Morgunblaðið - 24.12.2004, Blaðsíða 10
10 FÖSTUDAGUR 24. DESEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Gleðileg
jól
fréttir á mbl.is
ÞAÐ var glatt á hjalla á fyrsta jólaballi Rjóðurs, hjúkr-
unar-, hvíldar- og endurhæfingarheimilis fyrir lang-
veik og langveik fötluð börn. Jólaballið var haldið í
Hjallakirkju og allir voru að í sínu fínasta pússi.
Morgunblaðið/Árni Torfason
Jólagleði
Hagstofan tekur við verkefn-
um Kjararannsóknarnefndar
KJARARANNSÓKNARNEFND
og Hagstofa Íslands hafa gert með
sér samstarfssamning um launa-
kannanir og aðrar vinnumarkaðs-
rannsóknir. Frá og með áramótum
verður launakönnun Kjararann-
sóknarnefndar framkvæmd af Hag-
stofu Íslands og hættir nefndin skrif-
stofurekstri frá þeim tíma.
Fram kemur í tilkynningu um
þessa breytingu að markmið samn-
ingsins sé að auka skilvirkni þannig
að þekking og fjármunir sem veitt sé
til hagskýrslugerðar á sviði vinnu-
markaðar nýtist sem best og að töl-
fræðilegar upplýsingar um laun,
launakostnað og vinnutíma nái sem
fyrst til allra helstu atvinnugreina og
starfsgreina á vinnumarkaðnum.
Kjararannsóknarnefnd er sam-
starfsvettvangur Alþýðusambands
Íslands og Samtaka atvinnulífsins
um launakannanir á samningssviði
samtakanna. Nefndin hefur staðið að
gerð launakannana á almennum
vinnumarkaði frá árinu 1963. Kjara-
rannsóknarnefnd mun starfa áfram
sem verkkaupi og stefnumarkandi
samstarfsvettvangur aðila vinnu-
markaðarins gagnvart Hagstofu Ís-
lands. Sérstök ráðgjafarnefnd sér-
fræðinga Alþýðusambands Íslands
og Samtaka atvinnulífsins mun
starfa með Hagstofunni. Ráðgjafar-
nefndinni er ætlað það hlutverk að
fylgjast með framkvæmd samnings-
ins og vera Hagstofunni til ráðgjafar
um gerð vinnumarkaðsrannsókna,
einkum launakannana.
Mikil umferð við kirkjugarðana
Á AÐFANGADAG skapast oft mikil
umferð við kirkjugarða og þá sér-
staklega Fossvogskirkjugarð og
Gufuneskirkjugarð í Reykjavík.
Samkvæmt upplýsingum frá Um-
ferðarstofu hafa verið gerðar sér-
stakar ráðstafanir til að greiða sem
mest fyrir umferð þannig að ein leið
sé virk að görðunum og önnur leið
frá þeim.
Einstefna við
Gufuneskirkjugarðinn
Þeir sem þurfa ekki að fara nauð-
synlega um Bústaðaveg eru hvattir
til að velja sér aðrar leiðir. Þeir sem
eiga leið í Fossvogskirkjugarðinn
eru hvattir til að nota tvær leiðir frá
garðinum. Fyrir þá sem þurfa að
fara í Kópavog, Garðabæ eða Hafn-
arfjörð úr garðinum er bent á að fara
niður Suðurhlíðina sem liggur niður í
Fossvogsdalinn, framhjá Nesti og
þaðan inn á Kringlumýrarbrautina
til suðurs. Hinsvegar er hægt að fara
leiðina í gegnum Öskjuhlíðina og nið-
ur að Loftleiðahóteli og þaðan inn á
Bústaðaveginn. Umferð að garðin-
um fer hefðbundna leið um Bústaða-
veg og Suðurhlíð.
Þeir sem fara í Gufuneskirkju-
garðinn þurfa að hafa í huga að þar
verður einstefna í gegnum garðinn
þar sem farið verður inn frá Gagn-
vegi og umferð út úr garðinum ekur
út á Borgaveg.
Þeir ökumenn sem eiga leið út úr
Gufuneskirkjugarði eru hvattir til
þess að létta á umferð um Víkurveg.
Þetta er hægt að gera með því að
taka vinstri beygju út úr garðinum
inn á Borgaveg og aka síðan þann
veg áfram framhjá Spönginni og nið-
ur á Strandveg en þaðan liggur greið
leið inn á Gullinbrú.
Í NÝJASTA tölublaði Tíundar,
fréttablaði Ríkisskattstjóra, er vakin
athygli á því að velgengnin í rafvæð-
ingu skattkerfisins hérlendis hafi átt
sinn þátt í því að samnorrænn skatta-
vefur, sem opna á í maí 2005, verður
smíðaður hér á landi.
Að sögn Braga Haukssonar, deild-
arstjóra upplýsingatæknideildar rík-
isskattstjóra, hefur vefframtalið og
þjónustusíður ríkisskattstjóra vakið
talsverða athygli á þeim erlendu ráð-
stefnum þar sem þetta hefur verið
kynnt að undanförnu. „Þar hefur yf-
irleitt alls staðar komið fram að við
stöndum mjög framarlega á þessu
sviði. Ástæðu þess að okkur var falið
að smíða þennan samnorræna skatta-
vef má m.a. rekja til þess að þegar
verið var að ræða verkefnið í upphafi
drifum við í því að smíða prótótýpu af
svona skattavef í því skyni að gera
umræðuna bæði frjórri og markviss-
ari. Þessi sýnisvefur okkar féll hins
vegar í svo góðan jarðveg að mönnum
fannst tilvalið að við tækjum þetta
verkefni að okkur,“ segir Bragi, en að
skattavefnum samnorræna standa
skattayfirvöld allra Norðurlandanna.
Að mati Braga hjálpar það mikið
hversu stuttar allar boðleiðir eru hér-
lendis. „Ferlin hjá hinum þjóðunum
eru miklu lengri og þyngri, þannig að
þeir eiga kannski erfiðara með að
hafa þennan sama viðbragðsflýti og
við. Það kemur alls staðar í ljós að við
erum í raun að framkvæma hlutina í
kringum rafræna stjórnsýslu fyrir
brot af þeim peningum sem menn eru
að nota í þetta erlendis þar sem menn
eru samt kannski að ná lakari ár-
angri.“ Spurður hvað valdi því segir
Bragi Íslendinga oft hafa neyðst til að
gera hlutina með hagkvæmari hætti
ef yfir höfuð á að vera hægt að koma
þeim í framkvæmd.
Aðspurður segist Bragi sjá fyrir
sér að til að byrja með verði samnor-
ræni skattavefurinn fyrst og fremst
upplýsingavefur, en að fljótlega verði
hann þróaður í gagnvirkari átt þannig
að notendur eigi t.d. kost á að senda
inn fyrirspurnir til nokkurs konar
sýndarskattstofu. Meðal þess sem
verður að finna á vefnum þegar hann
verður opnaður í maí næstkomandi
verða skattaupplýsingar er gagnast
einstaklingum er eiga hagsmuna að
gæta í fleiru en einu Norðurlandanna,
t.d. einstaklinga sem búa í einu landi
en vinna í öðru eða búa í einu landi en
fá greiddan lífeyri í öðru landi eða
eiga fasteign í öðru landi. Að sögn
Braga verður allt efni á vefnum um al-
geng álitamál aðgengilegt á öllum
Norðurlandatungumálunum.
Nýr samnorrænn skatta-
vefur smíðaður hérlendis