Morgunblaðið - 24.12.2004, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 351. TBL. 92. ÁRG. FÖSTUDAGUR 24. DESEMBER 2004 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is
Íslensk list í
Danaveldi
Íslenskir listmunir í Galleri Nordlys
í Kaupmannahöfn Daglegt líf
Börn og Íþróttir í dag
Börn | Jólasveininum rænt Álfar á jólanótt Jólastuð og hátíðafjör
Gátur og þrautir Íþróttir | Jólaprófraun Chelsea Eini nýliðinn í íslenska
handboltalandsliðinu fullur tilhlökkunar Gerrard vill ekki frá Liverpool
FORSETI Rússlands, Vladímír
Pútín, segist meta mikils samstarf
við bandarískan starfsbróður sinn,
George W. Bush, á ýmsum sviðum,
þ. á m. í baráttunni gegn hryðju-
verkum en Pútín grunar að Vest-
urveldin vilji reyna að einangra
Rússland og ýta undir óstöðugleika
í landinu. Á blaðamannafundi í gær
sakaði Pútín vestrænar þjóðir um
„tvöfalt siðgæði“ og sagði þær ýta
undir varanlegt byltingarástand í
grannríkjum Rússa.
Pútín hyggst taka málið upp á
fundi sínum með Bush í Slóvakíu í
febrúar og spyrja hvort grunurinn
eigi við rök að styðjast. „Ef svo er
skilja menn betur stefnu þeirra
gagnvart Tétsníu,“ sagði hann.
Vestrænar þjóðir hafa hvatt Rússa
til að hefja viðræður við uppreisn-
armenn í Tétsníu en Pútín segir þá
alla vera hryðjuverkamenn.
Rússlandsforseti sagði það vera
„algert bull“ þegar menn sökuðu
Moskvustjórnina um að reyna að
„gleypa í sig“ minni grannríki á
svæði sem áður heyrði til Sovétríkj-
unum fyrrverandi. Hann sagði að
það væri hámark hræsninnar þeg-
ar vestræn stjórnvöld gagnrýndu
Rússa fyrir að reyna að tryggja
hagsmuni sína í Úkraínu. Tók Pútín
fram að hann hefði á sínum tíma átt
gott samstarf við stjórnarandstæð-
inginn Viktor Jústsjenkó er var um
hríð forsætisráðherra Úkraínu. En
Jústsjenkó og menn hans hefðu
heimtað að lögum yrði breytt eftir
að kosningum var lokið.
„Það er stórhættulegt að reyna
að leysa pólitískar deilur utan
ramma laganna, fyrst var það
„rósabyltingin“, næst finna þeir
upp eitthvað blátt,“ sagði Pútín.
Stuðningsmenn Jústsjenkós
nota einkennislitinn appelsínugult,
umskiptin þar í landi hafa verið
kennd við þann lit. Þegar stjórn-
arandstaðan í Georgíu, öðru fyrr-
verandi sovétlýðveldi, fékk hnekkt
úrslitum kosninga sem taldar voru
ólýðræðislegar eins og forsetakjör-
ið í Úkraínu í haust, var rætt um
rósabyltingu Georgíumanna.
Segir Vesturveldin
vilja einangra Rússa
Moskvu. AP, AFP.
Pútín/18
ÍSLANDSPÓSTUR ákvað að flutningabíll með
póst til Austfjarða færi ekki frá Reykjavík í
gærkvöldi vegna slæms veðurútlits. Að sögn
Önnu Katrínar Halldórsdóttur, fram-
kvæmdastjóra markaðs- og sölusviðs Íslands-
pósts, var ekki um mjög mikinn póst að ræða
og hafði megnið af honum verið póstlagt á
Þorláksmessu. Ætlunin er að senda póstinn
austur annan í jólum.
Veðurspá er slæm fyrir jólahelgina, sam-
kvæmt upplýsingum frá Veðurstofu Íslands. Í
dag má búast við norðanhríð og stormi, eink-
um á Norðausturlandi, og éljagangi á vestan-
verðu landinu. Búist er við 13–18 m/s vindi við
Faxaflóa um það bil sem jólin ganga í garð.
Veðrið á að ganga hægt niður á jóladag, fyrst
vestanlands. Heldur mun hlýna með norðan-
áttinni, sem þykir heldur óvenjulegt. Í gær-
kvöldi var kalt á Norðvesturlandi og mældist
23°C frost á Haugi í Miðfirði og 18°C frost var
á Blönduósi. Á Suðurlandi var 10–14°C frost.
