24 stundir - 23.02.2008, Síða 16

24 stundir - 23.02.2008, Síða 16
16 LAUGARDAGUR 23. FEBRÚAR 2008 24stundir 24stundir Útgáfufélag: Ritstjóri: Fréttastjórar: Ritstjórnarfulltrúi: Árvakur hf. Ólafur Þ. Stephensen Björg Eva Erlendsdóttir Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir Þröstur Emilsson Elín Albertsdóttir Auglýsingastjóri: Steinn Kári Ragnarsson Ritstjórn & auglýsingar: Hádegismóum 2, 110 Reykjavík Aðalsími: 510 3700 Símbréf á fréttadeild: 510 3701 Símbréf á auglýsingadeild: 510 3711 Netföng: 24stundir@24stundir.is, frettir@24stundir.is, auglysingar@24stundir.is Prentun: Landsprent ehf. Loksins brugðust íslenzk stjórnvöld skjótt og röggsamlega við aðsteðjandi hættu. Fyrir stuttu kom í ljós að fólk sem er mikið á ferðinni til útlanda var búið að „sjá út“ leið til að koma ódýrum mat inn í landið! Tollur á matvælum, sem ferðamenn hafa með sér inn í landið, var ekki nema 125 krónur á kíló umfram þriggja kílóa kvóta, sem fólk má hafa með sér inn í landið tollfrjálst. Brögð voru að því að flugfarþegar roguðu fleiri kílóum af ódýrum mat- vælum handa vinum og vandamönnum inn í landið. Tollstjóraembættið í Reykjavík brá við skjótt og stoppaði þessa ósvinnu um síðustu mánaðamót. Lagði næstum því þúsund króna toll á hvert kíló af kjöti og 757 krónur á kíló af osti. Enda segir á heimasíðu tollstjóraembætt- isins að markmið þess sé að „stuðla að efnahags- og félagslegri velferð ís- lensks samfélags.“ Auðvitað ógnaði innflutningur á ódýrum mat hvoru tveggja. Ísland er dýrasta land í heimi og Íslendingar eru stoltir af því. Hér á matur að vera að jafnaði 50-60% dýrari en í ríkjum meginlandsins og oftast nær tekst að ná því markmiði þegar verðlag er mælt og borið saman á milli landa. Hátt verð á innfluttum mat er líka nauðsynlegt til að vernda undirstöðuatvinnugrein Íslands, landbúnaðinn, sem leggur til 1,3% landsframleiðslunnar. Fulltrúi tollgæzlunnar útskýrir þetta ágætlega í frétt 24 stunda í gær; hugs- unin er sú að allir borgi sama háa verðið, bæði þeir sem sitja heima og kaupa sér innfluttan ost með ofurtolli úti í búð og þeir, sem eru á ferðinni og koma með meira en þrjú kíló af mat í handfarangrinum. Sumir halda því fram að það að fólk leggi á sig að burðast með meira en þrjú kíló af ódýrum mat á milli landa sýni að matarverð sé of hátt hér á landi. Sömuleiðis segja sumir að það að leggja þurfi þúsund króna toll á kíló af kjöti í handfarangri ferða- manna svo það verði álíka dýrt og kjötið í búðunum, bendi til að kjöt sé of dýrt á Íslandi. Þetta er eitthvert hagfræðiþrugl, sem fæstir Íslendingar skilja. Ráðherra neytendamála, Björgvin Sigurðsson, segir í 24 stundum í dag að rýmka eigi um heimildir fólks til að koma með mat og aðra vöru inn í landið. Hann kall- ar það sanngjarnt. Þetta neytendapíp er kannski fallið til pólitískra vinsælda, en þó engin ástæða til að hlusta á það frekar en venjulega. Enda segir aðstoðarmaður fjármálaráðherrans, sem ræður fyrir sköttum, tollum og gjöldum á almenning, að engu eigi að breyta. Íslendingar leggja traust sitt á svona stjórnsýslu. Traust stjórnsýsla SÆKTU LEIÐARANN Á WWW.MBL.IS/PODCAST Loðnuveiðar bannaðar og heilu byggðirnar horfast í augu við gjaldþrot. Við efnahagslífi Ís- lands blasa hugs- anlega mestu erf- iðleikar sem upp hafa komið um alllangt skeið vegna skorts á efnahagsstjórn. Þá er Kastljós Sjónvarps und- irlagt af inni- haldslausum umræðum tveggja stjórnmálamanna um hvort Öss- ur hafi notað rangar myndlík- ingar við að lýsa skoðun sinni á stöðu Gísla Marteins. Restin af pressunni fjallar um þingmann sem spilaði 21. Landsliðsnefnd finnur ekki þjálfara og Íslend- ingar skella sér á Food and Fun. Guðmundur Gunnarsson gudmundur.eyjan.is BLOGGARINN Ísland er best! Það ríkir skrítið ástand í Sjálf- stæðisflokknum í Reykjavík. Vil- hjálmur Þ. Vilhjálmsson er ekk- ert endilega á þeim buxunum að víkja. Hanna Birna Kristjáns- dóttir rær að því öllum árum að verða oddviti í borgarstjórn – það er ekki trú- verðugt þegar hún segist ekki hafa vitað af skoð- anakönnun sem óvænt dúkkaði upp. Heimildir mínar herma að stallsystur Hönnu í flokknum hafi pantað könnunina, þó ekki hún sjálf. Hanna Birna er langt í frá óumdeild í borgarstjórn- arflokknum. Það er ekki víst að hún geti fengið meirihluta... Egill Helgason eyjan.is/silfuregils Skrítið ástand Óábyrgar yfirlýsingar formanns Samfylkingar um að leggja af byggðakvótann eru ekki góðar. Allt slíkt skapar óöryggi og kemur sér illa fyrir þá sem starfa að út- gerð. Ráðaleysi sjávarútvegs- ráðherra við út- hlutun byggða- kvótans kemur sér líka illa og er líka óábyrg vinnubrögð. Þetta mál sýnir enn og aftur hvers kon- ar vinnubrögð tíðkast hjá ráð- herrum ríkisstjórnarinnar. Það sýnir líka að stjórnarflokkarnir blaðra út og suður, lítið samráð virðist eiga sér stað og stefnan er óljós í allt of mörgum mik- ilvægum málum. Magnús Stefánsson magnuss.is Óábyrgt Ólafur Þ. Stephensen olafur@24stundir.is Hver hörmungarfréttin af efna- hagslífi Íslendinga rekur nú aðra. Einn daginn heyrir maður að tiltrú umheimsins á ís- lensku bönkunum sé svo langt undir frostmarki að eina færa leiðin sé að fara með þá úr landi og taka upp evru. Helst strax. Þótt það taki fimm ár. Einn ráðherra vill evru og annar alls ekki. Jón Ásgeir Jóhannesson gefur út yfirlýsingu og leiðréttir sjálfan sig síðar sama dag. Gamla herraþjóðin sendir hverja eiturpilluna á eftir annarri yfir hafið gegnum danska fjölmiðla og fjár- málaspekúlanta. Sama dag og Jón Ásgeir talar um erf- iðleika bankanna spáir sérfræðingur falli á mörkuðum sem ekkert verður af. Næsta dag eru bankarnir sagðir standa sterkt, ekkert ami að þeim annað en pen- ingakreppa umheimsins. En umræðan er óþægileg fyrir almenning sem veit ekkert hvaðan á sig stendur veðrið, hvort á að treysta þessum bankanum eða hinum, þess- um ráðherranum eða hinum, þessari greiningardeild eða engri. „ Hinn almenni Íslendingur þarf ekki að hafa neinar áhyggjur af því að fjármunir hans séu ekki öruggir inni í bankanum, því það eru þeir,“ segir Guð- jón Rúnarsson, framkvæmdastjóri Samtaka fjármála- fyrirtækja. „Innistæður í íslenskum bönkum eru án nokkurs vafa jafn öruggar eða öruggari en í bönkum í nágrannaríkjum. Það segi ég af þeim ástæðum að Ísland fékk forsmekk af kreppunni. Íslensku bankarnir gengu í gegnum litla kreppu fyrir tveimur árum og lögðu mikið á sig til að leiðrétta misskilning sem var ríkjandi um þá, dreifa áhættu, auka innlán á fleiri stöðum, setja egg sín í fleiri körfur. Þetta eru fleiri bankar að gera núna. Erf- iðleikarnir sem steðjuðu að íslensku bönkunum 2006 koma þeim til góða núna,“ segir Guðjón Rúnarsson. Engu að síður er það staðreynd að skuldaálag íslenskra banka er þrefalt og upp í fimmfalt hærra en hjá keppi- nautum í Evrópu. Alltaf að slökkva elda Guðjón segir banka alls staðar vera að skipta úr fjórða niður í fyrsta gír, einbeita sér að því að styrkja kjarna- rekstur sinn og halda utan um það sem þeir hafa. Hér hafi verið gerð álagspróf á íslensku bönkunum um hvað gerist fari allt á versta veg. Engin ástæða sé fyrir fólk að fara á taugum, en mikilvægt sé fyrir fjármálageirann að reyna að koma skýrum skilaboðum um styrk bankanna Stjórnlaus efnahagsumræða SKÝRING Hamraborg 14 sími 554 4200 Opið: Mánud - Laugard: 08:00 - 18:00 Laug: 08:00 - 16:00 Sunn: 09:00 - 16:00 Dalvegi 4 sími 564 4700 Opið: Mánud.-Föstud. 06:00 - 18:00 Laug. 06:00 - 17:00 Sunn. 07:00 - 17:00

x

24 stundir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.