Morgunblaðið - 24.12.2004, Síða 41

Morgunblaðið - 24.12.2004, Síða 41
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. DESEMBER 2004 41 MINNINGAR HUGVEKJA Það var aðfangadagskvöld,langt í burtu héðan ítíma og rúmi. Hlý ogmjúk birtan féll út umglugga húsanna, og það var sungið. Og hlátur ómaði þegar jólapakkarnir voru opnaðir. En skósmiðurinn í þorpinu, hann Panov, var einn heima. Konan hans var dáin og börnin uppkomin og flogin úr hreiðrinu. Og þarna sat hann með Biblíuna í kjöltu sér og las jólaguðspjallið sér til huggunar og ánægju. Þarna var sagt frá þeim Jósef og Maríu, svöngum og lún- um, enda höfðu þau hvergi al- mennilegan stað til að hvílast á. „Ég hefði nú leyft þeim að gista hjá mér,“ hugsaði Panov. „Nóg er plássið í þessu húsi mínu.“ Og fjárhirðarnir! Já, og engl- arnir! Ekki mátti gleyma þeim. Eða vitringunum frá Austurlönd- um. Maður lifandi, hvílíkar gjafir sem þeir færðu! „Hvað ætli ég hefði komið með,“ velti Panov fyrir sér, og varð litið til kassa, sem blasti við í efstu hill- unni í skápnum. Í honum voru litlir skór. Hann hafði sjálfur búið þessa skó til endur fyrir löngu, þegar fingur hans voru liprir. En það var nú þá. „Já, ég hefði gefið skóna,“ hugs- aði Panov og brosti. „Þeir voru það besta sem ég nokkru sinni gerði.“ Ekki löngu síðar runnu gleraugun hægt á nefbroddinn og Panov féll í svefn. Hann svaf fast og dreymdi mik- ið. Þar liðu gleðirík aðfangadags- kvöld framhjá, eitt af öðru, sem hann og fjölskyldan höfðu átt sam- an. Tregi draumanna stigmagn- aðist og varð Panov ofraun, en þá sá hann allt í einu annað andlit, góðlegt og milt. „Ég er Jesús,“ var sagt. „Ég hef séð einsemd þína og sorg. Á þess- um jólum mun ég koma til þín, Panov!“ Gamli maðurinn hrökk upp. Morgunsólin skein í augu hans. Það var kominn jóladagur! Gengi draumurinn eftir, myndi Jesús koma til hans í dag! Panov fór að ræsta hús sitt, hit- aði því næst vatn og hellti upp á sterkt og gott kaffi. Hvað eftir ann- að varð honum litið út um glugg- ann, ef vera kynni að draumagest- inn færi nú að bera að garði. Þá sá hann skyndilega mann koma eftir götunni. Kannski var þetta Jesús, sem gekk þarna hægum skrefum. Með hirðisstaf. En, nei, þegar mað- urinn kom nær, sá Panov hver var þarna á ferð. Þetta var hann Serg- ei, götusópari þorpsins, með kúst- inn sinn. Hann átti aldrei frí. Panov opnaði dyrnar og kallaði til hans: „Mér sýnist þér vera kalt, vinur. Og það hlýtur að vera einmanalegt þarna úti á jóladagsmorgni. Komdu inn og fáðu þér kaffisopa.“ Hann flýtti sér til Panovs, dust- aði snjóinn af fötunum og nuddaði bláa fingurna. Skósmiðurinn rétti honum kaffifantinn. Og haldandi sjóðheitu ílátinu milli dofinna hand- anna lét götusóparinn notalegan strókinn leika um kalt andlit sitt. Sergei drakk kaffið hægt og naut þess. Panov ræddi við hann kurteislega, og sagði honum m.a. frá drauminum, en fylgdist þó grannt með umferðinni úti fyrir á sama tíma. „Ég vona að draumurinn ræt- ist,“ sagði götusóparinn að lokum. „En ég verð að halda áfram. Bestu þakkir fyrir kaffið og þægilegheit- in.