Morgunblaðið - 24.12.2004, Blaðsíða 58
58 FÖSTUDAGUR 24. DESEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
MENNING
Strengjakvartettinn amina(nafnið er ritað með litlumstaf) var stofnaður sumarið
1998, þá sem Anima. Meðlimir hitt-
ust upprunalega þegar þeir námu
við strengjadeild Tónlistarskólans í
Reykjavík en kvartettinn starfaði
þetta sumarið á vegum Hins húss-
ins. Fljótlega eftir það fór amina að
starfa með hin-
um og þessum
hljómsveitum
og aðstoðaði
m.a. Sigur Rós
á sögulegum
útgáfutónleikum Ágætis byrjunar í
Íslensku óperunni sumarið 1999.
Síðan þá hefur amina átt í sam-
starfi við Sigur Rós, bæði varðandi
tónleika og plötuupptökur. Alla tíð
hefur amina þó verið rekinn sem
sjálfstæð sveit og hafa meðlimir að
undanförnu lýst þeirri löngun sinni
til að stíga fram með eigin tónlist.
Sú löngun er nú komin í fast form, í
líki hinnar fjögurra laga Animam-
ina sem kvartettinn gefur sjálfur
út. Tónlistin á plötunni er áferðar-
falleg og sveimkennd, minnir vissu-
lega – og eðlilega – á ýmsa þætti í
tónlist Sigur Rósar en býr um leið
yfir eigin „karakter“ þar sem lág-
værar, minimalískar stemmur eru
einkennandi. Hljóðgjafar eru
margir og mismunandi og á stund-
um nokk sérstæðir.
Kvartettinn skipa þær Edda RúnÓlafsdóttir, Hildur Ársæls-
dóttir, María Huld Markan Sigfús-
dóttir og Sólrún Sumarliðadóttir.
Meðlimir kvartettsins eru nú bú-
settir í þremur löndum; á Íslandi, í
Bretlandi og í Danmörku og allir
eru liðsmenn í námi. Allir voru þeir
þó staddir hérlendis í sumar og þar
sem engin tónleikaferð með Sigur
Rós var í farvatninu var stokkið á
tækifærið og platan kláruð.
Í samtali sem blaðamaður átti við
Eddu kemur fram að tónlistin sem
prýðir Animamina hafi komið mjög
áreynslulaust, ekki hafi verið lagt
upp með neina sérstaka stefnu.
„Platan varð til upp úr engu svo
að segja. Við byrjuðum að vinna
hana í Hollandi þar sem við hitt-
umst eina helgi. Þar byrjuðum við
að fikra okkur áfram með hörpu,
tölvu og strengjum.“
Það er list að samræma vélræna
og lífræna þætti svo vel sé (þ.e.
tölvur og lifandi hljóðfæraleik) en
sá samsláttur gengur snurðulaust
upp í tilfelli aminu.
„Eins og með tónlistina þá kom
það líka einhvern veginn af sjálfu
sér,“ segir Edda aðspurð. „María
er í Listaháskólanum og er að læra
m.a. að nota tölvur við tónlistar-
vinnu. Við höfum þó allar verið að
fikta við slíkt og höfum mikinn
áhuga á að æfa okkur meira í
þessu.“
Edda segir að það hafi lengi
staðið til að amina myndi stíga
fram ein og sér og segir það á
ákveðinn hátt létti að finna að þær
gætu það.
„Strákarnir í Sigur Rós hjálpuðu
okkur mikið, studdu okkur og full-
vissuðu okkur um að þetta væri
mögulegt. Samstarfið hjá okkur
fjórum gengur alveg ótrúlega vel
og það hjálpaði eðlilega mikið
líka.“
Meðlimir aminu tóku snemma þá
ákvörðun að þrátt fyrir klassískt
nám myndu þeir ekki fara hina
„hefðbundnu“ leið að námi loknu.
