24 stundir - 19.12.2007, Síða 35
24stundir MIÐVIKUDAGUR 19. DESEMBER 2007 35
MENNING
menning@24stundir.is a
Við erum óttalega einföld. Okkur finnst gaman
að gera tónlist, gaman að spila á tónleikum og
grúska í græjum og allt þetta. En við erum alveg glöt-
uð í öllu sem heitir plögg og svoleiðis dóti.
Eftir Hauk Harðarson
haukurh@24stundir.is
„Þetta var í raun manndómsvígsl-
an í upptökutækni. Það var svo
margt sem maður kunni og við
vorum að prófa okkur áfram og
tókum hluta af plötunni nokkrum
sinnum upp, þangað til við vorum
orðin fullkomlega ánægð með út-
komuna,“ segir Magnús Øder,
bassaleikari Benny Crespo’s Gang,
sem var mikið með puttana í út-
setningum og upptökum en með-
limir sveitarinnar komu mikið að
vinnslu plötunnar sjálfir. Benny
Crespo’s Gang heldur í kvöld út-
gáfutónleika í Tjarnarbíói í tilefni
af því að sveitin sendir frá sér sína
fyrstu plötu. Platan ber sama nafn
og hljómsveitin sem hefur verið
starfrækt frá árinu 2003. Sveitina
skipa Helgi Rúnar gítarleikari,
Lovísa Elísabet hljómborðsleikari,
Magnús Øder bassaleikari og Björn
Sigmundur trommuleikari.
Lay Low ruddist á undan
Hljómborðsleikari Benny Cres-
po’s Gang, Lovísa Elísabet, er lík-
lega betur þekkt undir nafninu Lay
Low. Magnús viðurkennir að
hækkandi frægðarsól söngkonunn-
ar að undanförnu hafi tafið gerð
þeirra eigin plötu umtalsvert enda
spiluðu tveir af meðlimum Benny
Crespo’s Gang inn á plötu Lay
Low, Please dońt hate me, sem hef-
ur notið gríðarlegra vinsælda. „Ég
og Bassi (Björn Sigmundur
trommuleikari) fórum reyndar
með henni í tónleikaferð um Evr-
ópu. Platan hennar ruddist eigin-
lega fram fyrir okkar plötu,“ segir
Magnús í léttum tón. Magnús gef-
ur lítið upp um ástæðurnar að baki
nafni sveitarinnar og segir að með-
limir Benny Crespo’s Gang vilji
halda því út af fyrir sig.
Léleg í markaðsstarfinu
Aðspurður um framtíðaráform
sveitarinnar segir Magnús að hann
myndi ekki slá hendinni á móti
frægð og frama erlendis en segir að
sveitin einbeiti sér að því að gera
það sem þeim þykir skemmtilegast.
„Við erum óttalega einföld. Okkur
finnst gaman að gera tónlist, gam-
an að spila á tónleikum og grúska í
græjum og allt þetta. En við erum
alveg glötuð í öllu sem heitir plögg
og svoleiðis dóti,“ segir Magnús að
lokum. Húsið verður opnað klukk-
an 20:47 í kvöld og búist er við hús-
fylli enda margir sem hafa beðið
lengi eftir plötu frá þessari hressu
rokksveit.
Benny Crespo’s Fagna
samnefndri plötu í kvöld.
Benny Crespo’s Gang heldur útgáfutónleika í Tjarnarbíói í kvöld
Fyrstu plötunni fagnað
Íslenskir tónlistaráhuga-
menn þekkja Benny Cres-
po’s Gang. Sveitin hefur
verið starfrækt í nokkur
ár en þeirra fyrsta plata
kom út fyrir stuttu. Í
kvöld verður blásið til út-
gáfutónleika til að fagna
nýju plötunni.
➤ Benny Crespo’s Gang varstofnuð á Selfossi árið 2003.
➤ Fyrsta plata sveitarinnar komút í nóvember á þessu ári.
Platan var tæp 3 ár í vinnslu.
➤ Einn af meðlimum hljóm-sveitarinnar er tónlistarkonan
Lay Low, sem hefur slegið í
gegn með plötu sinni, Please
don’t hate me.
➤ Útgáfutónleikar verða haldn-ir í Tjarnarbíói í kvöld og hús-
ið verður opnað klukkan
20:47.
BENNY CRESPO’S GANG
24stundir/Golli
Fimm listamenn halda sameig-
inlega útgáfuhátíð á Lídó á Hall-
veigarstíg í kvöld og er frítt inn.
Listamennirnir eiga það allir
sameiginlegt að gefa sjálfir út
plötur sínar nú fyrir jól, en þeir
eru stórsveit Samúels Jóns Sam-
úelssonar, Einar Scheving, Tómas
R. Einarsson, systkinin Ingibjörg,
Óskar og Ómar Guðjónsbörn og
Jagúar. hh
Sameiginleg út-
gáfuhátíð á Lídó
Camerarctica heldur sína árlegu
kertaljósatónleika í kirkjum nú
rétt fyrir jólin.
Hópurinn hef-
ur leikið ljúfa
tónlist eftir
Mozart í
fimmtán ár og
þykir mörgum
ómissandi að
koma úr miðri
jólaösinni inn
í kyrrðina og
kertaljósin í rökkrinu. Á mið-
vikudaginn verða tónleikar í
Hafnarfjarðarkirkju, á fimmtu-
daginn í Kópavogskirkju og á
föstudaginn leikur hópurinn í
Dómkirkjunni í Reykjavík. Tón-
leikarnir hefjast allir klukkan
21 og verður selt inn við dyrn-
ar. hh
Mozart við
kertaljós