“ Hann óskaði Panov innilega gleðilegra jóla. Síðan var hann rok- inn til vinnu sinnar. Tíminn leið. Ein stund. Tvær. Þrjár. Og líf færðist í götuna. Panov setti pott yfir eldinn og sauð kálsúpu. Hann sá nágrannana fara í heimsókn til ættingja og vina, en ekkert bólaði á Jesú. En þarna var ókunn stúlka á ferð, gekk hægt og bar eitthvað í fanginu. Hún var tötrum klædd og því skjálfandi í hinu mikla frosti. Panov opnaði aftur dyrnar hjá sér og kallaði. „Komdu inn, vina mín! Komdu og yljaðu þér!“ Og aftur var hellt upp á kaffi. Jafn- framt bað hann stúlkuna um að vera sem næst ofninum, og vildi taka það sem hún var með í fang- inu, til að létti henni byrðina, en hún lagði það fastar að sér en áður. Þá heyrðist skyndilega grátur. „Barnið mitt er svangt,“ hvíslaði móðirin unga. Panov brást skjótt við og hitaði mjólk. Stúlkan gaf barninu að drekka og tók ábreið- una utan af því. Panov sá að það var ekki í neinum skóm. Honum varð strax hugsað til litla kassans í efstu skáphillunni, teygði sig upp og náði í hann og rétti stúlkunni. „Ég get ekki tekið við þessu,“ sagði hún klökk. „Þeir eru allt of fallegir og ég á þetta ekki skilið.“ „Æi, gerðu það vegna barnsins,“ bað Panov. „Það eru nú einu sinni jólin.“ Þegar stúlkan var farin leit hann aftur út um gluggann. Það var byrjað að skyggja og enn bólaði ekkert á Jesú. En betlarar ráfuðu um götuna og væntu þess að ein- hver rétti að þeim smáglaðning. Og í þriðja sinn lauk Panov upp dyrum sínum. Hann átti jú þessa kálsúpu, sem líka var þegin með gleði og borðuð af hjartans lyst. Síðasti betlarinn yfirgaf húsið þegar myrkur var skollið á. Panov var orðinn þreyttur. Hann var enn daprari en kvöldið áður og hafði sjaldan verið jafn einmana og nú. Eflaust hafði þetta bara verið draumur, þarna nóttina áður. Ekk- ert annað. Það hlaut eiginlega að vera, úr því sem komið var. En á svipstundu fann Panov að hann var ekki einn. Hann leit upp og þarna var sama andlitið og fyrr. Jesús stóð í gættinni. „Þegar ég var hungraður, gafstu mér að borða,“ sagði hann. „Þegar kuldinn sótti að mér, bauðstu mér inn í hlýjuna. Og þegar ég var nak- inn, klæddirðu mig.“ „Ha?“ sagði Panov. „Hvenær gerði ég þetta?“ „Jú, þú bauðst götusóparanum inn til þín í kaffi. Og betlararnir fengu hjá þér mat. Og dýrmætustu skóna þína gafstu fátæku barni sem kuldinn næddi um. Í þessu öllu reyndist þú mér sem bróðir.“ Og Jesús brosti. „Gleðileg jól, Panov!“ sagði meistarinn að lokum og hvarf svo út í nóttina. Draumurinn sigurdur.aegisson@kirkjan.is Barnið, sem fæddist í gripa- húsi í litlu þorpi í Palestínu forðum daga og var lagt í jötu, óx síðan og dafnaði og varð fulltíða maður. Sigurður Ægisson endur- segir hér einhverja þekkt- ustu jólasögu allra tíma, sem einmitt minnir á hina oft gleymdu staðreynd. ✝ Ingi Vigfús Guð-mundsson fædd- ist á Selfossi 28. júlí 1957. Hann andaðist á heimili sínu 16. des- ember síðastliðinn. Foreldrar Inga voru Guðmundur Guðna- son, f. á Eyri við Reyðarfjörð 30.4. 1924, d. 18.1. 