Morgunblaðið - 24.12.2004, Side 54
54 FÖSTUDAGUR 24. DESEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
MENNING
ÞORVALDUR Thor-
oddsen er þekktastur
fyrir ritstörf og rann-
sóknir á náttúru Ís-
lands við lok nítjándu
aldar. Hann ferðaðist
um landið þvert og
endilangt samfellt í um
fimmtán ár og skrifaði
hvorki meira né minna
en átta veigamikil og
efnisrík ritverk, sem
nú teljast til sígildra
verka um náttúru og
landshagi á Íslandi.
Þar að auki samdi hann
nokkrar bækur aðrar
og fjölmargar ritgerð-
ir.
Stórvirki Þorvalds eru þessi
helzt: Lýsing Íslands tvö þykk
bindi, Ferðabók fjögur bindi, Land-
skjálftar á Íslandi, Íslandslýsing á
þýzku og önnur á ensku, Eld-
fjallasaga Íslands á þýzku og önnur
minni á dönsku, Landbúnaður á Ís-
landi tvö þykk bindi, Árferði á Ís-
landi og síðast en ekki sízt Land-
fræðissaga Íslands fjögur stór bindi.
Fyrir ári var hafizt handa við að
gefa Landfræðissögu Íslands út að
nýju, en hún hefur lengi verið tor-
fengin. Landfræðissagan er elzt
þessara stóru verka og hefur all-
nokkra sérstöðu meðal ritsmíða
Þorvalds. Hún fjallar ekki um at-
huganir hans sjálfs á sviði fræða,
heldur um »hugmyndir manna um
Ísland, náttúruskoðun þess og rann-
sóknir fyrr og síðar« eins og segir í
undirtitli á 1. hefti frumútgáfunnar.
Tilgangur Þorvalds með ritinu var
hvorki meira né minna
en að »fá í einni heild
yfirlit yfir flest það
sem skrifað hefir verið
um land vort«. Hann
hóf þetta verk handa
sjálfum sér, til und-
irbúnings eigin rann-
sóknum, en sá brátt,
hve nytsamt það gæti
verið öllum öðrum,
sem fást við sögu og
náttúrufræði. Þar
reyndist hann sann-
spár, því að sú hefur
orðið raunin á, að hver
maður, sem fæst við
þess háttar athuganir
enn þann dag í dag,
lætur ekki hjá líða að kynna sér
fyrst, hvað Þorvaldur hefur um mál-
ið að segja.
Landfræðissagan er þó ekki nein
þurr upptalning á gömlum heim-
ildum, heldur skrifaði Þorvaldur
langa þætti um sögu lands og þjóð-
ar, einstaka menn og atburði, hjátrú
og fjölmargt annað út frá þeim
heimildum, sem hann dró að. Ýms-
um þóttu útúrdúrarnir alltof langir
og bera landfræðissöguna ofurliði
og hreyttu úr klaufunum að honum
vegna þessa. En nú er dómur
manna sá, að þar gerði Þorvaldur
rétt og fyrir því er Landfræðissagan
einstakt, viðarmikið og margbrotið
ritverk.
Annað bindi Landfræðissögunnar
er nú komið út í nýjum búningi. Það
fjallar um »hindurvitni og fjölfræði«
á sautjándu öld og »uppástungur
um viðreisn Íslands og landlýsingar
er af þeim spretta« á fyrri hluta
átjándu aldar. Sem fyrr er útgáfan
mjög vönduð og ritstjórum til mikils
sóma. Þeir hafa aukið við tilvitnanir
neðanmáls, svo að auðveldara er að
nálgast þær en áður og þá hafa þeir
skotið inn smátextum við dálkaj-
aðra, sem skýra frá inntaki efn-
isgreina. Allt er þetta til þæginda
við lestur.
Markverðasta breytingin er þó
sú, að þessi nýja útgáfa er prýdd
mörgum myndum, en alls enga
mynd er að finna í frumútgáfunni.
Myndirnar falla allar vel að efni
bókar og eru flestar með þeim blæ,
sem hæfir innihaldi. Mynd af nú-
tíma ferðalöngum (bls. 27) stingur
þó verulega í stúf við yfirbragð bók-
ar og mynd af melgresi (bls. 209) er
léleg. Þá skal þess sérstaklega get-
ið, að textar við myndir eru prýð-
isgóðir og auðsætt að til þeirra er
vandað mjög, ólíkt því sem er í
mörgum bókum.
