24 stundir


24 stundir - 19.12.2007, Qupperneq 32

24 stundir - 19.12.2007, Qupperneq 32
32 MIÐVIKUDAGUR 19. DESEMBER 2007 24stundir Eftir Kristjönu Guðbrandsdóttur dista@24stundir.is „Jólahald hér á Litla-Hrauni ber þess merki að þetta er fangelsi og því er tilstandið auðvitað undir öðrum kringumstæðum en ef þeir væru heima hjá sér,“ segir Kristján Stefánsson, forstöðumaður á Litla- Hrauni. „En það er ýmislegt gert til að stytta föngum stundirnar,“ nefnir hann og segir að Bubbi komi alltaf á aðfangadag að skemmta föngunum. Bubbi kemur og skemmtir Aðspurður segist Bubbi hafa komið í 24 ár á Litla-Hraun og um ástæður þess vill hann ekkert gefa uppi. „Nei, ég tjái mig ekki um hvers vegna ég geri þetta,“ segir hann „Í ár mun ég taka einhverja með mér eins og venjulega, þá verða þar rithöfundar sem lesa fyr- ir fangana úr útkomnum verkum.“ Helgistund og gjafir Kristján nefnir að fangarnir haldi jólin hátíðleg eins og þeim er unnt miðað við aðstæður. Haldin sé helgistund sem Hreinn Há- konarson, fangaprestur þjóðkirkj- unnar, sér um. Þá fá margir gjafir frá ættingjum og vinum. Gjafirnar segir Kristján opnaðar í viðurvist fangavarða. „Það eru nú orðin mörg ár síðan eitthvað misjafnt barst fanga í gjafasendingu og man ég ekki einu sinni hvað það var ná- kvæmlega en auðvitað berast þeim gjafir sem eru teknar sérstaklega til skoðunar. Þá erum við að tala um ýmis tæki og tól, tæknigræjur og hljóðfæri.“ Fangamaturinn enginn fangamatur Jólin haldin hátíðleg á Litla-Hrauni ➤ Á jólamatseðlinum í ár erhumarsúpa og hamborg- arhryggur með sykurbrún- uðum kartöflum og meðlæti. ➤ Á Litla-Hrauni er starfrækturkór undir handleiðslu Gunn- ars Björnssonar, prests á Sel- fossi. ➤ Um 12 fangar fá dagvist-arleyfi til að heimsækja vini og ættingja yfir jólin. LITLA-HRAUNÁ Litla-Hrauni eru jól haldin hátíðleg eins og kostur er á, opnaðar gjaf- ir, sungið og eldaður er dýrindismatur. Þá fá fangarnir Bubba til sín í heimsókn, en hann hefur sungið inn fyrir þá jólin síðustu 24 árin. Bubbi Morthens Í tuttugu ár hefur hann farið á aðfangadagsmorgun á Litla-Hraun og spilað þar fyrir þá sem þar gista. 24stundir/Halldór Kolbeins Þeir sem vilja hugsa um vigtina um jól og áramót geta vel haldið góð jól án þess að fitna. Aðal- málið er að hugsa um hvað er borðað. Ef fólk vill ekki úða í sig feitu kjöti er sniðugt að hafa sjáv- arréttaforrétti. Hægt er að borða mikið af rækjum, hörpudiski, kræklingum og öðrum sjáv- arréttum án þess að fitna. Ef vel er borðað af fiski í forrétt er minna magamál fyrir kjötið sem kemur í aðalrétt. Þá er einnig gott ráð að hlaða vel á diskinn sinn af grænmet- ismeðlætinu þegar kemur að að- alréttinum en skammta sér lítinn kjötbita í staðinn. Hins vegar er gott að hafa í huga að hreyfing er alltaf góð, líka á jólunum. Þeir sem eru duglegir og ákveðnir í að halda vigtinni yf- ir jólin ættu að fara í langan göngutúr á jóladag en með því verður samviskan mun betri. Jól án þess að vigtin springi Vatnagörðum 14 – 104 Reykjavík – fyrsta bókin í nýrri ritröð um íslenskar laxveiðiár Laxá í Kjós, ásamt Bugðu, hefur af þekktum stangaveiðimönnum verið kölluð „Háskóli“ stangaveiðimanna vegna fjölbreytileika síns. Þetta er óskabók veiðimanna, hvort sem þeir eru þaulreyndir eða að feta sín fyrstu spor í veiðikúnstinni og fæst bæði á ensku og íslensku. Höfundurinn, Guðmundur Guðjónsson, lýsir veiðistöðum af þekkingu og kryddar lýsingar sínar sögnum af skemmtilegum mönnum sem hafa notið þeirrar ánægju að spreyta sig í þessum ám í gegnum tíðina. Gullfallegar myndir Einars Fals Ingólfssonar gæða bókina enn frekara lífi. Fæst bæðiá ensku ogíslensku Bragðgóður og huggulegur morgunverður er tilvalinn á að- fangadag en það er um að gera að byrja daginn með heitum kakó- bolla og hátíðlegu meðlæti. Norskt jólabrauð ½ bolli smjör 2 bollar mjólk ½ bolli vatn 8 bollar hveiti 2 pakkar ger ½ bolli sykur 2 teskeiðar salt ½ teskeið kardimommur 2 bollar þurrkaðir ávextir mjólk Bræðið smjörið ásamt mjólk og vatni. Setjið 4 bolla af hveiti í stóra skál ásamt þurrefnunum og bland- ið við smjörblönduna. Hrærið þurrkuðum ávöxtum saman við og bætið við afganginum af hveitinu. Hnoðið deigið og látið lyfta sér í klukkustund. Mótið í tvo brauð- hleifa og burstið með mjólk. Látið þá lyfta sér í 45 mínútur. Bakið við 190 gráður í 30 til 40 mínútur. Epla- og kanilkaka 1 matskeið kanill 2 teskeiðar lyftiduft 1 bolli bráðið smjör 1½ bolli ljósbrúnn sykur 4 stór egg 6 epli, skorin í litla bita 1 bolli flórsykur 1 til 2 teskeiðar vatn 2 ½ bolli hveiti 1 teskeið salt ½ teskeið matarsódi Hitið ofninn í 175 gráður. Hrærið saman hveiti, kanil, mat- arsóda, salti og lyftidufti. Hrærið saman í annarri skál smjör, brún- an sykur og egg. Blandið þurrefn- unum við. Bætið eplabitunum saman við. Bakið í 50 til 60 mín- útur. Kælið. Blandið saman flór- sykri og vatni og setjið yfir kök- una. Hefjið daginn með heitu kakói og bakkelsi Með kaffinu á aðfangadagsmorgun 24 stundir/Árni Sæberg

x

24 stundir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.