1995 og Fjóla Guðmunddóttir, f. á Hellissandi 21.7. 1929, d. 8.6. 1998. Systkini Inga Vigfús- ar eru: 1) Kristín Kol- brún, f. 14.10. 1948, maki Samúel Jóhann Guðmund- son. Þau eiga þrjú börn og fimm barnabörn. 2) Valey, f. 13.9. 1950, maki Svavar Valdimarsson. Þau eiga fjóra syni og fimm barnabörn. 3) Guðmundur, f. 24.3. 1954, maki Ólína Steinþórsdóttir. Þau eiga eina dóttur saman en áður átti Guðmundur tvo syni og Ólína tvö börn. Barnabörnin eru ell- efu. 4) Halldór, f. 29.11. 1955, sam- býliskona Inga Lúsía Þorsteinsdóttir. Þau eiga þrú börn saman en áður átti Halldór eina dóttur og á eitt barnabarn. 5) Guðni Þorberg, f. 15.5. 1960, d. 17.2. 1981. 6) Guðrún Unnur, f. 5.3. 1964, maki Guðjón Þór Gíslason og eiga þau tvær dætur. Ingi bjó á Selfossi til fjögurra ára aldurs en þá flutti fjölskyldan til Arnarbælis í Ölfusi. Er Ingi var tíu ára flutti hann á Kóbavogshæli og bjó þar til haustsins 2002 er hann flutti á sambýlið í Skagaseli 9 í Reykjavík. Útför Inga fór fram í kyrrþey. Elsku Ingi minn, nú ert þú farinn, ekki langt úr huga mínum, en til guðs. Ég veit að þar taka vel á móti þér pabbi, Guðni bróðir og mamma með sinn hlýja faðm. Þar mun þér líða vel eftir baráttu þína við krabbameinið. Þú varst yndislegt barn frá fyrstu tíð. Þó henti það að þú fékkst heilahimnu- bólgu aðeins níu mánaða gamall en það olli því að þú varst alltaf barn í huga. Kátur broshýr og pínulítið stríðinn strákur sem gaman var að passa. Þú varst með mikla bíladellu og þurftum við eldri systkinin að vera fljót að hlaupa til að ná þér ef bíll sást á ferð í sveitinni, því þú stökkst af stað um leið og þú sást þá á „horninu“ sem var um kílómetra að heiman. Þú varst lagviss og hafðir gaman af að syngja. Ég gleymi aldrei þegar Kolla systir, þá 17 ára bauð okkur í bíltúr. Í útvarpinu kom nýtt erlent dægurlag. Við sungum öll með en þú slóst okkur við og kunnir meira af textanum. Lík- amlega þroskaðist þú í mjög svo fal- legan mann, ekki eitt grátt hár í þínu þykka hári og drengjalegt brosið allt- af á sínum stað. Þú varst mjög kurteis og mikill sjarmör. Það var ekki leið- inlegt að fara með þér á kaffihús því þú heillaðir bæði starfsfólk og aðra gesti með heillandi brosi þínu og glað- legri kveðju. Að koma í heimsókn til þín, fá hlýtt faðmlag, koss á kinn og að sjálfsögðu spurninguna „í bíltúr?“ Það gleymist aldrei. Samferðafólk þitt eftir að þú fórst úr foreldrahúsum tíu ára gamall hef- ur reynst þér afskaplega vel, þvílík ást og umhyggja hjá fjölskyldu og vinum þar hlýtur að vera einstakt. Það sýndi sig best í útförinni þinni, Ingi minn, að þau elska þig öll. Fyrir það vil ég þakka. Elsku bróðir, kveð þig að sinni en minningarnar lifa. Þín systir Valey Guðmundsdóttir. Það er komið að kveðjustund. Í amstri jólaundirbúningsins kvaddi hann Ingi Vigfús þetta líf. Lífshlaup hans var hvorki einfalt né sársaukalaust, – og við spyrjum, hver er tilgangurinn? Hann fékk að fæðast heilbrigður, en strax á fyrsta ári breyttist allt. Veikindi sem síðar leiddu til andlegrar þroskahömlunar, eru okkur hinum