Annan dag jóla er búist við lægð úr suðvestri
og að með henni hvessi af suðaustri. Henni
mun fylgja snjókoma til að byrja með og síðan
slydda og rigning.
Þjónusta Vegagerðarinnar verður í lág-
marki um hátíðirnar, að því er segir á heima-
síðu hennar. Vegfarendum er bent á færð-
arkort á vef Vegagerðarinnar, textavarp RÚV
og sjálfvirka símsvörun í síma 1779 til að fá
upplýsingar um færð og veður. Á jóladags-
morgun og á nýársdagsmorgun verða settar
inn nýjar upplýsingar um ástand og færð á
helstu leiðum. Þær upplýsingar munu jafnvel
miðast við mat á aðstæðum sem gert er fjarri
vettvangi, nema á Reykjanesi þar sem þjón-
ustuvakt er allan sólarhringinn.
Vetur konungur hefur sett mark sitt á Selja-
landsfoss, sem þykir vera á meðal fallegustu
fossa landsins og hefur þá sérstöðu að hægt er
að ganga á bakvið fossinn. Í frostinu verða til
síbreytilegar kynjamyndir úr fossúðanum þar
sem Seljalandsáin steypist fram af um 60
metra hárri klettabrún, sunnan Hamragarða
undir Eyjafjöllum.
Slæmt veðurútlit um jólin
Gleðileg jól
Morgunblaðið/RAX
Í LJÓS hefur komið að Úkraínumaðurinn
ungi sem vísað var úr landi fyrr í vetur
hafði á sér heróínsprautu og skeið til
blöndunar heróíns. Þegar hann var settur
í hálfs sólarhrings varðhald rétt fyrir
brottvísunina voru þessi áhöld tekin af
honum og send í greiningu enda vissi lög-
reglan ekki hvað um var að ræða. Eftir að
maðurinn var farinn og niðurstaða grein-
ingar lá fyrir kom í ljós að heróínleifar
höfðu fundist á áhöldunum. Smári Sig-
urðsson aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá al-
þjóðadeild ríkislögreglustjóra staðfestir
þetta við Morgunblaðið en tekur fram að
brottvísunin tengist á engan hátt þessu at-
riði. Byggt er á niðurstöðu greiningar
tæknideildar lögreglunnar í Reykjavík og
hefur málið verið skráð í málaskrá lög-
reglu. Ekki er hægt að segja til um hvort
þetta muni hafa áhrif á afgreiðslu um-
sóknar mannsins um dvalarleyfi hérlendis
óski hann að sækja um síðar.
Ásgeir Karlsson aðstoðaryfirlögreglu-
þjónn hjá fíkniefnadeild kannast ekki við
málið og segir það heyra til algerra und-
antekninga að heróín finnist hér á landi. Í
þau örfáu skipti sem heróín hefur fundist
hefur magnið verið afskaplega lítið og
hafa Íslendingar ekki verið tengdir mál-
unum.
Með heróín-
sprautu á sér
við handtöku
UM 2.000 fulltrúar erlendra samtaka munu
fylgjast með forsetakosningunum í Úkr-
aínu á annan í jólum auk um 10.000 úkr-
aínskra eftirlitsmanna. Birt var skoðana-
könnun á vegum félagsfræðimiðstöðvar
Úkraínu í gær og sögðust 51% aðspurðra
ætla að kjósa stjórnarandstæðinginn Vikt-
or Jústsjenko en 37% keppinaut hans, Vikt-
or Janúkovítsj forsætisráðherra. Hinir
neituðu að svara eða höfðu ekki ákveðið sig.
Öryggis- og samvinnustofnun Evrópu,
ÖSE, er með um þúsund eftirlitsmenn í
landinu. Urður Gunnarsdóttir, starfsmaður
ÖSE, er í Kíev. Hún var spurð hvort talið
væri að búið væri að gera nægilega miklar
breytingar til að tryggja að kosningarnar
færu að þessu sinni vel fram.
„Við getum bara sagt að við vonum að
þær fari betur fram. Breytingarnar sem
gerðar hafa verið á kosningalögunum eru
jákvætt skref, gerðar hafa verið heiðarleg-
ar tilraunir til að bæta ástandið. En þær
einar og sér eru ekki nóg, viljinn til að halda
frjálsar og lýðræðislegar kosningar verður
að vera fyrir hendi á öllum stigum. Skila-
boðin verða að ná til allra sem vinna við
kosningarnar, á öllum kjörstöðunum sem
eru um 33 þúsund,“ sagði Urður.
Jústsjenkó
spáð sigri
Ungir stuðningsmenn Viktors Jústsjenkós
á útifundi í höfuðborginni Kíev.
Kíev. AFP.