Sá er hér skrifar á sér þá heitu
ósk, að útgáfu verksins verði hraðað
og tvö síðari bindin komi bæði út á
næsta ári. Slíkt undirstöðurit um ís-
lenzka vísinda- og menningarsögu á
ekki að þurfa að gefa út í smáum
skömmtum. En þá verða líka 150 ár
liðin frá fæðingu Þorvalds Thorodd-
sen, eins fjölfróðasta og afkasta-
mesta fræðara þessa lands.
Afreksverk í nýrri útgáfu
BÆKUR
Náttúrufræðirit
Höfundur: Þorvaldur Thoroddsen.
Ritstjórar þessarar útgáfu: Gísli Már
Gíslason og Guttormur Sigbjarnarson.
256 bls. Útgefandi er Ormstunga.
Reykjavík 2004
Landfræðissaga Íslands II
Þorvaldur Thoroddsen
Ágúst H. Bjarnason
FYRIR einu ári kom
út fyrsta bókin um
Afa ullarsokk eftir
Kristján Hreinsson.
Hún fjallaði um sam-
skipti ungs drengs og
afa hans. Núna er
komin út önnur bók
um sömu persónur og
eðlilega leitar hug-
urinn til baka. Hvern-
ig var fyrri bókin?
Hún var svo sann-
arlega skemmtileg.
Höfundurinn hefur
greinilega lag á að
segja skemmtilega
frá.
Nýja bókin er engu að síður tals-
vert ólík þeirri fyrri. Hún er öðru-
vísi, af því að viðfangsefnið er alvar-
legra en í fyrri sögunni. Bjarni, eða
Baddi eins og aðalpersónan heitir,
hefur eignast vinkonu. En hún á við
alvarleg veikindi að stríða, en er
samt svo heppin að vera glöð og kát,
þrátt fyrir margvíslegar takmark-
anir.
Höfundinum tekst
einstaklega vel í þessari
sögu að lýsa fallegum
samskiptum tveggja
barna sem þekkjast lítið
en hafa ótrúlegan áhuga
og vilja til að kynnast.
Það er bara einn múr á
milli þeirra. Hún talar
ekki íslensku. En Baddi
lætur það ekki stoppa
sig, hann reynir eftir
föngum að kenna henni
málið sem honum er eig-
inlegt. Honum finnst að
henni hljóti að vera það
eiginlegt alveg eins og
honum. Hann gerir sitt
besta til að hún geti átt
tjáskipti við hann og aðra Íslend-
inga.
Eftir að hafa lesið fyrri bók Krist-
jáns um Afa ullarsokk voru vænting-
arnar gáski og fjör. En þessi bók fær
lesandann til að íhuga önnur og al-
varlegri viðfangsefni. Það er fólk í
samfélaginu sem á erfitt af ýmsum
ástæðum.
Persónusköpun Kristjáns Hreins-
sonar er alltaf lífleg. Það sjáum við
meðal annars í fjölmörgum dæg-
urlagatextum hans. Hann kallar
fram persónur sem eru óháðar aldri
lesenda. En það sem er skemmtileg-
ast við allar persónurnar hans er
hversu raunverulegar þær eru fyrir
alla. Afi ullarsokkur býr yfir öllum
þeim dásamlegu eiginleikum sem af-
ar eiga að búa yfir. Þeir eru jarð-
bundnir heimspekingar sem sjá lífið
og tilveruna með allt öðrum augum
en venjulegt fólk. Og kannski erum
við, nútíma fólk, ekki nógu dugleg
við að velta fyrir okkur þeirri fjöl-
þættu lífsspeki sem börnin okkar
geta veitt okkur eins og kemur
sterkt fram í þessari bók, sem er án
efa gott lesefni bæði fyrir börn og
fullorðna.
Fyrir börn og fullorðna
BÆKUR
Börn
Eftir Kristján Hreinsson
Myndir: Ágúst Bjarnason
178 bls. Skjaldborg, 2004
Afi ullarsokkur
Kristján Hreinsson
Sigurður Helgason
SELLÓ og harpa eru hljóðfæri sem
fara einstaklega vel saman í sam-
leik; angurvær og dúnmjúkur tónn
sellósins öðlast nánast himneska
fegurð í samleiknum með eng-
ilbjörtum hljóm hörpunnar, og út-
koman verður talsvert mildari og
þýðari, en þegar píanó er notað
með því.
Á nýjum geisladiski þeirra Gunn-
ars Kvaran sellóleikara og Elísa-
betar Waage hörpuleikara eru sam-
runi og samspil hljóðfæranna
einkar falleg. Leikur þessa fína
dúós er með mestu ágætum og afar
músíkalskur, og af honum verður
enginn svikinn.
