Morgunblaðið - 24.12.2004, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. DESEMBER 2004 51
MENNING
Félagsstarf
Bólstaðarhlíð 43 | Félags- og þjón-
ustumiðstöðin Bólstaðarhlíð 43 ósk-
ar öllum velunnurum gleðilegra jóla
og heillaríks komandi árs. Hittumst
kát á nýju ári.
Félag eldri borgara, Reykjavík |
Skrifstofa FEB verður lokuð 27. og
28. desember, en opin 29. og 30.
desember frá kl. 10 til 15. Félag eldri
borgara óskar landsmönnum öllum
gleðilegra jóla og farsældar á nýju
ári.
GA-fundir (Gamblers Anonymous) |
Fundir fyrir spilafíkla eru alla föstu-
daga í Laugarneskirkju, safn-
aðarheimilinu, kl. 20. Allir velkomnir.
Vel er tekið á móti nýliðum.
Norðurbrún 1. | Starfsfólk Norður-
brúnar 1 sendir íbúum og gestum
hugheilar jólakveðjur.
Kirkjustarf
Breiðabólstaðarkirkja | Að-
fangadagur jóla: Aftansöngur kl.
15.30. Miðnætursöngur kl. 23.30.
Eyvindarhólakirkja | Guðsþjónusta
jóladag, 25. desember, kl. 13.
Hvammstangakirkja | Aðfangadagur:
Aftansöngur kl. 18.
Kirkjuhvammskirkja | Jólanótt: Mið-
næturmessa kl. 23.30.
Kapella Sjúkrahúss Hvammstanga |
Jóladagur: Hátíðarmessa kl. 11.
Tjarnarkirkja | Jóladagur: Hátíð-
armessa kl. 14.
Kirkjuhvoll | Jóladagur: Hátíðarhelg-
istund kl. 11.
Kristniboðssambandið | Kristniboðs-
sambandið þiggur með þökkum um-
slög og frímerki af jólapóstinum. Þau
eru seld til ágóða fyrir kristniboðs-
og hjálparstarf í Afríku. Móttaka er
við sölubás Kristniboðssambandsins
á 2. hæð Kringlunnar, í húsi KFUM og
K á Holtavegi 28 og Glerárgötu 1 á
Akureyri, svo og í sumum kirkjum.
Skarðskirkja | Hátíðarguðsþjónusta
26. des. (2. jóladag) kl. 14.00. Sókn-
arprestur.
Stóra-Dalskirkja | Aðfangadagur:
Hátíðarguðsþjónusta kl. 21.
Staðurogstund
http://www.mbl.is/sos
Falleg og stór 2ja herbergja íbúð með frábæru útsýni og sérinngangi af svölum. Gólfefni á íbúð eru
flísar, dúkur og parket. Húsið er klætt að utan og búið að taka það í gegn. Íbúðin er 74,6 fm. Ásett
verð 11,4 milljónir.
Nýbyggingar
Hæðir
Einbýli
2ja herb.
VIÐ ELLIÐAVATN - MEÐ SÉRINNGANGI - 4RA HÆÐA LYFTUHÚS - GLÆSILEGAR ÍBÚÐIR
MEÐ BÍLSKÝLI
Erum með í sölu íbúðir í lyftuhúsi með sérinngangi við Álfkonuhvarfi í Kópavogi. Íbúðirnar afhend-
ast fullbúnar án gólfefna, en flísalagt er á baði og í þvottahúsi. Val verður um glæsilegar innrétting-
ar, hurðir og flísar. Stæði í bílageymslu fylgir öllum íbúðum. Innangegnt er í bílageymslu úr húsinu.
Húsið afhendist fullbúið að utan og lóð frágengin. FRÁBÆRT ÚTSÝNI YFIR ELLIÐAVATN, BLÁ-
FJÖLLIN OG HEIÐMÖRK. STUTT Í LEIKSKÓLA OG SKÓLA. Verð á 3ja herbergja 96 fm íbúð-
um með bílskýli er 17,7 milljónir.
ÁLFKONUHVARF 19-21 - 203 KÓPAVOGI
Vorum að fá í einkasölu stórglæsilegar sérhæðir með sérinngangi í 6 íbúða húsi við Fannahvarf á
Vatnsenda. Í boði eru 3ja og 4ra herbergja íbúðir með frábæru útsýni yfir Elliðavatn, Heiðmörk og í
átt að Bláfjöllum og Esjunni. Íbúðirnar afhendast fullbúnar án gólfefna, þó er baðherbergið flísalagt
í hólf og gólf og í þvottaherbergi eru flísar á gólfi. Eldhúsinnréttingar eru frá AXIS og ná þær upp í
loft, bakaraofn er í innréttingu, keramik helluborð og háfur yfir eldavél, öll tæki eru úr stáli. Baðher-
bergið er með baðkari eða sturtu, vegghengt salerni með kassa inn í vegg. Fataskápar eru í her-
bergjum og eru þeir frá AXIS. Staðsetningin á þessari eign er frábær, stutt er í væntanlegan skóla
og þurfa börnin ekki að fara yfir umferðargötu til að komast í skólann. Fyrir þá sem hafa gaman af
útiveru og veiðum er þetta einstök staðsetning, stutt er í vatnið og margar gönguleiðir inn með því
og auðvellt er að ganga út í Heiðmörk.
