24 stundir - 19.12.2007, Blaðsíða 26

24 stundir - 19.12.2007, Blaðsíða 26
26 MIÐVIKUDAGUR 19. DESEMBER 2007 24stundir Eftir Björn Braga Arnarsson bjornbragi@24stundir.is Brekkurnar fram yfir pakkana Bjarni Benediktsson, þingmað- ur Sjálfstæðisflokksins, ætlar að leggja land undir fót og fara með stórfjölskyldunni til Austurríkis á skíði. „Við höfum gert það einu sinni áður og það var alveg ynd- islegt,“ segir Bjarni og bætir við að það sé gott að komast aðeins frá öllu jólastressinu sem ríkir gjarnan hér heima. „Við reynum að hafa sem minnst fyrir pökkum og öðru slíku, en einblínum á að njóta félagsskaparins og vera sem mest í brekkunum.“ Bjarni hefur litlar áhyggjur af því að fá ekki ís- lenskan jólamat. „Hótelmatseðill- inn er býsna langur og efnismikill þannig að það verður ekki vanda- mál,“ segir Bjarni, sem kemur þó heim fyrir áramótin og heldur upp á þau á Íslandi. Ekki skipulagða týpan „Hvað á ég eiginlega að hafa í matinn?“ spyr Svandís Svav- arsdóttir á móti eftir að blaða- maður spurði hana sömu spurn- ingar. „Ég er ekki svona skipulögð týpa, ég er svoddan villimaður. Við erum nú vön því að hafa rjúpur, en ég ætla ekki að hafa rjúpur þegar þær eru svona fáar,“ segir hún. Hjá fjölskyldu oddvit- ans er þó órjúfanleg hefð fyrir möndlugraut í forrétt á að- fangadagskvöld. „Við borðum hrikalega rjómasoðinn möndlu- graut í forrétt og erum því orðin hálfsödd þegar kemur að aðalrétt- inum.“ Áður en borðhald hefst er hún þó vön því að fara í kirkju. „Við maðurinn minn erum fé- lagar í Dómkórnum, þannig að við höfum yfirleitt farið og sungið hátíðarmessuna áður en við borð- um.“ Mikil bókahefð „Ég var alinn upp við að borða lambahamborgarhrygg á jólunum og hef gert það alla ævi. En síð- ustu fjögur jól, eftir að ég og María sambýliskona mín fórum að búa saman, höfum við borðað rjúpur, sem er rótgróinn siður úr hennar ætt,“ segir Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra og ætlar að ef rjúpurnar verði ekki á boðstólum komi önnur villibráð í staðinn. „Ég leyfi henni nú bara að velja þetta,“ bætir hann við og er rólegur yfir öllu saman. Hann segir jólahefðir fjölskyldunnar að mestu venjunni samkvæmt, en úr fjölskyldu hans kemur þó sérstök bókahefð. „Það hefur lengi verið siður að allir fái að minnsta kosti eina bók í jólagjöf,“ segir hann og er sjálfur með nokkrar á óskalist- anum. „Ég er búinn að lesa Harð- skafa eftir Arnald og þótti hún mjög góð. Síðan hlakka ég til að lesa Þar sem vegurinn endar eftir Hrafn Jökulsson og Rimla hugans eftir Einar Má. Ég gæti nefnt miklu fleiri en þessar eru efstar á blaði.“ Stjórnmálamenn hafa það náðugt með sínum nánustu um jólin Austurríki, möndlu- grautur og bókalestur ➤ Björgvin og Svandís verða lík-lega með villibráð, en aust- urrískir hótelkokkar sjá um að seðja hungur Bjarna. JÓL STJÓRNMÁLAMANNA24 stundir höfðu sam- band við þrjá valinkunna stjórnmálamenn, þau Bjarna Benediktsson, Svandísi Svavarsdóttur og Björgvin G. Sigurðs- son, og grennsluðust fyr- ir um hefðir þeirra og fyr- irætlanir um jólin. Bjarni Ben Skíðar um brekkur Austur- ríkis með fjölskyldunni, fjarri jólastressi. Björgvin G. Vill fá Rimla hugans og Þar sem vegurinn endar í jólapakkann. Svandís Svavars. Svoddan villimaður, en ætlar þó að hlífa rjúpunni þessi jól. Það getur verið erfitt að finna litl- ar gjafir til þess að stinga að mak- anum ef maður vill gleðja hann áð- ur en að aðfangadagskvöldi líður. Gefist ekki tími til þess að finna per- sónulegar gjafir til þess að setja í jólasokkinn þá er tilvalið að lauma snyrtivörum, uppáhaldsilmvatninu eða rakspíranum í sokkinn að kvöldi Þorláksmessu. Slíkar gjafir koma sér alltaf vel. Góður ilmur handa honum Góður rakspíri er tilvalin gjöf en nú er hægt að velja úr fjölda ilmteg- unda þannig að það ætti ekki að vera erfitt að finna ilm sem hentar. Armani Attitude Ótrúlega góður ilmur sem er í senn ferskur og karlmannlegur. Angan af kryddum og trjákvoðu dregur fram allt það besta. Jean Paul Gaultier Homme Sæt, kryddkennd angan einkennir ilminn frá Gaultier sem hentar vel ungum mönnum. Issey Miyake Intense Heitur, sterkur rakspíri sem angar af ávöxtum, kardimommum og svörtu reykelsi. Rakspíri sem hentar bæði hátíðlegum og hversdags- legum tilefnum. Hypnose Homme Nýi ilmurinn frá Lancôme einkenn- ist af fáguðum kynþokka og karl- mannlegri angan. Ávextir og krydd gefa rakspíranum ferskan ilm sem hentar öllum karlmönnum. Diesel Fuel for Life Ilmurinn frá Diesel hefur slegið í gegn. Sterkur, ferskur og karlmann- legur án þess að vera yfirþyrmandi. Gleddu með góðum rakspíra Góður ilmur á aðfangadag Jólin eru einn annasamasti tími ársins hjá verslunarmönnum og sjaldan eða aldrei er jafnmiklum peningum eytt og á þessum tíma, en flestir gera vel við sig í bæði mat og drykk ásamt því sem jólagjafirnar kosta sitt. Um jólavertíðina eru kreditkort not- uð til þess að borga fyrir vörur og þjónustu að meðaltali 5.340 sinnum á hverri mínútu í Bandaríkjunum. Mikil notkun kreditkorta Í Úkraínu eru jólatrén gjarnan skreytt með gervikóngulóarvef ásamt öðru hefðbundnu skrauti. Ástæðan er sú að það er talið kunna góðri lukku að stýra að rek- ast á kóngulóarvef að morgni jóla- dags. Þar í landi er einnig hefð að bera fram tólf rétta máltíð og fær yngsta barnið í hverri fjölskyldu það hlutverk að fylgjast með fyrstu kvöldstjörnunni birtast á himnum en þá má hátíðin hefjast. Kóngulóarvefur á jóladag S. 440-1800 www.kælitækni.is Okkar þekking nýtist þér ... Jólagjöfin í ár er alvöru Vita Mix blandari og matreiðsluvél Mylur alla ávexti, grænmeti klaka og nánast hvað sem er Hnoðar deig Býr til heita súpu og ís Hraðastillir Lífstíðareign! 10% afsláttur fram að jólum Verð kr. 53.974 Uppskriftarbók og DVD diskur fylgir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

24 stundir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.