Morgunblaðið - 24.12.2004, Blaðsíða 56
56 FÖSTUDAGUR 24. DESEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
FYRSTA breiðskífa Sigga Ár-
manns, Mindscape, vakti ekki mikla
athygli fyrst eftir að hún kom út en
smám saman átt-
uðu menn sig á hví-
lík afbragðsskífa
var á ferðinni, ekki
síst eftir að Siggi
tók að troða upp á
tónleikum. Fyrir
rétt rúmu ári hélt hann tónleika í
Listasafni Reykjavíkur sem voru
hljóðritaðir góðu heilli og eru nú
gefnir út, eins konar kynningar-
diskur fyrir væntanlega breiðskífu
sem Siggi er að vinna um þessar
mundir, því lögin á plötunni eru flest
ný af nálinni, af fjórtán lögum eru
ekki nema fjögur af Mindscape, eitt
reyndar tvítekið.
Einfaldleikinn er aðal Sigga Ár-
manns, laglínur einfaldar og söngur
lágstemmdur og átakalítill. Eftir því
sem hann hefur leikið á fleiri tón-
leikum, en hann fór í tónleikaferð
um Bandaríkin og víðar með Sigur
Rós, hefur hann aftur á móti eflst
sem flytjandi og um leið hafa lögin
smám saman orðið veigameiri, flétt-
urnar snúnari og textarnir líka
sterkari, sumir átakanlegir en alltaf
lausir við tilgerð og uppskrúfaða
dramatík; þeir eru einmitt sterkastir
fyrir það hvað þeir eru blátt áfram.
Hljómur á plötunni er einkar
skemmtilegur, hlýr og opinn. Tón-
leikarnir byrja á fjórum lögum af
Mindscape, þar á meðal kúrekalag-
inu góða. Síðan koma nokkur ný lög
sem Siggi er að vinna á nýja plötu
sem stendur. Í þeim má glöggt
heyra hve hann hefur tekið miklum
framförum sem lagasmiður og ekki
síst sem flytjandi frá því Mindscape
kom út – heyr til að mynda lagið
„Elephant Man“ sem er einkar vel
samið og flutt, „Big Boys Cry“ sem
er lítt síðra og á án efa eftir að koma
vel út meira unnið. „I Dive“ er frá-
bært lag og flutningurinn fram-
úrskarandi, eitt það besta sem Siggi
hefur gert hingað til, gaman hvernig
það umbreytist á gullinsniðinu.
„Fake Like Drawn“ er einnig snilld-
arlag með einkar sterkum texta og
„My Own Messiah“ stendur því ekki
langt að baki. „As Far as the Truth
Goes“ er eftirminnilegt lag með
einkar mögnuðum texta.
Með það í huga að þessi diskur
Sigga Ármanns er í raun aðeins
skissa að plötu, eins konar nasasjón
að því sem við eigum í vændum, er
hún merkilega heilsteypt, samhang-
andi og þétt plata.
Blátt áfram
Siggi
Ármann
TÓNLIST
Íslenskur geisladiskur
Siggi Ármann í Listasafni Reykjavíkur,
tónleikadiskur með Sigga Ármann sem
tekinn var upp í listasafninu 3. desember
2003. Lög og textar eru eftir Sigurð sem
einnig annast allan flutning sjálfur utan
að Örnólfur Kristjánsson leikur á hnéfiðlu
og syngur bakrödd í einu lagi. Birgir Örn
Thoroddsen tók upp, tónjafnaði og gerði
frumeintak. Tími gefur út.
Siggi Ármann – Í Listasafni Reykjavíkur
Árni Matthíasson
RAPPTVÍEYKIÐ Antlew/
Maximum gaf nýlega út sína fyrstu
breiðskífu og kallast hún Time
Money & Patience. Antlew (Anth-
ony Lewis) og Maximum (Magnús
Jónsson) hafa starfað saman síðan
1999 og fyrsta verkefnið sem þeir
komu saman að var platan Faculty
sem gefin var út sama ár.
Magnús á þrátt fyrir ungan ald-
ur langan feril að baki í íslensku
hipphoppi og vann ákveðið braut-
ryðjendastarf með sveitinni Sub-
terreanean sem gaf út plötuna
Central Magnetizm árið 1997.
Magnús segir að Time Money &
Patience hafi verið lengi að fæðast.
„Eins og titillinn vottar til um,“
segir hann og kímir. „Þetta er búið
að vera þriggja ára ferli allt í allt.“
Í millitíðinni, eða fyrir tveimur
árum, kom þó út tólftomma á
BUKA-merkinu með laginu „Wild
Out“, eignuð Ant Lew & Max-
imum.
Margt góðra gesta er á plötunni,
þ.á m. Bostonrapparinn Akrobatik
og sjálfur Sage Francis, einn um-
talaðasti rappari síðustu ára.
„Þeir komu báðir til Íslands á
sínum tíma og héldu tónleika,“
segir Magnús. „Við bara spjöll-
uðum við þá og þeir voru vel til í
þetta.“
Hann segir jafnframt að platan
innihaldi efni sem hafi verið tekið
upp á hinum og þessum stöðum en
hún hafi svo verið hljóðblönduð í
hljóðverinu Grænum fingrum.
Magnús segir enga spurningu um
það að platan marki ákveðin kafla-
skipti hjá þeim félögum.
„Það er svo mikill léttir að koma
þessu frá sér. Við erum komnir
með alveg rosalega mikið af lögum
sem okkur langar til að koma út.
Það er þvílíkt góð tilfinning að
vera búinn með þetta, og gildir þá
einu hvernig plötunni reiðir af.
Þetta er meira svona persónulegur
sigur.“ Magnús segir að tónlist
þeirra félaga sé þannig búin að
þróast í mörg ár og í dag er hann
sjálfur t.d. farinn að rappa mun
minna en einbeitir sér því meira að
sjálfri tónlistinni. Hann á erfitt
með að pinna niður bein áhrif þar,
segir anda lagasmíðanna aðallega
taka mið af því hvar þau hafi verið
samin.
„Allt annað en hipphopp hefur
mest áhrif. Það er umhverfið og
daglegt líf sem er mesti áhrifa-
valdurinn. Ég bjó t.d. í Stokkhólmi
í tvö ár og það hafði áhrif á hvern-
ig ég samdi og eins hefur Ísland
áhrif, og þá annars konar.“
Magnús segir að eftir áramót
verði farið í það að reyna að koma
plötunni að einhvers staðar erlend-
is auk þess sem drög verði lögð að
frekari útgáfu og lagasmíðum.
Tónlist | Antlew/Maximum gefa út breiðskífu
Þolinmæðin þrautir
vinnur allar
Antlew og Maximum.
arnart@mbl.is