Á efnisskrá þeirra eru ellefu
verk, flest smá í sniðum, fyrir utan
Arpeggionesónötu Schuberts. Allt
eru þetta sívinsæl verk, eins og
Meditation úr óperunni Thais eftir
Massenet, Aprés un rêve eftir
Fauré, Ave Maríurnar eftir Schu-
bert og Bach/Gounod, Svanurinn úr
Karnivali dýranna og fleira.
Það sem gagnrýniverðast er við
þessa plötu er efnisvalið. Gunnar og
Elísabet hafa löngu skipað sér í röð
okkar fremstu listamanna, og eiga
bæði glæstan feril að baki á tón-
leikasviðinu. Hvers vegna þessi tón-
list er þeim hugleiknust til útgáfu
eftir áratugastarf í tónlistinni er
mér ráðgáta. Bæði hafa þau leikið
mestu verk tónbókmenntanna fyrir
sín hljóðfæri og gert það með af-
brigðum vel. Þessi litlu lög hins
vegar – öll snotur og alls góðs mak-
leg, eru hins vegar svo margleikin,
allt að því margþvæld og hafa svo
ótal oft verið gefin út á plötum ekki
bara af erlendum listamönnum,
heldur líka íslenskum, að fáu nýju
er við þau bætandi. Þetta er klass-
ískt popp, sígild dægurtónlist, eitt-
hvað sem maður er jafnvel farinn
að heyra í lyftum og verslunum,
eitthvað sem útvarpsþulir grípa í til
að fylla upp í göt í útvarps-
dagskránni.
Það hefði verið svo áhugavert að
heyra þessa frábæru listamenn
flytja eitthvað bitastæðara; einhver
verk sem kjarni er í; verk sem eitt-
hvað er hægt að segja með. Óað-
finnanlegur leikur þeirra beggja og
margviðurkenndar músíkgáfur,
hefðu sómt sér enn betur í verðugri
verkefnum.
Selló og harpa
TÓNLIST
Íslenskar plötur
Gunnar Kvaran sellóleikari og Elísabet
Waage hörpuleikari flytja verk eftir
Massenet, Fauré, Schubert, Ravel og
fleiri. Zonet gefur út.
Bergþóra Jónsdóttir
Á VÖNDUÐUM geisladiski hvíslar
Gyrðir Elíasson í eyru hlustenda
náttúru- og saknaðarljóðum með ör-
lítið brostinni og tregafullri rödd.
Sum ljóðanna eru þunglyndisleg og
önnur glettin en öll hafa þau hinn
fallega, einlæga og hvíslandi tón sem
einkennir verk Gyrðis framar öðru.
Þess vegna er svo vel til fundið að
gefa út disk með upplestri skáldsins
en frumsamin gítartónlist Kristins
Árnasonar hljómar á undan, eftir og
á milli, leikin af honum sjálfum. Það
sem nefnt var í öðrum dómi um hlið-
stæða útgáfu með ljóðum Ingibjarg-
ar Haraldsdóttur á einnig við hér.
Það er vandað til verka og kærkomið
að fá ljóðin flutt af höfundi.
Ljóðin á diskinum eru valin úr
þremur ljóðabókum Gyrðis: Ind-
íánasumri, Hugarfjallinu og Tví-
fundnalandi. Þau gefa góða mynd af
skáldskap hans; þarna eru nátt-
úrustemningar, heimspekipælingar,
myndir af mannfólki, hugboð um
óræðan og andlegan heim, ljóðlistin
sjálf og ýjað er að depurð sálarinnar.
Náttúrumyndir Gyrðis eru ein-
stakar, þær gerast vart fegurri en
hjá honum: ,, Í nótt er tunglið / olíu-
lampi / sem hefur verið / hengdur á /
dökkbláan vegg / í ævagömlu húsi //
Stjörnurnar eru / naglagöt, og / þar
streymir ljós / í gegn // Því handan
við / þunnan vegginn / er birta / allr-
ar / birtu Ljóðið er dæmigert fyrir
mörg af sígildum yrkisefnum Gyrðis
en auk náttúrumyndarinnar má sjá
grun um annan heim og ljóðmynd
þar sem náttúra og kyrrlát manna-
byggð koma saman.
Eins og raunin er um útgáfu
Dimmu á ljóðalestri Ingibjargar
Haraldsdóttur er mikill fengur að
ljóðalestri Gyrðis Elíassonar sem er
eitt okkar bestu skálda.
Hvíslað í eyra
GEISLADISKUR
Upplestur og tónlist
eftir Gyrði Elíasson.
Tónlist: Kristinn Árnason.
Ritstjórn: Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson.
Dimma, Reykjavík 2004
Ljóð
Hrund Ólafsdóttir