„Sá kafli í okkar ferli er einfald-
lega búinn og við höfum hreinlega
ekki áhuga á að fara þá leið,“ segir
Edda.
Animamina var tekin upp umvíðan völl ef svo má segja, í
Hollandi, á Kolstöðum í Borgar-
firði, á Sólvallagötu og svo í Sund-
lauginni, hljóðveri Sigur Rósar í
Mosfellsbæ.
Edda segir það meiriháttar
reynslu að hafa flengst þvert og
endilangt um hnöttinn með Sigur
Rós og segir hlæjandi að þær stúlk-
urnar séu svo gott sem orðnar háð-
ar því.
„Það er a.m.k. eitthvað sem okk-
ur langar til að gera meira af. Við
spiluðum t.d. á raftónlistarhátíð-
inni Forma Nova í sumar og það
gekk vel. Við unnum efnið þremur
vikum fyrir hátíð í nettu stresskasti
en það gekk svo alveg ótrúlega vel
– gekk einhvern veginn alveg upp.“
Edda segir að lokum að til standi
í nánustu framtíð að fylgja Anim-
aminu eftir með breiðskífu.
Það eru 12 tónar sem dreifa plöt-
unni og einnig er hægt að nálgast
hana í gegnum vefverslun Sigur
Rósar (www.sigur-ros.co.uk). Plöt-
unni verður einnig dreift í Bret-
landi og í febrúar á næsta ári verð-
ur hún gefin út í Bandaríkjunum af
útgáfufyrirtækinu The Workers-
Institute.
Frekari upplýsingar er að finna
á www.aminamusik.com.
Strokkvartett
stígur fram
’Meðlimir aminu tókusnemma þá ákvörðun að
þrátt fyrir klassískt
nám myndu þeir ekki
fara hina „hefðbundnu“
leið að námi loknu.‘AF LISTUM
Arnar Eggert
Thoroddsen
arnart@mbl.is
Stúlkurnar sem skipa aminu eru allar í námi sem stendur en nýttu tækifær-
ið í sumar, þegar þær voru allar á landinu, til að klára sína fyrstu plötu.
Kvikmyndaleikstjórinn MichaelMoore er með mörg járn í eld-
inum þessa dagana. Í nýrri mynd
sem hann er að gera og nefnist
Sicko, gagnrýnir hann heilbrigðis-
iðnaðinn í Banda-
ríkjunum og þá
vinnur hann einn-
ig að gerð fram-
haldsmyndar
vegna verðlauna-
myndarinnar
Fahrenheit 9/11.
Myndin sem köll-
uð er Fahrenheit
9/11 1/2 mun
fjalla um annað kjörtímabil George
W. Bush, Bandaríkjaforseta.
Í Sicko hyggst Moore meðal ann-
ars draga fram í dagsljósið svik
bandarískra sjúkratryggingafélaga
og fjalla um bandarísk lyfjafyrir-
tæki en myndin verður að öllum lík-
indum frumsýnd árið 2006. Segir
hann að bandaríska heilbrigðis-
kerfið sé „verra en það er í mörgum
miklu fátækari ríkjum“ og þar gildi
að fáir hagnist á kostnað fjöldans.
Sex lyfjafyrirtæki hafa nú sent
starfsfólki sínu aðvörun, þar sem því
er uppálagt að fylgjast með því
hvort að Moore sé að sniglast í
kringum útsölustaðina en innanbúð-
armenn þar eru hræddir um Moore
muni gabba fólk í viðtöl. Talsmaður
eins þeirra, Pfizer Global Research
and Development, sagði að starfs-
fólki þar hefði verið bent á að vara
sig ef það sæi „druslulegan mann
með derhúfu“ skyldi það fara gæti-
lega.
Um Fahrenheit 9/11 1/2 segir
Moore: „Slæmt framhald í einu máli
verðskuldar gott framhald í öðru.
Hvernig myndin verður fer eftir því
hvað aðalleikaranum mínum dettur í
hug að gera.“
Fólk folk@mbl.is