óráðin gáta. Þrátt fyrir það átti Ingi líka góða tíma, því það þurfti svo lítið til að gleðja hann. Kaffihúsaferðir, súkkulaðikaka og „sígó“ var með því besta sem hann gat fengið, betra en gull og gersemar. Lengst af dvaldi Ingi á Kópavogshæl- inu þar sem starfsfólkið hlúði að hon- um af alúð og nærgætni. Fyrir tveimur árum flutti hann svo á sambýli að Skagaseli 9. Nú var hann ekki lengur á „stofnun,“ nú var hann kominn heim. En þá var eins og það væri honum of gott, því í vor greindist hann með krabbameinið, sem samfara lungnabólgu lagði þenn- an sterkbyggða dreng að velli. Það var aðdáunarvert að sjá hvað starfs- fólkið allt var honum einstaklega gott. Það var gott að finna hve mikil vinátta ríkti á milli hans og Þórodds, svo og alls þess fólks sem annaðist hann. Hjá því fann hann það öryggi sem hann þurfti á að halda. Þessu fólki öllu þökkum við af heilum hug. Við hugsum til ykkar með hlýju og vitum að fleiri fá áfram að njóta ykk- ar starfskrafta á sama hátt og Ingi Vigfús fékk. Því miður kemst Ingi ekki til okkar á aðfangadag eins og til stóð, því ör- lögin höfðu ætlað honum annan stað, í faðmi foreldra og bróður sem farin voru á undan honum. Á kertinu mínu ég kveiki í dag við krossmarkið helgi og friðar því tíminn mér virðist nú standa í stað en stöðugt þó fram honum miðar. Ég finn það og veit að við erum ei ein að almættið vakir oss yfir, því ljósið á kertinu lifir. Við flöktandi logana falla nú tár, það flýr enginn sorgina lengi. Hún braut allar vonir, hún braut allar þrár, hún brýtur þá viðkvæmu strengi, er blunda í hjarta og í brjósti hvers manns. Nú birtir, og friður er yfir, því ljósið á kertinu lifir. Sá einn þekkir gleðinnar gáska og fjör sem gist hefur þjáning og pínu. Sá einn getur sigrast á ótta og kvöl sem eygir í hugskoti sínu, að sorgina við getum virkjað til góðs, í vanmætti sem er oss yfir, ef ljósið á kertinu lifir. (Kristján Stefánsson frá Gilhaga.) Takk fyrir það sem þú gafst okkur með þinni tilveru. Góða nótt og Guð geymi þig Halldór, Inga og fjölskylda. INGI VIGFÚS GUÐMUNDSSON REYNSLA • UMHYGGJA • TRAUST Þegar andlát ber að höndum Önnumst alla þætti útfararinnar ÚTFARARSTOFA KIRKJUGARÐANNA Vesturhlíð 2 • Fossvogi • Sími 551 1266 • www.utfor.is Útfararþjónustan ehf. Stofnað 1990 Þegar andlát ber að Síðastliðin 14 ár höfum við feðgar aðstoðað við undirbúning útfara. Alhliða útfararþjónusta Símar: 567 9110, 893 8638 og 897 3020 Rúnar Geirmundsson Sigur›ur Rúnarsson Elís Rúnarsson Elskuleg móðir mín, amma og langamma, RAGNHEIÐUR I. MAGNÚSDÓTTIR frá Prestsbakka, lést á hjúkrunar- og dvalarheimilinu Klaustur- hólum miðvikudaginn 15. desember. Jarðsett vará Prestbakka á Síðu þriðjudaginn 21. desember. Alúðarþakkir til starfsfólks fyrir frábæra um- önnun og vistfólki fyrir elskulegt viðmót. Sendum ykkur öllum, vinum og kunningjum, okkar bestu jóla- og nýárs- óskir. Ingibjörg J. Hermannsdóttir, Magnús H. Axelsson, Daníel Hrafn Magnússon, Melkorka Magnúsdóttir og fjölskylda.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.