Verð á íbúðum: 3ja herbergja seld
4ra herbergja 21.800.000 - 23.500.000
FANNAHVARF - VATNSENDA
HÁBERG - 111 REYKJAVÍK
Vorum að taka í einkasölu einbýlishús á einni
hæð á stórri lóð með möguleika á 60 fm hesthúsi
við húsið. Um er að ræða 265 fm hús sem stað-
sett er á frábærum stað í götunni. Húsið skilast
fullbúið að utan en fokhelt að innan. Allar nánari
upplýsingar er hægt að fá á skrifstofu okkar í
Skeifunni 11. Ásett verð 35,9 millj.
EINBÝLISHÚS VIÐ ENNISHVARF
Á VATNSENDA
Starfsfólk fasteignasölunnar Kletts
óskar viðskiptamönnum sínum og
landsmönnum öllum gleðilegra jóla.
Þökkum ánægjuleg
viðskipti á árinu sem er að líða.
NÝTT
Suðurlandsbraut 4a • 108 Rvk. • Fax 533 4811 • midborg@midborg.is
533 4800
Björn Þorri hdl., lögg. fastsali, Karl Georg hrl., lögg. fastsali.
Miðborg óskar
viðskiptavinum
sínum gleðilegra jóla
og farsældar
á nýju ári
og þakkar
viðskiptin
á árinu.
Laugavegur 182 • 105 Rvík • Fax 53 4811 • i r idborg.is
ÚT er komin fjórða bókin í fimm
bóka flokki Madonnu. Nefnist hún
Abdí og hálsmen drottningar. Ma-
donna gefur allan
ágóða af barnabókum
sínum til stofnunar sem
nefnist Spirituality for
Kids Foundation. Sam-
tökin voru stofnuð fyrir
um áratug og byggjast
á alls kyns námskeiðum
fyrir börn sem miða að
því að auðvelda þeim að
finna lífsfyllingu. Tveir
skólar eru starfandi
sem byggja á Spiritual-
ity for Kids og kabbala-
fræðum, í New York og
Los Angeles. Madonna
virðist sjálf hafa fundið
lífsgleðina í þessum
fræðum og vill miðla henni til ann-
arra. Efni bóka hennar byggir einn-
ig á viðfangsefnum fræðanna, þann-
ig fjallar bókin um Ensku rósirnar
t.a.m. um vináttuna. Abdí og háls-
menið segir frá litlum dreng sem
stendur frammi fyrir að því er virð-
ist óleysanlegu verkefni. Honum er
sagt að taka því með æðruleysi og að
jafnan sé að finna einhvern tilgang í
öllum þeim þrautum sem lífið leggi á
okkur. Þetta reynast orð að sönnu
og einnig kemur fram í sögunni að á
einhvern furðulegan hátt fái þeir fá-
vísu og gráðugu einnig makleg mála-
gjöld. Þetta er skemmtileg saga og
næstum óþarfi að taka fram að þýð-
ing Silju Aðalsteinsdóttur er að
sjálfsögðu lipur og lýtalaus. Mynd-
skreytingarnar eru síðan kafli út af
fyrir sig, þvílíkt listaverk sem þær
eru. Þar skapa þau
Olga Dugina og Andr-
ej Dugin ótrúlega
sterkan og lifandi
heim, svo draum-
kenndan að furðu sæt-
ir. Ýkjustíll og sér-
kennileg birta eiga þar
stærstan þátt, en það
er líkast því að Abdí
ferðist undir vatni þar
sem engir skuggar eru
ráðandi. Þetta er ein-
staklega falleg bók og
frábært að sjá hversu
sterkan heim texti og
myndir geta skapað
saman þegar vel er
gert. Ég gæti trúað því að ævintýrið
um Abdí byggist á gamalli sögu úr
kabbalafræðum, án þess að þekkja
þau sérstaklega, en hér birtist hún í
aðgengilegum búningi fyrir börn á
öllum aldri. Það er óhætt að mæla
með bókum Madonnu, sem virðist
afar einlæg í að miðla fornri visku og
lífsspeki til barna um heim allan og
tekst það án efa með ágætum.
Andleg leiðsögn
í ævintýrabúningi
BÆKUR
Barnabók
Eftir Madonnu, Silja Aðalsteinsdóttir
þýddi. Olga Dugina og Andrej Dugin
myndskreyttu. Mál og menning 2004.
Abdí og hálsmen drottningar
Ragna Sigurðardóttir
Madonna
Skáldið sem sólin kyssti. Ævisaga
Guðmundar Böðvarssonar, eftir Silju
Aðalsteinsdóttur er komin út í kilju.
Guðmundur Böðvarsson skáld og
bóndi á Kirkjubóli í Hvítársíðu, hefur
verið kallaður eitt af ævintýrum í ís-
lenskri bókmenntasögu, svo óvænt-
an og heillandi hljóm sló hann strax í
fyrstu ljóðabók sinni, Kyssti mig sól.
Heimamenntaður en þó heimsborgari
í hugsun og formi.
Í þessari bók er þetta ævintýri rak-
ið: fátækur sveitastrákur, alinn upp
hjá vandalausum eftir tíu ára aldur,
verður skáld í fremstu röð. Hann var
óþreytandi að hlusta, lesa og skrifa,
horfði næmum augum á umhverfi sitt,
jafnt litríkan blómgróður sem gróð-
urlitlar auðnir hálendisins, og því sem
hann sá skilaði hann í ljóðum.
Skáldið sem sólin kyssti er skráð af
Silju Aðalsteinsdóttur bókmennta-
fræðingi og prýdd fjölda mynda. Silja
hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin
fyrir bókina árið 1994.
Útgefandi er Mál og menning. Bók-
in er 470 bls. Verð kr. 1.999.
Ævisaga
Úrslitin úr
ítalska boltanum
beint í
símann þinn
DILBERT
mbl.is