24 stundir - 19.12.2007, Side 34
34 MIÐVIKUDAGUR 19. DESEMBER 2007 24stundir
Bandaríkjamenn hafa gaman af því að gera ýmsar kann-
anir og fyrir stuttu gerðu þeir rannsókn á því hvaða jólaplöt-
ur væru í allra mestu uppáhaldi hjá þjóðinni. Ýmsir lista-
menn komust á blað og meðal þeirra er hljómsveitin Beach
Boys, jólaplata frá árinu 1967, en lögin Little Saint Nick og
Merry Christmas Baby af þeirri plötu urðu mjög vinsæl á út-
varpsstöðvum fyrir jólin þetta árið og platan virðist lifa.
The Carpenters komust einnig á blað með plötu sína
Christmas Collection en söngkonan Karen Carpenter er
sögð með undurfagra jólarödd á þessari plötu. Á plötunni er
eitt þekktasta lag Carpenters, What Are you Doing New Ye-
ar’s Eve.
Elvis Presley er að sjálfsögðu á þessum lista með plötu
sína Elvis Christmas Album en á henni kennir bæði áhrifa
frá blús- og rokksveiflum stjörnunnar. Eftirminnileg lög á
plötunni eru Blue Christmas, Santa Bring My Baby Back og
Santa Claus is Back in Town.
Jackson 5 eru með eina vinsælustu jólaplötu allra tíma
með Michael litla Jackson í fararbroddi, The Best of Jackson
5 The Christmas Collection.
Svo er einnig um Barböru Streisand, A Christmas Al-
bum. Þetta er hátíðleg plata og eitt vinsælasta lagið er Jingle
Bells.
Ray Charles á vinsæla jólaplötu, The Spirit of Christmas,
sem naut mikilla vinsælda, m.a. lögin Winter Wonderland
og Baby, Its Cold Outside.
Ekki er hægt að telja upp vinsælar jólaplötur nema nefna
sjálfan Frank Sinatra, A Jolly Christmas from Frank Sinatra.
Platan kom út árið 1957 og vinsæl lög af plötunni eru The
Christmas Waltz og It Came Upon a Midnight Clear.
Ekki má heldur gleyma sjálfum kónginum, Bing Crosby,
en plata hans White Christmas er með allra vinsælustu jóla-
plötum sem út hafa komið.
Jólalög allra tíma
Vinsælustu jólaplöturnar
Um eitt hundrað þúsund Norð-
menn borða ekki kjöt eða fisk á
jólunum. Það eru svokallaðar
grænmetisætur sem velja fremur
hnetusteik en svínakjöt. Flestallir
Norðmenn eru þó með jólamat
eftir gömlum siðvenjum sem þeir
eru aldir upp við. Þeir sem kjósa
grænt jólaborð telja sig ekki síður
fá jólamat því að hluti alls með-
lætis með jólasteikinni er græn-
meti.
Margir borða
hnetusteik
Jólakveðjur hafa verið á dagskrá
Rásar 1 nánast frá upphafi en
kveðjurnar hafa verið lesnar á Þor-
láksmessu frá árinu 1943. Upp-
haflega voru kveðjurnar ætlaðar
hlustendum á Grænlandi og út-
lendingum á Íslandi en um1940
var dagskrárliðurinn nefndur Jóla-
kveðjur og ávörp til skipa á hafi úti
og sveitabýla. Seinna var farið að
flytja kveðjur frá Íslendingum bú-
settum erlendis.
Jólakveðjur
hluti af jólunum
Þeir eru eflaust margir sem öfunda
breska kvikmyndaleikstjórann Guy
Ritchie, en sá þarf ekki að hafa
áhyggjur af því hvað hann gefur
konunni í jólagjöf. Guy og eig-
inkona hans, súperdívan Ma-
donna, hafa ákveðið að skiptast
ekki á jólagjöfum. Þau aðhyllast
bæði Kabbalah sem er eitt afbrigði
gyðingdóms, en Madonna ku vera
mjög mótfallin markaðssetningu
sem fer fram í kringum jólin.
Madonna vill
ekki jólagjöf
Við óskum
viðskiptavinum
gleðilegra jóla og
farsældar á nýju ári
Starfsfólk
Eymundsson
eymundsson.is