Morgunblaðið - 24.12.2004, Qupperneq 37
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. DESEMBER 2004 37
(1) Suður spilar
ÞRJÚ GRÖND
Norður
♠ÁK106
♥G6 S/NS
♦ÁG103
♣943
Suður
♠DG4
♥ÁD
♦542
♣KD652
Vestur Norður Austur Suður
– – – 1 lauf
Pass 1 spaði Pass 1 grand
Pass 3 grönd Allir pass
Útspil vesturs er hjartanía og suð-
ur fær fyrsta slaginn á drottninguna.
Hvernig er best að spila?
(2) Suður spilar
ÞRJÚ GRÖND
Norður
♠ÁK54
♥9852 S/Enginn
♦76
♣Á75
Suður
♠D63
♥ÁG3
♦ÁK843
♣G2
Vestur Norður Austur Suður
– – – 1 grand
Pass 2 lauf * Pass 2 tíglar *
Pass 3 grönd Allir pass
Vestur spilar út laufsexu, lítið úr
borði og austur á slaginn á drottn-
ingu. Austur heldur áfram með lauf-
ið, spilar níunni og vestur fylgir með
þristi. Sagnhafi dúkkar aftur, en fær
þriðja slaginn á laufás.
Hvernig er best að spila?
(3) Suður spilar
FJÓRA SPAÐA
Norður
♠107
♥Á9743 A/NS
♦ÁK4
♣G96
Suður
♠ÁDG9854
♥2
♦982
♣74
Vestur Norður Austur Suður
– – Pass 3 spaðar
Pass 4 spaðar Allir pass
Vestur leggur niður laufásinn í
byrjun, tekur svo kónginn og spilar
þriðja laufinu á drottningu austurs,
sem suður trompar.
Hvernig er best að spila?
(4) Suður spilar
SJÖ HJÖRTU
Norður
♠62
♥8 N/Allir
♦ÁD1063
♣ÁK843
Suður
♠Á73
♥ÁKDG102
♦K8
♣72
Vestur Norður Austur Suður
– 1 tígull Pass 2 hjörtu
Pass 3 lauf Pass 3 hjörtu
Pass 4 lauf Pass 4 grönd
Pass 5 hjörtu Pass 7 hjörtu
Pass Pass Pass
Útspil vesturs er spaðakóngur.
Hvernig er best að spila?
(5) Suður spilar
SEX GRÖND
Norður
♠Á3
♥ÁG1094 S/AV
♦1082
♣K52
Suður
♠KD7
♥K7
♦ÁKG93
♣ÁG9
Vestur
Norður Austur Suður
– – – 2 grönd
Pass 3 tíglar * Pass 3 hjörtu
Pass 4 grönd Pass 6 grönd
Pass Pass Pass
* yfirfærsla
Útspil vesturs er spaðagosi.
Hvernig er best að spila?
(6) Suður spilar
FIMM HJÖRTU
Norður
♠K4
♥D1083 S/Allir
♦ÁD82
♣1093
Suður
♠Á
♥ÁKG642
♦643
♣ÁG5
Vestur Norður Austur Suður
– – – 1 hjarta
2 spaðar 4 hjörtu 4 spaðar 5 hjörtu
Pass Pass Pass
Útspil vesturs er spaðadrottning.
Sagnhafi tekur hjartaás í öðrum slag
og báðir fylgja.
Hvernig er best að spila?
Morgunblaðið/Arnór
Svipmynd úr vetrarstarfinu. Norðlend-
ingar og Sunnlendingar takast á í deild-
arkeppni Bridssambandsins.
Guðm. Páll Arnarson
Jólaþrautir – vegir
liggja til allra átta
ÞAÐ er vandi að velja. Ekki bara jólagjafir, heldur hvað sem er.
Það eru örlög mannsins að sjá möguleika í öllum hornum og þurfa
sífellt að taka einn kost fram yfir annan, án þess að hafa alltaf
skotheld rök að styðjast við. Reynslan ræður för. Svona er það líka
við spilaborðið. Við sagnhafa blasir ákveðið verkefni – til dæmis að
taka níu slagi í þremur gröndum. Oft á hann tvo kosti, stundum
þrjá, jafnvel fleiri. Valkvíðinn læðist að – hvað er best að gera?
Þrautirnar sex sem hér fylgja á eftir eru þessu marki brenndar:
Fleiri en ein leið kemur alltaf til greina og vandinn er að velja þá
bestu. Svörin verða birt í sérstökum þætti á milli jóla og nýárs.
Góða skemmtun og gleðileg jól.
Landsliðsmál
kvenna
NÝLEGA voru skipuð í
landsliðsnefnd Gylfi Baldurs-
son formaður, Esther Jakobs-
dóttir og Valgerður Krist-
jónsdóttir. Þeirra hlutverk er
að standa að vali á landsliði til
farar á Norðurlandamót í
Danmörku í júlíbyrjun 2005.
Ákveðið hefur verið að spila
um landsliðssæti en 2 pör
verða send á mótið. Tilhögun
verður sú að nefndin ætlast til
þess að þau pör sem áhuga
hafa á því að skipa landsliðið
noti janúar og febrúar til hins
ýtrasta og spili a) Reykja-
víkurmót í sveitakeppni eða
annað svæðamót b) Bridshá-
tíð 18.–21. febrúar, a.m.k.
sveitakeppnina og c) Íslands-
mót kvenna í sveitakeppni
26.–27.febrúar.
5.–6.mars verður síðan
lokamót þar sem þeim
verður boðin þátttaka sem
bestan árangur og ástund-
un hafa sýnt í þessum mót-
um. Nánari tilhögun þessa
lokamóts verður kynnt síð-
ar.
Gleðileg jól
Umsjónarmenn
bridsþátta Mbl. óska
lesendum sínum sem og
öðrum landsmönnum
gleðilegra jóla og farsæls
komandi árs.
Við minnum á jólamót
sem haldin eru víðs vegar
um land milli jóla og nýárs
og reglulega spilamennsku í
bridsklúbbunum sem hefjast
strax eftir áramót.
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson