24 stundir - 23.02.2008, Side 28

24 stundir - 23.02.2008, Side 28
28 LAUGARDAGUR 23. FEBRÚAR 2008 24stundir Einhvern tíma – og kannski er skemmra í það en margir trúa – þá mun fjármálakreppan 2008 ekki vera annað en gömul og heldur óþægileg en fyrst og fremst frekar óljós minning. Svo maður leiti aftur í söguna, þá gerðist nákvæmlega það sama fyrir réttum 100 árum. Þegar Íslendingar fengu heima- stjórn árið 1904 færðist gífurlegur þróttur í íslenskt efnahagslíf. Sama ár tók Íslandsbanki til starfa og peningamagn í umferð jókst stór- lega. Uppbygging á öllum sviðum var mikil. Gjörsamlega gleymd Sú uppbygging var þó líkast til ívið of hröð því fyrir nákvæmlega 100 árum var skollin á fjármála- kreppa. Einhverjir höfðu reist sér hurðarás um öxl. Árið 1908 ríkti svartsýni og bölmóður – nokkur þeirra fyrirtækja sem mest umsvif höfðu tóku að riða. Þetta var vitanlega óskemmtileg- ur tími fyrir þá sem mest áttu und- ir sveiflunum í efnahagslífinu. Allt á leiðinni á hvínandi kúp- una! En hvað gerðist? Jú, kreppan rann sitt skeið á furðu skömmum tíma; menn lærðu fljótt að fóta sig í hinu nýja efnahagsumhverfi. Og hvað stendur eftir í sögubók- unum? Jú, þar er fjallað um þann mikla þrótt sem fylgdi heimastjórninni, uppganginn, góðærið, nútímavæð- ingu, blómstur í haga … og svo framvegis. Kreppan 1908 er gjörsamlega gleymd. Maður þarf að leita ansi vel í sagnfræðiritum til að finna hana. Hún skipti bara engu máli þegar upp var staðið. Kreppan mikla Á sama hátt er ég eiginlega viss um að kreppan 2008 verður í fram- tíðinni ekki annað en neðanmáls- grein í sagnfræðibókum. Jú, þeir sem mest urðu fyrir barðinu á henni munu vitaskuld minnast hennar með skelfingu – en öll rannsókn á sögunni kennir okkur að þetta séu ekki annað vaxtarverk- ir. Sem líði hjá fljótar en nokkurn órar fyrir. Meira að segja kreppan mikla um 1930 hefði ekki þurft að verða svo langvinn sem raun bar vitni – rannsóknir hinna virtustu hag- fræðinga og annarra spekúlanta hníga nú allar í þá átt að kreppan hafi orðið svo djúp sem raun bar vitni fyrst og fremst af því menn brugðust svo rangt við henni. Gerðu ýmist ekki neitt – eða allt- of mikið – ég kann ekki að útlista það nánar – látum það bara gott heita. Niðurstaðan er altso sú að ef menn hefðu kunnað sitt fag hefði kreppan þá ekki orðið mikið mál. Hún væri næstum gleymd, rétt eins og kreppan á Íslandi 1908. Raunverulegur vandi Sem virtist svo alvarleg en reyndist fljótlega ekki vera annað en svolítið bakslag í seglin. Og skammvinnara en nokkur trúði meðan á því stóð. Svo kom aftur byr og siglingin hélt áfram. Því ættum við ekki að fara á taugum þó um stundarsakir kreppi svolítið að. Heldur bara bíta á jaxlinn og muna eftir ,,kreppunni 1908“. Þetta er kannski ábyrgðarlaust. Víst veit ég að vandinn er raun- verulegur. Bankarnir virðast vera í undarlegum vandræðum. Skrýtið ef satt er að aftur hafi þeir látið grípa sig í bólinu og breiða út um sig sögur sem eigi sér ekki stoð; þeir hefðu átt að læra sína lexíu fyrir fáeinum misserum þegar hart var að þeim sótt en þeir stóðu það af sér með sóma. En virðast ekki hafa gætt þess að viðhalda upplýsingaherferðinni sem þá var farin. Hlakkandi Víst veit ég líka að fjölmörg fyr- irtæki eiga í vanda með að standa við skuldbindingar sínar. Einhver þeirra munu eflaust lenda illilega upp á kant við tilveruna. (Skrýtið annars hvað sumir virðast nánast hlakkandi yfir því. Hæhæhæ, gott á þessa græðg- ispésa, við munum bara hafa gott af því að fá almennilega kreppu, þá verðum við öll svo andlega hugs- andi, og förum að huga að því sem raunverulega skiptir máli – hvílíkt bull!) En þó það megi víða reka mig á gat í peningamálum og efnahags- reikningi, þá trúi ég því einfaldlega ekki að við séum neitt nálægt því að fara á hvolf í einhverjum skiln- ingi. Þótt greitt hafi verið gengið um gleðinnar dyr, þá held ég að undirstöðurnar séu þrátt fyrir allt traustar – og sá tími komi fyrr en nokkurn órar fyrir að kreppan 2008 verði í minningunni jafn lítið mál og kreppan 1908. Kreppan 1908 og aðrar kreppur aIllugi Jökulsson skrifar um kreppur ,,Hæhæhæ, gott á þessa græðgispésa, við munum bara hafa gott af því að fá almenni- lega kreppu, þá verðum við öll svo andlega hugsandi Kreppan 1908 Gjörsamlega gleymd. Fallegt einbýlishús til sölu ásamt tvöföldum bílskúr á Eyrarbakka Um er að ræða fasteign sem er 201 fm. Einbýlishús 145 fm og bílskúr 56,3 fm. Komið er inn í bjart og rúmgott flísalagt anddyri og inn af því er góð geymsla. Því næst er komið inn í sjónvarpshol. Gegnheilt fallegt parket á gólfi. Svefnherbergis- gangi er hægt að loka af, þar inni eru 3 barnaherbergi parketlögð og hjónaherbergi með spónaparketi. Baðherbergi er einnig á gangi, nýlega tekið í gegn, flísalagt í hólf og gólf, hiti er í gólfi. Stofan er stór og björt, hátt til lofts (upptekið). Út frá stofu er gengið út í garð þar er pallur og mjög gróinn og fallegur garður. Eldhúsið er með glænýrri innréttingu, hvít fulningainnrétting og gaseldavél, glæsileg í alla staði. Inn af eldhúsi er þvottahús og búr og yfir búrinu er geymsluloft. Bílskúrinn er tvöfaldur og mjög rúmgóður og góð aðkoma að honum. Húsið er staðsett í botnlanga í mjög rólegu og grónu hverfi. Stutt er í þá þjónustu sem er á staðnum svo sem verslun, leik- og barnaskóla. Hagstætt lán áhvílandi. Eggert Sk. Jóhannesson, Jóhannes Eggertsson, Ólafur Thoroddsen hdl. Nánari upplýsingar veitir Fasteignasalan Eignaver Sími 553-2222 • eignaver.is Síðumúli 13 • 108 Reykjavík Einbýlishúsið við Túngötu 3, Eyrarbakka til sölu

x

24 stundir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.