Morgunblaðið - 24.12.2004, Síða 16
16 FÖSTUDAGUR 24. DESEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Munið
að slökkva
á kertunum
❄
❄❄
❄
❄
❄
❄
Njótið hátíðar ljóss
og friðar, munið eftir
að slökkva á
kertaskreytingum.
Slökkvilið
Höfuðborgarsvæðisins
❄
❄
❄
❄
❄
❄
❄
MEGINMARKMIÐ uppreisnarmanna í Írak virðast ekki
aðeins felast í því að valda Bandaríkjaher skakkaföllum,
sem og írösku bráðabirgðastjórninni sem sumir tala um
sem leppstjórn Bandaríkjamanna. Markmið þeirra virðist
jafnframt vera að ýfa upp væringar milli súnníta og sjíta í
Írak í aðdraganda kosninga sem á að halda í landinu 30.
janúar nk. Og spurningin sem margir spyrja sig nú er
hversu lengi sjítar verða tilbúnir til að halda að sér hönd-
um eftir árásir eins og þær í Najaf og Karbala um síðustu
helgi, sem kostuðu á sjöunda tug sjíta lífið.
Lengi hefur verið rætt um það að hætta væri á því að til
borgarastríðs kæmi í Írak. Súnnítar réðu öllu í Írak í tíð
Saddams Husseins, jafnvel þó að þeir væru aðeins á bilinu
15–20% landsmanna (þar ræðir um arabíska súnníta,
meirihluti Kúrda í norðurhluta landsins eru hins vegar
einnig súnnítar). Sjítar réðu litlu, voru þó og eru um 60%
íbúa landsins.
Sjítar sjá fram á að eftir kosningarnar í janúar muni þeir
loks komast til valda í Írak – í krafti meirihluta síns – og
má ráða að þeim er mjög í mun að ekkert setji strik í reikn-
inginn hvað það varðar.
Leiðtogar þeirra hafa af þeim sökum m.a. hvatt trú-
bræður sína til að sýna stillingu, þrátt fyrir ítrekaðar árás-
ir gegn þeim sem sjítar sjálfir telja víst að róttækir súnn-
ítar – hinir svokölluðu uppreisnarmenn – standi fyrir.
Þetta telja sumir merki um pólitískan þroska sjíta, engum
blandast þó hugur um að róstusamt verður í Írak fram að
kosningum og eftir þær einnig. Kosningarnar munu ekki
breyta miklu hvað þau mál varðar, þær gætu aftur á móti
breytt hinu pólitíska landslagi eins og hér skal nú vikið að.
Sjítum fjarstýrt frá Teheran?
Ekki er víst að uppreisnarmenn í Írak séu allir af sama
uppruna eða tilheyri sama trúarhópi, hvað þá að þeir taki
allir við skipunum frá einhverjum einum foringja. Hitt
virðist þó óhætt að gefa sér, að meirihluti þeirra séu súnn-
ítar.
Margir þeirra á Vesturlöndum sem gagnrýna Banda-
ríkjamenn hvað harðast fyrir verk þeirra í Írak segja ekk-
ert að marka kosningar sem haldnar eru í skjóli hern-
aðarvalds þeirra. Hið sama segja
róttækir súnnítar og heita því raunar
að viðurkenna aldrei þá stjórn og það
þing sem kjörið verður.
Hitt er staðreynd að meirihluti sjíta
– en þeir eru, eins og áður sagði, meiri-
hluti íbúa landsins – vill kjósa og raun-
ar hefur Ali Sistani erkiklerkur, einn
áhrifamesti trúarleiðtogi sjíta í Írak
gefið út þau tilmæli að öllum góðum sjítum beri að mæta á
kjörstað. Og Sistani kom raunar beint að myndun kosn-
ingabandalagsins sem líklegt er að fái flesta menn kjörna á
þinginu.
Margir súnnítar óttast að kosningarnar í janúar verði til
þess að þeir sæti kúgun í framtíðinni. Hefur verið bent á í
því samhengi að mikilvægt sé að finna súnnítum hlutverk í
hinu nýja Írak; telji þeir ekki að þeir muni njóta sanngirni í
framtíðinni er það auðvitað til þess fallið að glæða uppreisn
þeirra enn meira lífi.
Sem fyrr segir hafa menn spurt hversu lengi sjítar muni
halda að sér höndum, í ljósi ítrekaðra árása gegn þeim.
Þrír áhrifamiklir sjíta-leiðtogar, þ.á m. klerkurinn
Moqtada al-Sadr, hafa yfir sínum eigin einkaher að ráða og
óttast menn að þeir muni um síðir bregðast við með ofbeldi
gegn súnnítum; minni líkur séu alltjent á því að þeir verði
tilbúnir til að veita þeim hlutdeild í stjórn landsins að lokn-
um kosningum.
Þá hefur komið fram að aukinnar róttækni gætir meðal
beggja hópa; í fréttaskýringu Anthonys Shadids í The
Washington Post á mánudag var t.d. fjallað um þann mál-
flutning sem væri uppi á borðum í moskum súnníta í
Bagdad annars vegar, og sjíta hins vegar.
Segir Shadid frá því, sem dæmi, að í Um al-Qura, mosku
í Bagdad sem Saddam lét byggja eftir Persaflóastríðið
fyrra, lýsi súnníta-klerkar því yfir að uppreisnarmenn séu
föðurlandshetjur sem verji land sitt gegn bandarísku inn-
rásarliði; á sama tíma fordæma sjíta-klerkarnir í Baratha-
moskunni þessa sömu uppreisnarmenn fyrir hið illa og til-
gangslausa ofbeldi sem þeir standi fyrir. Fullyrða þeir að í
liði uppreisnarmanna sé aðeins að finna fyrrum liðsfor-
ingja Saddams Husseins og svo erlenda bardagamenn al-
Qaeda.
