24 stundir - 19.12.2007, Síða 12

24 stundir - 19.12.2007, Síða 12
Eftir Björgu Evu Erlendsdóttur beva@24stundir.is Kortasvindl er ekki teljandi vanda- mál á Íslandi, enda þótt menn treysti á kortin og að allt fari vel þótt þau týnist. Lögreglan í Reykja- vík telur skorta á að verslunareig- endur kenni starfsfólki að fylgja ýtrustu öryggiskröfum. Og ekki nóg með það heldur hafa söluaðil- ar víða sjálfir tekið ákvörðun um að sleppa undirritun á færslur ef upphæðin er lág. „Kaupmenn sem gera þetta fylgja ekki reglum, en ábyrgðin er þeirra,“ segir Þórður Jónsson sviðsstjóri hjá Valitor-Visa. „Þeir telja áhættuna þess virði. “ Meira eftirlit erlendis Lögreglan bendir á viðamiklar varúðarráðstafanir erlendis til að koma í veg fyrir allar tegundir af kortasvikum. Starfsfólk verslana sé sérþjálfað til að sjá út fólk sem ætl- ar að svindla. Það kom því lögregl- unni ekki á óvart að pólsk af- greiðslustúlka áttaði sig á fölsuðum peningaseðli sem farið hafði um hendur nokkurra Íslend- inga sem tóku ekki eftir neinu. Kæruleysi eða trúnaðartraust Þórður segir rétt hjá lögreglu að Íslendingar séu andvaralausir. „Þeir treysta á að allt sé í lagi. Ég hef á tilfinningunni að söluaðilar horfi ekki mikið á myndir eða undirskriftir þegar greitt er með korti og korthafinn horfi ekki vel á hvaða upphæð hann skrifar und- ir.“ Þórður segir dæmi um svik sölumanna sjaldséð, þó hafi maður selt hálsbindi úti á götu fyrir nokkrum árum og bætt núlli aftan við allar færslur. En Íslendingar séu frekar smákrimmar en at- vinnumenn í kortasvikum. Einföld ráð í jólaösinni Ráðleggingar til korthafa í jóla- ösinni eru einfaldar. Að passa kort- ið vel, láta loka týndu korti strax, ekki lána neinum kortið og gæta að upphæðinni sem skrifað er undir. Kaupmenn þurfa að fylgjast vel með hvort myndin sé af kort- hafa og hvort undirskriftin sé í lagi. ➤ Visakortaveltan á síðustu sexvikunum fyrir jól í fyrra nam sjötíu milljörðum króna og stefnir í 15% aukningu. ➤ Visa hefur 73 prósent korta-markaðarins. Íslendingar eiga heimsmet í rafrænum við- skiptum JÓLAKORTAVELTAN 24stundir/ÞÖK Rétta kortið? Góð jólavísa sjaldan of oft kveðin.  Íslenskir kortasvindlarar eru viðvaningar og svik fátíð  Hvorki korthafar né verslunin sýna þó nægilega aðgát við viðskipti sín Treyst á VISA og lukkuna 12 MIÐVIKUDAGUR 19. DESEMBER 2007 24stundir Hæstiréttur staðfesti í dag far- bannsúrskurð Héraðsdóms Reykjaness yfir karlmanni sem er ákærður fyrir tilraun til mann- dráps en til vara fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás. Er mannin- um gert að sæta farbanni til 16. janúar. Hann hefur sætt farbanni frá 9. nóvember. Slegið með flösku Maðurinn, sem er pólskur rík- isborgari, er grunaður um að hafa aðfaranótt fimmtudagsins 8. nóv- ember síðastliðinn gert alvarlega líkamsárás á heimili sínu. Hann er grunaður um að hafa slegið annan mann ítrekað með brotinni gler- flösku í höfuð, háls og víðar í lík- amann. Sá sem ráðist var á hlaut ýmsa áverka sem taldir eru afleiðingar árásar. Hann marðist á augnknetti og augnatóftarvefjum, hlaut yfir- borðsáverka á brjóstkassa, öxl og upphandlegg og djúpt sár í gegn- um hálsvöðva. mbl.is Hæstiréttur staðfestir úrskurð um farbann Áfram í farbanni eftir árás á mann Í HARÐVIÐARVAL GJAFABRÉF GEFÐU Gefðu góða Gjöf Skeifan 11d • 108 Reykjavík • sími 517 6460 www.belladonna.is Opnunartímar til jóla miðvikud. - laugard. 11.00 - 20.00 Þorláksmessa 12.00 - 20.00 Aðfangadagur 10.00 - 12.00 Vertu þú sjálf - vertu bella donna Glæsilegur fatnaður í stærðum 38 - 60 LÓÐ UNDIR IÐNAÐAR- OG SKRIFSTOFUHÚSNÆÐI ÓSKAST 1000-2000 m2 lóð óskast undir iðnaðar- og skrifstofuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu. Áhugasamir sendið upplýsingar á inga@byggingasveitin.is kv,. Inga sími 561-3000

x

24 stundir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.