Morgunblaðið - 24.12.2004, Blaðsíða 57

Morgunblaðið - 24.12.2004, Blaðsíða 57
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. DESEMBER 2004 57 HIÐ MARGFRÆGA diskókvöld Margeirs Ingólfssonar verður haldið á Bar Bianco á sunnudags- kvöldið, annan í jólum, en Morg- unblaðið var svo heppið að ná tali af þessum diskókóngi Íslands. Hvernig er að vera diskókóng- ur Íslands? Ísland er aðeins lítill punktur á korti, sem skiptir í sjálfu sér engu máli. Það er nauð- synlegt að sjá heildarmyndina og þess vegna verðum við að taka Færeyjar með. En mér finnst mjög gott að koma hingað á klak- ann allavega einu sinni á ári og gleðja þessa litlu álfa sem búa hér. Og þessum greyjum þykir svo vænt um mann líka. Rifjar þú oft upp góðu gömlu dagana á Stud- io 54? Nostalgía er stórlega ofmetið fyrirbæri – hún er allavega ekki það sem hún var hér áð- ur fyrr. Ég er með heilan stafla af National Enquirer blöðum á klósettinu sem ég rúlla í gegnum þegar ég er í nostalgíukasti. Studio 54 breytti samt lífi mínu. Ég var eitthvað búinn að vera að vesenast í tónlist í gegnum tíðina, en ég vissi aldrei almennilega hvað ég ætti að leggja fyrir mig. Mamma sagði alltaf: „Það skiptir ekki máli hvað þú gerir – bara að þú lítir vel út þegar þú gerir það,“ og í fyrsta skipti þegar ég steig inn í diskóbúrið á Studio 54 vissi ég að þarna væri ég búinn að finna eitthvert lífsviðurværi sem myndi gera mömmu glaða.“ Hefurðu ennþá samband við Lizu Minnelli, John Travolta, Cher og þetta gengi? John hefur alla tíð verið ósáttur við það að falla í skuggann af mér. Hann er náttúrlega bara dansari sem slysaðist til að fá einhverja smáathygli – hins vegar verðskuldaði ég alla þá athygli sem ég hef fengið í gegnum tíðina. Ég hef heyrt að hann stoppi reglulega hér við á stóru þotunni sinni og reyni að leita mig uppi. Það var gaman að honum á sínum tíma en sumir skilja bara ekki þegar kominn er tími á þá. Það má segja að við Liza höfum þroskast sitt í hvora áttina. Ég sendi henni samt ennþá jólakort og mér þykir ótrúlega vænt um hana. Cher er ennþá inni í lífi mínu, eða réttara sagt lögfræðingar hennar og af skiljanlegum ástæðum get ég ekki tjáð mig meira um málið að svo stöddu. Þið verðið bara að kaupa bók- ina. Annars hef ég ekkert gaman af þessu liði lengur – það sötrar bara sódavatn og bablar eitthvað um Kabballah. Alveg glatað. Býr diskóið í hjartanu? Grúvið er í hjartanu, diskóið býr í buxunum. Hvernig verður stemningin á þessu aðal diskókvöldi ársins? Ætli þetta verði ekki bara þetta hefðbundna – dýfingar fram úr diskóbúri (svokallaðar „stage dives“), sprengingar, fá- klætt fólk og annað þess háttar. Það stefnir allt í stórkostlega skemmtun að erlendri fyrir- mynd – níunda árið í röð. Tónlist | Hið árlega diskókvöld Margeirs annan í jólum Margeir hefur sérstaklega heillandi sviðs- framkomu og er með réttu taktana. Hvar: Bar Bianco við Hverfisgötu. Hvenær: Sun. 26/12. Opið: 20–03. Miðaverð: 1.500 kr. Margeir og Cher. Diskóið er í buxunum RITHÖFUNDURINN J.K. Rowl- ing er búinn að skrifa sjöttu bókina um Harry Potter og verður útgáfu- dagur hennar 16. júlí á næsta ári. Ber bókin nafnið Harry Potter og hálfi prinsinn, að því er fram kemur á fréttavef BBC. Upphaflega ætlaði Rowling að til- kynna á jóladag hvenær bókin kem- ur út en ákvað að flýta því um nokkra daga. Sagðist hún viss um að þeir sem halda jól hefðu nóg annað að gera en að pæla í hvenær bókin kemur út og þeir sem ekki haldi jól nenni varla að bíða svo lengi. Rowling segist hafa haft nógan tíma til að betrumbæta handritið þar til hún var fullkomlega ánægð þar sem hún er ófrísk. Hún eign- aðist annað barn sitt 2003 og á von á hinu þriðja á næsta ári. Hún segist afar ánægð með nýju bókina. Hún hefur þegar gefið upp að ein- hver sögupersóna verði drepin í bókinni en vill ekki segja hver það er. Það eina sem Rowling hefur sagt um söguþráð nýju bókarinnar er að „hálfi prinsinn“ sé hvorki Harry sjálfur né hinn illi Voldemort. Síðasta bókin um Potter hét Harry Potter og Fönixreglan og kom út í júní árið 2003. Fimm millj- ónir eintaka seldust af henni á fyrsta sólarhringnum eftir að hún kom út. Snæbjörn Arngrímsson hjá bóka- útgáfunni Bjarti segist búast við að bókin komi út á íslensku í lok októ- ber eða byrjun nóvember á næsta ári. „Við stefnum á 30. eða 31. októ- ber, það ætti að nást að þýða hana fyrir þann tíma. Það hefur að minnsta kosti tekist með fyrri bæk- urnar,“ sagði Snæbjörn. Enn er um það bil hálft ár þar til næsta bók um söguhetjuna Harry Potter verður gefin út, en hún er þegar komin efst á lista að minnsta kosti eins bóksala yfir þær bækur sem beðið er með mestri eftirvænt- ingu. Þá hafa mörg þúsund manns pantað eintak af bókinni, að því er bóksalar segja. Er hún í efsta sæti á lista Amazon.co.uk yfir 100 mest spennandi bækurnar og er búin að leggja að velli bækur á borð við Da Vinci-lykilinn eftir Dan Brown, sem selst hefur afar vel. Amazon sagði að pöntunum hefði rignt inn eftir að tilkynnt var um út- gáfudag bókarinnar. Bækur | Ný Harry Potter-bók kemur út næsta sumar Einhver verður drepinn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.