24 stundir - 01.03.2008, Blaðsíða 4
Eftir Frey Rögnvaldsson
freyr@24stundir.is
Fjöldi fyrrverandi félagsmanna í
Mjólkursamsölu Reykjavíkur gæti
átt rétt á auknum greiðslum úr sér-
eignarsjóði samsölunnar. Fjárhæð-
irnar gætu hlaupið á tugum og
jafnvel hundruðum milljóna.
Ólögmætar breytingar
Dómur féll í Héraðsdómi
Reykjavíkur 27. febrúar síðastlið-
inn í máli sem félagsbúið á Hálsi
höfðaði gegn Auðhumlu, áður
Mjólkursamsölunni. Forsaga máls-
ins er sú að fjölda félagsmanna í
Mjólkursamsölunni var gert að
innleysa séreign sína í séreignar-
sjóði með breytingum á lögum fé-
lagsins árið 2002. Í dómi héraðs-
dóms segir að þær breytingar hafi
verið ólögmætar og hafi valdið því
að félagsbúið á Hálsi hafi orðið fyr-
ir fjárhagslegu tjóni enda hafi verið
aukið verulega við fjármagn í sér-
eignarsjóðinn, fyrst um 550 millj-
ónir árið 2004 og aftur um 1,5
milljarða árið 2006.
Vildu ekki inleysa sína eign
Jón Gíslason, bóndi á Hálsi, seg-
ist fagna dómnum. „Við köllum
þetta ippon-dóm því það er allt
dæmt okkur í vil. Ákvörðunin er
dæmd ólögleg og þar með erum
við ennþá aðilar að félaginu og eig-
um að okkar mati fulla aðild að öll-
um þeim fjármunum sem hafa
bæst í sjóðinn með aukningu á
stofnfénu. Við vildum aldrei inn-
leysa okkar séreign á þessum tíma
enda vissum við eins og allir að
stefnan væri sú að auka fjármagn í
sjóðnum. Þessir fjármunir voru svo
sannarlega til komnir vegna okkar
viðskipta ekki síður en annarra.“
Býðst til að innheimta
Sigurbjörn Magnússon hæsta-
réttarlögmaður sem sótti málið
fyrir búið á Hálsi segir málið vera
fordæmisgefandi fyrir alla bændur
sem eru í samsvarandi stöðu.
„Þessi dómur þýðir að allir þeir fé-
lagar sem voru tilneyddir til að
innleysa séreign sína úr sjóðnum
og urðu með því fyrir fjárhagslegu
tjóni, eiga rétt á sömu aukningu á
sinni séreign og þeir sem áfram
voru aðilar að sjóðnum.“
Sigurbjörn segir ljóst að hundr-
uð manna séu í þessari stöðu. „Ég
fer með mál fyrir nokkra bændur
sem eru í sömu stöðu og Jón. Það
er ljóst að þessir aðilar eiga inni
umtalsverðar fjárhæðir hjá Auð-
humlu ef dómurinn stendur. Þær
gætu í heildina numið einhverjum
hundruðum milljóna. Ef þessi
dómur verður staðfestur í Hæsta-
rétti þá mun ég hafa samband við
þá aðila og bjóðast til að innheimta
fyrir þá þeirra inneign.“
Dómnum líklega áfrýjað
Guðbrandur Sigurðsson, fram-
kvæmdastjóri Auðhumlu, segir all-
ar líkur á því að dómnum verði
áfrýjað. Guðbrandur sagðist að-
spurður ekki vita um hversu mikla
fjármuni gæti verið að tefla ef
dómurinn stendur. „Við vitum
ekki hversu margir aðilar eru í
þessari stöðu en þeir gætu verið
nokkur hundruð. Hins vegar eiga
sumir þeirra mjög lágar upphæðir í
sjóðnum. Við höfum ekki farið yfir
hversu miklar fjárhæðir getur verið
um að ræða, enda erum við ósam-
mála dómnum og bíðum bara og
sjáum til.“
HVAÐ VANTAR UPP Á?
Hringdu í síma 510 3700 eða
sendu póst á 24@24stundir.is
Hundruð millj-
óna til bænda?
Breytingar á lögum Mjólkursamsölu í Reykjavík voru ólöglegar
Fjöldi bænda gæti átt kröfu á háum fjárhæðum úr séreignarsjóði
➤ Með breytingu á lögumMjólkursamsölunnar árið
2002 fækkaði séreignarsjóðs-
félögum úr 1346 í 769.
