24 stundir - 23.02.2008, Page 63

24 stundir - 23.02.2008, Page 63
24stundir LAUGARDAGUR 23. FEBRÚAR 2008 63 KONUKAKA ÁRSINS FRÁ SANDHOLT DÁSAMLEGA GÓÐ OG FÖGUR Ljúffengur möndlubotn með hindberja-, sítrónu- og vanillu-skyrmousse, hjúpuð með hindberjahlaupi og skreytt með hindberjamarengs og ferskum hindberjum. F A B R I K A N Jennifer Lopez og Marc Anthony eru sögð í skýjunum eftir að þau eignuðust tvíbura sína í fyrradag. „Jennifer og Marc eru yfir sig ánægð. Algjörlega í skýjunum yf- ir þessu,“ sagði Simon Fields, umboðsmaður Jennifer, í viðtali í gær. Fæðingin mun hafa átt sér stað á lúxus-spítalasvítu þar sem ekkert var til sparað og heill her af aðstoðarfólki til taks. Heim- ildir herma að parið hafi hug á að skíra börnin Max og Emme. hþ Í skýjunum eftir fæðinguna Þær sögur ganga nú fjöllunum hærra að hjartaknúsarinn George Clooney vilji ólmur eignast barn með kærustu sinni, Söruh Lar- son. Clooney hefur sem kunnugt er verið þekktastur fyrir ærsla- fullt piparsveinalíf síðustu árin, en hefur nú afráðið að venda kvæði sínu í kross og stofna fjöl- skyldu. hþ Clooney vill stofna fjölskyldu Ef marka má nýjasta afrek Amy Winehouse er lítið til í sögum þess efnis að hún sé edrú. Starfs- fólk Plaza hótelsins í London rak í rogastans eftir síðustu helgi, en þar hafði hún setið að sumbli með vini sínum og var aðkoman vægast sagt slæm. Allt var þakið sígarettustubbum og áfeng- isflöskum auk þess sem laga þurfti gólfið í herberginu. hþ Amy rústar hótelherbergi Að sögn Colins Firth fær hann ekki frið fyrir eldri konum. Leik- arinn, sem nú er 47 ára, segist ánægður með vinsældir sínar meðal eldri kvenna og líkar vel að eiga aðdáendur á sjötugsaldri. „Ég veit um veika konu sem var bannað að horfa á myndir með mér á spítalanum af ótta við blóðþrýstinginn. Hún var 103 ára,“ sagði Colin. hþ Með aðdáendur á sjötugsaldri Unnar Arnalds er partíspilari með mikla sér- stöðu því að auk gítars spilar hann líka á Havaí- hljóðfærið úkúlele. Hann heldur úti heimasíð- unni Dvergatuddinn á slóðinni www.raun- vis.hi.is/~uba/tuddinn/ sem er söngbók með gítar- og úkúlelegripum sem verður að teljast fengur fyrir alla partíspilara. Fjölbreytnin í laga- vali mikil, en þar eru Britney Spears, Bubbi og allt þar á milli. „Ég byrjaði með þessa síðu árið 2000, og það var svona mest fyrir mig því ég var að æfa mig á gítar,“ segir Unnar. „Ég safnaði lögum með gít- argripum og ákvað að setja þau upp í bók- arformi sem hægt væri að prenta. Svo keypti ég mitt fyrsta úkúlele fyrir um ári og þá bættust úkúlelegripin við. Ég setti úkúlelegripin líka inn til að auglýsa það hljóðfæri því það eru allt of fáir sem hafa heyrt um það. Allir eiga nátt- úrulega að spila á úkúlele.“ Áhuginn vaknaði þegar Unnar fékk að prófa hljóðfærið og fannst létt og skemmtilegt að spila á það. „Það er miklu auðveldara að grípa í úkúlele en gítar. Það heyrist lægra í því, og svo eru bara fjórir strengir.“ Þegar Unnar er spurð- ur hvort hann spili Bubba-lögin á úkúlele í partíum, segist hann meira gera það fyrir sjálfan sig. „Úkúlele er fyrir lágstemmd partí, en þegar allir eru orðnir sjóðandi fullir þarf hávaða og þá er gítarinn nú betri.“ Að lokum verður Unnar að svara því hvað í ósköpunum dvergatuddi sé. Þá kemur í ljós að „Fleskmangarinn og dverga- tuddinn“ hafi verið lag með hljómsveitinni Bag of Joys, en Unnar var einmitt í henni. heida@24stundir.is Gítar- og úkúlelegrip fyrir Eurovision-partíið Allir eiga að spila á úkúlele Árvakur/Sigurður Jökull Unnar Hér er hljómsveitin Bag of Joys á góðri stundu en Unnar spilaði á bassa og hljómborð

x

24 stundir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.