Í Um al-Qura er Írökum sem vinna með Bandaríkja-
mönnum sendur tónninn, þeim sagt að feta annan slóða
eða mæta afleiðingunum ella.
Sjíta-klerkurinn Jalaledin Saghir hafi hins vegar for-
dæmt gjörðir uppreisnarmanna sem „hryðjuverk“ við at-
höfn í Baratha, sem örvæntingarfullar tilraunir til að koma
í veg fyrir að sjítar – sem sættu ofsóknum í tíð Saddams –
komist til valda.
Nokkur umræða hefur verið um það hvernig þingið
íraska verður mannað að loknum kosningum. Samkrull
helstu flokka sjíta – Íslamska byltingarráðið og Dawa-
flokkurinn hyggjast bjóða fram sameiginlegan framboðs-
lista og listinn nýtur stuðnings Sistanis erkiklerks – hefur
m.a. valdið því að menn velta fyrir sér hvort eins konar
klerkastjórn komist til valda í Írak að loknum kosningum,
jafnvel undir beinum áhrifum frá Íran. Er þá horft m.a. til
þess að efsti maður á hinum sameiginlega lista, Abdul Aziz
al-Hakim, var 25 ár í útlegð í Íran og hefur náin tengsl við
klerkastjórnina þar; auk þess er bent á að „guðfaðir“ kosn-
ingabandalagsins, Sistani, var fæddur í Íran.
Hinn umdeildi Ahmed Chalabi og flokkur hans, Íraska
þjóðarráðið, á einnig aðild að kosningabandalaginu og þess
er skemmst að minnast að Chalabi var fyrr á árinu sakaður
um að hafa lekið viðkvæmum upplýsingum til írönsku
stjórnarinnar.
Þykir sumum sennilegt að þessar staðreyndir veki óhug
meðal súnníta, þeim lítist ekki ýkja vel á að Íran seilist til
áhrifa í Írak; hafa ber í huga að Írak og
Íran tókust á í blóðugu stríði 1980–1988
og raunar má segja að í tíð Saddams
hafi Íran verið höfuðóvinur Íraka en
ekki Bandaríkin, a.m.k. framan af.
Varnarmálaráðherrann í írösku bráða-
birgðastjórninni, Hazem Shaalan, var
einmitt að spila á þennan ótta margra
Íraka nýverið þegar hann kvað stjórn-
völd í Teheran „hættulegasta óvin írösku þjóðarinnar“ og
„uppsprettu hryðjuverkaógnar“.
Shalan er hins vegar einn af fáum liðsmönnum bráða-
birgðastjórnarinnar írösku sem á sínum tíma tilheyrðu
Baath-flokki Saddams og ekki einu sinni Iyad Allawi, for-
sætisráðherra bráðabirgðastjórnarinnar, vildi taka undir
orð hans.
Sistani er af öðrum skóla
Engu að síður er ljóst að ýmsir gjalda varhug við þróun
mála og sannarlega væri það nú kaldhæðnislegt ef Banda-
ríkin hefðu steypt Saddam Hussein af stóli í Írak til þess
eins að stjórnin í Teheran kæmist til áhrifa í landinu – og til
að gæta samhengis er rétt að minna á að Íran er meðal
helstu óvina Bandaríkjastjórnar í heimi hér, tilheyrir því
sem Bush Bandaríkjaforseti kallaði á sínum tíma „öxul
hins illa“ (ásamt Írak í tíð Saddams og N-Kóreu).
Aðrir benda hins vegar á að hvað sem líður hugsanleg-
um tengslum við Íran þá muni það aldrei koma til að
Bagdad verði „fjarstýrt“ frá Teheran. Fyrir það fyrsta sé
Sistani erkiklerkur af öðrum skóla en klerkarnir í Íran,
hann telji ekki að trúarleiðtogar sjíta eigi að vasast í
stjórnmálum (líkt og þeir írönsku hafa gert allt frá bylting-
unni 1979). Þá séu íraskir sjítar arabar, ekki Persar (líkt og
Íranar), og að þeir séu mjög meðvitaðir um þann uppruna.
Er þetta t.a.m. mat Juans Cole, prófessors í sögu Mið-
Austurlanda við Michigan-háskóla. Eftir sem áður muni
trúarleiðtogar sjíta hafa mest áhrif á íraska þinginu, Allawi
og hans flokkur muni ekki fá mikið fylgi, hvað sem líður
væntingum Bandaríkjamanna í þá veru.
Hverju breyta
kosningar í Írak?
Fréttaskýring | Uppreisnarmenn í
Írak viðurkenna ekki lögmæti kosn-
inga sem haldnar eru í skjóli hern-
aðarvalds Bandaríkjamanna. Sjítar,
sem eru 60% landsmanna, vilja hins
vegar gjarnan fá að kjósa. Davíð Logi
Sigurðsson fjallar hér um samskipti
sjíta og súnníta og þingkosningarnar
sem fram undan eru í landinu.
Reuters
Kona gengur framhjá veggspjaldi í Bagdad þar sem
eldra fólk er hvatt til að mæta á kjörstað 30. janúar nk.
Meira á mbl.is/itarefni
david@mbl.is
’Margir súnnítar óttast að kosningarnar
í janúar verði til þess
að þeir sæti kúgun
í framtíðinni.‘