➤ Fyrir breytinguna var sjóðs-félögum heimilt að ávaxta
eign sína í tíu ár eftir að þeir
hættu að leggja inn afurðir í
Mjólkursamsöluna.
➤ Áður hefur fallið dómur í máligegn Auðhumlu sem sneri að
sama máli. Sá dómur var ekki
talinn fordæmisgefandi.
SÉREIGNARSJÓÐUR
24 stundir/Kristinn
Mjólkursamsalan Auðhumla
sem áður var Mjólkusamsalan í
Reykjavík braut á bændum.
4 LAUGARDAGUR 1. MARS 2008 24stundir
Kvartanir almennings til Land-
læknis vegna heilbrigðisþjónustu
árið 2007 voru 274 eða þremur
fleiri en árið 2006. Af 209 málum
sem lokið var um miðjan febrúar
nú í ár hafði 71 mál verið staðfest
að hluta eða öllu leyti, að því er
segir á fréttavef embættisins.
Einn heilbrigðisstarfsmaður var
sviptur starfsleyfi árið 2007. Tutt-
ugu fengu aðfinnslu og tveimur
var veitt lögformleg áminning í
framhaldi kvörtunarmáls.
ibs
274 kvartanir til
Landlæknis
Neytendasamtökin eru frjáls félagasamtök: stofnuð árið 1953. Þau
verja hag félagsmanna og berjast fyrir hagsmunum neytenda.
Sjá www.ns.is - netfang:ns@ns.is
Neytendasamtökin könnuðu að þessu sinni verð á Ar-
iel colour þvottaefni 2,85 kg. Hæsta verð reyndist vera
49,7% hærra en það lægsta eða 495 króna munur.
Athygli vekur að verðið var lægst í Fjarðarkaup en
ekki þeirri lágvöruverðsverslun sem er með í könn-
uninni.
Óheimilt er að vitna í könnunina í auglýsingum.
50% munur á Ariel Colour
Jóhannes
Gunnarsson
NEYTENDAVAKTIN
Ariel colour þvottaefni 2,85 Kg.
Verslun Verð Verðmunur
Fjarðarkaup 995
Kaskó 1.079 8,4 %
Melabúðin 1.098 10,4 %
Hagkaup 1.395 40,2 %
Nóatún 1.398 40,5 %
Samkaup-Úrval 1.490 49,7 %
Vor í lofti
Laugavegi 51 - sími 552 2201
2008
Fallegt einbýlishús til sölu ásamt tvöföldum bílskúr á Eyrarbakka
Um er að ræða fasteign sem er 201 fm. Einbýlishús 145 fm og bílskúr 56,3 fm.
Komið er inn í bjart og rúmgott flísalagt anddyri og inn af því er góð geymsla. Því
næst er komið inn í sjónvarpshol. Gegnheilt fallegt parket á gólfi. Svefnherbergis-
gangi er hægt að loka af, þar inni eru 3 barnaherbergi parketlögð og hjónaherbergi
með spónaparketi. Baðherbergi er einnig á gangi, nýlega tekið í gegn, flísalagt í
hólf og gólf, hiti er í gólfi. Stofan er stór og björt, hátt til lofts (upptekið). Út frá
stofu er gengið út í garð þar er pallur og mjög gróinn og fallegur garður. Eldhúsið
er með glænýrri innréttingu, hvít fulningainnrétting og gaseldavél, glæsileg í alla
staði. Inn af eldhúsi er þvottahús og búr og yfir búrinu er geymsluloft. Bílskúrinn
er tvöfaldur og mjög rúmgóður og góð aðkoma að honum. Húsið er staðsett í
botnlanga í mjög rólegu og grónu hverfi. Stutt er í þá þjónustu sem er á staðnum
svo sem verslun, leik- og barnaskóla.
Hagstætt lán áhvílandi.
Eggert Sk. Jóhannesson, Jóhannes Eggertsson, Ólafur Thoroddsen hdl.
Nánari upplýsingar veitir
Fasteignasalan Eignaver
Sími 553-2222 • eignaver.is
Síðumúli 13 • 108 Reykjavík
Einbýlishúsið við Túngötu 3,
Eyrarbakka til sölu