24 stundir


24 stundir - 19.12.2007, Qupperneq 47

24 stundir - 19.12.2007, Qupperneq 47
24stundir MIÐVIKUDAGUR 19. DESEMBER 2007 47 Tuttugu ára gamalt jólalag, „Fairytale Of New York“ með Pogues, hefur verið ritskoðað á bresku útvarpsstöðinni BBC1. Stöðin bannar línuna þar sem söngkonan Kirstly MacColl heit- in syngur orðið „faggot“ eða „hommi“ upp á íslensku, og eins þegar Shane MacGowan kallar MacColl „an old slut on junk“, eða „gamla dópdruslu“. Lagið er í áttunda sæti vinsælda- lista í Bretlandi. re Banna Fairytale Of New York Victoria Beckham segir að í her- búðum kryddstúlkna hafi ætíð verið geysimikil valdabarátta milli Mel B. og Geri. Þegar þær hafi verið ósáttar hafi orðið mikil tilfinningasprenging en um leið og þær náðu sáttum hafi allt fall- ið í ljúfa löð. Þetta er haft eftir frúnni í óútkomnum heimild- arþætti á BBC. bm Krydduð valdabarátta David Beckham kom fram í raun- veruleikaþætti hinn 16. desember á bandarísku sjónvarpsstöðinni E! channel. Rapparinn fór með börnin sín þrjú í fótboltaskóla David Beckhams, sem kenndi þeim að hafa vald yfir boltanum. Eftir þáttinn sagðist Beckham vera mikill rappaðdáandi og það væri frábært að hafa fengið að hanga með Snoop. re Beckham í þætti Snoop Dogg Neil Young mun snúa aftur til Evrópu snemma á næsta ári. Hann mun spila í Þýskalandi, Danmörku, Frakklandi og á Bret- landseyjum. Neil verður í París 14. febrúar, í Frankfurt 24. febr- úar, í Berlín 26. febrúar, í Kaup- mannahöfn 28. og 29. febrúar, í Edinborg 3. mars, í Lundúnum 5., 6., 8. og 9. mars og í Manchest- er 11. og 12. mars. re Neil Young á ferðalagi Hópur stjórnmálafræðinema á leið í námsferð fékk tölvupóst þess efnis að flug þeirra til Íslands frá Baltimore á vormánuðum hefði verið fellt niður. Ástæðan mun vera breyttar áherslur Ice- landair. „Ég fékk áfall þegar ég sá tölvupóstinn því það stóð ekkert í honum að Icelandair myndi finna lausn,“ segir Freyja Oddsdóttir stjórnmála- fræðistúdína og bætir við að nokkurt uppþot hefði orðið innan hópsins. „Við erum löngu búin að panta flug á netinu og þess vegna óþægilegt að fá svona skilaboð.“ Sigríður Helgadóttir, starfs- maður í fjarsöludeild Icelandair, segist ekki vita hve margir hafi nú þegar pantað ferðir sem falla niður vegna breytinganna. „Þetta gerist mjög sjaldan en í lögum flugfélaga er leyfi fyrir slíkum breytingum á áætlun,“ segir Sigríður. Freyja segir að stjórnmálafræðinemar hafi fengið misvísandi skilaboð þegar þeir höfðu samband við Icelandair í kjölfar tölvupóstsins. „Sumum var boðið að bóka tengiflug þeim að kostnaðarlausu en öðrum var sagt að þeir þyrftu að greiða fyrir. Einnig voru nemendur bókaðir á misjöfn tengiflug til Boston en þaðan þurfum við að fljúga heim,“ segir Freyja. „Ef manneskja er á vildarmiða þarf hún að borga tengiflugið en annars reynir Icelandair eftir bestu getu að koma fólki á áfangastað því að kostnaðarlausu,“ segir Sigríður. „Annars skoðum við hverja pöntun fyrir sig og reynum að finna lausn,“ bætir hún við. „Mér finnst þetta frekar mikið klúður og alls kostar óvíst að hópurinn lendi í sama tengiflugi. Samt höfum við þurft að hagræða ferð okkar stjórnmálafræðinema talsvert vegna breytinga innan Icelandair,“ segir Freyja. bjorg@24stundir.is Bandaríkjaferð háskólanema í upplausn vegna breytinga Icelandair Ringlaðir stjórnmálafræðinemar eða eða Gjafakort Kaupflings Gjafakort Kaupþings er fullgilt greiðslukort sem gildir hvar sem er í heiminum og einnig á vefnum. Gefðu Gjafakort með upphæð að eigin vali. Þú getur keypt Gjafakortið í næsta útibúi Kaupþings. Gefðu Gjafakort Kaupþings og leyfðu henni að velja

x

24 stundir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.