hæfi.
ODDAKIRKJA á Rangárvöllum: Messa kl.
11. Guðspjallstexti: Jesús læknar hinn
lama. (Matt. 9). Organisti Nína María Mor-
ávek. Fermingarbörn í Oddasókn eru sér-
staklega boðuð til messu ásamt for-
eldrum/forráðamönnum sínum og til
fundar í kirkjunni strax að messu lokinni
um fermingarfræðslu vetrarins og ferming-
artíma í vor. Sóknarprestur.
SKÁLHOLTSDÓMKIRKJA: Messa verður
sunnudag 17. október kl. 14.00. Sr. Krist-
inn Ágúst Friðfinnsson annast prestsþjón-
ustuna. Sóknarprestur.
HRAUNGERÐISPRESTAKALL: Leikskóla-
guðsþjónusta í Krakkaborg, Þingborg, nk.
þriðjudag kl. 10:00. Ef verkfalli verður lokið
er stefnt að helgihaldi í Flóakóla sama dag
kl. 11:00. Kristinn Á. Friðfinnsson.
SELFOSSKIRKJA: Messa kl. 11. Kvenna-
kór Reykjavíkur syngur undir stjórn Mar-
grétar Pálmadóttur. Barnastarfið hefst kl.
11.15. Léttur hádegisverður í safn-
aðarheimilinu á eftir. Munið hjóna-
námskeið síra Þórhalls Heimissonar mið-
vikudagskvöld 20. október kl. 19.30.
Morguntíð þriðjudaga til föstudaga kl. 10.
Kaffisopi á eftir. Foreldramorgnar miðviku-
daga kl. 11. Sr. Gunnar Björnsson.
STOKKSEYRARKIRKJA: Barnaguðsþjón-
usta kl. 11.
EYRARBAKKAKIRKJA: Guðsþjónusta kl.
14.
HVERAGERÐISKIRKJA: Guðsþjónusta og
sunnudagaskóli kl. 11. Foreldramorgnar
eru í Hveragerðiskirkju á þriðjudags-
morgnum kl. 10. Sóknarprestur.
KOTSTRANDARKIRKJA: Guðsþjónusta kl.
14.
HJÚKRUNARHIEMILIÐ ÁS: Guðsþjónusta
kl. 15.30.
Guðspjall dagsins:
Jesús læknar hinn lama.
(Matt. 9.)
Morgunblaðið/Einar FalurGrenjaðarstaðarkirkja í Aðaldal.